Þjóðviljinn - 09.12.1979, Blaðsíða 19
Sunnudagur 9. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Jafnvel rotturnar veröa fallegar.
Klaus Kinski og Isabelle Adjani f Nosferatu.
Hestur
Ævintýramaður
og fylgihlutir
Bílabrautir 20 gerðir
Fjarstýrðir bilar
Snúrustýrðir bi/ar
Skautabe/ti
'y^mrisitx.....................................................
Póstsendum samdægur s
Leikfangahúsid
Skólavöröustíg 10, Bergshúsi Sími 14806
Eru blóðsugur hlægilegar?
Að byggja brú
A fundi meö islenskum áhuga-
mönnum um kvikmyndir s.l.
vetur talaöi Werner Herzog mikiö
um það „gat” sem væri á þýskri
kvikmyndasögu. Þar átti hann
við timabiliö milli tveggja
gullalda, frá þvi aö nasisminn
geröi útaf viö glæsilegt skeiö
expresslónistanna gömlu og
þangaö til nýja bylgjan reis i
upphafi áttunda áratugsins.
Herzog talaöi um að byggja trú
þarna á milli, og eflaust á myndin
um Nosferatu aö vera sú brú, eða
a.m.k. hluti af henni.
Fyrsta myndin um Nosferatu,
ööru nefni Dracula, var gerö áriö
1922. Þá skapaöi Friedrich Wil-
helm Murnau sitt sigilda
meistaraverk, og Max Schreck
lék aðalhlutverkið, greifann
blóöþyrsta. Siöan hafa sem kunn-
ugt er veriö geröar margar
blóösugumyndir, bæöi i gamni og
alvöru. Má e.t.v. segja aö
blóösugan sé oröin útþvælt fyrir-
bæri i kvikmyndasögunni og aö
talsvert mikiö þurfi til aö vekja
áhuga nútimaáhorfenda á henni.
Werner Herzog notar sama
söguþráö og Murnau geröi, þ.e.
skáldsögu Bram Stokers,
„Dracula”. Hann breytti nánast
engu i sögunni sjálfri, og geröi sér
meira að segja far um aö leita
uppi staöi sem Murnau hafði
kvikmyndaö og mynda þá frá
sama sjónarhorni. Með þessu var
hann i og með að votta Murnau
aödáun sina og sýna fram á aö
hann tæki upp þráöinn þar sem
Murnau sleppti honum.
Deyfandi fegurð
Engu aö siöur er mynd Herzogs
langt frá þvi aö vera bein stæling
á mynd Murnaus. Gagnrýnendur
hafa sagt um hana aö hún sé
„deyfandi falleg”. Fegurðin yfir-
gnæfi þau „myrku öfl” sem séu
nauösynleg forsenda i hryllings-
mynd. Jafnvel rotturnar, sem
flæöa um tjaldiö i þúsundatali og
eiga aö tákna pestina og dauöann,
séu hvitar og pattarlegar og allt
aö þvi fallegar.
bótt undarlegt kunni að viröast
eru gagnrýnendur þvi sem næst
sammála um, að eina persónan i
myndinni sem veki samúö
áhorfandans sé Dracula, sem
leikinn er af Klaus Kinski.
Vandamál greifans er þaö, aö
hann fær hvorki aö deyja né
elska. Leikaranum tekst svo vel
aö koma þessu til skila, aö
áhorfendur skilja hversvegna
hann kemur af staö plágum og
stráir um sig hörmungum og
dauöa, hvar sem hann fer.
Kannski er þarna aö finna
stærsta muninn á myndum þeirra
Murnaus og Herzogs. Og kannski
er þarna lika að finna sögulega
skýringu á þeim timum, sem
þessir tveir listamenn lifa og
hrærast i. Þegar Murnau geröi
sina mynd voru aöeins fjögur ár
liöin frá lokum fyrri heims-
styrjaldarinnar, en þýski
expressionisminn reis úr rústum
þess hildarleiks. Hryllingurinn,
óttinn og „hin myrku öfl” voru
þessum mönnum raunveruleg
fyrirbæri.
Herzog er maður annars tima.
