Þjóðviljinn - 18.02.1979, Síða 19

Þjóðviljinn - 18.02.1979, Síða 19
Sunnudagur 18. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 19 Mikhael Tal á Reykjavlkurmótinu 1964. Enn um Portoroz Fyrir nokkru ræddi ég um skák sem þeir Friðrik ólafsson og Svetozar Gligoric tefldu á milli- svæðamótinu í Portoroz 1958. Þar sem mót þetta er eitt hið merkilegasta í skáksögu islands og raunar allri skáksögunni ætla ég að gera nokkurt framhald á umfjöllun þessa móts. Þarna blésu ákaflega ferskir vindar; Bobby Fischer sannaði hæfileika sína svo að seint mun úr minnum líða. Mikhael Tal sem þarna var á hátindi frægðar sinnar fórnaði mönnum á báðar hendur og hreppti 1. sætið. Bent Larsen kom frá Danmörku ákveðinn I að krækja sér i eitt af sætunum sex í áskorendakeppn- ina.en varð að lokum að láta sér lynda 16. sætiö,og svo mætti lengi telja. Skákirnar i þessu móti voru stórskemmtilegar og voru gefnar út hér i fjölrituöu broti á vegum Friðrikssjóös, en það var sjóður sem ætlaður var til að styrkja Friörik á skákbrautinni. Mér hefur alltaf þótt gaman að renna yfir skákirnar i þessu litla kveri. Ein er sú skák sem mikla athygli verkur en J»ð er viöureign Frið- riks við Mikhael Tal. Hún fór fram þegar langt var liðið á mót og var þvi glfurlega mikilvæg. Friðrik hafði hvitt og náði þegar i byrjuninni betri stöðu, og tókst honum að auka frumkvæði sitt með hverjum leiknum. Þegar skákin fór I bið blasti sigurinn við, og sigur i þessari skák þýddi I raun öruggt sæti fyrir Friðrik i áskorendakeppnina. Biðstaöan var þessi: Umsjón: Helgi ólafsson Aður en ég held lengra áfram ætla ég að gefa Tal orðiö: „Bið- skákirnar átti að tefla næsta dag. Sigur yfir Panno (Tal átti á þessu stigi málsins aðra biðskák gegn argentlska stórmeistaranum Panno) var miklum vafa undir- orpinn, og mun meiri vafa en tap fyrir Friðrik. Við lögðum biö- skákina við Panno til hliöar og reyndum að átta okkur á björgun- armöguleikunum gegn Friðrik. Þvi meira sem viö athuguðum stöðuna, þvi meir vorum við sannfærðir um hversu vonlaus hún váeri. Aö lokum fundum við athyglisverða hugdettu, ákaflega órökrétta leið þar sem kóngurinn svarti labbar sig friviljugur frá fripeðinu. 1 þvi tilbrigöi var vissulega möguleiki fyrir Friðrik aö verða á skyssa”. Skákin gekk þannig fyrir sig: 43. Kd7 (Þetta var biöleikur Friðriks, sá besti I stöðunni, en timinn var drjúgur sem hafði fariö i hann, heilar 45 minútur.) 43. .. a4 „ 44. d6 Kg7! (Þessi leikur kom Friörik á óvart' Hann hugsaöi sig i 6 minútur um næsta leik.) 45. Ke8 Hxf3 (45. — He3-f dugar skammt vegna 46. He7Hce7+ 47. —. Kxe7- a3 48. d7-a2 49. d8. (D) al (D) 50. Df8 + -Kg6 51. Dxf7+ -Kh6 52. Df6+ og vinnur.) 46. Hxa4? (Afleikur, og eftir hann aukast jafnteflismöguleikar svarts um allan mun, þó vinningurinn sé ekki úr sögunni. Vinninginn var aö fá á eftirfarandi hátt: 46. d7!-He3+ 47. Kd8-a3 48. Ha8!- f5 49. Kc7-Hd3 50. Hxa3! o.s. frv.) 46. ..He3+ (En ekki 46. — f5 47. Ha7+-Kg6 48. d7-He3+ 49.Kf8-Hd3 50. Ha6+- Kh7 51. Ke7 o.s.frv.) 47. Kd8-f5! 48. gxf5? (Friðrik var naumur á tima og lætur þvi vinninginn sér úr greip- um ganga,en hann var að fá með 48. Ha5!-Kf6 49. Hxf5+-Ke6 50. Ke8!!-Kxd6+ 50. Kf7 og hvitur vinnur á g-peöinu,en of langt mál yröi að rekja vinningsleiðina en hún er i eöli sinu sáraeinföld.) 48. .. Kf6 49. Ha6 (Eða 49. Ha5-g4 50. d7-Hc3 51. Hd5-Kf7 og staöan er jafntefli.) 49. .. Kxf5 50. Kc7-g4 51. d7-He7 52. Kd6-Hxd7 + 53. Kxd7-g3 54. Kd-g2 55. Hal-Ke4 Jafntefls. Mjög athyglisvert endatafl þar sem heiliadisirnar voru allar á bandi Tals eins og svo oft á þessum árum. Tökum að okkur viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smiðum eldhúsinnréttingar; einnig við- gerðir á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla. Verslið við ábyrga aðila TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ Bergstaðastræti 33, simar 41070 og 24613 AU GLÝ SINGASÍMI ÞJÓÐVILJANS ER 81333 Blaðberar óskast Vesturborg: Melhagi (sem fyrst) Melar (sem fyrst) Skjól (sem fyrst) MÚÐVIUINN Siðumúla 6, simi 81333. • Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 Árshátíð íþróttakennarafélags íslands verður haldin i Skiðaskálanum Hveradöl- um 3. mars n.k. og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Þátttökutilkynningar þurfa að berast fyrir 25. febrúar. Rútuferðir. Upplýsingar i simum: 22883, 74364 og 53257. Orðsending til umboðsmanna Þjóðviljans Þeir umboðsmenn Þjóðviljans i kaupstöð- um og kauptúnum úti á landi, sem ekki hafa enn gert endanleg skil fyrir árið 1978 og sent skilagreinar fyrir uppgjöri, eru vinsamlegast beðnir að draga það ekki lengur. ÚTBOЮ Tilboð óskast i klæöningu, viðhald og viðgerðir á stál- skólastólum fyrir skóla Reykjavikurborgar. útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3 Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 7. mars kl. 14. e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR Fnkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Útför Valdimars Á Leonhardssonar bifvélavirkja fer fram þriöjudaginn 20. febrúar kl. 3 e.h. frá kirkju Óháða safnaðarins. Guðrún D. Björnsdóttir Ingibjörg Valdimarsdóttir Margrét Valdimarsdóttir Valur L. Valdimarsson Héðinn Valdimarsson systir og tengdabörn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.