Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1995, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 33 • Helgi Eyjólfsson var viö veiöar í Brennunni í sumar og veiddi vel eins og sjá má á myndinni. Alls kom 201 lax og jafnmargir silungar á land úr Brennunni í sumar. Lokatölur berast úr veiðiánum: Ágæt veiði í Álftá og Brennunni - algert hrun í Fnjóská Lokatölur berast nú úr hverri veiöiánni af annarri. Veiði er lokiö í Brennunni og þar kom 201 lax á land í sumar og sama magn af silungi. Stærsti laxinn, sem veiddist í Brenn- unni í sumar, vó 19,5 pund. „Við fengum 17 fiska félagarnir, 2 laxa og 15 sjóbirtinga," sögöu þeir Bragi Michaelsson og Snorri Tómas- son en þeir voru að koma úr Álftá á Mýrum. Þeir félagmir fengu sjö sjó- birtinga í beit í Lambafossi og Snorri fékk 17 punda lax í Hólknum og er það annar stærsti laxinn úr ánni 1 sumar. Stærsti laxinn úr Álftá í sum- ar vó 19 pund. Alls hafa 55 laxar veiðst í Veitá sem rennur í Álftá. Lokatölur úr Norðurá Nýjar lokatölur úr Norðurá sýna að alls veiddust 1698 laxar í sumar. Þar af veiddust 40 laxar í framlenging- unni. Stærsti laxinn úr Norðurá var 17,5 pund og hann veiddi séra Sigurð- ur Guðmundsson. Dapurt í Fnjóská Veiði hefur verið afskaplega döpur í Fnjóská í sumar. Fyrir nokkrum árum veiddust hátt í 600 laxar í ánni en í gær voru aðeins komnir 52 lax- ar. Veiði í Fnjóská lýkur í dag og ljóst að um algert hrun verður að ræða í Fnjóskánni. Flókadalsá: Mjög mikið magn af laxi - tímabiliö framlengt til 1. október Heíðbundnu veiðitímabili er að ljúka í Flókadalsá og á land eru komnir um 270-280 laxar, að sögn Ingvars Ingvarssonar, bónda á Múla- stööum. „Það hefur verið gríðarlega mikið af laxi í Flókunni í sumar en hann hefur verið latur viö að taka agn veiðimanna. Menn eru helst á því að þar sé vatnsleysi rnn að kenna. Mér er til efs að meira hafi gengið af laxi í ána mörg undanfarin ár,“ sagði Ing- var Ingvarsson. Veiðimenn í Flóku hafa veitt vel á flugu í sumar. Vatnsleysið hefur hins vegar gert það að verkum að oft hafa menn verið að reyna afar smáar flug- ur og því misst mun meira af laxi en ella hefði verið. Útlit er fyrir að vatn aukist í Flók- unni næstu daga en spáð er rigningu og veiðitímabilið hefur verið fram- lengt til 1. október. Þessir vígalegu veiðimenn, Guömundur Ó. Bjarnason og Guömundur Stef- án Maríusson, voru við veiðar á dögunum i Laxá á Refasveit. Veiðin gekk frekar rólega en þeir sáu þó nokkuð af laxi í Neðri Rana, Gljúfrapolli og fleiri veiðistöðum. Alls hafa veiðst 135 laxar í Laxá á Refasveit i sumar. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Sala aðgangskorta stendur yfir til 30. september. Fimm sýningar aðeins 7200 kr. Stóra sviðiö kl. 20.30 LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Laugd. 23/9 kl. 14, fáein sæti laus, sunnud. 24/9 ki. 14, fáein sæti iaus, og sunnudag kl. 17, laugard. 30/9 kl. 14. Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber Flmmtud. 21 /9, fáeln sæti iaus, föstud. 22/9, laugard. 23/9, fimmtud. 28/9, fáein sæti laus, fös. 29/9. ATH. Sýnlngum fer fækkandi. Litla svið HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmílu Razumovskaju. Frumsýning sunnudaginn 24/9, uppselt, þriðjud. 26/9, uppselt, miöv. 27/9, uppselt, lau. 30/9. Miðasalan verður opin alla daga frá kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur. Tekið er á móti miðapöntunum í sima 568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar, frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. Tapað fundið Fjallahjól tapaðist Glænýtt KHS Montana fjallahjól var tek- ið úr kjallara á Hringbraut í Reykjavík um síðustu helgi. Ef einhver getur gefið upplýsingar um hjólið er hann vinsam- legast beðinn að hringja í vs. 588 9798 eða hs. 552 5255. Hjónaband Þann 3. júní voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Þorsteinssyni Guðrún Indriðadóttir og Jón Eyjólfs- son. Þau eru til heimilis að Hraunbæ 156, Reykjavík. Ljósm. Lára Long. Leiðrétting Maðurinn sem vitnað var til í frétt um dauða meri í Hnappadal um síð- ustu helgi heitir Kolbeinn Óskarsson en ekki Kristinsson eins og sagt var í fréttinni. Leiðrétting Röng mynd birist með Dagfara í gær. Þar var birt mynd af Agli Ingi- bergssyni í stað Hallgríms Helgason- ar. DV biðst afsökunar á þessum mistökum. