Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1995, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
Stuttar
Utlönd
I gáfumannaféiag
Þriggja ára bresk stúlka, RIii-
annon Linington-Payne, er
yngsta manneskjan sem hefur
verið tekin í Mensu, félagsskap
fólks meö háa greindarvísitölu.
Sádi-Arabar sitja fastir viö sinn
keip og halda áfram að háls-
höggva glæpamenn, þrátt fyrir
þrýsting um aö hætta þvi :
Mugabe á móti hommum
Robert
Mugabe. forseti
Simbabve, herti
enn róðurinn i
gær í baráttu
sinni gegn
hommum og
lesbíum og sak-
aöi bandaríska
stjórnmálamenn um að fórna sið-
gæðinu í kapphlaupinu um at-
kvæði samkynhneigðra.
Grunaðirummorð
Fjórir piltar á aldrinum 15 til
18 ára eru grunaðir um morð á
14 ára pilti i bænum Kode í Svi-
þjóð.
Kaupa sænska kjúklinga
Norðmenn neyðast til aö flytja
inn frosna kjúklinga frá Svíþjóð
til að nota í tilbúna rétti vegna
salmonellufaraldurs í norskum
kjúklmgabúum.
Minni samvinna
Norræn samvinna á sviði land-
búnaöar hefur dregist saman eft-
ir að Sviar og Fínnar gengu í
Evrópusambandið.
Auglýsingabreila
Bæjarstjórinn í Diano Marina á
Ítalíu hefur viðurkennt að „bík-
inístríöið" sem hann kom af stað
hafl aðeins verið auglýsingab-
rella fyrir bæjarfélagið.
Oflangtgengið
Bandariski tískuhönnuðurinn
Calvin Klein þykir hafa gengið
of langt í auglýsingum sinum fyr-
ir undirfatnað unglinga.
Neitar að hjálpa
Jörgen
Kosmo, vamar-
málaráðherra
Noregs, ætlar
ekki að aöstoða
rannsóknar-
nefnd Stór-
þingsins við að
fá skjöl frá pró-
fessor Olavi Riste um Ieyniþjón-
ustu hersíns en Riste hefur sjálf-
ur hafnað slíkri beiðni.
Lítil kjarnorkuhætta
Norskir og rússneskir vísinda-
menn segja að umhverfinu stafi
lítil hætta af geíslavirkum úr-
gangi sem Rússar hafa varpað í
Karahaf. Rcuter,TT,NTB,Ritzau
Ingvar Carlsson orðinn þreyttur og ætlar að fara frá:
Hef aldrei unn-
ið svona mikið
„Ég vil ekki þurfa að skipúleggja
kvöldverð með fjölskyldu minni þrjá
mánuði fram í tímann,“ sagði Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, í gær þegar hann tilkynnti að
hann mundi láta af embætti flokks-
formanns Jafnaöarmannaflokksins,
og þar með embætti forsætisráð-
herra, í mars á næsta ári.
Eiginkona hans hafði áður látið að
því liggja í tímaritsviðtali að hann
væri orðinn dauðuppgefinn og
mundi ekki sitja í ráðherrastólnum
út kjörtímabilið. Hann varð forsætis-
ráðherra í september í fyrrra.
Á fundi með fréttamönnum sagði
Ingvar Carlsson að hann heföi aldrei
unnið jafn mikið og á undanfórnum
sex mánuðum og að stjórnmálamenn
létu miklu meira á sjá nú en fyrir
tuttugu og fimm árum.
Ekki er ljóst hver tekur við af
Carlsson sem flokksformaður og for-
sætisráðherra en nokkur hafa þegar
verið nefnd til sögunnar. Þau eru
Mona Sahlin aðstoðarforsætisráð-
herra, Göran Persson íjármálaráð-
herra, Margareta Winberg landbún-
aðaráðherra og Jan Nygren, ráð-
herra samstillingarmála og náinn
samstarfsmaður Carlsson.
