Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1995, Síða 28
Fóru þingmenn í kringum hlutina
þegar þeir ákváðu sín laun?
Mokum ekki
til okkar
úr sjóðum
„Sagan sýnir að þingmenn
hafa ekki verið að moka til sín
úr opinberum sjóðum.“
Össur Skarphéðinsson þlngmaður,
ÍDV.
Mikil útgjöld
„Þetta starf hefur í for með sér
mun meiri útgjöld en ég hafði
nokkru sinni ímyndað mér.“
Hjálmar Árnason þingmaður, f DV.
Ummæli
Ekki reyna við „dánlód"
„Þetta er alvöru „stöff“ og í
guöanna bænum ekki reyna við
„dánlód" ef þið hafið eitt af þess-
um hæggengu 9.400 bauda
mótöldum.“
Internetfræðsla f Alþýðublaðinu.
Leikum niðrímóti
„Völlurinn er hálfgerð brekka.
Við leikum niðrímóti í fyrri hálf-
leik.“
Logi Ólafsson þjálfari f fréttum á RÚV.
Söngur breyttist í hvell
„Skyndilega heyrðum við söng
í drifinu og tveimur kílómetrum
síðar breyttist söngurinn í háan
hvell.“
Hjörtur P. Jónsson rallökumaður, f
Morgunblaðinu.
Starf Flugbjörg-
unarsveit-
arinnar kynnt
Kynningarfundur á starfi
Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík verður í kvöld kl.
20.00 I húsnæði sveitarinnar við
Flugvallarveg.
Kosningafundur AB
Kynningarfundur vegna for-
mannskjörs í Alþýðubandalag-
inu verður á Egilsstöðum i kvöld
kl. 20.30.
Gengið um strönd
Grafarvogs
í kvöldgöngu HGH í kvöld
verður gengið um útivistarsvæði
og strönd Grafarvogs að Elliðaár-
vogi. Mæting við Miðbakkatjald-
ið kl. 20.00.
Samkomur
Fjöltefli
Sofia Polgar teflir fjöltefli í
húsnæði Taflfélags Reykjavíkur
að Faxafeni 12 í dag kl. 17.00. Öll-
um heimil þátttaka.
Einoka mæður
börnin sín?
Morgunverðarfundur Kven-
réttindafélags íslands verður í
Skrúð, Hótel Sögu, í fyrramálið
kl. 8.15-9.45. Göran Wimmer-
ström flytur erindi.
Besti dagur ævi þinnar...
ITC-Melkorka heldur fúnd í
kvöld kl. 20.00 í Gerðubergi. Stef
fundarins er: Besti dagur ævi
þinnar er dagurinn í dag, ef þú
notar hann rétt.
28
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER
eða rigning
Súld
í dag verður suðvestlæg átt, sums
staðar stinningskaldi suðvestan til í
fyrstu en annars gola eða kaldi. Um
landið sunnanvert og allra vestast á
landinu verður súld eða rigning
með köflurn. Norðanlands verður
skýjað með köflum. Hiti verður á
Veðrið í dag
bilinu 8 til 16 stig í dag, hlýjast í
innsveitum norðanlands. í nótt
verður 5 til 9 stiga hiti. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður suðaustan-
gola eða kaldi. Þá verður dálítil súld
eða rigning með köflum og hiti 9 til
13 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.03
Sólarupprás á morgun: 6.46
Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.04
Árdegisflóð á morgun: 9.22
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaö 5
Akurnes alskýjaó 8
Bolungarvík skýjaö 9
Egilsstaöir hálfskýjaö 8
Keflavíkurflugvöllur rigning 10
Kirkjubœjarklaustur alskýjaö 8
Raufarhöfn heiöskirt 4
Reykjavik súld 10
Stórhöföi súld 9
Bergen alskýjaö 13
Helsinki léttskýjaö 9
Kaupmannahöfn þoka 13
Ósló skýjaó 12
Stokkhólmur skýjaö 12
Þórshöfn alskýjaö 10
Amsterdam lágþokubl. 11
Barcelona þrumuveöur 16
Berlín skýjaö 15
Feneyjar skýjaö 18
Frankfurt rigning 15
Glasgow þokumóöa 11
Hamborg skýjaö 14
London þokumóöa' 10
Lúxemborg skýjaö 11
Madríd léttskýjaö 12
Mallorca þrumuv. 20
Montreal heiðskírt 18
New York alskýjaö 22
Nice þrumuv. 18
Nuuk rigning 2
Orlando skýjaö 25
París þokuruön. 9
Róm rigning 21
Valencia skýjaö 19
Vín skýjaö 16
Winnipeg heiöskírt 16
Ásgeir Sigurðsson rallökumaður:
Ákveðin friðþæging að hafa náð settu marki
„Ég tók þátt í fyrstu rallkeppn-
inni í aprU 1978 en hef þó ekki ver-
ið með öll árin síðan, hef sleppt úr
einu og einu ári og jafnvel tveimur
í röð,“ segir rallkappinn Ásgeir
Sverrisson sem ásamt félaga sín-
um, Braga Guðmundssyni, sigraði
í alþjóðaraflinu um siðustu helgi.
Er þetta fjórða árið í röö sem þeir
sigra í þessu stærsta raUi sem
haldið er árlega hér á landi.
Ásgeir, sem sigraði fyrst í raU-
keppni 1985, segist hafa keyrt á
margs konar bUum: „Maður er bú-
inn að fara allan stigann, byrjaði á
druslu en endar svo á Metróinum
sem ég hef keyrt i nokkur ár.“
Maður dagsins
Það vekur athygli að alþjóðaraU-
ið er fyrsta raUið sem Ásgeir og
Bragi taka þátt í á þessu tímabUi:
„Við höfum ekkert keppt á þessu
ári fyrr en nú og kepptum heldur
ekkert í fyrra. Það er lítið gaman
að gera alltaf sömu hlutina aftur
og aftur. Eftir að búið er að ná
settu marki þá er komin ákveðin
friðþæging, sem hægt er að una
við.“
Ásgeir Sigurðsson.