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 Stóra sviðið ÞREKOGTÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Frumsýning (östudaglnn 22/9 kl. 20.00, örfá sæti laus, 2. sýn. Id. 23/9, nokkur sæti laus, 3. sýn. fid. 28/9, nokkur sæti laus, 4. sýn. Id. 30/9, nokkur sæti laus. Smíðaverkstæöið kl. 20.00 TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright Fid. 21/9, uppselt, töd. 22/9, uppselt, Id. 23/9, uppselt, fid. 28/9, Id. 30/9, nokkur sæti laus, md.4/10, sd.8/10. SALA ÁSKRIFTARKORTA STENDUR YFIR TIL 30. SEPTEMBER 6 leiksýningar Verðkr. 7.840 5 sýningar á stóra sviölnu og 1 að eigin vali á litia sviðinu eða smiöaverkstæöinu Einnig fást sérstök kort á litlu sviðin eingöngu, -3 leiksýningar kr. 3.840. Miöasatan er opln frá kl. 13-20 alla daga meöan á kortasölu stendur. Einnig sima- þjónusta frá kl. 10 vlrka daga. Greióslukortaþjónusla. Fax: 5611200 Simi miðasölu: 5511200 Simiskritstofu: 5511204 VELKOMIN i ÞJODLEIKHUSIÐ! Tilkynningar Félagsstarf aldraðra í Gerðubergi Á morgun, fimmtudag, kl. 9 er sund og leikfimiæfmgar í Breiðholtslaug. Kenn- ari Edda Baldursdóttir, kl. 10.30 helgi- stund, umsjón sr. Hreinn Hjartarson. Miðvikudaginn 27. september verður far- ið í heimsókn í Listasmiðjuna í Hafnar- firði og kaffi í Hafnarborg. Upplýsingar og skráning í s. 557 9020. Breytingar hjá Esso við Stórahjalla Nú standa yfir breytingar á bensír.stöð Esso við Stóralýalla í Kópavogi. M.a. er verið að setja upp fullkomnari dælur og stækka stöðina. Viðskiptavinir verða óhjákvæmilega fyrir nokkrum óþægind- um vegna framkvæmdanna og til aö koma til móts við þá hefur Olíufélagið hf. ákveðið að bjóöa þeim verðlækkun sem nemur 2 kr. á hvem bensín- eða djs- ellítra, jafnvel þótt full þjónusta sé veitt. Safnaöarstarf Seltjamarneskirkja: Foreldramorgunn kl. 10-12. Miövikudagur 20. september Áskirkja: Samverastund fyrir foreldra ungra bama í dag kl. 13.30-15.30. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10. Leikið á orgelið frá kl. 12.00. Léttur há- degisverður á kirkjuloftinu á eftir. Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn- ir í dag kl. 18. Langholtskirkja: Foreldramorgunn kl. 10-12. KirRjustarf aldraöa: Samvem- stund kl. 13-17. Akstur fyrir þá sem þurfa. Föndur, spilað, léttar leikfimiæf- ingar. Dagblaðalestur, kórsöngur, ritn- ingarlestur, bæn. Kafiiveitingar. Aftan- söngur kl. 18.00. Neskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.05. Guðmundur Óskar Ólafsson. Kven- félag Neskirkju hefúr opið hús í dag kl. 13-17 í safnaðarheimili kirkjunnar. Litli kórinn æfir kl. 16.15. Umsjón Inga Back- man og Reynir Jónasson. Si'ltjarnarneskirkja: Kyrrðarst’md kl. 12.00. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimil- inu. 904-1700 Verð aðeins 39,90 mín. :1\ Fótbolti 2J Handbolti 3 j Körfubolti 4 Enski boltinn 51 ítalski boltinn 61 Þýski boltinn 71 Önnur úrslit 8j NBA-deildin 2 WMMMM ■ 1 j Vikutilboð stórmarkaðanna 2: Uppskriftir |y Læknavaktin 2} Apótek 3 [ Gengi 1\Dagskrá Sjónvarps 2 j Dagskrá Stöðvar 2 3 Dagskrá rásar 1 4 Myndbandalisti vikunnar - topp 20 51 Myndbandagagnrýni 6 ísl. listinn -topp 40 J7j Tónlistargagnrýni 8 j Nýjustu myndböndin Smrnmmmim lj Krár 21 Dansstaðir 31Leikhús 4 jLeikhúsgagnrýni _5J Bíó 6 Kvikmyndagagnrýni r vinningsnumer A1 Lottó 2} Víkingalottó 3 Getraunir liíllA, DV 904-1700 Verö aöeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.