Þjóðviljinn - 05.08.1979, Qupperneq 24

Þjóðviljinn - 05.08.1979, Qupperneq 24
PWÐViUiNt Sunnudagur 5. ágúst 1979. 3 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, afgreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. L 81333 Kvöldsími er 81348 nafn* Heimsmeistarinn okkar i frjálsum iþróttum öldunga, Valbjörn Þorláksson, hefur verið mikið i fréttum i vik- unni. Hann sigraði I þremur greinum og setti jafnframt heimsmet i tveimur þeirra. Vaibjörn, sem nú er 45 ára gamall, keppti á sinu fyrsta islandsmóti 1952, og þar sigraði hann i stangarstökki, stökk 3.20 m. i þau 27 ár sem liðin eru frá þvi móti, hefur Valbjörn æft óslitið, og metin sem hann hefur sett skipta tugum eða hundruðum. Við náðum að króa af hinn eldfjöruga „öldung” rétt fyr- ir æfingu á Laugardalsvelli i fyrradag. — Hvernig stóð á þvi að þeirri hugmynd skaut upp kollinum að þú tækir þátt i öldungamótinu f Hannover? — Við höfum nú léngi vit- aðaf þessu móti, en einhvern veginn ekki orðið af þvi að senda mann fyrr en nú. örn Eiðsson vildi ólmur að ég færi nú, vegna þess að ár- angurinn hjá mér var þaö góður að ég var álitinn geta skákað þeim bestu á minum aldri. Siðan bara rúllaði þetta, við fengum plögg um mótið, og ákveðið var aö ég tæki þátt i stangarstökkinu, fimmtarþrautinni og grinda- hlaupinu. — Voru þeir eins góðir þarna úti og þú hafðir búist viö? — Ég bjóst nú við þvi, að þessir kallar væru enn sprækari, en svo blöskraði mér hvað maður gat rótað sjálfur, þvi ég var nánast á annarri löppinni vegna togn- unar. Vegna þessa þurfti maður að vera á svona 80% hraða mestan timann. — Og svo hófst keppnin. — Já, stöngin var fyrst. Það böðlaðist einhver kall yfir 4.10m., enég fór létt með þá hæð, var svona 60-70 cm yfir ránni. Maður bara leit yfir mannskapinn á meðan. Siðankom fimmtarþrautin. í spjótinu varð allt vitlaust vegna þess að gaukurinn sem átti að mæla stóð við 45 m. markið, en ég þeytti spjótinu eitt sinn 15 til 20 m lengra. Þetta rúllaði svona áfram og i siðustu greininni, 1500 m. hlaupinu, labbaöi ég hreinlega útaf meiðslunum. Loks var það 110 m. grindin og þar lét maður allt gossa eftir að komið var fram i mitt hlaup. — Hvað tekur nú viö? Þú ert ekki hættur, er það? — Nei, nei, það þýðir ekk- ert annað en æfa áfram. Ég ætla að reyna að ná metinu i 400 m. grind, sem er um 58 sek. Mann langar á Norður- landamót öldunga og næsta ár á Evrópumeistaramðtið. A þessi mót ættum við að fara nokkrir af þessum eldri köllum héðan. Náunginn, sem á metið i 400 m. grindinni er Astraliu- búi og hann sagði viö okkur Úlfar eftir mótið i Hannover: ,,Ég hélt aö ég væri kóngur- inn, en ég sé að það er kominn nýr kóngur að norö- an.” — IngH Valbjörn Þorláksson Ljósm. —eik, Skelli mér á Laugarvatn” segir Hulda Anna ,Læt veður ráða segir Halldóra Hvað gera þœr um helgina? Spjall við nokkrar stúlkur sem vinna við verslunarstörf Frídagur verslunar- manna er á morgun og all- ar verslanir lokaðar. Veslunarfólk um allt land, svo og aðrir landsmenn, nota þessa helgi umfram aðrar helgar til að fara út úr