Þjóðviljinn - 09.12.1979, Qupperneq 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. desember 1979
YFIRÖTUL BÖRN
og matarlist
dr. Feingolds
Svonefnd „yfirötul"
(hyperactive) börn hafa
verið rannsðknarefni
lækna í Bretlandi og
Bandaríkjunum í æ ríkara
mæli. Upphaflega var
haldið að þessi óróleiki
barnsins skapaðist í sam-
bandi við heilaskemmdir
en nú er álitið að ofnæmi
eigi einhvern hlut að máli.
Rannsóknir bandaríska
læknisins Dr. Ben Feingold
sem hér verður sagt frá
hafa leitt í Ijós að lækning
þessara barna er mjög
undir fæðuvali komin.
„Yfirötul” eöa „óróleg” börn
hafa m.a. eftirtalin einkenni: Þau
eiga erfitt meö aö einbeita sér,
sofa illa, fá ofsa frekjuköst (tant-
rums) — öskra, hoppa og haga
sér svipaö og dýr i búri flestalla
daga i þrjár til fjórar stundir i
einu. Sum þessara barna eiga i
erfiöleikum meö nám eiga erfitt
meö að tala, eru klaufaleg og eiga
jafnvel erfitt með aö halda jafn-
vægi. Oft þjást þau af einhverjum
eftirtalinna kvilla: höfuöverk,
kvefi, astma, ofnæmi, húð-
sjúkdómum, óþægindum i maga
og ósjálfráöu þvagláti. Einnig eru
þessi börn óeðlilega þorstlát.
Þessi einkenni virðast niu sinnum
tiöari hjá drengjum en stúlkum.
,/óvísindaleg" aðferð
Bandarisk stofnun (The New
York Institute of Child Develop-
ment) er að kanna blýmengun i
„hyperactivum” (afarórólegum)
börnum og hefur hún komist aö
niöurstööum sem hvetja til enn
frekari ranns&kna. Samt telur
þessi stofnun liklegt aö sum þess-
ara barna þjáist af of lágu magni
blóösykurs og aö þau eigi að vera
á sérstöku fæöi, þ.e. boröa eggja-
hviturikt (protein-rikt) fæöi, en
aftur miklu minna af kolefnarik-
um eða sætum mat.
Aöurnefndur læknir, Dr. Fein-
gold, hefur eftir margra ára
ranns&knir gert lista yfir æski-
lega og óæskilega fæöu fyrir þessi
börn. Þaö má bæta þvi viö hér að
nokkur skólamötuneyti þarlend
hafa farið eftir þessum matar-
lista, en eflaust hentar hann fleir-
um en þeim sem hafa ofnæmi eins
og umrædd börn.
Þótt þaö sé vafalitiö miklu
þægilegra að ná sér i pakka og
niöursuðudósir af hinu og þessu
fyrir f jölskylduna virðist auglj&st
að ef börn eru skapvond ogeiröar-
laus dag eftir dag, án þess þó að
viröast veik, mætti reyna að
breyta mataræði þeirra og kom-
ast þannig aö raun um hvort ekki
verður breyting til batnaöar á
nokkrum vikum.
Það er vitaö mái, aö iæknar eru
ekki óöir og uppvægir i aö tileinka
sér þessar rannsóknir Dr.
Feingold, en telja má vist að ef
stór og viðurkennd ranns&kna-
stofnun (eins og t.d. American
Medical Association) heföi unniö
að þessum rannsóknum yröu þær
strax viöurkenndar af þeim.
Aætlaö er aö i Bandarikjunum
einum saman séu uní 15% barna
„hyperactive”, eöa um sex
miljónir. Allt bendir til að þessi
sjúkdómur hafi aukist gifurlega
siöan i og eftir seinni heims-
styrjöld, þ.e. i öllum iönþróuöum
rikjum. Þessum börnum eru gef-
in margskonar lyf, og álítur stór
hluti lækna aö Feingold-fæöiö sé
mjög svo „óvisindaleg” aðferö til
lækninga. Nokkrir erlendir lækn-
ar hafa þó tekið við sér og reynt
þennan möguleika og nær undan-
tekningarlaust hefur oröiö breyt-
ing til batnaðar á þeim börnum er
hafa þannig notið hjálpar slikra
lækna. Einnig er þeim hjálp i að
eiga fordómalausa foreldra, sem
fús eru til aö reyna eitthvaö ann-
aö en eilifar meöalagjafir, sem
oft á tiðum gefa engan jákvæöan
árangur
Norma
Samúelsdóttir
skrifar
SNl
'Jm-
BÓKMENNTAVIÐBURÐUR
Hannes F^tursson omstój*i^eftir
KVÆmFYLfíSNI HALLGRÍMSSON
í þessari bók er brugðið upp
eftirminnilegum svipmynd-
um af Jónasi Hallgrímssyni,
lífi hans og list. Og Hannes er í senn nógu kröfuharð-
ur fræðimaður og listfengur rithöfundur til að fjalla
um þetta efni á þann hátt sem því er samboðinn. Bók
hans er reist á víðtækri heimildakönnun og snilldarvel
rituð.
11111111
Bræðraborgarstíg 16 Slml 12923-19156
„...lestur bókarinnr er skemmtun og hátíð sem
heídur áfram allt kvöldið og alla nóttina og langt
fram á morgun, og allt uns síðasta blaði er flett. “
(JS/Tíminn). „Útkoma Kvæðafylgsna er mikill bók-
menntalegur viðburður.“ (Jón Þ. Þór/Tíminn).
