Þjóðviljinn - 29.04.1978, Síða 16
16 SIDA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 29. april 1978
Frá aöalfundi kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Reykjaneskjördæmi
Ályktun um efnahags- og atvinnumál
Haldið verði áfram ötulli
baráttu fyrir íslenskri
atvinnustefnu
Aðallundur Kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins i Reykja-
nesskjördæmi vekur athygli á
hinum margháttuðu orsökum
óstjórnarinnar i efnahags- og
atvinnumálum sem ríkt hefur á
undanförnum árum. Meðal helstu
orsaka þess vanda sem nú er við
að glima má nefna eftirfarandi:
Látlausa viðleitni atvinnurek-
enda og rikisstjórnar þeirra til
að breyta tekjuskiptingunni
launafólki i óhag.
Skipulagslausa fjárfestingu i
atvinnumálum og á sviði opin-
berra framkvæmda.
Erlend eyðslulán sem hafa
stóraukið skuldabyrði þjóöar-
innar.
Ranglátt skattakerfi sem hygl-
ar fyrirtækjum og hátekjufólki.
Misheppnaða stjórn peninga-
mála og haldlitið verðlagseftir-
lit.
Mistekist hefur að beita verð-
jöfnunarstjóði til að jafna
sveiflur i útflutjningsgreinum.
Aukning milliliðastarfsemi hef-
ur skapað dýra yfirbyggingu á
kostnað gjaldeyrisskapandi út-
flutningsgreina.
Dýrkun viðskiptafrelsis og
áhersla á hömlulausan inn-
flutning hefur veikt gjaldeyris-
stöðu þjóðarinnar og hindrað
uppbyggingu innlends iðnaðar.
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsinslýsir yfir fullum stuðningi
við varnarbaráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar gegn kjara-
skerðingarlögum rikisstjórnar
atvinnurekenda.
A þeim timamótum sem nú eru
i islenskum stjórnmálum hvilir sú
skylda á Alþýðubandalaginu,
forystuflokki launafólks i landinu,
aðsetja fram ftarlega stefnu sem
vísi þjóðinni veginn út úr óstjórn
og kaupránsaðgerðum siðustu
ára.
Alþýðubandalagið á Reykjanesi
fagnar þeirri stefnu i efnahags-
og atvinnumálum sem nýlega var
samþykkt af miðstjórn Alþýðu-
bandalagsins. Kjördæmisráðið
minnir á að vandinn sem við blas-
ir verður ekki leystur nema með
varanlegum úrræðum og sam-
tvinnuðum aðgerðum i efnahags-
og atvinnumálum. Taka verður
upp markvissa framleiðslustefnu
sem leiði til stóraukinnar gjald-
eyrisöflunar og skapi grundvöll
fyrir varanlegum kjarabótum.
1 þessu sambandi leggur kjör-
dæmisráðið einkum áherslu á eft-
irfarandi atriði:
1. Gerðar verði þjóðhags- og
framkvæmdaáætlanir til langs
tima, sem verði grundvöllur
meginákvarðanatöku i efna-
hagsmálum og taki þær mið af
framleiðslugetu þjóðarbúsins,
hóflegri nýtingu auðlinda og fé-
lagslegum markmiðum i um-
sköpun þjóðfélagsins i sam-
ræmi við hagsmuni launafólks.
2. Breýtingar á skipulagi rekst-
urs og eignarformum verði
grundvallarþáttur i aðgerðum
til styrktar rekstrargrundvelli
fyrirtækja i útflutningsgrein-
um: sjávarútvegi, fiskiðnaði og
almennum iðnaði. Lánveiting-
ar og önnur rekstraraðstoð
verði ekki veitt til að halda uppi
óhagkvæmum framleiðsluein-
ingum. Félagsleg eignarform,
samruni fyrirtækja og ný sam-
vinnuform verði meginþættir i
bættum rekstri útflutnings-
greina.