Hann hefur að visu látiö aö þvi
liggja að hann sé miðaldamaöur
og sæki sinar myndir aftur til
siöari hluta miöaldanna. En slik-
um yfirlýsingum ber að taka meö
fyrirvara. Þegar verk Herzogs
veröa metin i framtiöinni veröur
hann ekki skoöaður sem miöalda-
maöur, heldur barn sins tima.
hversu frábrugðinn. sem hann
kann aö vera jafnöldrum sinum
og bræörum i llstinni.
mwm
Svona litur Klaus Kinski út þegar
hann er ekki aö leika blóösugur
eöa krypplinga.
r
Urkynjun
Þaö sem viröist vera aö
einkenna Herzog æ meir, eftir þvi
sem myndum hans fjölgar, er
úrkynjunarstefna i þvi, (dek-
adentismi). Þeir sem
aðhyllast þá stefnu sjá dularfulla
fegurð tt sem öörum þykir harla
ljótt: dauðanum,glæpum, striöum
og öðrum hörmungum. Blóðsug-
an hlýtur þvi að vera kjörin sögu-
hetja. 1 Nosferatu er allt fallegt:
lika dauöinn og plágan.
t myndinni Woyzeck, sem
Herzog geröi næst á eftir
Nosferatu, gætir þessarar
tilhneigingar einnig. Sú mynd
endar á þessari gullvægu setn-
ingu: „Svo fagurt morö höfum við
ekki séö lengi.”
Werner Herzog er mikill lista-
maöur, enginn fær mótmælt þvi.
Hann hefur skapaö listaverk sem
munu lengi i minnum höfö. Hann
hefur fundiö sýnum sinum
myndrænt form sem er
sérstætt, jafnvel einstætt I kvik-
myndasögunni. Hann fer aldrei
troönar slóöir, og um verk hans
eru þvi afar skiptar skoöanir. En
sú braut sem hann fer inn á I
tveimur slöustu myndum sinum,
Nosferatu og Woyseck, virðist
varla geta leitt til annars en úr-
kynjaörar naflaskoðunar i fila-
beinsturni. Þar meö er alls ekki
sagt aö hann eigi ekki eftir að
skapa merk listaverk 1
framtiöinni, og þetta er auövitaö
enginn endanlegur dómur yfir
honum sem miklum listmanni.
Þegar Herzog gerir mynd um
blóösugu gerir hann þaö vafa-
laust i þeirri trú aö hann geti haf-
iö sig hátt yfir þau almennu
viöbrögð nitimamanna aö hlæja
aö því sem áöur þótti ógn-
vekjandi. En það er einsog þaö
hafi ekki alveg tekist. Þaö er
algengt aö áhorfendur hlæi á
„vitlausum stöðum” þegar veriö
er aö sýna Nosferatu.
Ingibjörg
Haralds
dóttir
skrifar
Nú í vikunni hófust í
Nýja bíói sýningar á
margumræddri kvikmynd
Werners Herzogs:
,,Nosferatu — blóðsuga
næturinnar”. Herzog er
áreiðanlega mörgum
minnisstæður frá því hann
heimsótti okkur í fyrra.
Nokkrar myndir ef tir hann
hafa líka verið sýndar hér:
Stroszek, Aguirre — reiði
Guðs, Kaspar Hauser,
Glerhjartað ofl. Margir
telja Herzog fremstan í
flokki þeirra ungu v-þýsku
kvikmyndastjóra sem
standa fyrir „nýbylgj-
unni" svonefndu. Samt
•munu flestir sammála um
að erf itt sé að f lokka þenn-
an sérstæða leikstjóra,
skipa honum í sveit með
öðrum; stundum er honum
likt við klett í hafinu.
Þegar Herzog var spuröur
hvers vegna hann heföi kosið aö
gera enn eina mynd um
rúmenska greifann Dracula,
svaraöi hann: Ég leita ekki uppi
þemu, það eru þau sem leita mig
uppi.
Þetta svar er mjög i samræmi
viö þá grundvallarsannfæringu
Herzogs, aö hann sé útvalinn,
einskonar spámaöur kvikmynda-
listarinnar. Þegar hann fær sinar
stórkostlegu hugmyndir — sem
eru stórkostlegar, enginn fær
neitað þvi — getur nákvæmlega
ekkert hindraö hann i aö koma
þeim I framkvæmd. Hvort sem
þaö er malaria, eldgos, eöa fjand-
skapur hollenskra bænda eöa
perúanskra idiána, svo aðeins lit-
iö eitt sé nefnt af þeim vand-
ræöum sem Werner karlinn hefur
lent i.