Þjóðviljinn - 12.03.1978, Síða 4
4 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. mars 1978
Fjárfest
í orkuskorti
Þegar Gunnar Thoroddsen tók við yfir-
stjórn orkumála var fyrsta verk hans að á-
kveða að fresta lagningu byggðalinu enda
þótt efni væri tilbúið til framhaldsfram-
kvæmda. Um leið tók hann ákvörðun um
að hafa Kröfluvirkjun stærri en gert hafði
verið ráð fyrir. Saga Kröfluvirkjunar er
þekkt, og vitað er að tafirnar á lagningu
byggðalinu hafa kostað miljarða króna i
disilkeyrslu fyrir Rafmagnsveitur rikis-
ins.
Nú undir lok kjörtimabils, liggur fyrir
að framkvæmdir i orkumálum eru i stór-
felldri hættu. 1 stað þeirrar einbeittu iðn-
aðarstefnu sem fylgt var i tið vinstri
stjórnarinnar liggur nú fyrir að hitaveitu-
framkvæmdir, lagning austurlinu, endur-
bygging dreifikerfisins og fleiri þættir
orkumálanna eru i stórkostlegri hættu
vegna fjármagnsleysis. Ákvörðun um
fjársvelti raforkukerfisins var tekin við
afgreiðslu f járlaga siðastliðið haust er all-
ar tillögur um aukið fjármagn til orku-
mála voru felldar. Það er þvi stefna rikis-
stjórnarinnar sem þarna birtist. Trúleysi
hennar á athafnir Islendinga til þess að
byggja upp islensk iðnaðartækifæri mun
kosta landsmenn gifurlega fjármuni i
framtiðinnni, ekki aðeins i islenskum
krónum, heldur i gjaldeyri.
Raforkuiðnaðurinn og efling hans
er ein mikilvægasta grein islenskrar
atvinnuuppbyggingar. Með styrkum raf-
Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann.
Auglýsingastj: Gunnar Steinn Pálsson.
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Síöumúla 6, Sfmi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Málgagn sósialisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis.
orkuiðnaði er unnt að skapa grundvöil
nýrra iðnaðartækifæra úr islenskum hrá-
efnum og um leið unnt að spara verulegar
fúlgur i gjaldeyri. Þannig er raforkuiðn-
aðurinn i senn undirstaða islensks þjón-
ustu- og vöruiðnaðar af margvislegum
toga og gjaldeyrissparandi starfsemi sem
jafngildir útflutningsgreinum. Það var þvi
i samræmi við meginstefnu Alþýðubanda-
lagsins að mikil áhersla var lögð á raf-
orkumálin i tið vinstristjórnarinnar undir
forystu Magnúsar Kjartanssonar sem iðn-
aðarráðherra.
Magnús Kjartansson á nú sæti i orku-
ráði og i vikunni fiutti hann tillögu um raf-
orkumálin vegna hins geigvænlega útlits
sem er afleiðing af aðgerðarleysi rikis-
stjórnarinnar. 1 tillögunni lagði Magnús til
að orkuráð samþykkti að skora á orku-
málaráðherra að beita ::s.ér fyrir þvi innan
rikisstjórnarinnar að aflað verði með inn-
lendri lántöku að minnsta kosti 500 mil-
jóna króna til þess að unnt verði að fjár-
magna i ár óhjákvæmilegar framkvæmd-
ir á sviði hitaveitumála og raforkudreif-
ingu. Fulltrúar stjórnarflokkanna —
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Ingólf-
ur Ingólfsson, Daniei Ágústinusson og
Valur Amþórsson — þorðu ekki að greiða
atkvæði gegn tillögunni, en sátu hjá og þvi
fékk tillagan aðeins atkvæði flutnings-
manns i ráðinu. Er afstaða stjórnarfull-
trúanna einkar athyglisverð með tilliti til
þess hve mikið er hér i húfi.
í viðtali við Magnús Kjartansson i Þjóð-
iljanum i gær kemur fram að fyrir liggi að
alls vanti 10—12 miljarða króna til þess að
samtengja, styrkja og breyta dreifikerfi
raforku hér á landi. Þá er ástandið mjög
alvarlegt að þvi er hitaveituframkvæmdir
varðar. Nú þegar liggja fyrir orkuráði
umsóknir um 700 miljónir króna til verk-
efna i hitaveitumálum, en handbært fé
orkuráðs á öllu árinu til þessara mála er
aðeins 500 miljónir króna. Það er þvi aug-
ljóst að þarna vantar hundruð miljóna
króna til verkefna sem þola enga bið. Ann-
að dæmi um alvarlegt ástand i orkumál-
um er fjárskortur til lagningar svonefndr-
ar Austurlinu. Þar skortir 170 miljónir
króna til þess að ná þvi að ljúka lagningu
linunnar. Austurlinan er brýnt verkefni og
á Austfjörðum blasir við neyðarástand i
orkumálum á næsta vetri verði linunni
ekki lokið i sumar.
