Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995
Fréttir
Stefnir 1 að ríkisspítalamir greiði 1,6 milljónir til sjónvarpsstöðvanna:
Spítalamir fá allt að
75% afslátt af áskrift
- Bubbi greiðir tímabundið áskrift fyrir bamadeild og Skífan fyrir krabbameinsdeild
Tilboð það sem Stöð 2 hefur gert
ríkisspítulunum um áskrift að dag-
skrá Stöðvarinnar hljóðar upp á um
800 þúsund krónur á ári, að sögn
Kristjáns Antonssonar hjá inn-
kaupadeild Landspítalans. Þar er
aðeins um að ræða 25 prósent af
fuliri áskrift. Áskriftargjöldin felast
í þvi að á Landspítalanum, Vífilsstað-
aspítalanum og Kleppsspítalanum
eru 83 sjónvarpstæki, þar af 61 á
Landspítalanum.
Ríkissjónvarpið krefur ríkisspítal-
ana um sömu upphæð og Stöð 2-800
þúsund krónur. Þar er einnig um
mjög mikinn afslátt að ræða. Ríkis-
spítalamir standa engu að síður
frammi fyrir því í dag aö taka
ákvörðun um að verja 1,6 milljónum
k'róna í sjónvarpsáskriftir.
Kristján sagði að spítalamir hefðu
greitt Stöð 2.300 þúsund krónur í
áskrift á síðasta'ári en munurinn á
þeirri upphæð og tilboðinu felst í þvi
að Stöð 2 gaf áskrift til Landspítalans
á síðasta ári en ekki nú, samkvæmt
yfirstandandi samningaviðræðum.
Kristján sagöi að vissulega væru
800 þúsund krónur miklir peningar
á meðan spítalinn er í mikiili íjár-
þörf. Hann sagðist hafa lagt málið
fyrir framkvæmdastjórn spítalanna
sem mun taka ákvörðun um hvort
þeir verði í áskrift að Stöð 2 eða ekki.
í yfirlýsingu, sem Jafet Ólafsson
útvarpsstjóri hefur sent til DV, kem-
ur fram að samningaviðræður Rík-
isspítalanna og íslenska útvarpsfé-
lagsins séu vel á veg komnar. Á með-
an þeim sé ólokið hafi Bubbi Mort-
hens boðist til að greiða áskrift að
stöðinni fyrir Barnaspítala Hrings-
ins en Skífan til að greiða áskrift fyr-
ir Krabbameinsdeild Landspítaians.
Þar segir jafnframt að félagið von:
ist til að samningum verði lokið á
allra næstu dögum þannig að sjúkl-
ingar og starfsfólk Ríkisspítalanna
geti notið dagskrár Stöðvar 2 auk sjc
erlendra stöðva sem Fjölvarpið býð-
ur upp á.
-Ótt
Viðbrögð myndbandaleigu eflir frétt DV um lokun fyrir Stöð 2 á Landspítalanum:
Af henti sjúku börnunum
ókeypis myndbandsef ni
fá ótakmarkað efni þangað til Stöð 2 kemur aftur og jafnvel lengur
Mikil gleði rikti hjá börnum og foreldrum á barnadeildinni í gær þegar Hinrik Auðunsson, til hægri, frá myndbanda-
leigunni afhenti myndbandsspólurnar. Arnar Ingi, 5 ára, og Arnar, 9 ára, urðu strax uppteknir við að skoða spól-
urnar. Með þeim á myndinni er Anna Sigriður Jónsdóttir, móðir Arnars Inga. DV-mynd JAK
„Þegar við sáum fréttina um börn-
in í DV í fyrradag ákváðum viö að
lána spítalanum spólur, sérstaklega
bamadeildinni. Ég á böm sjáifur og
þau geta lent í því að veikjast eins
og börnin hér. Það er um að gera aö
hafa bömin ánægð,“ sagði Hinrik
Auðunsson, hjá myndbandaleigunni
Svarta Svaninum, þegar börnunum
á bamadeild Landspítalans var-af-
hentur fjöldi myndbanda til að horfa
á á meðan Stöð 2 er rugluð á spítalan-
um.
Spítahnn getur fengið eins margar
spólur endurgjaldslaust og óskað
verður eftir á meðan Stöðvar 2 nýtur
ekki við, jafnvel eitthvað lengur ef
þörf verður á.
Eins og fram kom í DV á miðviku-
dag sögðu foreldrar, m.a. krabba-
meinssjúkra bama, að löng lega
barnanna væri það erfið og þjáning-
arfull fyrir alla að bagalegt væri að
hafa ekki Stöð 2 sem hefur verið mgl-
uö frá 10. júní þar sem ríkisspítalam-
ir standa nú í samningaviðræðum
við sjónvarpsstöðina um heildar-
samning.
Mikil ánægja ríkti hjá bömum, for-
eldriim og starfsfólki í gær þegar
Hinrik kom með fjölda myndbanda,
bæði fyrir böm og fullorðna, á bama-
deildina. Fleiri sjúklingar á spítalan-
um eiga væntanlega eftir að njóta
efnisins á samtengdu kerfi.
„Þetta hefur mikla þýðingu og gleð-
ur bömin, þau hafa nú meiri afþrey-
ingu,“ sagði Kristín Einarsdóttir,
starfsmaður á barnadeildinni, við
DV í gær.
