Þjóðviljinn - 29.04.1978, Blaðsíða 24
I
VÖDVIUINN
Laugardagur 29. apríl 1978
Aðalsimi ÞjóBviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
dága, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. ,
Utan þessa tima er hægt aB ná I blaBamenn og aBra starfs-
menn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348.
81333
: Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviijans I sima-'
skrá.
Ráðherrar i hár saman
Hefði sagt
— ef ég vœri ráðherra erlendis,
sagði Viihjálmur Hjálmarsson
Viihjálmur Hjálmarsson,
mcnntam álaráðherra, gagnrýndi
á Alþingi i gær Matthias A.
Matthiesen, f jármálaráöherra,
fyrir að reyna að knýja i gegn
breytingu á grunnskólalögunum i
andstöðu við sinn vilja.
Vilhjálmur sagði að það væri
einsdæmi að einn ráðherra i sam-
steypustjórn réðist inn á valdsvið
annars ráðherra og ætlaði sér að
fá i gegn breytingar er viðkom-
andi ráðherra væri andvigur.
Menntamálaráðherra sagði að
við slikar aðstæður hefðu ráð-
herrar erlendis liklega sagt af
sér, en slikt tiðkast þó ekki hér-
lendis.
af mér
Agreiningur ráðherranna snýst
um frumvarp um breytingu á
grunnskólalögunum þess efnis að
heimilt sé að stofna sérstakt
fræðsluumdæmi i sveitarfélagi
með 10 þúsund ibúum eða fleiri.
Þaðerueinkum þingmenn úr
Reykjaneskjördæmi sem beitt
hafa sér fyrir þessari breytingu
að ósk bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar. Frumvarpið hefur verið
samþykkt i neðri deild en er nú til
umræðu i efri deild. í ræðu ráð-
herra kom fram að allar umsagn-
ir sem borist höfðu um frumvarp-
ið hefur verið breytingunni and-
vigar.
Vilhjálmur reiður Matthiasi
1. mai
Dagskrá hátíðarhalda verka-
lýðsfélaganna I Reykjavik 1. mai
verður sem hér segir:
Safnast verður saman við
Hlemm kl. 13.30. Lagt verður af
stað i kröfugöngu kl. 14.00 og
gengið niður Laugaveg og
Banakastræti og á Lækjartorg. í
göngunni leika Lúðrasveit Verka-
lýðsins og Lúðrasveitin Svanur.
Þá hefst útifundur á Lækjartorgi.
Fundarstjóri verður Bjarni
Jakobsson, formaður Iðju.
Ræðumenn:
Ragna Bergmann, varaformaður
Vkf. Framsóknar»Reykjavik.
Hallgrimur G. Gunnarsson,
formaður INSl. Kristján
Thorlaci'us, formaður BSRB.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSl
BaldvinHalldórssonleikari flytur
kvæði og Lúðrasveitirnar leika á
fundinum.
Samningafundur á Vestíjöröum i gær:
Ekkert markvert
—ÞM.
Opið hús í Þinghóli 1. maí
geröist
— en atvinnurekendur
meö tilboö í athugun
t gær var haldinn samninga-
fundur milli ASV og atvinnurek-
enda á Vestfjörðum. Þar kom
fram að atvinnurekendur neita að
cndurnýja kauplið kjarasamn-
inganna og segja það skipun frá
stjórnvöldum aö kaupránslögin
gildi.
*r.Að sögn Péturs Sigurðssonar
formanns ASV var rætt á fundin-
um um ýmis atriði,bæði gömulog
ný, varðandi kjarasamninga og
þar á meðal það nýja orð sem
komið er inni samningamálin nú,
igildi- þess sem af verkafólki var
tekið með kaupránslögunum.
Sagði Pétur að atvinnurekend-
ur virtust tilbúnir til að athuga
það mál og hefðu þeir tekið með
sér tilboð frá ASV um þetta atriði
og hefðu atvinnurekendur beðið
um frest fram i næstu viku til að
athugamálið ogféllst ASV á það.
Það er ekki ákveðið hvenær
næsti samningafundur verður
haldinn, en það verður einhvern-
timann i næstu viku s.d.
w
Askorun til kjósenda
Aðgætið hvort þið
eruð á kjörskrá
Kjósið áður en þið farið af landi
Stuöningsmenn G listans eru
minntir á að fara ekki af landi
brott eða úr bænum, fyrr en þeir
liafa kosið.
Þá eru allir stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins minntir á
að gæta i tíma, hvort þeir eru á
kjörskrá. Kjörskráin liggur
frammi á Manntalsskrifstofu
Reykjavikurborgar i Skúlatúni
2, en þar er opið mánudaga til
föstudaga frá kl. 8.20 f.h. til 4.15
e.h.
Ennfremur liggur kjörskráin
frámmi á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins að Grettisgötu 3,
simi 17500.
