Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995
33
• Helgi Eyjólfsson var viö veiöar í Brennunni í sumar og veiddi vel eins
og sjá má á myndinni. Alls kom 201 lax og jafnmargir silungar á land úr
Brennunni í sumar.
Lokatölur berast úr veiðiánum:
Ágæt veiði í Álftá
og Brennunni
- algert hrun í Fnjóská
Lokatölur berast nú úr hverri
veiöiánni af annarri. Veiði er lokiö í
Brennunni og þar kom 201 lax á land
í sumar og sama magn af silungi.
Stærsti laxinn, sem veiddist í Brenn-
unni í sumar, vó 19,5 pund.
„Við fengum 17 fiska félagarnir, 2
laxa og 15 sjóbirtinga," sögöu þeir
Bragi Michaelsson og Snorri Tómas-
son en þeir voru að koma úr Álftá á
Mýrum. Þeir félagmir fengu sjö sjó-
birtinga í beit í Lambafossi og Snorri
fékk 17 punda lax í Hólknum og er
það annar stærsti laxinn úr ánni 1
sumar. Stærsti laxinn úr Álftá í sum-
ar vó 19 pund. Alls hafa 55 laxar
veiðst í Veitá sem rennur í Álftá.
Lokatölur úr Norðurá
Nýjar lokatölur úr Norðurá sýna að
alls veiddust 1698 laxar í sumar. Þar
af veiddust 40 laxar í framlenging-
unni. Stærsti laxinn úr Norðurá var
17,5 pund og hann veiddi séra Sigurð-
ur Guðmundsson.
Dapurt í Fnjóská
Veiði hefur verið afskaplega döpur í
Fnjóská í sumar. Fyrir nokkrum
árum veiddust hátt í 600 laxar í ánni
en í gær voru aðeins komnir 52 lax-
ar. Veiði í Fnjóská lýkur í dag og ljóst
að um algert hrun verður að ræða í
Fnjóskánni.
Flókadalsá:
Mjög mikið magn af laxi
- tímabiliö framlengt til 1. október
Heíðbundnu veiðitímabili er að
ljúka í Flókadalsá og á land eru
komnir um 270-280 laxar, að sögn
Ingvars Ingvarssonar, bónda á Múla-
stööum.
„Það hefur verið gríðarlega mikið
af laxi í Flókunni í sumar en hann
hefur verið latur viö að taka agn
veiðimanna. Menn eru helst á því að
þar sé vatnsleysi rnn að kenna. Mér
er til efs að meira hafi gengið af laxi
í ána mörg undanfarin ár,“ sagði Ing-
var Ingvarsson.
Veiðimenn í Flóku hafa veitt vel á
flugu í sumar. Vatnsleysið hefur hins
vegar gert það að verkum að oft hafa
menn verið að reyna afar smáar flug-
ur og því misst mun meira af laxi en
ella hefði verið.
Útlit er fyrir að vatn aukist í Flók-
unni næstu daga en spáð er rigningu
og veiðitímabilið hefur verið fram-
lengt til 1. október.
Þessir vígalegu veiðimenn, Guömundur Ó. Bjarnason og Guömundur Stef-
án Maríusson, voru við veiðar á dögunum i Laxá á Refasveit. Veiðin gekk
frekar rólega en þeir sáu þó nokkuð af laxi í Neðri Rana, Gljúfrapolli og
fleiri veiðistöðum. Alls hafa veiðst 135 laxar í Laxá á Refasveit i sumar.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 30. september.
Fimm sýningar aðeins 7200 kr.
Stóra sviðiö kl. 20.30
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Laugd. 23/9 kl. 14, fáein sæti laus, sunnud.
24/9 ki. 14, fáein sæti iaus, og sunnudag
kl. 17, laugard. 30/9 kl. 14.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Flmmtud. 21 /9, fáeln sæti iaus, föstud. 22/9,
laugard. 23/9, fimmtud. 28/9, fáein sæti laus,
fös. 29/9.
ATH. Sýnlngum fer fækkandi.
Litla svið
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmílu Razumovskaju.
Frumsýning sunnudaginn 24/9, uppselt,
þriðjud. 26/9, uppselt, miöv. 27/9, uppselt,
lau. 30/9.
Miðasalan verður opin alla daga frá
kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur.
Tekið er á móti miðapöntunum í sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Tapað fundið
Fjallahjól tapaðist
Glænýtt KHS Montana fjallahjól var tek-
ið úr kjallara á Hringbraut í Reykjavík
um síðustu helgi. Ef einhver getur gefið
upplýsingar um hjólið er hann vinsam-
legast beðinn að hringja í vs. 588 9798 eða
hs. 552 5255.
Hjónaband
Þann 3. júní voru gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Þorsteinssyni
Guðrún Indriðadóttir og Jón Eyjólfs-
son. Þau eru til heimilis að Hraunbæ
156, Reykjavík.
Ljósm. Lára Long.
