Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995
3
Fréttir
Kjaradeila rafiðnaðarmanna á Keflavíkurflugvelli 1 hnút:
Álit ríkislögmanns raf-
iðnaðarmönnum í vil
starfsmannahald vamarliðsins neitar að taka það gilt
Kjaradeila sú sem rafiönaðarmenn
á Keflavíkurflugvelli standa í við
varnarliðiö er komin í algeran hnút.
Bandaríski herinn neitar að gera
kjarasamninga við starfsmenn sína,
hvar sem er í heiminum. Þess í stað
er alltaf skipuð kaupskrárnefnd sem
úrskuröar um kaup og kjör starfs-
manna varnarliðsins og styðst þá við
ákveðna viðmiöunarhópa í þjóðfé-
laginu. Úrskurður kaupskrárnefnd-
ar fyrr í sumar var rafiðnaðarmönn-
um hagstæður í fyrsta sinn að þeirra
sögn. Þá hafnaði launadeild varnar-
liðsins úrskurði kaupskrárnefndar
og sagði hana ekki hafa vald til slíks
úrskurðar.
Utanríkisráðherra, sem skipar í
kaupskrárnefnd, leitaði eftir áliti rík-
islögmanns um stöðu kaupskrár-
nefndar og úrskurðar hennar í
launamálunum á Keflavíkurflug-
Island
£/
$/
o .
<?/
si
Azoreyjar
velh. Urskurðurinn er kominn en
hefur ekki verið birtur opinberlega.
Samkvæmt heimildum DV er hann
raflðnaðarmönnum og kaupskrár-
nefnd hagstæður.
Að sögn Guðmundar Gunnarsson-
ar, formanns Rafiðnaðarsambands-
ins, hafa raflðnaðarmenn ekki fengið
að sjá úrskurðinn. Hann hefur aftur
á móti verið sýndur varnarliðinu.
Samkvæmt heimildum DV hafnaöi
varnarliöið úrskuröi ríkislögmanns
og fór fram á að farið yrði í mál vegna
þessa úrskurðar kaupskrárnefndar
og álits ríkislögmanns. En þá vand-
ast málið.
Varnarliðið má ékki fara í mála-
ferli hér á landi samkvæmt varnar-
samningnum. Það er utanríkisráðu-
neytið sem fer í mál fyrir hönd varn-
arhðsins. En utanríkisráðherra skip-
ar kaupskrárnefnd þannig að ef hann
fer í mál fyrir vamarliðiö er það í
raun utanríkisráðuneytið gegn utan-
ríkisráðuneytinu. Slíkt gengur ekki
upp og lögfræðingar ráðuneytisins
eiga nú í hinum mestu erfiðleikum.
Guðmundur Gunnarsson sagði í
samtaU við DV að hann hefði ekki
hugmynd um hvernig úrskurður rík-
islögmanns liti út. Rafiðnaðarmönn-
um hefur hins vegar verið lofað að
þeir fái að sjá úrskurðinn áöur en
þeir halda miðstjórnarfund næst-
komandi föstudag. Á þeim fundi
verður tekin ákvörðun um framhald
þessa máls.
„Varnarliðið hefur alltaf hafnað
óskum okkar um beina kjarasamn-
inga. En því verður að vera ljóst að
annaðhvort semur það beint við okk-
ur eða samþykkir úrskurð kaup-
skrárnefndar. Ef ekki, þá blasa átök
við,“ sagði Guðmundur Gunnarsson.
...Einn á dag
Línurnar í lag...
Le Patch
Megrunarplásturinn sem sló öll met hjá
Sjónvarpsmarkaðinum nú fáanlegur beint.
4 VIKNA PKN
8 VIKNA PKN
TITANhf
kr. 2.490
kr. 4.490
TÍTANhf
Lágmúla 7-108 Reykjavík
Sími 581 4077 - Fax 581 3977
Frí heimsending um allt land ef greitt er með VISA/EURO
3 éí lýslmin
há§@§§^á*¥i*pfllwl0Mi
327.500,
Grandihf.:
í skoðun að
senda skip til
búraveiða við
Azoreyjar
- um 1700 sjómílna siglingu
„Þetta er eitthvað sem menn horfa
á þegar fyrir liggur að fara þarf
meira út fyrir landhelgina. í þeirri
skerðingu sem verið hefur í karfa og
grálúðu hljótum við að horfa meira
út,“ segir Sigurbjörn Svavarsson,
útgerðarstjóri Granda hf., aðspurður
hvort fyrirtækið hyggist senda skip
sín til veiða á búra við Azoreyjar.
Samkvæmt heimOdum DV er fyrir-
tækið með í skoðun að senda skip til
veiða allt suður undir Azoreyjar.
Þessar hugmyndir eru tilkomnar
vegna árangurs færeysk-norskrar
útgerðar sem stundað hefur þessar
veiðar með ágætum árangri. í Fiski-
fréttum í júní sl. er greint frá veiði-
ferð sem Islendingur fór með skipi í
útgerö þessara aðila. Þar kemur fram
að togarinn Aiksnyne fékk allt að
fjörutíu tonn í hali við Azoreyjar.
Sigurbjöm segir ekkert vera
ákveðiö um hvaða skip færu til þess-
ara veiða ef af þeim verður. Grandi
hefur yfir að ráða öflugum skipastól
sem hentað gæti til þessara veiða.
Um mánaðamótin næstu er togarinn
Engey væntanlegur úr breytingum
þar sem sett var í skipið heilfrysti-
búnaður. Þar með gæti skipið hentað
vel til þessara veiða.
Búrinn er mjög verðmætur flskur
en nýting hans er helsta vandamálið.
Um 1700 sjómílur eru á þessar slóð-
ir frá íslandi. Það er mun lengri leið
heldur en í Smuguna en þangað eru
innan viö 1000 sjómílur frá Aust-
fjörðum. Besti veiöitíminn er frá því
seinnipartvetrarogframávor. -rt
Nordmende RP-46
er 46" sjónvarp með
innbyssðum skjávarpa,
textavarpi, 40 W
masnara, 2 Scart-
tensjum, S-VHS-tensi,
flölkerfa móttöku (Pal,
Secam 03 NTSC),
tímarofa o.fl.
(svartur skjár), íslensku
textavarpi, 40 W Nicam
Stereo Surround-
masnara, 2 Scart-
tensjum, Zoom o.fl.
EUROCARD
raðgreiðslur
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
T7I_ 24 MÁWAÐA
INNKAUPATRYGCING - FRAMIJ3SGDUR ÁBYKGDARTÍMl