Þjóðviljinn - 29.04.1978, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. april 1978
AF SALFRÆÐIGENGI
Þá hefur lausrtin á verðbólguvandanum
loksins litið dagsins Ijós. Ef nahagsundrið er
riðið í hlað. Hagfræðingar, sérfræðingar og
sálfræðingar hafa árum saman verið með
heilana í bleyti í örvæntingarfullri leit að
haldgóðri lausn á efnahagsvandanum og
þegar höf uðinnihald allra helstu f jármála-
sérf ræðinga landsins var orðið gersamlega
útvatnað af því að vera svo lengi i bleyti,
skeði kraftaverkið. Lausninni laust raunar
niður eins og eldingu. Undrið bar að með
þeim hætti að Jón Skaftason sem búinn var
að gleyma hvernig 25eyringur leit út, sá
Tage Erlander borga hótelreikning i Finn-
landi með peningum, sem komust fyrir í
buddu (pengepung). Jón kom þessum
stórtiðindum á framfæri við æðstaráð
Seðlabankans og það var eins og við mann-
inn mælt, gáfnakollar æðstu peninga-
stofnunar landsins tóku við sér þótt þeir
væru búnir að vera um langt árabil í bleyti
og f engu auglýsingaskrifstof u Kristinar sér
til fulltingis. Ljóst var með hverjum hætti
hægt væri að leggja verðbólguóf reskjuna að
velli í eitt skipti fyrir öll. Lausnin var sem
sagt sú að gera íslenska peninga notadrýgri
(praktískari) og viðmiðunin, að andvirði
einnar nætur á hóteli kæmist i venjulega
buddu. Nú hófust langar og erf iðar f undar-
setur. Var einkum deilt um það, hvort væn-
legra væri til árangurs að stíga það fjár-
málagæfuspor að stækka buddur lands-
manna svo meira af seðlum kæmust i
þær (Hér var að visu íslenskur hótelreikn-
ingur hafður til hliðsjónar), eða hvort
hugsanlegt væri að minnka seðlana, svo að
andvirði einnar nætur kæmist í venjulega
buddu. Fyrir nokkrum dögum skeði það svo
að hin örlagaríka ákvörðun var tekin. Tvö
núll skyldu strikuð aftan af allri seðla-
súpunni og nýir seðlar prentaðir. Með
þessum aðgerðum hyggst Seðlabankinn
höfða sálfræðilega til almennings í landinu
og (svo notuð séu orð sjálf ra forystumanna
fjármála landsins) ,,að auka virðingu
almennings í landinu fyrir peningum al-
mennt". Það varðað uppræta hina djúpu og
rótgrónu fyrirlitningu, sem íslenska þjóðin
hafði um langt skeið haft á peningum sin-
um. Nú voru til kvaddir sálfræðingar, því
Ijóst var að þessar ráðstafanir væru ekki
siður sálfræðilegar en efnahagslegar. Sál-
fræðingarnir komust að þeirri niðurstöðu
að ef auka ætti virðingu landsmanna fyrir
peningum, yrðu þeir að vera eigulegir. Viss
fregða væri meðal íslendinga á því að saf na
óásélegu rusli. Þá var að gera seðlana sem
ásjálegasta og voru til þess fengnir bestu
auglýsingahönnuðir, sem völ var á og þeim
uppálagt að gera islenska seðla, sem yrðu
það eigulegir að fólk freistaðist til þess að
hugsa sig um tvisvar áður en það eyddi
þeim í nauðþurftir.
Það fyrsta sem lá Ijóst fyrir var að sjálf-
sagt væri að hafa seðlana sem litríkasta og
kom þá helst til gulur, rauður, grænn og
blár. Þá virtist Ijóst að landsmenn væru
orðnir leiðir á þeim andlitsmyndum, sem
prýtt hafa íslenska peningaseðla til þessa
(Einar Ben, Tryggvi Gunnarsson, Hannes
Hafstein og fleiri og var því brugðið á það
ráð að haf a þeirra í stað táknmyndir af nú:
verandi ráðamönnum. Þannig kemur
þorskur i staðinn fyrir Tryggva Gunnars-
son og tarfur fyrir Hannes Hafstein, grá-
sleppa fyrir Jón Sigurðsson og marhnútur
fyrir Einar Ben. Á myntina verður m.a. sett
mynd af smokki, en lengi var um það deilt
hvernig bakhlið þess penings skyldi vera og
varð það úr að þar sem lykkjan væri mynd-
rænni en pillan, þá skyldi það verða smokk-
ur að framan en lykkja að aftan.. Á þessi
peningur að minna fólk á það að gát er best
með forsjá.