„Bömin hafa leikstofu sem sum
þeirra geta farið á. En það koma oft
dagar sem þau komast ekkert út af
stofunum og em í einangran. Þá er
mikilsvert að börnin geti horft á
myndbönd og hafi afþreyingu þar,“
sagði Kristín.
„Þetta er vel þegið. Það verður aö
segjast eins og er að þættimir á ríkis-
sjónvarpinu era heldur fáir sem
bömin horfa á,“ sagði faðir 13 ára
krabbameinssjúklings þegar Hinrik
afhentimyndbandsefnið. -Ótt
Þú getur svaraó þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. minútan.
Jé 3
Nei Z\
r ö d d
904-1600
||
Eiga íslendingar að fara á
kvennaráðstefnu i Kína?
Alllr I >tatfan» ktfflnu w«tt g«t« wýtt »tr þe$»a frjónuttu.
Nýrnaskiptin í Boston
gengu vel í gær
„Ég frétti af þeim eftir að aðgerð-
inni lauk og hún virðist hafa gengið
vel. Móðuramman, Ásta Steinsdóttir,
var vöknuð eftir svæfinguna og hún
virtist hress eftir að hafa gefið úr sér
annað nýrað. Stelpan var enn í svefni
en mér skilst að hún hafi skilað af
sér þvagi og nýrað virðist því virka
eins og til er ætlast," sagði Kristín
Svavarsdóttir, föðuramma nýrna-
þegans í Boston, en DV leitaöi í gær-
kvöldi eftir upplýsingum um hvemig
nýmaskiptin hefðu gengið.
Næstu dagar og vikur munu skera
úr um það hvemig Ásta Ámadóttir
tekurnýjanýranu. -sv
Stuttarfréttir dv
Stærri verksmiðja
Verið er að kanna hvort hag-
kvæmt reynist aö stækka Jám-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga, samkvæmt Tímanum.
Eftsrsótt hiutabréf
Hlutabréf í Lyfjaverslun ís-
lands hækkuðu í verði í gær þeg-
ar tilboð bárust í gegnum verð-
bréfafyrirtækið Landsbréf. Geng-
ið fór í 1,67 en lítið var selt af
bréfunum, eða fyrir 311 þúsund
krónur.
Nýjar plöntur
Þijár nýjar plöntur hafa fundist
í Surtsey. Samkvæmt Mbl. er um
að ræða hvítmööru, mýrasef og
grasvíði.
Græntljóshjá EFTA
Eftirlitsstofnun EFTA veitti ís-.
lenskum stjórnvöldum leyfi fyrir
styrkjum til innlendrar skipa-
smíði í gær. Þetta er fyrsta græna
ijósið af þessu tagi sem EFTA
veitir íslendingum.
Humar í Þorlákshöfn
Humarvertíðin í Þorlákshöfn
er lítiö lélegri í ár en undanfarin
ár. Samkvæmt RÚV er humarinn
stærri en áður.
Þorlákur helgi
Stytta af Þorláki helga, vemd-
ardýrlingi íslendinga, var afhjúp-
uð í Kristskirkju í gær.
Flutningur undirbúinn
Undirbúningur flutnings
grunnskólans frá ríki til sveitar-
félaga er á lokasprettinum, að
sögn Eiríks Jónssonar, formanns
KÍ, í Tímanum.
Tvö prósent verðbólga
Byggingarvísitalan hefur und-
anfama þrjá mánuði hækkað um
0,5%. Það jafngildir 2 % verðbólgu
á ári. Ný byggingarvísitala er
204,6 stig.
Nýlaunavisitala
Launavísitalan júnfmánaðar
hefur verið reiknuö út hjá Hag-
stofunni. Mælist hún 139,6 stig
eða 0,6% hærri en í fyrra mánuði.
ÍS-húsið rís hratt
Nýbygging íslenskra sjávaraf-
urða rís hrattþessa dagana, Sam-
kvæmt Mbl. verður húsið tekið í
notkun í september en fram-
kvæmdir hófust í apríl sl.
Kvartað yfir Emerald
Tvær íslenskar ferðaskrifstofur
hafa hætt viðskiptum við írsk-
íslenska flugfélagið Emerald Air.
Samkvæmt RÚV hafa flugáætl-
•anir staðist illa og farþegar oft
ekki vitað frá hvaða flugvöllum
flogið er.
100milljónabætur
Reykjavíkurborg hefur greitt
tæpar 100 milljónir króna í húsa-
leigubætur á þessu ári. Sam-
kvæmt Mbl. hafa umsóknir verið
1.995 talsins.
Héraösdómur Reýkjavíkur
hafnaöi í gær kröfu eigenda Kaffi
Reykjavíkur um lögbann á starf-
semi veitingahússins Óöals og
staðfesti þar með synjun sýslu-
manns. Málið fer að öllum líkind-
um fyrir Hæstarétt
Davíð hitti ESB-mann
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hitti í gær sendiherra Evr-
ópusambandsins, ESB, á íslandi,
Aneurin Rhys-Hughes sem stadd-
ur er hér á landi. Samkvæmt
Mbl. ræddu þeir málefni íslands
ogESB. -bjb