Þjóðviljinn - 29.04.1978, Page 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. aprfl 1978
Rafmagnsveitur
rikisins
óska að ráða skrifstofumann til almennra
skrifstofustarfa á svæðisskrifstofu Raf-
magnsveitnanna á Egilsstöðum. Laun eru
skv. kjarasamningum B.S.R.B. og rikisins
launaflokkur B-7. Nánari upplýsingar um
starfið gefur rafveitustjóri Austurlands-
veitu á Egilsstöðum.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116 Reykjavik
UTBOÐ
Stjórn verkamannabústaðanna i Reykja-
vik óskar eftir tilboðum i hita- og hrein-
lætislagnir i 216 ibúðir i Hólahverfi. Út-
boðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B.
Mávahlið 4, gegn 20 þús. kr. skilatrygg-
ingu.
TILKYNNING
Eigendur skúra sem standa i óleyfi á
hafnarsvæði Reykjavikurhafnar i örfiris-
ey og Vatnagörðum i Sundahöfn skulu
hafa fjarlægt þá fyrir 20. mai n.k.
Áð öðrum kosti verða þeir fjarlægðir á
kostnað eigenda.
Hafnarstjórinn i Reykjavik
BYGGUNG
KÓPAVOGI
Framhaldsaðalfundur verður haldinn -
laugardaginn 3. júni, nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
íslenska járnblendifélagið hf.
víll ráða
vanan ritara til margvislegra skrifstofu-
starfa i skrifstofu byggingarstjórnar að
Grundartanga. Góð kunnátta i islensku,
norðurlandamáli og ensku nauðsynleg.
Umsóknir óskast sendar til félagsins um
póststöð 301 Akranes fyrir 20. mai n.k.
Upplýsingar gefur staðarverkfræðingur,
Guðlaugur Hjörleifsson i sima 93-1092 kl.
7.30-10.00 að morgni mánudaga til föstu-
daga.
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum i forsteypta hita-
veitubrunna fyrir Hitaveitu Borgar-
fjarðar.
Útboðsgagna má vitja hjá V.S.T. Ármúía
4, Reykjavik og Berugötu 12, Borgamesi,
gegn 10.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð að Berugötu 12, Borgamesi,
þriðjud. 16. mai kl. 11 f.h.
Hitaveita Borgarf jarðar
Umsjón: Stefán Kristjánsson
Fram forðaði sér frá falli með sigri gegn KR 20:13
Framarar sýndu
góðan lelk og KR
leikur aukalelklna
gegn HK og verður fyrri leikurinn á
sunnudaginn kl. 21.00
„Ég tel aðalástæöuna fyrir
þessum glæsilega sigri Fram hér
i kvöld einkum vera sálfræði-
lega” sagði Jóhann Ingi Gunnars-
son þjálfari Fram og sálfræði-
nemi eftir leikinn gegn KR í gær-
kvöldi.
„Við ræddum vel saman fyrir ,
þennan leik og vorumstaðráðniri
þvi að selja okkur dýrt. Hins veg-
ar var ég búinn aö heyra KR-ing-
ana tala fyrirfram um það, að
þeir myndu ef til vill tapa leikn-
um með tveggja til þriggja
marka mun og sllk bjartsýni
kann aidrei góðri lukku að stýra”
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson að
lokum.
En ef við vikjum okkur að
leiknum sjálfum þá voru það KR-
ingar sem skoruðu fyrsta mark
leiksins og var Björn Pétursson
þar að verki. En fljótlega jöfnuðu
Framarar og eftir það var leikur-
ínn nokkuð jafn þangað til að siga
fór á siðari hálfleikinn en þá tóku
Framarar góðan sprett og höfðu
náð fjögurra marka forskoti i
leikhléi 10:6.
1 siðari hálfleik voru yfirburðir
Framara enn meiri og juku þeir
jafnt og þétt við fengið forskot.
Staðan varð slðan 19:12 og enn
siðar 20:12 og úrslit leiksins voru
þvi 20:13 eftir aö KR-ingar höfðu
skorað siðasta mark leiksins.
Það er þvi ljóst að það kemur i
hlut KR-inga að leika gegn
HK um fallið i deildinni. Það
verða ef að likum lætur erfiðjir
leikír fyrir KR þvi lið HK er ekki
auðsigrað um þessar mundir.
Úrslitaleik-
urinn í kvöld
Úrslitaleikurinn i Bikar-
keppni HSÍ verður leikinn í
kvöld klukkan 18.00 Eigast
þar við lið Víkings og FH.
i undanúrslitum keppn-
innar sigraði Víkingur
islandsmeistara Vals 19:16
en FH lék gegn Haukum
og sigraði eftir framlengd-
an leik 23:22.
