Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995 11 Afmæli Dagblaðsins „Ég kunni það vel við blaðasöl- una að ég er enn að selja papp- ír,“ segir Rúnar Gunnarsson. DV-mynd Sveinn Enní sölu- mennskunni „Ég var 10 ára þegar þessi aug- lýsing var gerö og haföi sennilega byrjað aö selja blöð tveimur árum fyrr og var að því til 13 ára ald- urs. Ef ég man rétt þá var mesta samkeppnin á milli mín og þriggja bræöra sem voru einnig aö selja og viö fengum fullt af fólki til starfa fyrir okkur, fólk sem tók blöð í okkar nafni, því þaö voru veitt verðlaun fyrir þá söluhæstu, jafnframt því sem þeir fengu blööin afhent fyrr. Ég man aö ég þénaði vel á þessum tíma. Keypti skrifborð, mynda- vél, skíði og margt fleira,“ segir Rúnar Gunnarsson, sölustjóri Formprents og fyrrum blaðasali Dagblaösins. Rúnar segir aö auk mikilla gönguferða hafi harka einkennt sölustörfin á þessum tíma. Oft hafi komið til handalögmála á milli sölubarna og annarra reyndari blaöasala. Til dæmis hafi Óli blaðasali þurft aö verja söluhomið sitt, á homi Pósthús- strætis og Austurstrætis, með kjafti og klóm. „Eins kaldhæðnislega og það kann að hljóma þá hrósaði maður happi þegar Óli var veikur. Þá var setið um homið hans. Það kom fyrir að ég hringdi upp á Dagblað og pantaði blaðabunka niður í bæ þegar ég varð var við að Óli mætti ekki. Það kom fyrir einhvern tímann undir hádegi, þegar ég var 11 ára í Landakots- skóla, að ég sagöist vera veikur. Um leið og ég slapp úr skólanum fór ég niður í bæ því Óh hafði ekki mætt til vinnu. Einhvern tímann um miðjan dag mætti skólastjórinn og ég þurfti að taka út refsingu daginn eftir.“ Nú, 18 árum eftii að Rúnar hætti að selja Dagblaðið, er hann enn við sölustörf. „Ég kunni þaö vel við þetta að ég er enn að selja pappír," segir Rúnar. -pp Ekiðyfirpar í ástar- leikjum í Dagblaðinu fyrir 20 árum mátti lesa þessa frétt undir fyrir- sögninni „Óvænt stuð“. „Ungt par í London henti óvænt atvik þar í gær þegar þau lögðust á götuna og hófu innilega ástar- leiki. Drukkinn ökumaður ók yfir þau. Bæði misstu meðvitund, rif- brotnuðu og skárust hér og þar. Þá skemmdi ökutækið einnig lif- ur mannsins. Ökumaöurinn, sem er 36 ára, hefur verið sviptur ökuleyfi í eitt ár og sektaður um 34.000 íslensk- ar krónur. Ökumaðurinn var ákærður fyr- ir aö hafa ekið undir áhrifum áfengis." í sama Dagblaði mátti til dæmis lesa að djúpsteikingarpottur kostaði 17.110 krónur. Tuttugu ár frá gerð Dagblaðsauglýsingarinnar: Þólti ekki meistara verk en skilaði sínu - segir Bjami Grímsson - markmiðið var að kynna sérstöðu blaðsins „Þetta var afar harður bardagi í upp- hafi og mikið auglýst. Ég man að ég var í sumarfríi þegar unnið var aö stofnun Dagblaðsins. Ég fékk boð austur á Hallormsstað um að koma í bæinn því að það væri heilmikið í uppsiglingu. Þegar ég kom í bæinn varð ég vitni að þeim látum sem voru í gangi. Það þurfti að fara af stað með auglýsingaherferð, semja kjör- orðiö - frjást, óháð dagblað - og koma því í hausinn á fólki og einkenna blaðið," segir Bjarni Grímsson sem fyrir 20 árum var framkvæmdastjóri Auglýsingastofu Kristínar, auk þess að vera textagerðarmaður og hug- myndasmiður þar. I auglýsingatímum Stöðvar 2 hefur undanfama daga mátt sjá 20 ára gamla auglýsingu Dagblaðsins á skjánum þar sem söluböm blaðsins syngja hástöfum Dagblaðið er óháð Bjami var leikstjóri Dagblaðsauglýsingarinnar fyrir 20 árum. Fjöldi sölubarna lék i augiýsingunni. Á myndinni eru meðal annars tviburarnir Stefán og Kristján, sem rætt er við annars staðar á siðunni, og Rúnar Gunnarsson. DB-mynd Björgvin veriö notað til að hljóðsetja tvær til þrjár auglýsingar en slík vinna taki gjarnan einn dag eða meira nú á tím- um. Bjarni starfar enn viö markaðsmál ýmiss konar, rekur fyrirtækið Sölu- hvata. Til dæmis hélt hann af landi brott í gær til að stjóma markaðs- setningu á íslenskri framleiðslu sem ætlað er að selja í næstum 200 stór- mörkuðum í Bandaríkjunum. Nýverið afhenti hann Kvikmynda- safni íslands allar auglýsingar sem hann tók á filmu um svipað leyti og Dagblaðsauglýsinguna. Hana er þvi að finna þar og hún er því með réttu safngripur þótt hún skili enn sínu í dag og er notuð til að kynna sérstöðu blaösins. -pp Bjarni, sem vinnur enn að markaðs- málum, segir að Dagblaðsauglýs- ingin hafi verið tekin og klippt i sam- ræmi við lagið í auglýsingunni. DV-mynd Sveinn og fijáls. Bjami, sem var potturinn og pannan við gerð auglýsingarinn- ar, er ekki viss um hvernig auglýs- ingin fæddist en markmiðið hafi ver- ið að kynna fólki sérstöðu blaðsins á markaðnum, vinna smáauglýsinga- stríðið og síðast en ekki síst að selja blaðið. „Maður fór í þetta eins og að drepa naut og allt heppnaðist þetta.