Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1995, Qupperneq 42
50
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
Skák
íslenskir stór-
meistarar gera víðreist
Skáklíf á íslandi er yfirleitt meö
minnsta móti yfir sumarmánuðina
en þessu er öfugt farið sunnar í álf-
unni. Allmörgum árlegum opnum
mótum er valinn sumartíminn og
skákunnendum þar með gefinn kost-
ur á því að sameina sumarleyfi sitt
og taflmennsku við sterka erlenda
meistara.
íslensku atvinnustórmeistararnir
hafa veriö á faraldsfæti í sumar.
Skemmst er að minnast opnu mót-
anna í Gausdal í Noregi, þar sem
Þröstur Þórhallsson náði lokaáfanga
sínum aö stórmeistaratitli. Margeir
Pétursson stórmeistari tók þátt í báð-
um mótunum og hafnaði í 2. sæti í
því seinna en gríski stórmeistarinn
Kotronias, góðkunningi okkar ís-
lendinga, varð hlutskarpastur.
í Hollandi tefldu stórmeistararnir
Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar
Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson
á „VB Accoiuntants International"
mótinu í Leeuwarden. Hannes Hlífar
hélt síðan ti! Amsterdam þar sem
hann situr nú að tafli í opnu móti til
minningar um stórmeistarann
Donner og Helgi Áss fór á stórt opið
mót í Berlín. Þá mun Helgi Ólafsson
tefla á alþjóðlegu móti í sænska
skerjagarðinum sem hefst um helg-
ina.
Víkjum nánar að móti þeirra þre-
menninga Jóhanns, Helga Áss og
Hannesar Hlífars í Leeuwarden.
Mótið var geysivel skipað en svo fór
þó að tveir tiltölulega lltt þekktir
rússneskir stórmeistarar, Dvoirys og
Gleizerov, hlupust á brott með sigur-
launin, með 7 v. af 9 mögulegum.
Jóhann fékk 6 v., Helgi Áss 5,5 og
Hannes Hlífar 4,5 v. Hannes Hlífar
var nokkru frá sínu besta, frammi-
staða Jóhanns var í samræmi við
stigatölu en Helgi Áss stóð sig í raun
og veru best - náði árangri upp á
yfir 2.600 stig!
Engin grið voru gefm þegar íslend-
ingarnir mættust innbyrðis. Þannig
tókst Helga Áss að leggja Jóhann sem
víxlaöi óvart leikjum í stöðu þar sem
Helgi átti undir högg aö sækja. Helgi
tefldi annars best þeirra þriggja á
mótinu og vann auk Jóhanns stór-
meistarana van der Wiel og Kharlov
í góðum skákum. Hann fór hins veg-
ar illa að ráði sínu gegn þýska stór-
meistaranum Lobron. Rétt væri að
líta á þá afdrifaríku skák - Helgi Áss
hafði svart og átti leik í þessari stööu
og auðvitað í miklu tímahraki:
Lobron lék síðast drottningunni frá
e4 tii h7 og nú hefði Helgi Ass getað
tryggt sér sigur með 40. - Hd2 því að
hvítur fær ekki varist máti. Skákin
tefldist hins vegar:
40. -Dxe5?? 41. Ha7
- Og nú gaf Helgi Áss sér ekki tíma
til að líta á stöðuna og gafst upp í
þeirri trú að enga vörn væri að finna
við máthótuninni.
Umsjón
Jón L. Árnason
En uppgjöfm var of snemma á ferð-
inni því að með 41. - Dd5+ 42. Kh2
Hd7 bægir svartur hættunni frá og
líklegustu úrslitin eru jafntefli!
Helgi Áss lét þetta hrikalega áfall
þó ekki á sig fá eins og skemmtfleg
skák hans við Kharlov ber með sér:
Hvítt: A. Kharlov
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Enskur leikur.
1. c4 b6 2. d4 e6 3. e4 Bb7
Þótt fyrsti leikur hvíts marki raun-
verulegt upphaf að enskum leik væri
ekki síður ástæða til að nefna óhefð-
bundið leikkerfi svarts því nafni, eða
a.m.k. kenna viö stórmeistarann Mi-
les, sem oft hefur teflt svona með
góðum árangri. Svartur gefur hvít-
um eftir miðborðið en hyggst sækja
aö því úr launsátri.
4. Rc3 Bb4 5. Dc2 Dh4 6. Bd3 f5! 7. g3
Hér kemur vel til greina 7. Rf3 Dg4
8. 0-0 og áfram 8. - Bxc3 9. h3! og e4
heldur. Hins vegar ekki 7. exf5? Bxg2
8. fxe6 Bxhl 9. Bg6+ Kd8! og svartur
vann (Ketevan - King, Oviedo 1992).
7. - Dh5 8. f3 Rc6!?
Þessi ieikur virðist ekki síðri en 8.
- fxe4 9. fxe4 Rf6 sem teflt hefur ver-
ið í nokkrum skákum.
9. Be3 e5! 10. d5 Rd4 11. Bxd4 exd4 12.
a3 fxe4 13. fxe4
Til greina kemur 13. Bxe4 með
u.þ.b. jöfnum möguleikum.
