Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995 Fréttir Framreiknaður kostnaður og áætlanir til ársins 1998: Milljarður til fram- kvæmda á Bessastöðum - kostnaðaráætlun var gerð áður en endanlega varð ljóst hversu miklar skemmdir væru orðnar á húsum „Eg hef ekki orðið var við annað en að menn vilji sýna þessum stað þann sóma sem hann hefur í sögunni og sem aðsetur þjóðhöfðingjans. Kostnaðará- ætlun var gerð áður en lög um fram- kvæmdimar voru sett og áður en end- anlega varð ljóst hversu miklar skemmdir væru orðnar á húsum stað- arins og að endurbyggja þyrfti hluta þeirra. Þetta eru háar upphæðir en mér hefur virst ríkja góð sátt um mál- ið og hef satt að segja glaðst yfir því,“ sagði Pétur Stefánsson hjá Almennu verkfræðistofunni en stofan hefur ann- ast allar framkvæmdir við Bessastaði. Kostnaður við þær framkvæmdir er nú farinn aö nálgast einn milljarð króna, miðað við framreiknaðan kostnað frá 1989 og áætlanir til ársins 1998. Á þessu tíu ára tímabili er miðað við kostnað upp á 971,6 milljónir. „Þess ber að gæta í þessu samhengi að rúmlega 10% kostnaðarins er til- kominn vegna fornleifarannsókna. Þær hafa allan tímann verið mjög umfangsmiklar og dýrar því menn eru sífellt að finna eitthvað sem nauðsynlegt er aö skoða gaumgæfi- lega,“ sagði Pétur. Framkvæmdirnar við Bessastaði fram til ársins 1998 munu kosta ríkið um einn milljarð króna. DV-mynd GVA 260 milljónir næstu þrjú árin Sem kunnugt er hófust fram- kvæmdirnar með viðgerð og endur- byggingu Bessastaðastofu árið 1989 og frá því og fram til síðustu ára- móta hljóðaði framreiknaður kostn- aður upp á tæpar 640 milljónir. Á þessu ári er gert ráð fyrir 72 milljón- um til þess aö ljúka við Þjónustuhús og Norðurhús, gera íbúðarhús for- seta fokhelt og klára það aö utan. Þá er einnig gert ráð fyrir einhveiju til fornleifarannsókna og lóðafram- kvæmda. Næstu þrjú árin er síðan gert ráð fyrir 260 milljónum til þess að ljúka þeim framkvæmdum sem lögin um framkvæmdirnar, frá 12. maí 1989, gera ráð fyrir. -sv Stuttar fréttir Flóttamenn á leiðinni? Tekiö verður á móti 35 fiótta- mönnum strax og allt að 25 flótta- mönnum árlega ef fariö veröur að tiUögum Flóttamannaráðs. Rikisstjómin fjallar að líkindum um tillögurnar á fóstudaginn. Sjónvarpið greíndi frá. Kynbundln mlsmunun Páll Pétursson félagsmálaráð- herra ætlar að krefja fulltrúa fiskvinnslunnar um skýringar á því að fólki í atvinnuleit sé mis- munað á grundvelli kynferðis. RÚV greindi frá. Kjaradómurvlssiekki Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra segir rétt að ræða nýjar reglur um starfskostnað þing- manna í Jjósi umræöunnar í þjóð- félaginu. Skv. Mbl. vissi kjara- dómur ekki um upphæðína þegar hann ákvaröaði á dögunum laun æðstu manna ríkisins. Olíufélöglngræða Hagnaður olíufélaganna á ís- landi á fyrri hluta ársins nam samtals 322 miUjónum króna. Sé afkoman borin safnan við veltu reyndist hlutfallið best hjá Olíu- félaginu hf. Viðskiptablaðiö greindi frá. Farþegar með strætó: Fargjaldahækkunin er mjög ranglát „Ollum þykir þessi hækkun ranglát. Ef litið er til þess aö laun alþingis- manna hækkuðu um tugi þúsunda en verkafólk fékk aðeins 1.000 plús 2.700 krónur í síðustu kjarasamning- um mætti kalla þessa hækkun sið- lausa. Spurningin er hve lengi er hægt að ganga að fólki áður en kem- ur til upplausnar í þjóðfélaginu,“ sagði Héðinn Jóhannesson skattfull- trúi en hann hefur látið af störfum og er kominn á eftirlaun. Blaðamaður og ljósmyndari DV komu við á biðstöðinni á Hlemmi í gær tii aö kanna viðhorf unglinga og aldraðra til fargjaldahækkunarinnar