Carlsson vildi ekki segja hvem
hann vildi fá sem eftirmann sinn.
Forsætisráðherrann nefndi fjögur
pólitísk markmið sem hann hefði
sett sér og teldi sig hafa náð, því
gæti hann farið frá. „Jafnaðarmenn
hafa aftur komist í ríkisstjórn. Sví-
þjóð er gengin í Evrópusambandið,
sem var sögulega rétt ákvöröun. SÞ-
nefndin, sem ég veiti forustu, hefur
lagt fram grundvöll að nýrri og
öflugri friðarstofnun. Þær sársauka-
fullu ákvarðanir sem voru nauðsyn-
legar til að tryggja efnahagslegt sjálf-
stæði Svíþjóðar hafa verið teknar,“
sagði Carlsson.
Norrænir stjórnmálamenn báru lof
á Ingvar Carlsson þegar ákvörðun
hans spurðist út í gær. Gro Harlem
Brundtlánd, forsætisráðherra Nor-
egs, sagði að Carlsson hefði unnið
mikið starf fyrir Svíþjóð og sænskt
efnahagslíf á pólitískum ferli sínum.
„Ingvar Carlsson hefur á þeim
tæpu fjörutíu árum, sem hann hefur
tekið þátt í sænskum stjórnmálum,
sýnt að hann er sjaldgæf manngerð
þar sem pólitískar hugsjónir hafa
ætíð verið mótaðar af íhugun og
umhyggju," sagði Poul Nyrup Ras-
mussen, forsætisráðherra Danmerk-
ur. Reuter, TT, NTB, Ritzau
Mikili fjöldi pönkara kom saman i miðborg þýska bæjarins Oldenburg í gær til að gera sér glaðan dag. Lögreglan
var ekki mjög hrifin af uppátæki þeirra og handtók 30 manns, þar á meðal þennan móhíkana. Símamynd Reuter
Divine segist hætt öllu vændi
Divine Brown, vændiskonan í
Hollywood sem varð fræg á svip-
stundu þegar hún var gripin við
lostafullt athæfi með leikaranum
Hugh Grant, sagði í gær að hún væri
hætt að selja blíðu sína á Sunset
Boulevard. Þá sagðist hún ekki vilja
láta kalla sig Divine lengur.
„Kallið mig Stellu," sagði hún, enda
heitir hún fullu nafni Estella Marie
Thompson.
í kjölfar handtökunnar fékk Stella
fúlgur íjár fyrir að selja sögu sína
bresku æsifréttablaði. Þá hefur hún
einnig leikið í undirfataauglýsingum
fyrir sjónvarp og komið fram í ann-
arri auglýsingu fyrir svæðisútvarps-
StÖðíLosAngeleS. Reuter
Bensínverð
óvenjulágt
Bensínverð hefur verið óvenjulágt
í sumar og hefur reyndar lækkað enn
frekar að undanförnu vegna mikils
framboðs á erlendum mörkuðum,
samkvæmt upplýsingum frá Esso.
92ja oktana bensín fór til dæmis
úr 168 dollurum tunnan í síðustu
viku í 163,5 dollara í fyrradag og 98
oktana bensín lækkaöi einnig um
nokkra dollara tunnan.
Gasolíuverð hélst svipað og verið
hefur og sama gildir um hráolíuna
meðan verð á svartolíu hefur hækk-
að nokkuð.
Hlutabréfavísitala í kauphöllunum
í New York og Lundúnum hefur
haldist stöðug að undanförnu meðan
talsverð sveifla hefur orðið á vísi-
tölunni í Frankfurt, Hong Kong og
mestíTokyo. -GHS
Kauphallir og vðruverð erlendis
4800 Dow JonaA
4600
4400
4200
4000
3600 rr.*nr«
4636,62
A M J J A
3'OQ.