13. - Bxc3+ 14. bxc3 dxc3 15. Dxc3
Rf6 16. Be2 Dh6 17. Bf3 d6 18. e5
Opnar taflið og tekst að hindra
svartan í að hróka en beinan hag
hefur hvítur þó ekki af þessari fram-
rás. Að öðrum kosti væri hins vegar
hætta á að svartur gæti herjað að
e-peðinu og hreiðrað um sig á e5-
reitnum.
18. - dxe5 19. Dxe5 + Kd7 20. Re2
Betra er fyrst 20. Df5 + sem neyðir
svarta kónginn niður í borö.
20. - Hae8 21. Df5+ Kd6!
Hraustlega teflt og betra en 21. -
Kd8 með tilliti til endataflsins. Hvítur
virðist ekki fá sótt að kónginum þótt
hann hafl nú hætt sér fram á borðið.
22. 0-0 De3+ 23. Kg2 Hhf8 24. Ha2?
Nauðsynlegt er 24. Df4+ og skipta
á drottningum þó með því felist viss
viöurkenning á því að svartur hafi
gert rétt með 21. leik sínum.
24. - Rxd5!
Skyndilega er hvítur í mestu vand-
ræðum. T.d. 25. Dxh7 Hxf3 26. Hxf3
Dxf3+ 27. Kxf3 Rf6 + og vinnur. Eða
25. Dc2 og sama afbrigði nema svart-
ur klykkir út með 27. - Re3 + og vinn-
ur.
25. c5 bxt
26. - Hxfí! 27. Dxb7
Ef 27. Hxf3 Rf4+ og hvítum eru
allar bjargir bannaðar.
27. - Hxfl 28. Da6 + c6 29. Kxfl Hf8+(?)
Helgi velur ekki stystu vinnings-
leiðina. Eftir 29. - Rc3! er hvítur á
vonarvöl því að 30. Rxc3 Df3+ er mát
í 3. leik.
30. Kel Hb8 31. Hd2 Hbl+ 32. Hdl Hb2
33. Dc4 Ke5 34. Hcl g5 35. Dg4 KfS
Enn er 35. - Rc3 ekki síðra. Hvítur
hefði nú getað framlegt vonlausa
baráttuna með 36. Hdl en kýs aö
stytta dauöastríðið.
36. Hal? Rc3!
- Og nú gafst hvítur upp.
Brúðkaup
Þann 6. maí voru gefin saman í hjóna-
band af séra Ólafi Oddi Jónssyni í Kefla-
víkurkirkju Sigríður Ragna Jónas-
dóttir og Veigar Margeirsson. Heim-
ili þeirra er að Heiðarholti 8b, Kefla-
vík.
Ljósmyndari Oddgeir
Þann 10. júní voru gefin saman í
hjónaband í Bústaðakirkju af séra
Pálma Matthíassyni Helga Sigur-
björg Árnadóttir og Helgi Freyr
Kristinsson.
Ljósm. Nærmynd.
Þann 1. júlí voru gefln saman í hjóna-
band í Bessastaðakirkju af séra Val-
geiri Ástráössyni Lena Anita Jons-
son og Guðmundur Ingi Magnússon.
Þau eru til heimilis í Skövde, Svíþjóð.
Bama- og fjölskylduljósmyndir.
Þann 20. maí voru gefin saman í hjóna-
band af séra Baldri Rafni Sigurðssyni í
Hvalsneskirkju Hafdís H. Þorvalds-
dóttir og Sigurður H. Ólafsson. Heim-
ili þeirra er að Þórustíg 16, Njarðvík.
Ljósmyndari Oddgeir
Þann 3. júní voru gefln saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af séra
Solveigu Láru Guðmundsdóttur Ás-
dís Sturlaugsdóttir og Bjarki Jóns-
son. Heimili þeirra er að Efstasundi
81.
Ljósmyndast.- Þóris.
Þann 8. júlí voru gefin saman í hjóna-
band í Árbæjarkirkju af séra Vigfúsi
Þór Árnasyni Ruth Aðalheiður G.
Smith og Steve Fowler. Þau er til
heimilis í Bretlandi.
Ljósm. Mynd, Hafnarfirði.
Þann 24. júní voru gefln saman í
hjónaband í Háteigskirkju af séra
Hjálmari Jónssyni Jóna Guðlaug
Sigurðardóttir og Jónmundur Ás-
björnsson. Þau eru til heimilis í
Barmahlíð 4, Reykjavík.
Ljósm. Nærmynd.
Þann 10. júni vora gefin saman í
hjónaband í Kópavogskirkju af séra
Ægi Sigurgeirssyni Herdís Þórisdótt-
ir og Ingvi Guttormsson. Heimili
þeirra er í Lúxemborg.
Ljósmst. Sigr. Bachmann.
Þann 13. maí voru gefin saman í
hjónaband í Fella- og Hólakirkju af
séra Hreini Hjartarsyni Lilja Carol-
ine Larsen og Sigurður Ingi Einars-
son. Þau eru til heimilis að Súluhól-
um 6, Reykjavík.
Barna- og fjölskylduljósmyndir.
Þann 1. júli vora gefin saman í Ar-
bæjarkirkju af séra Guðmundi Þor-
steinssyni Herdís Gísladóttir og Vil-
helm Sigfús Sigmundsson. Þau eru
tii heimilis að Hraunbæ 74, Reykja-
vík.
Bama- og fjölskylduljósmyndir.