sem fyrirhuguð er hjá SVR. Viðmæl- endum blaðsins bar saman um að hækkunin væri of mikil, sérstaklega fyrir gamla fólkið. Garðar Ingólfsson vagnstjóri sagði að farþegamir væru óánægðir með hækkunlna og spyrðu mikið. Unga fólkið virtist hins vegar ekki hafa miklar áhyggjur. „Við notum strætó það lítið að hækkunin skiptir okkur ekki miklu máli en auðvitað er þetta dýrt fyrir fólk sem notar strætó mikið. Við för- um bara fjórum til fimm sinnum í viku í strætó og kaupum okkur því fargjaldakort," sögöu Ingvar Erlings- son og Sigurlaug Guðnadóttir en þau eru bæði 17 ára nemar. Fargjöld hjá SVR hækka verulega frá næstu mánaöamótum og hækka 20 farmiða kort fyrir unghnga og aldraða hjá SVR úr 500 krónum í 1.000 krónur. -GHS Framkvæmdir við Bessastaði: Milljarður í kostnað - framreiknaö til ársins 1995 - 1989 Hafin viðgerð og endurbygging Bessastaðastofu: 63,2 1990 Viðgerð og endurbygging Bessastaðastofu.Fornleifagröftur: 214,7 1991 Lokið við Bessastaðastofu. Fornleifagröftur, skipulagssamkeppni í samvinnu við Bessastaðahrepp. Hönnun síðari áfanga: 57,4 1992 Fornleifagröftur, hönnun síðari áfanga, sjcipuiagsvinna Rannsöknir á fuglalífí á Alftanesi til undirbumngs deihskipuiagi: 61,3 1993 Endurbygging þjónustuhúss (hjáleigu) og norðurhúss boðin út. Húsin steypt upp og gerð fokheld. Fornleifagröftur og frágangur fornleifakjallara: 122,2 1994 Innrétting þjónustuhúss og norðurhúss. Ný fráveita fyrir allan staðinn með rotþró og siturlögnum: 120,8 1995 Lokið við þjónustuhús og norðurhús. íbúðarhús forseta gert fokhelt og klárað að utan. Fornleifagrörtur og lóðaframkvæmdir. Fjárveiting: 72 1996-98 í upphafi þessa tímabils er eftir af þeim framkvæmdum sem lög nr. 31 12. maí 1989 gera ráð fyrir: Fullgert íbúðarhús forsetans, viðgerð á suðurálmu ásamt fornleifagrefti. Frágangur lóðar og öryggisráðstafanir. Viðgerð á útihúsi (austurhúsi), viðgerð á kii'kju: 260 Samtals kostnaður: 971,6 niilljónir króna. DV Þú getur svarað þessari spurningu með því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Nei 2 Eiga íslendingar aö stofna Alllr í stafræna kerllnu met tOnvalsslma geta nýtt sér þessa þjánustu. Borgarráð staðfesti hækkun á fargjöldum SVR: Prósentu- hækkunin sker í augun - segir framkvæmdastjóri ASÍ Ingvar Erlingsson og Sigurlaug Guðnadóttir nota sjaldan strætó. DV-myndir GVA „Það passar ekki inn í nútímann að hækka strætisvagnafargjöldin svona rosalega og mér finnst undar- legt að láta þetta bitna fyrst og fremst á unglingum og öldruðum. Svona prósentuhækkanir sjást varla lengur og passa ekki við það sem er að ge- rast í þjóðfélaginu. Þær skera í augu og það liggur í augum uppi að þetta veldur umbjóðendum okkar auknum kostnaði," segir Ari Skúlason, fram- kvæmdastjóri ASÍ. Borgarráð hefur staðfest ákvórðun stjórnar Strætisvagna Reykjavíkur, SVR, um að hækka fargjöld SVR um allt aö 100 prósent frá 1. október, með atkvæðum Reykjavíkurlistans. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn hækkuninni og verður tillagan því tekin fyrir á borgarstjómarfundi á fimmtudag. „Sumir nota strætisvagna reglu- lega og þá skiptir þetta miklu máli, sérstaklega þar sem elhlífeyririnn er ekkert alltof hár. Þeir sem hafa minni íjárráð eiga ekki bíl og fara því frekar í strætó en hinir,“ segir Páll Gíslason, formaður Félags eldri borgara. Farmiöaspjöld aldraöra og ungl- inga hækka mest, úr 500 í 1.000 krón- ur, en önnur fargjöld hækka um 11-20 prósent. Farmiðaspjöld ör- yrkja, bama innan 12 ára og einstök fargjöld barna hækka ekki. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.