Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995
25
Fréttir
Þeir voru á bökkum Víðidalsá, Agnar Kárason og Rögnvaldur Guðmunds-
son, með 17 og 14 punda laxa. DV-mynd G. Bender
MiðQarðará:
Þúsundasti laxinn
„Það veiðist einn og einn lax hérna
í Miðfjarðará og einn og einn sjóbirt-
ingur. Ég held að næsti lax á land
verði númer þúsund og menn bíða
spenntir eftir honum,“ sagði Árni
Baldursson við Miðfjarðará en þar
beið hann eftir löxum og gæsum.
„Við erum búnir að fá laxa og svo
14 gæsir. Það er ekki mikið af gæs
hérna niður frá eins og er, hún er
uppi á heiðum þessa dagana. Ég var
með útlendinga í Laxá á Ásum fyrir
fáum dögum og við fengum 115 laxa.
Áin hefur gefið kringum 1500 laxa
en við veiddum í tvo daga,“sagði
Árni enn fremur og leit til himins.
Gæsirnar voru að koma í kvöldflug-
inu niður með Miðfjarðaránni.
-G. Bender
Álftá á Mýrrnn:
200 laxar og 200 silungar
„Við fengum lítið, fáa sjóbirtinga
en engan lax. Það eru komnir 200
laxar og 200 silungar, stærsti laxinn
er 16 punda,“ sagði Leifur Benedikts-
son en hann var að koma úr Álftá
við þriðja mann.
„Við sáum ekki mikið af fiski í
ánni, allavega ekki laxa, þeir hafa
verið komnir upp á heiöi, blessaðir.
Við sáum laxa í ánni en þeir voru
sárafáir á sveimi," sagði Gunnar enn
fremur. -G. Bender
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200
Slóra sviðið
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Lýsing: Páli Ragnarsson
Leikmynd: Axel H. Jóhannesson
Búningar: María Ólafsdóttir
Tónlistarstjórn: Egill Ólafsson
Dansstjórn: Ástrós Gunnarsdóttir.
Leikstjórn: Þórhallur Sigurösson
Leikendur: Hilmir Snær Guönason, Edda
Heiörún Backman, Jóhann Siguröarson,
Edda Arnljótsdóttir, Gunnar Eyjólfsson,
Anna Kristín Arngrimsdóttir, Bessi Bjarna-
son, Þóra Friðriksdóttir, Örn Árnason, Vig-
dis Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Stef-
án Jónsson, Egill Ólafsson, Magnús Ragn-
arsson, Sigríöur Þorvaldsdóttir og Sveinn
Þórir Geirsson.
Undirleik annast Tamlasveitin: Jónas Þórir
Jónasson, Stefán S. Stefánsson, Björn Thor-
oddsen, Ásgeir Óskarsson, Eiríkur Pálsson,
Gunnar Hrafnsson, Egill Ólafsson.
Frumsýning föstudaginn 22/9 kl. 20.00,2.
sýn. Id. 23/9,3. sýn. fid. 28/9,4. sýn. Id. 30/9.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Föstud. 15/9, Id. 16/9, fid. 21/9, föd. 22/9, Id.
23/9.
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR
6 leiksýningar
Verðkr. 7.840
5 sýningar á stóra sviðinu
og 1 að eigin vali á litla sviðinu
eða smiðaverkstæðinu
EINNIG FÁST SÉRSTÖK KORT Á
LITLU SVIÐIN EINGÖNGU,
- 3 leiksýningar kr. 3.840.
Miöasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga
meöan á kortasölu stendur. Einnig sima-
þjónusta frá kl. 10 virka daga.
Greiöslukortaþjónusta.
Fax: 5611200
Simi miðasölu: 551 1200
Sími skrifstofu: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 30. september.
Fimm sýningar aðeins 7200 kr.
Stóra sviðið kl. 20.30
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Þýðandi: Þórarinn Eldjárn
Tónlistarstjórn og hljóðfæraleikur: Sigurö-
ur RúnarJónsson
Lýsing: Lárus Björnsson
Leikmynd og búningar: Hlin Gunnarsdóttir
Dansar og hreyfingar: Auður Bjarnadóttir
Leikstjóri: Asdis Skuladóttir
Leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir leikur
Línu. Aðrir leikarar: Ari Matthiasson, Árnl
Pétur Guójónsson, Eggert Þorleifsson, Ell-
ert A. Ingimundarson, Helga Braga Jóns-
dóttir, Jakob Þór Einarsson, Jóhanna Jón-
as, Jón Hjartarson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Soffía Jakobsdóttir, Sóley El-
iasdóttir, Theódór Júliusson, Þröstur Leó
Gunnarsson.