3. Skattakerfið i landinu verði
umskapað á þann hátt að
skattabyrði láglaunamanna
léttist en þyngist á háum tekj-
um og miklum eignum og
atvinnureksturinn i landinu
greiði skatta af umsvifum sin-
um með eðlilegum hætti.
Kosningastarf Alþýðubandalagsins.
Sjálíboðaliðar!
Kosningaundirbúningur fyrir borgarstjórnarkosningarnar er
hafinn af fullum krafti og svo komið að sjálfboðaliða vantar til
ýmissa verka.
Þeir, sem geta séð af tima til starfa fyrir flokkinn eru beðnir úm
að láta skrá sig á skrifstofunni Grettisgötu 3, i sima 17500.
Píanótónleikar
Rögnvaldur Sigurjónsson pianóleikari
heidur tónleika á vegum Tónlistarfélags
Kópavogs, sunnudaginn 30. april kl. 5.00
e.h. i sal Tónlistarskólans að Hamraborg
11, 3. hæð. Á efnisskránni eru verk eftir
Beethoven, Chopin og Liszt.
Aðgöngumiðar verða seldir við inngang-
inn.
UTBOÐ
Hitaveita Suðumesja
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i smiði á ryðfrium geymum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitunnar, Vesturbraut 10 A, Kefla-
vik og á Verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns, Laufásvegi 12, Reykjavik, gegn
kr. 10 þús. skilatryggingu. — Tilboðin
verða opnuð 15. mai.
4. Dregið verði úr óhagkvæmni i
rekstri og forræði einkafjár-
magns á sviði mikilvægrar
milliliðastarfsemi, m.a. með
þvi að eitt oliusölufélag á veg-
um opinberra aðila taki að sér
allan innflutning og sölu á oliu
og oliuvörum og tryggingafé-
lögum verði fækkað með aukn-
um félagslegum rekstri á þvi
sviði.
5. Skipulag og rekstur innflutn-
ingsverslunarinnar 'verði tek-
inn til rækilegrar rannsóknar
og stefnt að verulegíi fækkun
þeirra mörghundruð heildsölu-
fyrirtækja sem nú eru i land-
inu. Jafnframt verði gjald-
eyrissvindl upprætt, svo og
hverskonar brask sem tiðkast
hefur á þessu sviði.
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins i Reykjanes-
kjördæmi leggur höfuðaherslu á
að á næstu árum verði haldið
áfram ötulli baráttu fyrir
islenskri atvinnustefnu sem komi
i stað þeirrar erlendu stóriðju
sem núverandi stjórnvöld hafa
sett á oddinn. t þessu sambandi
minnir kjördæmisráðið á itarleg-
ar tillögur Alþýöubandalagsins
um þróun iðnaðar, sjávarútvegs
og landbúnaðar i öllum landshlut-
um og sérstaklega þær tillögur
um uppbyggingu innlendra
atvinnuvega i Reykjaneskjör-
dæmi sem settar hafa verið fram
af hálfu fulltrúa flokksins á opin-
berum vettfangi.
Aðalfundur kjördæmisráðsins
Itrekar að grundvallaratriði
islenskrar atvinnustefnu eru:
Að skapa um það sem viðtæk-
asta samstöðu, að atvinnulif á
tslandi verði áfram i höndum
innlendra aðila.
Að beita áætlunargerð og
skipulagshyggju, markvissum
rannsóknum og markaðsleit
með virkum stuðningi hins
opinbera við uppbyggingu
islenskra atvinnuvega.
Að endurskipuleggja fram-
leiðsluna i þvi skyni að draga
úf sóun, óhagkvæmni og yfir-
byggingu, sem aukist hefur á
undanförnum árum og stuðla
að alhliða hagræðingu i rekstri.
Að velja úr og benda á þá fram-
leiðslumöguleika, sem arðvæn-
legir eru fyrir þjóöarbúið og
henta vel sem hæfileg viðfangs-
efni fyrir samtök fólksins viðs
vegar um land.