Það verður þvi að segjast eins
og er að Vikingar eru mun sigur-
Fram
meistari
kvenna
Framarar tryggðu sér
íslandsmeistaratitilinn i
kvennahandboltanum er þær
gerðu jafntefli gegn FH 9:9.
Fyrri úrslitaleik liðanna
lauk með sigri Fram 11:9 og
var hann leikinn i Hafnar-
firði.
FH-stúlkurnar höfðu
lengst af forustu i leiknum i
gærkvöldi. Staðan i leikhléi
var 6:4 þeim i vil.
En i siðari hálfleik sýndu
Framstúlkurnar klærnar og
tókst að jafna fyrir leikslok
þrátt fyrir að FH-stúlkurnar
tækju þær Guðriði Guðjóns-
dóttur og Oddnýju Sigsteins-
dóttur úr umferð.
En Framarar geta verið á-
nægðir með uppskeruna i gær-
kvöldi. Fyrst tslandsmeistaratit-
illinn i kvennaflokki og siðan sig-
ur gegn KR 20:13 sem er stærsti
sigur hjá Fram yfir KR i mörg ár.
Gústaf Björnsson og Guðjón
Einarsson voru bestu menn Fram
i gær en Arnar Guðlaugsson lék
ekki með. Gústaf skoraði flest
mörk Framara alls 8 en hjá KR
skoraði Simon Unndórssson flest
eða þrjú mörk.
Leikinn dæmdu þeir Björn
Kristjánsson og Gunnlaugur
Hjálmarsson og er langt siðan að
maður hefur orðið vitni að svo
góðri dómgæslu.
SK.
stranglegri en FH fyrir leikinn i
dag en þó má ekki afskrifa FH-
ingana þvi þeir standa sig ávallt
best þegar mest á reynir.
Vikingar eru mun vanari að
leika i Laugardalshöllinni en FH-
ingar og það er ein ástæðan fyrir
þvi, að ég spái Vikingum fimm
marka sigri. Vikingar hafa spilað
mun betri handknattleik i vetur
en FH-ingar og voru að minu mati
óheppnir að tapa íslandsmótinu.
Það yrði þvi mikil Sárabót fyrir
Vikinga ef þeir næðu sér i gull-
verðlaun i kvöld.
En þrátt fyrir það að flestir spái
Vikingi sigri má ekki reikna með
þvi að leikurinn verði þeim auð-
veldur þvi að FH-ingar hafa á að
skipa leikreyndum mönnum, en
það hafa Vikingarnir nú einnig.
En spá min stendur. Fimm
marka sigur Vikings. En hvort
hún rætist sjá menn i höllinni i
kvöld klukkan 18.00 eins og áður
sagði.
SK.
Mætiö við
kirkjuna
VÍðavangshlaup Eyra-
bakka verður háð þann 1.
mai n.k. og hefst það klukk-
an 14.00.
Keppt verður i tveimur
flokkum, karla- og kvenna-
flokki og hlaupa karlarnir
um fimm kilómetra en kon-
urnar þrjá.
Allir þeir sem áhuga hafa
á að taka þátt i hlaupinu eru
beðnir að mæta timanlega
við kirkjuna.
SK.
Isl glíman
um helgina
Islandsgliman verður háð
um helgina og verður glimt i
iþróttahúsi Kennaraskóla Is-
lands. Keppnin hefst klukkan
14.00 á sunnudaginn og verða
allir bestu glímumenn lands-
ins meðal þátttakenda.
Keppt verður um Grettis-
beltið að venju, en núverandi
handhafi þess er Ingi Þ.
Yngvason HSÞ, og verður
hann meðal þátttakenda.
Alls verða keppendur 10 á
mótinu. Frá HSÞ verða fjór-
ir, Ármanni þrir, Vikverja
tveir og einn KR-ingur.
Landsflokkagliman var
fyrst háð árið 1907.
SK.
LAUSSTAÐA
Staða fulltrúa I Menntamálaráðuneytinu er laus til um-
sóknar.
Aðalstarf skv. 10. gr. laga nr. 50/1976:
„Menntamálaráöuneytiö fer með málefni almennings-
bókasafna. Sérstakur fulltrúi i ráðuneytinu annast
málefni safnanna og skal aö öðru jöfnu ráöa eða skipa I
þaö starf bókasafnsfræðing með reynslu I starfi”. Sam-
kvæmt 5. gr. reglugeröar um almenningsbókasöfn frá 7.3.
1968 skal hann ennfremur m.a. fjalla um málefni skóla-
bókasafna.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu sendist Menntaipálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 24. mai n.k.
Menntamálaráöuneytiö, 24. aprii 1978.