Unglingar og börn: Andri örn Jónsson,
Árni Már Þrastarson, Ásdis Lúðviksdóttir,
Guðmundur Elias Knudsen, Ester Ösp
Valdimarsdóttir, Fanney Vala Arnórsdóttir,
Jóhanna Guðmundsdóttir og Sara Margrét
Mikaelsdóttir.
Laugard. 16/9 kl. 14, fáein sæti laus,
sunnud. 17/9 kl. 14 fáein sæti laus, og kl.
17, fáeinsæti laus.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fimmtud. 14/9, föstud. 15/9, uppselt, laug-
ard. 16/9, láein sæti laus, fimmtud. 21/9.
Miðasalan verður opin alla daga frá
kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur.
Tekið er á móti miðapöntunum i sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Ósóttar miðapantanir seldar
sýningardagana.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Meiming Tilkyimingar
Skáklist með orðum
Hún er ósköp fín, Þjóðarbókhlaðan. Eins og ný bók
sem varla er búið að rífa seUófaniö utan af og áður
en maður byrjar að íletta þarf fyrst að þvo sér um
hendumar svo ekki óhreinkist. Samt sem áður er
maður hálfragur við að hefja lesturinn.
Ég var líka dálítið feiminn þegar ég leit inn í bókhlöð-
una á sunnudaginn. Samt var ég nýkominn úr baði og
í burstuðum skóm. En þegar ég fann að það var líkt
á komið með mér og þeim sem fyrir voru leið mér
betur og nýjabrumið og fínheitin seytluðu inn í mig
Atburðir
Úlfar Þormóðsson
og hina og allir voru glaðir, dulítið drýldnir og hátíð-
lega lágmæltir. Enda nauðsynlegt því það fer fram
alþjóðleg skámót í þessu bókasafni tÚ heiðurs Friðriki
Ólafssyni.
Það er búið að skrifa svo mikið um skák að það er
að bera í bakkafullan lækinn að bæta þar orði í belg.
Enda ætla ég einungis að reyna að segja frá því hvern-
ig það er að vera á skákmóti. Sem áhorfandi. í nýju
bókhlöðunni.
Skákmennimir sitja inni í glerbúri og tefla. Fyrst
fannst mér eins og þeir væru til sýnis líkt og kvikindi
merkurinnar í dýragörðum. En þegar prestvígður
maður ávarpaði mig digrum rómi framan við glerið
og skákmennimir litu til okkar undrunaraugum-
fannst mér sem ég væri dýrið í garöinum. Og prestur-
inn. Ég er ekkert viss um að það sé þægilegt fyrir
skákmennina að tefla við þessar kringumstæður.
Þegar ég hafði verið um hríð á áhorfendasvæöi fjær
glerbúrinu, þar sem menn gátu spáð og spjallað á lágu
nótunum og kíkt inn í skákskýringarsal, fékk ég mér
sæti viö glerbúrið og horfði ýmist inn í það eða á sjón-
varpsskjái framan við mig. Þama átti að ríkja þögn.
Mér líkar vel við hana.
En vegna bylgjuhreyfinga í sjónvarpinu þótti mér
vont að horfa lengi á það. Skákborðin tóku að skríða
á móti öldunum upp eftir skjánum og ég botnaði ekki
neitt í neinu. Þá fór ég að horfa inn fyrir veggina þar
sem skákmeistararnir sátu í þungum þönkum, eöa
sötruöu kaffi, eða rápuðu fram á kló, eða drukku
meira kaffi og hvíldu sig á eigin skákum við að horfa
á stöðuna hjá hinum. Allt var þetta með venjulegum
hætti skákmóta.
Nema
Það var komin köttur í ból bjamar. Fröken Polgar
sat þarna í miðjum karlafansi. Einbeitt, ekki síður en
karlamir. Og mér fannst að það hlyti að vera erfitt
að tefla við hana. Einkum til sigurs, því hún er svona
ung og smágerð og dreymin til augnanna. Samt var
fullyrt í mín eyru að menn tefldu við hana af örgustu
grimmd og sigurvilja.
