Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995
Fréttir
Sauðíjárbændur í vandræðum með umsýslukjöt:
Markaðir hrundu við
inngöngu Svía í ESB
- um300tonnafkindakjötibíðaútflutnings
Um tvö þúsund tonna birgðir af
kindakjöti eru nú í frystigeymslum
víðs vegar um landið, þar af um 300
tonn af svokölluðu umsýslukjöti. Um
er að ræða kjöt sem bændur hafa
framleitt umfram greiðslumark og á
eigin ábyrgð. Sölutregðan hefur auk-
ið á erfiðleikana innan sauðflárrækt-
arinnar enda fellur kostnaðurinn af
framleiöslunni alfarið á bændurna
sjálfa.
Óheimilt er að selja kjötið innan-
lands og á erlendum mörkuðum er
lítil eftirspum og lágt verö. Helsta
ástæðan fyrir minni sölu er innganga
Svíþjóðar í Evrópusambandið en þar
með opnaðist Svíum aðgangur að
kjöti frá Nýja-Sjálandi.
Allt frá gerð búvörusamningsins
1991 hafa bændur getað lagt inn kjöt
til sláturleyflshafa umfram greiðslu-
mark. Kjötið hefur verið selt eftir því
sem markaðir hafa fundist og hafa
bændur fengið gert upp í tengslum
við útflutninginn.
Fyrir það umsýslukjöt sem hefur
selst úr landi hafa bændur fengið 100
til 120 krónur sem er langt undir
framleiðslukostnaði. Á síðasta ári
fengu bændur allt að 140 til 160 krón-
ur fyrir þetta kjöt. Fyrir kjöt sem
framleitt er innan greiðslumarks fá
bændur að jafnaði um 410 krónur
kílóið, þar af 205 krónur í formi bein-
greiðslna úr ríkissjóði.
Að sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar,
framkvæmdastjóra Bændasamtaka
íslands, Uggur ekki fyrir hvað gert
verður við kindakjötsbirgðimar.
Áfram verður þó reynt að selja um-
sýslukjötið erlendis og hitt kjötið á
innlendum markaði samhUða því
kjöti sem feUur tíl í sláturtíðinni.
-kaa
Fróði Jóhannsson er hér allt annað en ánægður á svip en nánast allri
kartöflu- og káluppskeru hans var stolið úr skikanum hans i skólagörðunum
í Kópavogi. DV-mynd S
Skólagaröamir í Kópavogi:
Nánast öllu stolið
sem ég setti niður
- segir 11 ára grænmetisræktandi
„Mér finnst þetta alveg svakalega
leiðinlegt þvi ég er búinn að leggja
mikla vinnu í þetta frá því að ég setti
niður í vor. Þegar ég ætlaði að fara
að taka upp fyrir helgina var búið
að stela nánast allri uppskerunni,"
sagöi Fróði Jóhannsson, eUefu ára
grænmetisræktandi í Skólagörðun-
um í Kópavogi, í samtaU við DV eftir
að búið var að stela nánast allri upp-
skeranni hans. Fróði sagðist hafa
sett niður sextíu kartöflur og eitt-
hvað af káU og það eina sem skiUð
hefði verið eftir væru kartöflugrösin
og kálblöðin.
„Ég var ekkert farinn að taka upp
og mér brá rosalega þegar ég sá þetta.
Ég skU ekki hver gerir þetta því alUr
vita að það eru börn og unglingar
sem vinna við að setja þetta niður
og taka upp. Þetta var orðinn hinn
faUegastigarður,“sagðiFróði. -sv
ÚTSALAN
HEFST í FYRRAMÁLIÐ KL. 10:00
0 R I G I ftl fl L
Levrs
lU-Iill
MIKILL AFSLÁTTUR
- í NOKKRA DAGA -
LEVI'S BÚÐIN - LAUGAVEGI 37 - S. 561 8777
LÁTTU EKKI 0FIHIKINN HRAÐA
VALDA PÉR SKADA!
Frystikistur og -skápor q
szthaL
ES-231
• 195 lítra frystikista
• 87x75x66 cm (h-br-d)
• Frystigeta: 14 kg/24 klst.
• Lok meö lás
• Innbyggt Ijós
ES-341
• 296 lítra frystikista
• 87x104x66 cm (h-br-d)i
• Fiystigeta: 21 kg/24 klst.í
• Lok meb lás
• Innbyggt. Ijós
'F-14
125 lítra frystiskápur
85x59,5x60 cm (n-br-d)
Fiystigeta: 10 kg/24 klst.
Viðsnúanleg hurð
1 skúffa og 2 hólf
VF-25
i • 195 lítra frystiskápur
|» 119,5x59,5x60 cm (h-br-d)
• Frystigeta: 18 kg/24 klst.
• Viðsnúanleg hurð
i» 2 skúffur og 3 hólf
VF-29
• 235 lítra frystiskápur
• 138,5x59,5x60 cm (h-br-d)
• Fiystigeta: 22 kg/24 klst.
• Viðsnúanleg hurð
• 3 skúffur og 3 hólf
3ímf: 552 9800
RAÐGPEIDSLUR