Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 9 r>v Stuttar fréttir Morðhótun endwnýjuð Uppreisnarmenn í Kasmir hafa endurnýjaö hótim sína um að drepa fimm vestræna feröamenn sem þeir hafa í haldi. ÞrýstáKina Bandaríkja- þing samþykkti meö miklum meirihluta að hvetja Clinton forseta til að þrj'sta á kín- versk . stjórn- völd um að bæta nú ráö sitt i mannréttinda- málum. Föngum verður sieppt ísraelsmenn ætla aö sleppa allt að þúsund palestinskum íongum þegar samningur við PLO um aukna sjálfstjórn verður undir- ritaður. Salinasábakviðmord Helsta vitni saksóknara í rann- sókn á morðinu á háttsettum Ieið- togastjórnarflokks Mexikós segir að Salinas, fyrrum forseti, hafi staðiðábakviðmorðið. Reuter Útlönd Leikarinn Charlie Sheen fyrir rétti 1 Los Angeles: Keypti 20 sinn- um hórur af Heidi Bandaríski kvikmyndaleikarinn Charlie Sheen, stjama mynda á borð við Wall Street og Platoon, leigði sér um tuttugu sinnum vændiskonur frá hórumömmunni Heidi Fleiss á árun- um 1991 og 1993 og borgaði að minnsta kosti tvö þúsund dollara í hvert skipti fyrir „gagnkynhneigða þjónustu" eins og það er orðað. Þetta kom fram í vitnisburði leik- arans við réttarhöldin yfir Heidi í Los Angeles í gær en Heidi sá fræga og ríka fólkinu fyrir leikfélögum með vændisþjónustu sinni. Ekki mætti Sheen þó sjáifur í réttarsalinn heldur var vitnisburður hans á myndbands- upptöku. Þar viðurkenndi hann að sex ávisanir upp á samtals 13.500 dollara væru frá honum komnar. Charlie Sheen Annars greiddi hann vændiskonun- um í reiðufé. Eitthvað var leikarinn óstyrkur fyrir framan myndavélina því hann þurfti að þurrka svitann af enni sér á meðan á upptökunni stóð. „Ég bið fjölskyldu mína, tilvonandi eiginkonu og nána vini mína fyrir- gefningar fyrir vandræðin sem þess- ir atburðir kunna að hafa valdið. Ég legg ekki fram neina aðra skýringu á gjörðum mínum, aðeins sannleik- ann,“ sagði í afsökunarbeiðni leikar- ans sem talsmaður hans las fyrir utan dómhúsið. Shana Fleiss, systir Heidiar og eitt aðalvitna sækjenda í málinu gegn hórumömmunni, var snupruð fyrir að sýna réttinum óvirðingu þegar hún sveik loforð um að bera vitni. Hún verður í stofufangelsi þar til hennisnýsthugur. Reuter r Nýtt ^ kvöldverðartilboð 21/7-27/7. Sjávarsúpa Vestfirðingsins Heilsteikt nautafillet með bernaisesósu Kaffi Kr. 1.995 Opið í hádeginu mánud-löstud. Öll kvöld vikunnar Oplð: í hádeginu mánud.-föstud. Opið öll kvöld vikunnar /0 Guíín(ffamm) ^—•' Laugavegi 178, ^ s. 588 9967 S Leikkonan Julia Roberts svarar spurningum blaðamanna fyrir frumsyningu nýjustu myndar hennar, Something To Talk About, sem fram fór í Museum of Modern Art i New York í gærkvöldi. Símamynd Reuter Oliuævintýri Færeyinga: Segulrannsóknir gerðar í flugvél Færeyingar færast skrefi nær olíu- ævintýri sem gerbreytt gæti efnahag þjóðarinnar. A miðvikudag hóf hið ástralska fyrirtæki World Geosci- ence Corporation segulrannsóknir úr lofti á hafsvæðinu vdð eyjamar. Niðurstöður úr þessum rannsókn- um, ásamt niðurstöðum rannsókna bandarísks fyrirtækis, munu hjáipa til vdð að kortleggja stærð þeirra svæða þar sem möguleiki er á að finna olíu. Búist er vdð að hægt verði að framkvæma tilraunaboranir vdð Færeyjar 1997. Þegar hafa fundist miklar olíulindir á bresku svæði þar sem hafsvæði Færeyja og Hjaltlands- eyja mætast. Auk olíunnar binda Færeyingar vonir vdð skuldbreytingar á lánum sem tekin hafa verið í Danmörku. Segja sérfræðingar að spara megi tugmilljónir króna með því að greiða þau lán upp með lánum sem tekin verði á alþjóðlegum lánamarkaði þar sem vextir eru lægri. HJÓLREIÐADAGUR Hjólreiðadagur Fjölnis f Grafarvogi laugardaginn 22. júlí Kl. 10:00 - 18:00 Rei&hjólasala í Fjölnisheimilinu viö Dalhús Mongoose fjallahjól og reiShjólavörur fró G.A. Péturssyni verSa til sölu ó sérstöku tilboSsverSi. ReiShjólavirlci stilíir reiSnjól þótttakenda ókeypis og veitir holl róS varSandi umhirSu. Kl. 12:00 - 13:30 Hjólreiöaferð fró Fjölnisheimilinu Allir Grafarvogsbúar sem reiShjóli geta valdiS eru hvattir til aS hjóla um Grafarvoginn í fylgd meS kunnugum leiSsögumönnum, félögum úr íslenska fjallahjólaklúbbnum og lögregluþjónum ó reiShjólum. Kl. 13:30 - 15:30 Grillveisla viö Gullinbrú HjólreiSaferSinni lýkur meS grillveislu sem Olís býSur til ó bensínstöSinni viS Gullinbrú. Kl. 14:00 - 14:30 Fjallahjólasirkus viS GuElinbrú Snillingar sýna ótrúlegar hjólakúnstir ó planinu viS bensínstöS Olís. Kl. 16:00 - 18:00 Mongoose þrautakeppni á malarvelli Fjölnis Keppt verSur ó afmörkuSum hindranabrautum bar sem reynir ó leikni og jafnvægi. Einföld stigagjöf ræSur úrslitum. Keppendum verSur skipt í tvo flokka, 8-12 óra og 13 óra og eldri. Nónari upplýsing- ar og skróning í keppnina verSa ó bensínstöS Olís viS Gullinbrú, föstuaag og laugardag. Vegleg verölaun MUNIÐ EFTIR HJÁLMUNUM SJOVADloALMENNAR Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.