Þá hringdi sími innan í brjóstinu á einhverjum
ómissandi áhorfanda og ég gekk úr lagi. Fór út aö
reykja og ganga og lenti í Norræna húsinu á setningu
bókmenntahátíöar og hlýddi á strengjakvartett og
ræöu Thors Vilhjálmssonar sem talaði tungum og
bauð upp í orðadans svo ég komst í samt lag aftur og
fór endumýjaður maður yfir í bókhlöðu til að fylgjast
með skákinni.
Þá voru nokkrar skákir afstaðnar og þægilegra aö
einþeita sér. Fröken Polgar hafði lagt sinn andstæðing
og var hvergi sjáanleg en ég var svo yfirvegaður eftir
ferðina í Norræna húsið að ég gat séð einn eöa tvo
leiki meistaranna fram í tímann. Svo birtist fröken
Polgar og settist við hliðina á mér. Hún var eins og
ilmbjörk og allt í einu sá ég,að minnsta kosti þijá leiki
fram í tímann. Það er þetta sem vinnst við að vera í
návist meistara. Innsæi. Hvort sem þeir fást við orð
eða skákhst.
Þegar ég fór var tveimur skákum ólokiö. Ég sá ljós-
lega hvernig þeim mundi lykta og því ekki ástæða til
að -sitja lengur. En ég læt ekki hanka mig og þegi yfir
því hvernig þær áttu að fara. Það er betra að spá eftir
á. Það hef ég lært af skákskýringum með orðum.
Haustferð Jöklarann-
sóknarfélags íslands
Hin árlega haustferð félagsins í Jökul-
heima verður farin helgina 15.-17. sept-
ember. Lagt verður af stað á fóstudags-
kvöld kl. 20 frá Guðmundi Jónassyni hf.,
Borgartúni 34. Þátttaka tilkynnist Ást-
valdi Guðmundssyni, Rakarastofunni
Dalbraut 1, vs. 568 6312, eða Alexander
Ingimarssyni í Plastprenti hf., vs. 587
5600.
Safnadarstarf
Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
Fella- og Hólakirkja: Helgistund í
Gerðubergi fimmtudaga kl. 10.30.
Kópavogskirkja: Kyrrðar-ogbænastund
í dag kl. 18.
Seljakirkja: Fynrbænir og íhugun í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartan-
lega velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni, sími 5670110.
Áskirkja: Samverustund fyrir foreldra
ungra barna í dag kl. 13.30-15.30.
Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10.
Leikið á orgelið frá kl. 12.00. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir í dag kl. 18.00.
Langholtskirkja: Foreldramorgunn kl.
10-12. Kirkjustarf aldraðra: Samveru-
stund kl. 13-17. Akstur fyrir þá sem
þurfa. Föndur, spilað, léttar leikfimiæf-
ingar. Dagþlaðalestur, kórsöngur, ritn-
ingarlestur, þæn. Kaffiveitingar. Aftan-
söngur kl. 18.00.
Neskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
18.05. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstimd kl.
12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisveröur í safnaðarheimil-
inu.
1*111 R
DV
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
gjgej
Fótbolti
2 [ Handbolti
3 [ Körfubolti
4 ; Enski boltinn
5] ítalski boltinn
6 Þýski boltinn
7 j Önnur úrslit
8 NBA-deildin
1\ Vikutilboð
stórmarkaðanna
[2] Uppskriftir
11 Læknavaktin
_2J Apótek
31 Gengi
1} Dagskrá Sjónvarps
2 j Dagskrá Stöðvar 2
3 j Dagskrá rásar 1
4 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5[ Myndbandagagnrýni
6 ísl. listinn
-topp 40
71 Tónlistargagnrýni
81 Nýjustu myndböndin
5
lj Krár
2 i Dansstaðir
.3[ Leikhús
4 Leikhúsgagnrýni
U Bíó
. 6 j Kvikmyndagagnrýni
sW/áU/iatáiMi'fea
1J Lottó
2j Víkingalottó
3 i Getraunir
1%»! n
ViIviH
iFTOÍ
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
I