Að efla félagslegan rekstur og
stuðla að forræði fólksins sjálfs
yfir framleiðslutækjum og
vinnuskipulagi.
Rætt við Gunnlaug
Astgeirsson um
starfsemi Kjördæm-
isráðs Alþýðu*-
bandalagsins
í Reykjanesi
Uunnlaugur Astgeirsson, for-
maður kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins I Reykjaneskjör-
dæmi.
forvalsins. Kjördæmisráðið
gekkst lika fyrir mjög fjölsótt-
um fundi i Hafnarfirði um efna-
hags- og atvinnumál, þar sem
rætt var um stefnumótun
flokksins I þessum málaflokk-
um.
Nauðsynlegt að virkja
sem tlesta til starfa
Föstudaginn 21. april sl. hélt
kjördæmisráö Alþýðubanda-
lagsins í Reykjaneskjördæmi
aöalfund. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa var rætt um undir-
búning fyrir þær kosningar sem
í hönd fara.
Stjórnarkjör
t stjórn voru kjörnir Gunn-
laugur Astgeirsson, Seltjarnar-
nesi, formaður, Hrafnhildur
Kristbjarnardóttir, Hafnarfirði
varaformaður og meðstjórn-
endur Þóra Runólfsdóttir,
Garðabæ Runólfur Jónsson,
Mosfellssveit, Sigmar Ingason,
Suðurnesjum, Eggert Gautur
Gunnarsson og Ingimar Jóns-
son, Kópavogi.
Forval tókst vel
I samtali við Þjóðviljann
sagði Gunnlaugur Astgeirsson
formaður Kjördæmisráðsins að
starfsemi ráðsins fyrri hluta
siðasta starfsárs hefði beinst
fyrst og fremst að forvali fyrir
Alþingiskosningarnar. „Frarn-
kvæmd forvalsins tókst mjög
vel,” sagði hann og „vakti at-
hygli á Alþýðubandalaginu i
kjördæminu. Forvalið var nýj-
ung i starfsemi flokksins, og
þótt önnur kjördæmi hafi ekki
séð ástæðu til að nota þessa að-
ferðviðval á frambjóðendum til
Alþingiskosninga þá hafa ýmis
flokksfélög beitt henni við val á
frambjóðendum til sveitar-
stjórnarkosninga. Forvalið var
ný leið til að efla lýðræði innan
flokksins frábrugðið þeim að-
ferðum sem aðrir flokkar beita
og jafnframt laust við þá höfuð-
galla sem einkennir hin opnu
prófkjör.
Framboðslistinn var siðan
ákveðinn á fundi 12. desember
og var farið eftir niðurstöðum
Kosningastjórn
A siðari hluta starfsársins
hefur starfsemin miðast við
undirbúning kosninganna og i
febrúar var skipuð kosninga-
stjórn. I henni eiga sæti fimm
efstu menn framboðslistans.for-
máður kjördæmisráðsins og
fulltrúar frá þeim félögum sem
ekki eiga menn i hópi hinna sex
fyrrnefndu. Kosningastjórnin
réð starfsmann i febrúar, As-
mund Ásmundsson sem siðan
hefur unnið við undirbúning
kosningastarfsins og blaðaút-
gáfu á vegum kjördæmisráðs-
ins. Fyrsta blaðið kemur út á
næstu dögum.
Opið hús i Þinghóli
Kosningastjórnin stendur lika
fyrir opnu húsi siðdegis á
laugardögum i Þinghóli i Kópa-
vogi. Þangað eru allir
stuðnipgsmenn Alþýðubanda-
lagsins velkomnir að ræða um
undirbúning kosninganna og þá
málaflokka sem leggja ber
áherslu á og einnig koma
þangað sérstakir gestir til að
reifa málin.
Á aðalfundinum var rætt um
undirbúning kosninganna og
þar gerðu fulltrúar hinna ein-
stöku félaga grein fyrir stöðunni
i hverju byggðarlagi fyrir sig.