Almennur kærufrestur vegna
sveitarstjórnarkosninganna
rennur út 6. mai, en vegna
alþingiskosninganna 3. júni. Eftir
það verður aðeins hægt að kæra
sig inn á kjörskrá með dómi.
Skrá yfir kjörfundi erlendis var
birt i Þjóðviljanum s.l. fimmtu-
dag, en sendiráð og ræðismenn
veita allar upplýsingar þar um.
Þeir sem eru I námi erlendis
eigaaðveraá kjörskrá og eru það
i flestum tilfellum. Þeim skal þó
bent á aðlátaaögætaþað fyrir sig
og kæra sig inn ef svo er ekki.
Þeir sem ekki eru 1 námi og
voru búsettir erlendis 1. des. s.l.
eru ekki á kjörskrá og geta ekki
kært sig inn áhananemaþeir séu
komnir heim i miilitiðinni.
Áriðandi er að allir sem hafa
minnsta grun um að þeir séu ekki
á kjörskrá af einhverjum orsök-
um, aðgæti það ogkæri sig inn. Ef
cinhver vandkvæði koma upp við
kæruna veitir flokksskrifstofan
alla mögulega aðstoð.
Náttúruvemdarþing
haldid um helgina
Þriðja náttúruverndarþing
vcrður haldið nú um helgina.
Þingið sækja um 120 fulltrúar
með réttindum. A þinginu verður
rætt um það sem áunnist hefur I
náttúruverndarmálum frá þvi
siðast var þingaö um þessi mál,
gerð grein fyrir verkefnum dags-
ins og mörkuð stefna til næstu
ára. A náttúruverndarþingi er
kjörið nýtt náttúruverndarráð til
næstu þriggja ára.
Búist er við nokkrum breyting-
um á skipan náttúruverndarráðs,
m.a. hefur heyrst að Eysteinn
Jónsson gefi ekki kost á sér til
lengri setu i ráðinu. Eysteinn
hefur verið formaður náttúru-
verndarráðs undanfarin 2 kjör-
timabil, og hann var einn fjög-
urra þingmanna i nefnd er undir-
bjó þá löggjöf um náttúruvernd
sem alþingisetti 1971 og nú gildir.
Eitt af verkefnum náttúru-
verndarþings nú er að fjalla um
endurskoðun náttúruverndar-
laga, og verður Páll Lindal fram-
sögumaður um þann málaflokk.
Hrafn Friðriksson heldur erindi
um meingunarmál, þeir Sigurður
Þórarinsson og Arnþór Garð-
arsson hafa framsögu um vatna-
og jarðhitasvæði með tilliti til
náttúruverndar, Vilhjálmur Lúð-
viksson fjallar um val á stöðum
til iðnreksturs, og Eyþór Einars-
son gerir grein fyrir viðhorfum til
verndunar villtra dýra og
plantna.
—hj
Benedikt
Hallfriður
Sverrir
Eftir 1. maí göngu og útifund í
Reykjavik verður opið í Þinghóli í
Kópavogc á vegum Alþýðubandalags-
ins. Þar verða kaffiveitingar kl. 3 e.h.
til 4.30.
Stutt ávörp flytja Hallfríður Ingi-
mundardóttir# 6. maður á G-iistanum í
Kópavogi/ Sverrir Konráðsson# 3
maður listans/ og Benedikt Daviðsson/
formaður Sambands byggingamanna.
Þetta er nýmæli í félagsstarfsemi
Alþýðubandalagsins í Kópavogi og er
fólk hvatt til þess að koma og hitta
kunningjana i Þinghóli á baráttudegi
verkalýðsins 1. maí.
Kosningar eru kjarabarátta
Sigurjón
Guðmundur Guðrún
Svavar
a maf-kaffi á Borgina
lsta maí fundur
ABR á Hótel Borg
Að venju gengst Alþýðubandalagið í
Reykjavík fyrir fundi að Hófel Borg
að loknum útifundi verkalýðsfélaq-
anna.
Að þessu sinni helgast fundurinn af
því hve skammt er til kosninga og er
haldinn undir kjörorðinu
//Kosningar eru kjarabarátta".
Fundarstjórí verður efsti maður G-
listans við borgarstjórnarkosningarn-
ar 28. maí, Sigurjón Pétursson.
Ávörp flytja: Guðmundur Þ. Jóns-
son, form. Landssambands iðnverka-
fólks, sem skipar 5. sæti G-listans við
borgarstjórnarkosningarnar.
Guðrún Helgadóttir, stjórnarmaður
i BSRB, sem skipar 4. sæti G-listans
við borgarstjórnarkosningarnar.
Svavar Gestsson, ritstjóri Þjóðvilj-
ans.
Einnig verður upplestur og að sjálf-
sögðu kaffi og með þvi, og loks mun
Smári Ragnarsson fara með gaman-,
mál við gítarundirleik sjálfs sin.