Þjóðviljinn - 09.12.1979, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. desember 1979
*
f t t Í ^ f ^
je
skrifar
eigin-
gjarnan
um
Stólalyftan i Kóngsgili er vafalaust þarfasta fjárfesting á sviöi aimenningsíþrótta hingað til.
KÓNGSGIL
Nú er hann kominn
veturinn/ með frostið og
snjóinn og hálfófærar
gangstéttir. Skammdegið
hefur löngum lagst þungt
á sálir fólksins hér norður
í veraldarrassi og ekki
bætir jóladellan og amst-
ur desembermánaðar,
fangur vinnutími og á-
hyggjur af væntanlegu
skattaframtali líðanina.
Nú má að venju vænta
aukinnar tiðni hjóna-
skilnaða og leyndra og
Ijósra sjálfsmorða.
Kyrir þá sem þjást af dapur-
leika eða ringulreið hugans eru
á boðstólum ýmsar tamningar-
stöðvar vitundar og námskeið i
jóga fyrir byrjendur og lengra
komna á lágum pris. Svo er til i
dæminu aö fara aö spila bridge,
sem hefur að vísu gefist mis-
jafnlega, enda vitað að tauga-
spesialistar hafa bannaö sinum
kúnnum þvilika iðkun.
Aldrei hefur nokkur
spesialisti bannaö neinum að
njóta fegurðar, dýrðar himins
og bláma fjallanna. Þess eru
enda mýmörg dæmi að göngu-
garpar Ferðafélagsins og
Otivistar og aörir útilifsmenn
séu tiltölulega hamingjusamir
einnig i háskammdeginu.
Skiðafólk hefur fjölmennt i
Kóngsgiliö i Bláfjöllum undan-
farið, enda veður oft veriö blitt
og fagurt, nema kosningahelg-
ina er brá til hins verra.
Ekki sjaldnar en þrisvar sinn-
um hef ég gert ferð i fjöllin og i
öll skiptin haröákveöinn i þvi aö
efna i þennan þátt skipulega,
spjalla við starfsmenn skiða-
lyftanna og koma upplýsingum
og hagnýtri vitneskju til
lesenda, eins og blaöamenn eiga
að gera. í bæði skiptin varð
þessi ásetningur að engu, ég
timdi ekki að fórna tima á þess-
um dýraöardögum f lesendur.
Skammur dagur, löng nótt,
ótryggt stjórnarfar og yfir-
vofandi ihald. Hvilikt ástand.
Mitt i þessu færa ómennskir
náttúrukraftar okkur bjarta og
sólrika daga, daga sem við, þú
og ég eigum að nýta eftir megni.
Ég er stundum að furöa mig á
hve upptekið skiöafólkið flest er
af iþrótt sinni. Það er að and-
skotast úr einni lyftu i aðra,
einni brekkunni i aðra, og gufu-
strókana leggur af þvi i
frostnepjunni. Aldrei stansað og
litið upp til fjallanna sem lýsa
sólhvitu ljósi eins og gulldjásn.
Sumir tækju liklega ekki eftir
þótt þeir skiðuðu inn i sjálft
himnariki. Og reyndar er
himnariki hér á degi sem þess-
um er fegurðin rikir ofar hverri
kröfu.
Já, það er ótrúlega skemmti-
legt i þessum brekkuleik og ég
fullyrði aö framtak Bláfjalla-
nefndar, borgarsjóðs og iþrótta-
hreyfingarinnar hér á Bláfjalla-
svæði hefur breytt lifi fjölda
fólks. Hér má lika sjá stelpur og
stráka, kalla og kellingar, fólk
sem aldrei áður hefur stigiö á
skiði, uppdubbaö i vatteraöa
galla i glasúr-litum, fikra sig
áfram i brekkunum. Islenskur
sportfataiönaður getur lika vel
við unað, þvi fáir eru eins og
undirritaður sem er staðráðinn i
þvi að láta gömlu rauöu ferða-
úlpuna duga um sinn, þótt kjaft-
for dóttir min segi mig likastan
rauðri belju á skiðum.
t minni æsku voru engar
lyftur, og urðum viö að klifra
brekkurnar með ærinni
fyrirhöfn, enda gleymdu
stelpurnar undarlega oft
skiðunum heima. Nú er öldin
önnur, glæsimeyjarnar eru all-
ar komnar uppi brekkurnar,
enda þarf enginn að svita sig
lengur, þvi að lyfturnar flytja
okkur upp á fjallsins brún. Nú er
viðburður ef fönguleg stúlka
álpast i fjöllin skiöalaus.
Hinsvegar er fámennt hjá
mér þar sem ég sit um hádegis-
bil á hörðum steini efst i fjall-
inu. Allan morguninn hef ég
fylgst meö hvernig sólin
blandar úr rauðu yfir i hvitt og
einmitt nú er stuttskrautlýsing.
Hver hóll og hvert fjall er baöaö
gulhvitu ljósi en dalirnir og
lautirnar eru i djúpum bláum
skugga. Aðeins stutt ögurstund.
Og aftur byrjar hún blessuð aö
hella rauðu útl og rökkrið læðist
aö og blámi himins dýpkar og
billjósin kvikna og borgarljósin
i fjarska. Kominn er timi til að
halda heim.
Á heimleiðinni, nánar tiltekið
á miöri Elliðaárbrúnni, vaknaði
hjá mér ein ósk sem mætti
berast borgaryfirvöldum.
Bensinið er dýrt. Bláfjöll eru
Snjótroðarinn á ferö I Kóngsgili.
drjúgan spöl frá Reykjavik.
Skiðaiþróttin er holl og
skemmtileg og börn hafa
sérstakt yndi af henni. Ekki
nenna allir pabbar með krakk-
ang I Bláfjöll og margir hafa
hreinlega ekki efni á þvi. Þess
vegna er það min fróm ósk aö
svona tveimur traktorslyftum
verði komiö fyrir innan borgar-
markanna, t.d. i Artúnsbrekk-
um og I Fossvogsdal. Mætti
segja mér að Armenningar og
máske fleiri aðilar ættu lyftur
sem hætt er að nota.
— je.