bænum enda er þetta mesta ferðahelgi ársins. Við ræddum við nokkrar stúlkur sem vinna við verslunarströf. „Ég ætla að skella mér á Laug- arvatn um helgina. Við förum mörg saman og ég fer með mitt eigið tjald og myndavélina hans pabba”, sagði Hulda Anna Arn- ljótsdóttir, sem vinnur i verslun Hans Petersen i Glæsibæ. „Ég hef verið hér i sumar, en i vetur fer ég i MH. Ég kann ágæt lega við að vinna hérna, en það væriauðvitað ekki verra að vinna styttri vinnudag. Aðalvandamál- ið við þessa vinnu er að komast inn i ljósmyndatæknina og kunna skil á öllum þessum tækjum. Það hefur verið mjög mikið að gera hér þessa viku og áreiðanlega margir sem ætla að taka myndir um helgina.” „Ertu að hugsa um að vinna við verslunarstörf i framtiðinni?” „Nei, ég býst ekki við þvi. Mig langar til að fara út og læra tungumál þegar ég er búin með skólann”, sagði Hulda að lokum. „Ég ætla út úr bænum um helg- ina með fjölskyldu minni. Við för- um með tjald og látum veður ráöa hvar við tjöldum, — það er alveg óákveðið ennþá”, sagði Halldóra Halldórsdóttir, sem vinnur á ein- um hinna nýju kassa hjá Sláturfé- lagi Suðurlands i Glæsibæ. „Hvernig er að vinna á kassa? ” „Það er alveg ágætt. Þetta er mjög fullkominn kassi, hann reiknar sjálfkrafa út hvað á að gefa mikið til baka. Annars er ég bara hér i sumar.” ,,Hvað gerirðu yfir veturinn?” „Ég er i Fjölbrautaskólanum i Breiðholti á viðskiptasviði og ætla svo á læknaritarabraut.” „Þú ætlar þá ekki aö vinna við verslunarstörf i framtiðinni?” „Nei, ég býst ekki við þvi. En mér finnst gott að vinna hérna og fólk kvartar ekkert undan þvi að borga fyrir vörurnar.” Og nú var viðskiptavinur kominn að kassanum og Halldóra farin að stimpla inn á nýja kassann. Guðbjörg Haraldsdóttir vinnur i húsgagnadeildinni i Vöru- markaðnum. „Ég ætla bara að vera heima um helgina, það er nóg að gera heima hjá mér. Mér finnst ekkert sérstaklega spennandi að fara út úr bænum um verslunarmanna- helgina. Ég held bara að ég hafi ekki gert það siðan ég var 16 ára gömul.” „Hvernig kanntu við að selja húsgögn?” „Mér finnst það ágætt. Ég hef unnið hér i 2 ár og gæti vel hugsaö mér að vera hérna áfram. Vinnutiminn mætti þó vera styttri hjá verslunarfólki. Hér vinnur gott fólk og það er mikil sala i húsgögnum”, sagði Guðbjörg. „Mér finnst vinnutiminn of langur fyrir mig vegna þess aö ég á barn. Að öðru leyti kann ég á- gætlega við þetta starf, þótt ég búist ekki við að vera hér til frambúðar. Ég hef unnið hér i 3 ár i haust og miðað við þennan langa vinnudag mætti kaupið vissulega vera betra”, sagði Kristjana Arn- ardóttir i matvörudeildinni i Vörumarkaðnum. „Við hvað vinnuröu aðallega?” „Ég vinn mest við uppfyllingar i búðinni og er svo á kassa á föstu- dögunum. Mér finnst hvort tveggja ágætt og ekkert erfitt.” „Ætlarðu út úr bænum um helgina?” „Það getur veriö að ég fari austur á Laugarvatn? annars er þaö óákveðið”, sagði Kristjana að lokum. „Kaupið mætti vera meira” segir Kristjana. „No'g aö gera heima” segir Guðbjörg.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.