Þjóðviljinn - 29.04.1979, Page 23
Sunnudagur 29. april 1979| ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
kompan
Hvers vegna eru
krakkarnir ekki með?
Kæra Kompa!
Ég ætla að skrifa þér
um dálítið sem mér er
ofarlega í huga. Sjálfsagt
hefur það ekki farið
framhjá neinum (nema
kannski krökkum) að það
er barnaár. í tilef ni af því
efnir Mál og menning til
verðlaunasamkeppni um
barnabækur. Ég er
ánægður með þetta, því
ég kem til með að njóta
góðs af sem lesandi. En
ég er undrandi yfir að í
dómnefndinni er aðeins
fullorðið fólk, en það
hefði mátt vera eins og
einn krakki. En við erum
sjálfsagt svo vitlaus að
okkur er ekki treystandi
til þess að dæma um
hvort okkur þykja bækur
góðar eða slæmar. En ég
hef tekið eftir að í öllum
nefndum og ráðum
(sjálfsagt flestum laun-
uðum) er f jalla um mál-
efni barna er einungis
fullorðið fólk.
Hvað skyldu margir ná
sér í aukapening út á
málefni barna árið 1979?
Fyrir síðustu jól heyrði
ég viðtal í útvarpinu við
konu sem starfar hjá
mæðrastyrksnefnd, og af
því sem hún sagði veit ég
að til eru á Islandi börn,
sem búa við fátækt og
umkomuleysi. Vonandi
gleymastekki þessi börn í
öllu bramboltinu á þessu
barnaári, ef þau gera það
ekki er hægt að segja, að
betur hafi verið farið en
heima setið. Ef þau
gleymast má fullorðna
fólkið sem sér um þessi
mál skammast sín.
Nú ætla ég að Ijúka
þessu spjalli með því að
kveðja.
Steingrimur ólafsson,
11 ára,
Galtarvita.
Hann
langar til
aö lesa
Hobbit
Þór Hreinsson, Ystabæ
7, Árbæjarhverfi, sendi
rétta lausn á Hvað heita
bækurnar? Hann skrifar:
„Éq hef lesið Emil í
Kattholti og Gúmmí-Tar-
san. Mig langar til að lesa
Hobbit".
Kompan þakkar fyrir
þetta stutta, en greinar-
góða bréf. Eru ekki fleiri
sem vilja láta í sér heyra
um bækurnar sem út
komu á árinu 1978? Gam-
an væri að einhver, sem
hefur lesið Hobbit, léti í
sér heyra.
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
S ) G G- ST N A
Kaupmaðurinn hallaði
sér fram á búðarborðið
og kallaði til drengs, sem
stóð rétt hjá epiakassa:
,,Þú, þarna strákur,
ertu að reyna að stela
epli?"
„Nei, nei, aUs ekki!"
svaraði drengurinn
stamandi. „Ég er að
reyna að stela ekki epli."
Kennarinn: Hver eru
hlestu einkenni apanna?
Nemandinn: Þeir hafa
hendur á öllum fótum.
tlr Krukkuborg. Kolkrabbarnir eru aö taka Sigga fastan.
blC-O- 5T
Sigga Stina að sippa
Með þessari klippimynd frá Siggu Stlnu óskar Kompan öllum les-
endum sinum gleðiiegs sumars.
Myndir frá Siggu Stínu
Sigga Stína, 7 ára,
sendir Kompunni þrjár
myndir. Ein er af henni
sjálfri að sippa með nýja
sippubandinu sínu, önnur
er úr Krukkuborg og sýn-
ir kolkrabbana vera að
taka Sigga fastan. Þriðja
myndin er svo klippi- legu myndir frá Siggu
mynd. Stínu. Fleiri krakkar ættu
Það var sannarlega að fara að hennar dæmi
gaman að fá þessar líf- Svo minnir Kompan ykk-
ur á að senda þuluna.
ÚGG
Eftir Kjartan Arnórsson
tCs Tö/C Þ'FÍ' fiP
*>U> sJfiRST F)V F'iLá-SPl^T
tf&Ð méfF. . F/A/W5T ÞÉR F?
ETG- HAF( KV^NÖ^6-T
-ÖHOÖ uF)(s ?
HVZ&NCr WtFRl Ff pcö R^HNOlR
fíN ÐfífXFÓ
\i*NppfiFöK\H öTT/£
m