Geir Hallgrimsson forsætisráðherra
lýsti ihaldsstefnunni i orkumálum ákaf-
lega vel i stefnuræðu sinni á alþingi sl.
haust er hann komst þannig að orði að nóg
væri búið að leggja i orkumálin i bili! Það
er vissulega rétt að mikið f jármagn hefur
verið lagt i þessa þætti en fjármagnið hef-
ur ekki haft i för með sér orkuframleiðslu
heldur orkuskort. Fjármagninu hefur ver-
ið varið á rangan og dýran máta, og eftir
standa raforkuvandamálin óleyst fyrir
vikið.
Núverandi rikisstjórn hefur reynst i-
haldsstjórn og afturhaldsstjórn i raforku-
málum. Lokaáfanginn á ferli hennar þeg-
ar Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra
kemur i veg fyrir að fjármagni sé veitt til
nauðsynlegra framkvæmda er i samræmi
við upphafið þegar ráðherrann tafði
byggðalinuna. í stað athafna i orkumálum
hefur verið fjárfest i orkuskorti og makk-
að við erlenda auðhringi um auknar stór-
iðjuframkvæmdir hér á landi. —s.
Ferðaleikhúsinu vel tekið í Bandaríkjunum
Brugðu upp mynd af
íslensku baðstofulífí
Feröaleikhúsið er nýkomiö úr
velheppnaðri leikför til Banda-
ríkjanna. Leikförin stoð i
fimmtán daga og var sýnt i sex
háskólaleikhúsum i Minnesota,
Illinois og Iowa, alls átta sýning-
ar.
Alls komu um 2400 manns á
sýningarnar.
A sýningum Ferðaleikhússins i
Bandarikjunum var brugðið upp
mynd af fornu islensku baðstofu-
lifi. Sýnt var gamla formið á
kvöldvökunun, fólk við tóvinnu i
islenskri batstofu, um 30 atriði
tengd saman i samfellda sýningu.
Meðal annars var fsl. langspilið
kynnt, svo og fimmundarsöngur
og farið með þjóðsögur og minni
úr þjóðtrúnni um álfa, tröll og
huldufólk. Einnig var lesið úr
Egils-sögu.
Sýningum var allsstaðar frá-
bærlega vel tekið og hefur Ferða-
leikhúsinu verið boðið til Banda-
rikjanna að nýju að tveimur ár-
um liðnum með viðameiri sýn-
ingu.
Kristin Magnús sem hefur haft
veg og vanda að sýningum Ferða-
leikhússins sagöi i viðtali við
Þjóðviljann að enda þótt hér væri
um mikla landkynningu aö ræða
hefði reynst erfitt að fá islenska
aðila til þess að styrkja Banda-
rikjaförina. Ferðamálaráð hefði
t.d. ekkert sinnt henni og fyndist
henni að það figúruráð mætti vel
leggja niður svo ómarkviss og
tilgangslaus væri ráðstöfun þess
á fé til landkynningar. Alþingi
hefurenn ekki gefið ákveðið svar
um styrk við leikhúsið. Ef ekki
hefði vérið fyrri fyrirgreiðslu
Flugleiða svo og styrki frá The
Cultural Awafeness Counsil.
American Scandinavian Counsil
og National Collage of Education
hefði ekkert orðið af Bandarikja-
förinni.
1 sumar mun Ferðaleikhúsið
sem áður standa fyrir sýningum á
„Light nights” á Loftleiðahótel-
inu fyrir erlenda ferðamenn og i
september i haust hefur bvi verið
boðið á Edinborgarhátíðina með
tvo einþáttunga eftir Odd Björns-
son. Kristin Magnús sagði að
Reykjavikurborg hefði styrkt
sýningarnar i sumar með 200 þús-
und króna framlagi, en ekkert
Sambýlið í Sogni
— unglingaheimili
sem starfar
á mjög félagslegum
grundvelli —
óskar eftir áhugasömum starfsfélögum.
Upplýsingar i síma 99-4360.
' m .m m mmmm»>**‘*&***~r*~*~t~ ’
Simi Þjóðviljans
er 81333
yrði úr Edinborgarferð nema heldur aðeins spurningin um
einhverskonar styrkir fengjust af ferðauppihalds- og auglýsinga-
opinberu fé. Ekki væri um það að kostnað. Vart væri þvi völ á
ræöa að greiða laun til leikara ódýrari landkynningu.
Kópavagskai^istaftiir R!
Skólafulltrúi
Staða skólafulltrúa i Kópavogi ef hér með
auglýst laus til umsóknar. Staðan verður
veitt frá 1. mai 1978. Umsóknarfrestur er
til 15. april 1978.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðu-
blöðum til undirritaðs, sem einnig veitir
nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn i Kópavogi
Hlutavelta
- Hlutavelta
Samtök Svarfdælinga halda hlutaveltu i
dag, sunnudaginn 12. mars kl. 15.15 i
Safnaðarheimili Langholtskirkju.
I boði eru óvenjulega margir og góðir
hlutir en engin núll.
Allur ágóði rennur til dvalarheimilis
aldraðra, sem nú er i smiðum á Dalvik.