Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1995, Blaðsíða 26
34
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
Trimm
Gottað
verai
sveit
Trimmsíöan hefur heyrt að
hart hafi verið barist við að skipa
í sveitir í Reykjavíkurmaraþoni
að raorgni. Hiaupahópar leggja
metnaö sinn í að vera meö sem
flestar sveitir og deila meðlimum
niður af kostgæfni til að ná sem
bestum árangri.
Trimmsíðan hefur fyrir satt að
Námsfiokkar Reykjavíkur undir
leiösögn Jakobs Braga Hannes-
sonar muni eiga nær tvo tugi
sveita i Reykjavíkurmaraþoni.
Ber það vitni góðri þátttöku i
námskeiðum hans og sýnir styrk
hópsins svo ekki veröur um
villst.
Þaö er hins vegar opinbert
leyndarmál að hart er barist um
liðtæka skokkara sem standa ut-
an hlaupahópa og fast lagt að
þeim að leggja þessum eða hinum
hópnum lið.
Trimmsíðunni finnst að veita
ætti mörg aukaverðlaun í sveita-
keppni. Þannig mætti hugsa sér
að dómnefnd veitti verðlaun fyr-
ir: hávöxnustu sveitina, sveitt-
ustu sveitina, kynþokkafyllstu
sveitina, best klæddu sveitina,
verst klæddu og síðast en ekki
síst þyngstu sveitina sem lýkur
keppni án áfalla.
Líf eftir maraþon:
Reykja-
lundar-
hlaupið
Miðað við látæði sumra hlaup-
ara að undanfórnu mætti halda
að ekki væri líf eftir Reykjavik-
urmaraþon. Eitt skýrasta dæmið
um að það er vissulega hf eftir
Reykjavíkurmaraþon er Reykja-
lundarhlaupið sem fram fer 26.
ágúst og verður ræst kl. 10.40 í
14 kílómetra hlaup en kl. 11.00 í
styttri vegalengdir sem eru frá 6
kílómetrum niður í 0,5 km.
Reykjalundarhlaupiö nýtur
verðskuldaðra vinsælda meöal
skokkara og hlaupara. Hlaupa-
leiðir eru skemmtilegar, sérstak-
Iega sú lengsta sem liggur kring-
um Úlfarsfellið um krókótta og
friðsæla sveitavegi. Veitingar eru
yfirleitt á eftir og stundum hafa
þægilegir hlaupahanskar verið
innfaldir i skráningargjaldi.
Nánari upplýsingar um þetta
geðþekka almenningshlaup fást í
síma 566-6200.
Umsjón
Páll Ásgeir
Ásgeirsson
Fyrir maraþon
að morgni
- nokkur hollráð fyrir þá sem ætla að hlaupa
Nú er stóri dagurinn á morgun og
þá munu menn og konur uppskera í
samræmi við það sem til hefur verið
sáð á æfingum undanfarnar vikur,
mánuði eða ár. Við það er litlu að
bæta héðan af en rétt að minna á
nokkur atriði sem reynst hafa mönn-
um vel við lokaundirbúning. Molar
þessi eru komnir héðan og þaðan en
margir þeirra úr smiðju Sigurðar P.
Sigmundssonar sem er eins og marg-
ir vita margfaldur meistari í hlaup-
um og á meðal annars fslandsmet í
maraþonhlaupi.
1. Takið það rólega síðasta daginn
fyrir hlaupið.
2. Leggið áherslu á kolvetnaríka
fæðu s.s. kartöflur, hrísgrjón, pasta,
brauð og ávexti. Drekkið meira vatn
en venjulega. Borðið frekar lítið
kvöldið fyrir hlaupið.
3. Farið á fætur ekki seinna en 3
klukkustundum fyrir hlaup. Gott er
að byrja daginn á 10-15 mínútna
göngutúr til að koma líkamsstarf-
seminni í gang. Síðan að fá sér léttan
morgunmat t.d. kornflögur eða ristað
brauð. Reynið ekkert nýtt.
4. Farið yfir þann útbúnað sem þið
ætlið að hafa með ykkur. Hitið ekki
upp í keppnistreyjunni.
5. Berið vaselín eða aðra feiti á þá
staði sem verða fyrir núningi. Þeir
sem fá auðveldlega blöðrur ættu að
verja sig sem mest með plástrum.
6. Hitið upp með léttu skokki eða
teygjum í 15-20 mínútur. Á ráshnu
skuluð þið athuga hvort allt sé á rétt-
um stað, rásnúmer í skorðum, skórn-
ir vel reimaðir með tvöföldum hnút
o.s.frv.
7. Farið ykkur að engu óðslega í
byrjun hlaupsins. Farið eftir ykkar
tímaáætlun. Munið að þið eruð að
hlaupa ykkar hlaup en ekki annarra.
Æskilegt er að koma sér í samflot
með öðrum. Það er skemmtilegra og
auðveldar hlaupið.
8. Þörfin á drykkjum fer eftir veðri.
