Þjóðviljinn - 17.06.1978, Síða 5
Laugardagur 17. júnl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Sigurjón Pétursson tekur á móti börnum úr Eyjafjallahreppum.
Kynntu sér horgma
Kynnisferö i sveít er fastur
liöur i framboöi Æskulýösráös
Reykjavikur fyrir börn i borg-
inni. I samvinnu viö Samband
sunnlenskra kvenna hefur veriö
boöiö til slikra feröa á sunnlensk
sveitaheimili undanfarin ár, og
hafa þegar um 200 reykvisk
börn notið þeirra.
Dagana 13.-15. júni dvöldu 20
börn úr Reykjavik á bæjum i
Austur- og Vestur-Landeyjum.
Til Reykjavikur komu 13. júni 20
börn úr Eyjafjallahreppum, en
þau voru gestgjafar Reykjavik-
urbarna sumarið 1977.
Börnin þáöu fyrst heimboö
hjá þeim, sem verið höföu gestir
þeirra i fyrra, en eftir hádegi
beið þeirra kynnisferö um borg-
ina á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavikur. Hófst iiún meö
þvi, aö forseti borgarstjórnar,
Sigurjón Pétursson, tók á móti
þeim i sal borgarstjórnar og
rabbaöi við þau um borgina og
stjórn hennar. Þvi næst var far-
ið á ýmsa merkisstaði, svo sem
Arbæjarsafn, i Hallgrims-
kirkjuturn, á sýningu Errós á
Kjarvalsstöðum og viðar.
Deginum lauk með ferö i
kvikmyndahús og pylsuveislu á
Frikirkjuvegi 11. Astæöa er til
að fara sérstökum viðurkenn-
ingarorðum um frábært starf
Sambands sunnlenskra kvenna
við kynnisferöir þessar.
Þjóðhátíðarkveðjur
til viðskiptavina okkar og landsmanna
allra.
Kaupfélag Hvammsfjarðar
Búðardal __________________
19.JÚNÍ
AmM KwnréHindalélagt Ul*r>d> 1»7«
Meðal efnls:
Vtðtöl vlð nútfmahjón.
Oplnakóar frásagnlr karla og kvcnna.
Lagaicg ataða fólka í hjúskap og sambúð.
„19. júní
kominn út
Arsrit Kvenréttindafélags ts-
lands, ,,19. júni”, kom út I 28.
skipti i þessari viku.
Efni blaösins er fjölbreytt aö
vanda. Aðaltema þess nú er hjú-
skapur og sambúö og er fjallað
um efnið frá ýmsum hliöum.
Sagt er frá lagalegri stööu fólks
bæði i hjónabandi og sambúö og
hvernig skilnaöur gengur fyrir
sig. 1 blaðinu er myndaflokkur
um hjón eftir 10 ára börn meö
texta eftir Guöberg Bergsson.
Fjórar konur, sem leggja stund á
myndlist segja frá aöstööu sinni
og störfum. Bókafréttir, úr íé-
lagsstarfi, af skattamálum og
margt annað áhugavert efni er i
blaöinu auk fjölda mynda.
Blaöiö veröur selt á skrifstofu
KRFI að Hallveigarstöðum, Tún-
götu 14 næstu daga, i bókabúðum
og viöa um land. Hægt er aö ger-
ast áskrifandi að „19. júni” i sima
18156. Verö blaösins i ár er kr.
950.00.
Ert þú búinn að
(ippa?
Ert þú búinn að „tippa“ á þingmannafjölda flokkanna
í kosningagetraun okkar?
Hún getur fært þeim sem „tippa“ réttast góðan vinning
,-okkur gerir hún kleiftað hjálpa öðrum.
Getraunamiða færðu í bönkunum, flestum apótekum,
kvöldsölum, og verzlunarmiðstöðvum.
Auk þess hjá Rauða krossinum.
Verið með
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR
FRÁ
MENNTASKÓLANUM
HAMRAHLÍÐ
Forfalla- eða stundakennara vantar að
Menntaskólanum við Hamrahlið næsta
skólaár.
Kennslugreinar stærðfræði og eðlisfræði.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans,
þar sem tekið verður á móti umsóknum.
Umsóknarfresturtil 30. júni.
Rektor.
STAÐA
\AR ASK ATTSTJ ÓR A
Skattstofu Reykjavikur er laus til um-
sóknar. Varaskattstjóri er staðgengill
skattstjóra og gegnir jafnframt störfum
skrifstofustjóra.
Umsóknarfrestur er til 9. júli 1978.
Fjármálaráðuneytið, 15. júni 1978
ÚTFLUTNINGUR
— SÖLUSTARF
Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri
óskar eftir að ráða mann til starfa við út-
flutning á vegum deildarinnar.
Viðskiptafræðimenntun og/eða starfs-
reynsla við útflutningsstörf skilyrði.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra
Iðnaðardeildar Sambandsins fyrir n.k.
mánaðamót, og með þær verður farið sem
trúnaðarmál.
Iðnaðardeild Sambandsins,
Glerárgötu 28.
Akureyri.
STAÐA LAUNA-
SKRÁRRITARA
i launadeild fjármálaráðuneytisins er laus
frá og með 1. september 1978. Umsóknar-
frestur er til 14. júli 1978.
Fjármálaráðuneytið, 13. júni 1978.
KAUPFÉLAGSSTJÓRI
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag ön-
firðinga er laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 30. þ.mán. Skriflegar um-
sóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist Baldvin Einarssyni, starfs-
mannastjóra Sambandsins, sem geful
nánari upplýsingar.
Kaupfélag önfirðinga
Flateyri
S VEITARSTJ ÓRI
Starf sveitarstjóra á Blönduósi er laust til
umsóknar. Leitað er eftir dugmiklum,
ákveðnum og vel menntuðum manni i
starfið.
Umsóknir ásamt meðmælum og öðrum
upplýsingum skal senda til skrifstofu
Blönduóshrepps fyrir 5. júli n.k.
Hreppsnefnd Blönduóshrepps.