Kom i ljós að undirbúningur er
viðast hvar vel á veg kominn,
einkum i stærri byggðarlögun-
um, Kópavogi, Hafnarfirði og á
Suðurnesjum.”
Gunnlaugur sagði að menn
hefðu verið bjartsýnir og lagt
mikla áherslu á það að nauðsyn-
legt væri að virkja sem flesta til
starfa, þvi við þær aðstæður
sem nú riktu I þessu þjóðfélagi
væri það ákaflega mikilvægt að
Alþýðubandalagið hafi sterka
stöðu að kosningum loknum.
—eös
iÁlyktun um herstöövamálið
Mikilvægt að Samtök herstöðva-
andstæðinga verði stórlega efld
Kjördaimisráð Alþýðubanda-
lagsins i Reykjaneskjördæmi
mótinælir harðlega veru banda-
riska hersins i landinu og lýsir
yfir einarðri andstöðu sinni við
aðild islands að NATO.
Þá þrjá áratugi sem herinn
hefur setið á Miðnesheiði hafa
áhrif hans i islensku þjóðfélagi
farið stöðugt vaxandi. Með ein-
stæðri aðstöðu sinni til fjölmiðl-
unar hefur herliðið ausið yfir
landsmenn lágkúrulegum áróðri
bandariskum, sem oftast er sér-
staklega sniðinn fyrir hermenn-
ina sem i heiöinni dvelja. Ber þvi
sérstaklega að fagna þeim
áfangasigri sem náðist i siðustu
vinstristjórn er bandariska her-
sjónvarpínu var lokaö.
Þrátt fyrir gefin fyrirheit um
brottför hersins i tveimur siðustu
vinstristjórnum sem
Alþýðubandalagið átti aðild að þá
hefur enn ekki tekist að ná þvi
marki. Bæði var það að sam-
starfsflokkar okkar voru klofnir
og óheilir i afstöðu sinni til máls-
ins og ráðandi öfl i sumum þeirra
frá öndverðu staðráðin i að stöðva
framgang samkomulagsins
brottför hersins. Til þess liggja
ýnsar ástæður, en sú er þó veiga-
mest að islenska auðstéttin, sem
mikiu ræður bæði i Sjálfstæðis-
flokki og Framsóknarflokki, hef-
ur margvisleg og margslungin
viðskiptatengsl við herinn.
Sýnir reynsla undanfarinna ára
hve nauðsynlegt það er að til séu
virk og öflug samtök hetstöðva-
andstæðinga, þvi að ákvæði um
brottför hersins i stjórnarsátt-
mála er enganvegin nóg til að
koma honum úr landi, né heldur
til að tryggja úrsögn okkar úr
NATÖ. Vill kjördæmisráðið þvi
leggja sérstaka áherslu á mikil-
vægi þess að Samtök herstöðva-
andstæðinga verði stórlega efld
og sú þjóðfélagsbarátta sem þau
standa fyrir aukin um allan helm-
ing.
Þess hefur gætt i vaxandi mæli
undanfarin ár að ungt fólk hefur
fylkt sér um kröfuna tsland úr
NATO — Herinn burt og veit það á
bjartari daga i herstöðvamálinu.
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins I, Reykjaneskjördæmi
fagnar fram kominni þingsálykt-
unartillögu um Suðurnesjaáætlun
og bendir á að með framkvæmd
hennar verður atvinnulifinu á
Suðurnesjum lyft upp úr þeirri
lægð sem nærvera hersins hefur
komið þvi i.
Ennfremur vill Kjördæmis-
ráðið taka fram að komi til þess
að loknum kosningum að Alþýðu-
bandalagið taki þátt i viðræðum
um stjórnarmyndun þá verði
uppsögn herstöðvarsamningsins
og aðildarinriar að NATO ein
meginkrafa flokksins. Verður þá
að tryggja að herstöðvamálið hafi
þann forgang að hugsanlegir
samstarfsflokkar komist ekki hjá
þvi að standa við gefin fyrirheit.
tsland úr NATO — Herinn burt.