Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1995, Síða 48
\.
SIMATORG DV 904 1700
FRETTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar
nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563*2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriöjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SIMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGARDAGS OG MÁNUDAGSMORGNA
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995.
Svartsengi hf.
kaupir hótelið
við Bláa lónið
Fyrirtækiö Svartsengi, sem er
hlutafélag í eigu Heilsufélagsins viö
Bláa lóniö og Kristjönu Einarsdóttur
hótelstýru og íjölskyldu, hefur keypt
gistihúsiö viö Bláa lóniö og hafa nýir
eigendur þegar tekið viö rekstrinum
af Þórði Stefánssyni. Kristjana mun
stjórna hótelinu.
„Við ætlum að efla reksturinn og
auka samstarfið milli hótelsins og
baðstaðarins við Bláa lónið í sam-
bandi við meðferðargesti og almenna
baögesti. Gistihúsið hefur ekki verið
markaðssett að neinu marki og hálf-
gert leyndarmál að þarna hafi verið
rekið gistihús,“segir Grímur Sæ-
mundsen læknir. -GHS/ÆMK
' Engin hætta
fyrir Ijóshærða
í Sælings-
dalslaug
Skipt var um varmaskipti í Sæl-
ingsdalslaug í fyrrinótt og verður
skipt um sand í síu í lauginni um
helgina eða strax eftir helgi og ættu
t sundlaugargestir þá að geta baðaö
sig í heita pottinum þar án þess að
eiga á hættu að ljóst hár þeirra verði
grænt, að sögn starfsmanns laugar-
innar.
Maður frá framleiðanda sundlaug-
arinnar fór vestur í vikunni til að
rannsaka málið og kom þá í ljós að
kopar í varmaskiptinum olli græna
litnum, auk þess sem sandur í síunni
var orðinn koparrauður. Heiti pott-
urinn i Sælingsdalslaug hefur verið
lokaður síðustu daga en verður opn-
aður strax og allt er komið í lag í
næstu viku. -GHS
% *
'mtVFILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
ÞREFAIDIJR 1. VINNINGUR
LOKI
Það er rétt að trimma tánegi-
urnar fyrir maraþonið!
Tvítugur maður sýknaður af að hafa nauðgað nítján ára stúlku í Þingholtunum:
Sagði nei en barð-
ist ekki a moti
- hann sagði kæruna tilkomna af því að stúlkan hefði talið sig svikna og móðgaða
Rúmlega tvítugur Reykvíkingur
var í gær sýknaður af nauðgunar-
ákæru fyrir Héraösdómi Reykja-
víkur. Maðurinn var ákærður fyrir
nauðgun, með því að hafa 18. febrú-
ar sl. þröngvað 19 ára stúlku til
holdlegs samræðis með ofbeldi.
Stúlkan kom á lögreglustöð að-
faranótt umrædds dags og kærði
atburöinn. Hún var Qutt á Borgar-
spítala þar sem sérfræðingur í húð-
og kynsjúkdómum skoðaði hana.
Það var ekki fyrr en næstu helgi
sem maðurinn var handtekinn eftir
að hún bar kennsl á hann í mið-
bænum.
Samkvæmt framburði hennar
fyrir dómi hitti hún manninn í
miöbænum. Ætluöu þau saman í
teiti ásamt fleirum en áður en til
þess kom fóru þau samah í hús í
Þingholtunum. Á leiðinni þangað
segist hún hafa orðiö hrædd við
mantiinn og ekki þorað að hlaupa
í burtu og því fylgt honum inn í
kjallara hús þar sem fyrrgreint at-
hæfi átti sér stað. Bar hún fyrir
rétti að hann hefði aldrei beitt hana
ofbeldi. Hún hefði ekki þoraö að
streitast á móti en grátiö og beöið
hann að hætta. Á eftir hvarf mað-
urinn á braut.
Maðurinn bar hins vegar fyrir
dómi að samræðiö heföi átt sér stað
með fullu samþykki hennar. Að því
loknu lét hann sig hverfa á braut
og fullyrðir hann að stúlkan hafi
einungis kært sig af því að hún
taldi sig „hafa verið svikna og
móðgaða".
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að þar sem ákærði hefði
ávailt neitaö því að hafa beitt stúlk-
una ofbeldi, stúlkan hefði borið á
sama veg og að ótvfræð merki um
ofbeldi fundust ekki á henni, fötum
hennar né á vettvangi bæri að
sýkna ákærða. „Ber þegar af þess-
ari ástæðu að sýkna sakborninginn
af ákærunni, en eins og hún er úr
garði gerð koma aðrar sakir ekki
til álita i málinu," segir i dómnum.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvaö upp dóminn. -pp
Karnivalstemning var á Laugaveginum i gær i tilefni af 209 ára afmæli Reykjavikurborgar. Fillinn á myndinni var
staddur á miðjum Laugaveginum og gaf vegfarendum ýmiss konar góðgæti. DV-mynd JAK
Reykjavíkurmaraþon:
Fótaaðgerðar-
fræðingar
aðstoða
keppendur
„Við ætlum að mæta klukkan 11 í
fyrramálið í bílageymsluna við ráð-
húsið og verðum keppendum til að-
stoðar ef með þarf. Við viljum með
þessu kynna þessum hópi vinnu okk-
ar og erum viss um að við getum
hjálpað til,“ sagöi Snjólaug Sigur-
oddsdóttir fótaaðgerðarfræðingur en
hún og átta kollegar hennar ætla sér
að hlúa að sárfættum hlaupurum í
maraþoninu.
„Við reiknum með átta þúsund fót-
um í hlaupinu og það er nánast ör-
uggt að einhverjir fá blöðrur og aðrir
brjóta nögl. Ef eitthvað slíkt gerist
verðum við til aöstoðar," sagði Sólr-
ún. Hún sagði fótaaðgerðarfræðing-
ana verða til taks bæði fyrir og eftir
hlaup. -sv
• ® • /
V w V 7 ^
11
o
é
t
V
105-
\.£Jé -v?'
V V Sunnudagur
pgip/.
Súld eöa rigning
:±±°
(
Mánudagur
Veöriö á morgun og mánudag:
Þurrt norðan- og austanlands
Það er reiknað með suöaustankalda eða stinningskalda á morgun. Það verður skýjaö en að mestu þurrt norðaustanlands en annars stað-
j ar verður súld eða rígning með köflum. Hiti verður á bilinu 10-20 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag verður sunnan- eöa suðvestankaldi. Það verður skýjað með köflum en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi en annars staöar
verða skúrir. Sunnan- og vestanlands verður hiti 8-14 stig en allt að 20 stig norðaustan- og austanlands síðdegis.