«1- 3470,6
A M J J Á
20000
«000
10000
wmmmmmmmmmmmmmmm . ----- . B --------------------
____________
18158,7
Á M J J Á
111110000
9500
9000
HangSeng
8000
■17500
,
A M J J A
- ;3500
370 A
/i|\ 3000
350 “ tsl \\ 'i <
340 u /i m\ ||f50°
330 vý' n
320 323 Q %% . *
A M J J ' Á
2673
A M J J A
imttvnwwm
;
200 ■ 250 : 25 ... .
«rvfc 20</
150 200 -
:v;: 150 15
100
163,6 1°0: $/t .
s/t 171,5 $/ 15,86
A M J J A A M J J Á tufina A M J J Á
■: ■'lTÍSV'*
Niels Heiveg vill
undirbúa kjarn-
orkumótntæli
Niels Helveg
Petersen, utan-
ríkisráðherra
Danmerkur.
ætlar á í'undi
með öðrum ut-
anríkisráð-
herrum Norð-
urlandanna i
ágústlok að leggja fram tillögu
um að löndin þrýsti í samehnngu
á þau lönd sem enn gera tilraunir
með kjamorkuvopn um að hætta
þeim.
„Allsherjarþingið er góður
staður til aö lýsa yfir grundvall-
arstefnu og það er á þeím vett-
vangi sem á að bera hana fram,“
sagði Helveg eftir fund með utan-
ríkisnefnd danska þingsins í gær.
SendáKlepp
fyriraðstæla
Ógnareðli
Bresk tveggja barna móðir,
Vanessa Ballantyne, hefur verið
send á geðveikrahæli fyrir hnif-
stunguárás sem saksóknari sagði
vera stælingu á atriði í hinni
frægu kvikmynd, Ógnareðli.
Vanessa sendi tvo syni sína í
rúmið, horfði á spólu með Ógnar-
eðli, tók því næst leigubíl á næt-
urklúbb þar sem hún náði sér í
karlmann og stakk hann í mag-
ann meö búrhnif. Maðurinn
skjögraði inn á nærliggjandi krá
til að leita aðstoöar.
Upphafsatriði Ógnareðlis sýnir
hvar kona drepur karl með
klakabrjóti eftir að hafa notið
ásta með honum. Ballantyne
fannst það sniðugt og fór að heim-
an með þeim ásetningi. Hún var
þunglynd þegar þetta gerðist.
Ferðamenní
Parísskelkaðir
eftir sprengju
Ferðamenn í París eru skelkað-
ir eftir sprengjutilræðið þar á
fimmtudag en engin ofsahræðsla
virðist þó hafa gripið um sig með-
al þeirra.
„Ég er frá Norður-írlandi svo
ég er nokkuð vanur þessu. Þetta
er ekkert stórmál,“ sagði ferða-
langurinn David McConaghy.
Margir feröamenn, sem Reut-
er-fréttastofan ræddi við, sögðu
að. fréttirnar af sprengjutilræð-
inu, sem álitið er að íslamskir
öfgatrúarmenn í Alsír hafi staðið
fyrir, mundu ekki verða til þess
að þeir breyttu um ferðaáætlun.
Sprengjan sprakk nærri Sigur-
boganum þar sem mikill fjöldi
ferðamanna var á ferli og særð-
ust sautján manns.
Breskiríhalds-
menngrynnkaá
skuldunum
íhaldsflokkur
Johns Majors,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, tilkynnti
í gær að hann
hefði byrjaö að
grynnka á
skuldum sinum
en stuðningsmennirnir eru þó
enn uggandi um aö íjárskortur
verði honum fjötur um fót í
næstu kosningum.
Bankayfirdráttur flokksíns hef-
ur veriö skorínn niður í 11,4 millj-
ónir punda en hann var 15,8 millj-
ónir punda við árslok 1994.
Lækkun yfirdráttarins er að
mestu að þakka vaxtalausum
lánum frá stuðningsmönnum en
þau veröur að endurgreiða í mars
á næsta ári. Ritzau, Reuter