Ásgeir var spurður hvort næst
væri ekki að fara í stóru röllin í út-
löndum: „Sjálfsagt væri það rétt
framhald en að fara í þessar stóru
keppnir vex manni í augum. Þama
eru margir á jötunni sem erfitt er
að komast á.“
Ásgeir sagðist hafa æft vel fyrir
alþjóðaraUið og sigurinn kom hon-
um ekkert á óvart: „Við þekkjum
orðið bflinn vel, enda búnir að
vera á honum í fimm ár og svo
erum við með snjaUan fagmann
sem fer yfir bílinn. Hann gjörþekk-
ir hvert einasta stykki í bílnum og
fylgist vel með að aUt sé I fuU-
komnu lagi.“
Hvað framtíðina vai'ðar sagði
Ásgeir hana óráðna. „Þetta fer að
veröa ágætt. Það liggur við að
helmingurinn af ævinni hafl farið
meira og minna í raUið.“
Ásgeir Sigurðsson vinnur hjá
Tryggingu hf. og skoðar skemmda
bUa og tjónmetur þá. Hann segist
aUtaf furða sig á hve lítið pláss
virðist vera fyrir bUana á götunum
þegar litið sé á hve margir árekst-
ara verða daglega en talið er að um
fjörutíu árekstrar verði á hverjum
degi: „Þetta er eins og stórfljót sem
ekki er hægt að stoppa. AUtaf er
það sami pakkinnn á hverju ári. Ef
það er rólegt eina vikuna eykst
bara fjöldinn þá næstu og eftir
hvert ár kemur í ljós að árekstrum
hefur ekkert fækkað." Ásgeir er
giftur Þorgerði Gunnarsdóttur og
eiga þau þrjú böm, tvo stráka og
eina stúlku.
Myndgátan
Hefur vaðið fyrir neðan sig
DV
Meistaraslagur í
hand-
boltanum
Nú fer knattspymuvertíðinni
að ljúka og við tekur handbolti
og körfubolti. Handboltinn er
þegar byrjaður og lauk Stór-
Reykjavikurmótinu um síðustu
helgi með sigri íslandsmeistara
Vals. LítU er hvUdin hjá Vals-
mönnum því í kvöld fer fram ár-
leg viðureign mUli bikarmeist-
íþróttir
ara og íslandsmeistara og leikur
Valur við KA á Akureyri.
Fyrstu deildar keppnin í hand-
boltanum hefst síðan á sunnu-
daginn og verður þá fróðlegt að
sjá hvemig liöin koma tU leiks
en miklar breytingar hafa orðið
á liðunum frá því sem var á síð-
asta keppnistímabili.
Skák
Helgi Áss Grétarsson vann
Smyslov glæsUega í 7. umferð Frið-
riksmótsins. Grípum niður í skák-
ina er leiknir hafa verið 20 leikir.
Helgi Áss hafði hvítt og átti leik:
21. Da3+ Rd6 22. Hfdl De5 23.
Hxd6! Hxd6 24. Hdl og Smyslov
gafst upp.
í dag er frídagur á mótinu en 10.
og næstsíðasta umferð verður tefld
á morgun, fimmtudag.
Jón L. Árnason
Bridge
Á sunnudaginn var spilað
silfurstigamót með þátttöku 24 sveita í
Bridgesambandshúsinu, en spilað var
með Monrad niðurröðun. Sigurvegari
varð sveit sem kallaði sig „Fimm
gúrkur" en hún vann góðan sigur á sveit
Landsbréfa 1 lokaumferðinni. Spilarar í
sigursveitinni voru Aðalsteinn
Jörgensen, Jakob Kristinsson, Július
Sigurjónsson, Magnús Magnússon og
Sveinn R. Eiríksson. Hér er eitt spil úr
keppninni sem kom fyrir í leik sveita
Einars Jónssonar og Olafs Steinasonar.
Sagnir gengu þannig í lokuðum sal,
suður gjafari og a-v á hættu:
* KDG862
* ÁD4
* K753
4 —
* 54
* G963
* D9
* KD1086
* 109
«4 K
* Á862
* ÁG9752
Suður Vestur Norður Austur
1+ pass lg pass
24 dobl redobl 2*
pass pass 24 pass
3+ pass 34 pass
4é pass 64 p/h
Opnun suðurs lofaði ójafnskiptri hendi
og 11-15 punktum. Norður, Helgi
Sigurðsson, sagði eitt grand sem var
úttektarkrafa (game) og tvö lauf lýstu
minnst 5 laufum. Vestur var djarfur
þegar hann doblaði og norður bauð upp á
að spila spilið redoblað. Austur flúðu i
tvö hjörtu og suður sýndi tigullit sinn
eftir spaðasögn norðurs. Helgi taldi
líklegt aö vestur ætti töluvert af
laufpunktum fyrir dobli sinu og hélt því
að punktar suðurs myndu nýtast vel í
slemmu. Austur átti erfitt með að finna
útspiliö sem hnekkir slemmunni, spaðaás .
og meiri spaða. Útspilið var lauf, Helgi
drap á ás, tók hjartakóng, tígulás og
kóng, ÁD'í hjarta, henti tveimur tíglum I
blindum og trompaði tígul. Hann gaf því
aðeins slag á spaðaásinn og gróðinn var
11 impar því samningurinn var 4 spaðar
á hinu borðinu.
ísak Örn Sigurðsson