Ekki mátti gleyma kvenskörungum
þingsins og þótti brýnt að haf a táknmynd af
einni slíkri á seðli. Varð hinn þjóðlegi f iskur
skatan fyrir valinu og bragðið haft til hlið-
sjónar. Aftan á þann seðil mun verða
prentuð dæmigerð þjóðlífsmynd úr
íslenskri baðstofu þar sem kvöldvakan er i
fúllsving, allir eitthvað að sýsla, einn að
lesa í bók, annar að bora í nefið, sumir að
flétta reipi, eða spinna á snældu, eða rokk,
en í forgrunni situr gamall maður við þá
þjóðlegu islensku iðju að nudda punginn
fram í andlátið og til að fyrirbyggja allan
misskilning í eitt skipti fyrir öll skal það
skýrt tekið fram að hér er ekki átt við
tóbakspunginn, heldur den gamle
gode pengepung.
Hér á ef til vill vel við vísan, sem gamla
konan á elliheimilinu orti um efnahagsað-
ferðir ríkisstjórnarinnar:
Rikisstjornin glaöning gaf
greiddi úr vanda sínum
strikaöi núllin aftan af
innistæöum mínum
Flosi
AnAb SUS
Kapprœðu-
fundur íStapa
um höfuðágreining islenskra
,, stjórnmála:
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins og Samband
ungra Sjálfstæðismanna efna til kappræðufundar i
Stapa sunnudaginn 30. apríl kl. 14.30 um höfuð-
ágreining íslenskra stjórnmála. Fjallað verður um
efnahagsmál — utanríkismál — einkarekstur —
félagsrekstur.
Fundarstjórar: Jóhapn Geirdal og
Júlíus Rafnsson.
Ræðumenn ÆnAb: Guömundur ólafsson
Arthur Mortens
Svavar Gestsson
Ræðumenn SUS': Anders Hansen
Hannes Gissurarson
Friörik Sophusson
Svavar Jóhann Guðmundur
Auglýsmgasimínn er 81333
„Á sama tima ad ári
um Nordurland
Leikför Þjóðleikhússins með
gamanleikinn ,,Á sama tima að
ári” eftir Bernard Slade heldur
áfram og er nú komið að Norð-
lendingum að sjá Bessa Bjarna-
son og Margréti Guðmundsdóttur
leika þetta vinsæla leikrit. Siðast
voru sýningar á Vesturlandi, en
nú verður lagt af stað til Norð-
vestur og Norðurlands og verður
fyrsta sýningin á leiðinni i Bió-
höllinni á Akranesi sökum þess
hve margir urðu frá að hverfa, er
leikritið var sýnt þar á dögunum.
Fer hér á eftir skrá yfir sýningar-
dags- og staði á næstunni:
, Er
sjonvarpió
bilað? „
D
Föstud. 28. april: Akranes
Laugard. 29. april: Asbyrgi, Mið-
firði
Sunnud. 30. april: Sævangur
Mánud. 1. mai: Blönduós
Þriðjud. 2. mai: Sauðárkrókur
Miðv.d. 3. mai: Miðgarður
F'immtud. 4. mai: Hofsós
Föstud. 5. mai: Siglufjörður
Laugard. 6. mai: Ólafsfjörður
Sunnud. 7. mai: Dalvik
Pólýfónkórinn
Byrjar
æfingar
í haust
Jólaóratória Bachs
í desember?
Stefnt er að þvi að starf
Pólýfónkórsins hefjist að
nýju á næsta hausti.
Þessi ákvörðun var tekin á
fundi kórfélaga á mánudag.
Æfingar hefjast siðari hluta
septembermánaðar og hefur
veriðrættum að flytja Jóla-
óratóriu Bachs i desember,
þótt ekki sé það fullráðið.
Ákveðið er að bæta við söng-
fólki i allar raddirog verður
nýliðum gefinn kostur á
raddþjálfun á vegum kórs-
ins, að þvi er segir i frétt frá
Pólýfónkórnum. Ingólfur
Guðbrandsson verður stjórn-
andi kórsins eins og verið
hefur frá upphafi.
— ekh.
Skjárinn
Spnvarpsverhstó,
Berqstaðástrati 38
219-40|
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
T r ésmí ða verks t æðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613