Byrjið ekki of seint og drekkið oft en
lítið í einu. Það minnkar hættu á
hlaupasting. Ágætt er að skiptast á
að drekka blandaöa drykki og vatn.
9. í löngu hlaupi er nauðsynlegt að
dreifa huganum frá þreytunni. Reyn-
ið að festa hugann við eitthvað. Gef-
ist ekki upp þó móti blási, dragið
frekar úr hraðanum og endurskoðið
tímaáætlunina.
10. Eftir að í mark er komið er
mikilvægt að halda sér á hreyfingu
og fara strax í utanyfirföt. Drekkið
strax eftir hlaupið.
Auk þessa er gott að hafa í huga
að fara tímanlega af stað niður í bæ.
Þeir sem eru á eigin bíl ættu að gera
VOLVO 850 DAGUR TIL STEFNU - stattu þig!
Styrktaraði 1 i Reykjav íkurmaraþons
læsilegir
aunagripii
I ár fá sigurvegarar í Reykjavíkurmaraþoni sérstæða rammislenska verðlaunagripi sem eru unnir úr hrauni. Lista-
maðurinn, Snorri Guðmundsson í Hraunverksmiðjunni í Gunnarsholti á Rangárvöllum, segist hafa fengið innblást-
ur frá Heklu, íslands frægasta eldfjalli sem er þar rétt við bæjardyrnar. Á myndinni er Ágúst Þorsteinssson, fram-
kvæmdastjóri Reykjavikurmaraþons, með verðlaunagripina sem listamaðurinn kom með í bæinn á miðvikudag.
DV-mynd JAK
ráð fyrir að þurfa að leggja fjarri
miðbænum því í ár verða fleiri götur
lokaðar í nágrenni miðbæjarins en
verið hefur undanfarin ár vegna þess
að skemmtiskokkleiöin liggur um
Þingholtin. Gott er að hafa í huga að
flíkur sem keppendur kunna að
henda af sér á leiðinni komast frekar
í hendur þeirra á ný séu þær vand-
lega merktar.
Góða skemmtun og megið þiö
hlaupa ykkur til ánægju og heilsu-
bótar.
Hraðatafla
Þessi tafla sýnir mismunandi
skokk- og hlaupahraða á ýmsum
vegalengdum. Með töflunni getur
skokkari fylgst með framförum sín-
um og sett sér framtíðarmarkmið.
Geymið uppi á vegg. Gangi ykkur
vel.
Tími 5 km 7km 10 km 15 km hálfmara- mara-
km þon þon
3.00 15.00 21.00 30.00 45.00 1.03.18 2.06.35
3.10 15:50 22.10 31.40 47.30 1.06.49 2.13.37
3.20 16.40 23.20 33.20 50.00 1.10.20 2.20.39
3.30 17.30 24.30 35.00 52.30 1.13.51 2.27.41
3.40 18.20 25.40 36.40 55.00 1.17.22 2.34.43
3.45 18.45 26.15 37.30 56.15 1.19.07 2.38.15
3.50 19.10 26.50 38.20 57.30 1.20.53 2.41.45
3.55 19.35 27.25 39.10 58.45 1.22.38 2.45.17
4.00 20.00 28.00 40.00 1.00.00 1.24.24 2.48.47
4.05 20.25 28.35 40.50 1.01.15 1.26.09 2.52.19
4.10 20.50 29.10 41.40 1.02.30 1.27.55 2.55.49
4.15 21.15 29.45 42.30 1.03.45 1.29.40 2.59.21
4.20 21.40 30.20 43.20 1.05.00 1.31.26 3.02.51
4.25 22.05 30.55 44.10 1.06.15 1.33.11 3.06.23
4.30 ' 22.30 31.30 45.00 1.07.30 1.34.57 3.09.53
4.35 22.55 32.05 45.50 1.08.45 1.36.42 3.13.25
4.40 23.20 32.40 46.40 1.10.00 1.38.28 3.16.55
4.50 24.10 33.50 48.20 1.12.30 1.41.59 3.23.57
5.00 25.00 35.00 50.00 1.15.00 1.45.30 3.30.59
5.10 25.50 36.10 51.40 1.17.30 1.49.01 3.38.01
5.20 26.40 37.20 53.20 1.20.00 1.53.32 3.45.03
5.30 27.30 38.30 55.00 1.22.30 1.56.03 3.52.05
5.40 28.20 39.40 56.40 1.25.00 1.59.34 3.59.07
5.50 29.10 40.50 58.20 1.27.30 2.03.05 4.06.09
6.00 30.00 42.00 1.00.00 1.30.00 2.06.35 4.13.11
7.00 35.00 49.00 1.10.00 1.45.00 2.27.41 4.55.22
8.00 40.00 56.00 1.20.00 2.00.00 2.48.47 5.37.34
er styrktaradili
Reykjavíkurmaraþonsins
VOLVO
hotel
edda
EIMSKIP
Skandia