Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
23
Leithafin að herra fslandi 1995:
Myndarlegir
karlmenn óskast
1994, hefur átt mikilli velgengni að
fagna á erlendri grundu síðan hann
vann keppnina hér heima. í fyrstu
fékk hann árssamning við stærstu
módelskrifstofuna í Finnlandi. Síðan
bauðst honum að koma til Madrid
og starfa þar við fyrirsætustörf. Það
var á Spáni sem aðilar komu að
máh við Björn og spurðu hvort hann
vildi ekki taka þátt í keppninni herra
alheimur sem fram fer á Kanaríeyj-
um í október sem hann mun gera.
Lífið hefur breyst mikið frá því
Björn íók þátt í keppninni um herra
ísland á síðasta ári. Hann var í hópi
áhorfenda á Ehte-keppninni þegar
Jóna Lárusdóttir hjá Módel 79 sá
hann fyrst. Hún komst að því að
Bjöm væri starfsmaður Bónus-versl-
ananna, haföi samband við hann og
bauð honum þátttöku í herra Island
keppninni. Björn ákvað aö slá til og
sér vart eftir því þar sem sigur hans
hér heima kom honum í keppnina
um herra Noröurlönd. Björn hafði
aldrei fengist við sýningarstörf
þeim tíma.
HjáVersace
Björn hefur nóg að gera í fyrir-
sætustarfinu og meðal þess sem
hann hefur fengist við er að sýna
fyrir hinn virta tískuhönnuð
Versace. Hann var valinn úr hópi
eitt hundrað karlmanna til að taka
þátt í þeirri tískusýningu sem fram
fór á Spáni. Undanfarið hefur Björn
einnig starfað í Þýskalandi og haft
nóg að gera. Þá hefur hann fengið
boð um að sýna í London og Banda-
ríkjunum.
Vegna velgengni Björns eru fram-
kvæmdaaðilar keppninnar herrá
Norðurlönd ákaflega spenntir að sjá
herra ísland 1995. Að sögn Jónu Lár-
usdóttur, sem sér um keppnina hér
á landi, eru einungis geröar þær
kröfur að herrarnir sem senda
myndir séu karlmannlegir í vexti og
nái 185 sm á hæð. Myndirnar má
senda til Módel 79, Engjateigi 5, eða
koma á staðinn. Einnig er hægt að
hringja í skrifstofu samtakanna og
fá frekari upplýsingar.
BÖKUNAROFNAR
SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) SIMI 588 7332
til að taka þátt í keppninni herra Norðurlönd
á
Sýningarsamtökin Módel 79 leita nú
að myndarlegum karlmanni, ekki
yngri en átján ára og ekki minni en
185 sm, til að taka þátt í keppninni
herra Norðurlönd. Ungir menn hafa
nú tækifæri til að feta í fótspor
Björns Sveinbjörnssonar sem hefur
verið eftirsótt fyrirsæta síðan hann
hlaut titilinn herra ísland og síðan
herra Norðurlönd á síðasta ári.
Keppnin um herra ísland verður
ekki með sama sniði og í fyrra. Þá
var haldin vegleg keppni hér á landi
en nú verður hins vegar valið úr
myndum sem berast. Sá karlmaður
sem valinn verður úr hópi þeirra sem
senda myndir til Módel 79 verður
útnefndur herra ísland og mun taka
þátt í keppninni um herra NorðUr-
lönd sem fram fer á skipinu Cinde-
rella í október. Þetta er gott tækifæri
fyrir þá karlmenn sem áhuga hafa á
að komast áfram í fyrirsætustörfum.
Velgengni í útlöndum
Bjöm Sveinbjörnsson, herra ísland
102
INNANHUSS-
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn ............................
Heimilisfang ...........................
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kubenhavn • Danmark
Björn Sveinbjörnsson var starfsmaður Bónus-versiananna áður en hann var uppgötvaður. Nú (er hann á milli j
helstu tískukónga og sýnir föt.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A
VALOA ÞÉR SKAÐA!