Leiðrétting
Maðurinn sem vitnað var til í frétt
um dauða meri í Hnappadal um síð-
ustu helgi heitir Kolbeinn Óskarsson
en ekki Kristinsson eins og sagt var
í fréttinni.
Leiðrétting
Röng mynd birist með Dagfara í
gær. Þar var birt mynd af Agli Ingi-
bergssyni í stað Hallgríms Helgason-
ar. DV biðst afsökunar á þessum
mistökum.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200
Stóra sviðið
ÞREKOGTÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Frumsýning (östudaglnn 22/9 kl. 20.00, örfá
sæti laus, 2. sýn. Id. 23/9, nokkur sæti laus,
3. sýn. fid. 28/9, nokkur sæti laus, 4. sýn. Id.
30/9, nokkur sæti laus.
Smíðaverkstæöið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Fid. 21/9, uppselt, töd. 22/9, uppselt, Id. 23/9,
uppselt, fid. 28/9, Id. 30/9, nokkur sæti laus,
md.4/10, sd.8/10.
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR TIL 30.
SEPTEMBER
6 leiksýningar
Verðkr. 7.840
5 sýningar á stóra sviölnu
og 1 að eigin vali á litia sviðinu
eða smiöaverkstæöinu
Einnig fást sérstök kort á litlu sviðin
eingöngu,
-3 leiksýningar kr. 3.840.
Miöasatan er opln frá kl. 13-20 alla daga
meöan á kortasölu stendur. Einnig sima-
þjónusta frá kl. 10 vlrka daga.
Greióslukortaþjónusla.
Fax: 5611200
Simi miðasölu: 5511200
Simiskritstofu: 5511204
VELKOMIN i ÞJODLEIKHUSIÐ!
Tilkynningar
Félagsstarf aldraðra
í Gerðubergi
Á morgun, fimmtudag, kl. 9 er sund og
leikfimiæfmgar í Breiðholtslaug. Kenn-
ari Edda Baldursdóttir, kl. 10.30 helgi-
stund, umsjón sr. Hreinn Hjartarson.
Miðvikudaginn 27. september verður far-
ið í heimsókn í Listasmiðjuna í Hafnar-
firði og kaffi í Hafnarborg. Upplýsingar
og skráning í s. 557 9020.
Breytingar hjá Esso
við Stórahjalla
Nú standa yfir breytingar á bensír.stöð
Esso við Stóralýalla í Kópavogi. M.a. er
verið að setja upp fullkomnari dælur og
stækka stöðina. Viðskiptavinir verða
óhjákvæmilega fyrir nokkrum óþægind-
um vegna framkvæmdanna og til aö
koma til móts við þá hefur Olíufélagið
hf. ákveðið að bjóöa þeim verðlækkun
sem nemur 2 kr. á hvem bensín- eða djs-
ellítra, jafnvel þótt full þjónusta sé veitt.
Safnaöarstarf
Seltjamarneskirkja: Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Miövikudagur 20. september
Áskirkja: Samverastund fyrir foreldra
ungra bama í dag kl. 13.30-15.30.
Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10.
Leikið á orgelið frá kl. 12.00. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir í dag kl. 18.
Langholtskirkja: Foreldramorgunn kl.
10-12. KirRjustarf aldraöa: Samvem-
stund kl. 13-17. Akstur fyrir þá sem
þurfa. Föndur, spilað, léttar leikfimiæf-
ingar. Dagblaðalestur, kórsöngur, ritn-
ingarlestur, bæn. Kafiiveitingar. Aftan-
söngur kl. 18.00.
Neskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
18.05. Guðmundur Óskar Ólafsson. Kven-
félag Neskirkju hefúr opið hús í dag kl.
13-17 í safnaðarheimili kirkjunnar. Litli
kórinn æfir kl. 16.15. Umsjón Inga Back-
man og Reynir Jónasson.
Si'ltjarnarneskirkja: Kyrrðarst’md kl.
12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í safnaðarheimil-
inu.
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
:1\ Fótbolti
2J Handbolti
3 j Körfubolti
4 Enski boltinn
51 ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
8j NBA-deildin
2 WMMMM
■ 1 j Vikutilboð
stórmarkaðanna
2: Uppskriftir
|y Læknavaktin
2} Apótek
3 [ Gengi
1\Dagskrá Sjónvarps
2 j Dagskrá Stöðvar 2
3 Dagskrá rásar 1
4 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
51 Myndbandagagnrýni
6 ísl. listinn
-topp 40
J7j Tónlistargagnrýni
8 j Nýjustu myndböndin
Smrnmmmim
lj Krár
21 Dansstaðir
31Leikhús
4 jLeikhúsgagnrýni
_5J Bíó
6 Kvikmyndagagnrýni
r vinningsnumer
A1 Lottó
2} Víkingalottó
3 Getraunir
liíllA,
DV
904-1700
Verö aöeins 39,90 mín.