“ „Það var mikið af auglýsingum framleitt á þessum tíma og ég man nú ekki alveg hvemig þessi fæddist. Ég held þó að Herbert Guðmundsson hafi komið með lagið við auglýsing- una og síðan var saminn texti við það. Loks var auglýsingin tekin og klippt í samræmi við lagið. Það er ekki hægt að segja að ný tækniatriði hafi komið fram við gerð auglýsing- arinnar. Lagið og textinn buðu upp á hraðar khppingar og svo var hún tekin á filmu eins og allar auglýsing- ar vom gerðar þá og menn eru fam- ir að gera á ný nú,“ segir Bjami sem var leikstjóri auglýsingarinnar. Hann segir umrædda auglýsingu alls ekki lifa í minningunni sem meistaraverk. Tröllaauglýsingar Búnaðarbankans geri það frekar en hún hafi þó skilað sínu eins og ætl- ast var til. Hann segir mikið hafi verið að gera á þessum tíma við auglýsingagerð en tækjakostur ekki beysinn. Til dæmis hafi ekkert hljóðsetningarstúdíó ver- ið í landinu en sjónvarpið lánaði-sín tæki vikulega í eina til tvær klukku- stundir að kvöldi til. Kvöldið hafi Tvíburabræður seldu DB fyrir tuttugu árum: Börðumst um sölustaðina Stefán og Kristján fyrir utan aðalbyggingu DV. DV-mynd ÞÖK Það voru ekki einungis ritstjóri, blaðamenn og starfsfólk á skrifstof- um DB sem gerðu það mögulegt að halda úti útgáfu blaðsins. Hundmð sölubarna sáu um að koma því í hendur lesenda því þótt áskrifendur væru nokkuð margir byggðist sala blaðsins á lausasölu á þessum tíma. Tveir að hörðustu sölumönnum blaðsins voru tvíburarnir Stefán og Kristján Kristjánssynir. „Við byrjuðum á að selja Vísi en leist svo betur á nýja blaðið. Dreifing- arstjórinn, Elli Már, Már E.M. Hall- dórsson, fór af Vísi við Stofnun DB og við fórum með honum til að selja blaðið. Stemningin var mjög góð fyrstu dagana sem blaðið kom út og við seldum hrikalega mikið af blöð- um. Þetta var nýtt og eitthvað sem vantaði. Að selja blaðið fyrstu tvær vikurnar var eins og að gefa börnum sælgæti. Maður komst varla upp á hornið sitt að selja, maður þurfti oft að snúa við og sækja fleiri blöð.'Ætli við höfðum ekki selt svona 300 blöð á dag í fyrstu," segja bræðurnir. Iðulega seldu þeir blaðabunkann sinn á homi Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar. „Maður átti sín hverfi og varö að verja þau með hnefunum. Það kom fyrir að maður lenti í slagsmálum og einu sinni var ég sleginn niður þegar strákur kom inn á okkar sölu- svæöi,“ segir Kristján. Þeir segjast hafa haft mjög gott upp úr sölu- mennskunni og virðast hafa haft peningavit og hneigst til að starfa sjálfstætt alveg frá upphafi. Þannig keypti annar þeirra sláttuvél fyrir hýruna og gekk svo í hús efdr að hafa lokið viö að selja blöðin og bauðst til að slá garða fyrir fólk. í dag gerá þeir út eigin sendibíla hjá 3 x 67 og sérhæfa sig í búslóða- og þungaflutningum. Eins og áður taka þeir starfið alvarlega og æfa lyftingar á hverjum morgni til að vera í betra formi þegar tekist er á við verkefni dagsins. Sungið í Sjónvarpinu Vorið 1976 var gerð sjónvarpsaug- lýsing fyrir DB. Auglýsingin var í söngvamyndastíl og í henni lék hóp- ur sölubama. Laglínan var nokkuð einfóld; „Dagblaðið, Dagblaðið, Dag- blaðið er óháð og frjálst," en skilaði sínu. Enn þann dag í dag muna Stef- án og Kristján laglínuna og sungu hana fyrir blaðamann. Þeir segja þetta ekki í eina skiptíð sem þeir komust í fjölmiðla því á þeim tíma sem þetta geröist hafi blaða- mennska verið allt önnur en tíökast í dag. Þá hafi veriö mikið meira um mannlegar fréttir; sjónvarpsmenn hafi t.d. tekið viðtöl við þá við sölu- störfogfleiraíþeimdúr. -pp White-Westinghouse • 75 - 450 lítrar • Stillanlegur vatnshiti • Tveir hitastillar • Tvö element • Glerungshúð að innan • Öryggisventill • Einstefnulokar • Frí heimsending í Rvk. og nágrenni VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR ÁRA RAFVORUR ARMULI 5 • 108 RVK • SIMI 568 6411

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.