„Eins og vænta mátti er öll bók Hannesar hin læsileg-
asta enda skrifar þar skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (Heimir Pálsson/Helgarpósturinn).
„Vinnubrögð Hannesar eru einstaklega vönduð og
oft til hreinnar fyrirmyndar.“ (Helga Kress/Dag-
blaðið).
— í einu orði sagt: KJÖRGRIPUR
Til eru bresk samtök, sem aö-
hyllast Feingold mataræöiö.
Þessi samtök hafa deildir i hinum
ýmsu borgum Bretlands og er
markmið þeirra að hjálpa
„hyperactivum” (eöa afar óró-
legum) börnum og fjölskyldum
þeirra, meöal annars að vekja at-
hygli heilbrigöisyfirvalda á þessu
vandamáli. Þaö kostar tvö
sterlingspund á ári aö vera
meðlimur i þessum samtökum
ásamt smávegis greiöslu fyrir
fréttabréf sem kemur út árs-
fjórðungslega. Þetta fréttabréf
veitir upplýsingar um allt þaö
nýjasta sem gerist I þessum mál-
um. Heimilisfang samtakanna
er: Hyperactive Children's
Support Group (Hon. Secertary,
Mrs. Sally Bunday), 59 Meadow-
side, Angmering, Sussex, Eng-
land.
Matarlistinn
Hér kemur úrdráttur úr Fein-
gold matarlistanum, þ.e. þaö sem
börnin mega ekki borða, og þaö
sem er álitin æskileg fæöa:
Varast skal: l.Ávexti og græn-
meti sem innihalda Salicylates
(sýrur eins og t.d. i asperini) i
náttúrlegu formi, sem þau kunna
aö hafa ofnæmi fyrir. Hættiö að
gefa eftirfarandi fæðu (en ef þaö
sýnir árangur eftir 4-6 vikur, má
byrja aftur meö eina tegund i
senn og ef sjúkdómurinn versnar
ekki má gefa þá tegund áfram):
epli, aprikósur, ferskjur,
sveskjur, appelsinur, tómata,
agúrkur, greipaldin, tengerínur,
rúsinur.
2. Varist allan mat og drykk
sem innihalda gervilit og gervi-
bragö, einnig monosodium
glutamate (þriöja kryddiö),
„Nitrate Vanillin”, „Tartra-
zine”, gult litarefni svo sem
saffron og Anatto (appelsinugul-
ur og gulur litur), einnig efni sem
heitir „Butylated Toluene^BHT)
sem notað er til að varna þvi að
fita súrni. Mjög áriöandi er að
lesa leiöbeiningar á pakkavöru
sem hefur t.d. C(colour) fyrir
litarefni og F (flavour) fyrir
bragðefni.
Varist allan kornmat meö litar-
og bragöefnum (cocoa puffs o.fl.).
Allar búöarkeyptar kökur, sæl-
gæti (sem flest inniheldur litar-
eöa bragöefni), kex, sumar fryst-
ar vörur, frosinn fisk meö raspi
(ef raspiö inniheldur litarefni^
reyktan mat, flestan verksmiöju-
is, te, smjörliki, saltaö smjör,
kinverska sósu (Soya Sauce),
epla edik, litaðan ost, aspirin-
töflur, hóstasaft, öll lituð meööl,
magasölt (fruit salts). Forðast
skal allt hvitt hveiti, strásykur og
coladrykki. Of mikiö af þvi getur
aukiö þorsta og eykur skapofsann
sem ofnæmiö veldur. Þó ein-
kennilegt kunni að viröast er bent
á að einn munnbiti af „rangri”
fæöu getur haft slæmar afleiöing-
ar. Sum börn sýna þess merki
eftir 2-4 klukkustundir, önur eftir
12 tima eöa lengur.
Nota skal hvitt tannkrem og
hvita sápu. Mælt er meö B- og C-
vítamínum og barna-vitamins-
safa til styrktar heilsunni.
Heimatilbúið sælgæti
Þaö sem má:Korn án litarefna
(t.d. kornflögur, haframjöDjgróft
brauö, allt nýtt kjöt, kjúklinga og
hvitan fisk, heimatilbúinn is,
heimatilbúið sælgæti og brjóst-
sykur með leyfðu ávaxtabragöi,
banana, sitrónur, perur, melónur,
hrisgrjón, dökkan púðursykur,
spaghetti, heimatilbúna búöinga,
bragöefnalaust jógúrt, heimatil-
búinn ávaxtasafa, 7-Up gosdrykk,
mjólk, egg, hvitan ost, ósaltaö
smjör, hreinar mataroliur og fitu,
heimatilbúnar sultur eöa sultur
án litarefna, hunang^ivitt edik og
flest nýtt grænmeti.
Auðvitaö þýöir allt þetta mikla
vinnu fyrir þann sem matreiöir
fyrir svona sjúklinga. Hægt væri
svo sem aö framleiöa sérstakan
mat meö þessa einstaklinga i
huga, en þaö á sjálfsagt langt i
land ennþá. Eöa hvaö?
Þaö er vel þess viröi aö fylgjast
meö ýmsu þvi er gefa myndi landi
voru heilbrigöari börn. Ekki hvaö
sist á barnaári! (!) þaö fer ekki á
milli máia, aö á Islandi sem ann-
ars staöar i heiminum á sér staö
ýmiskonar öfugþróun I mataræöi.
Viö eigum samt gott hráefni til
ljúffengrar matargeröar. Reyn-
um aö halda þvi fersku, þ.e. án
gervi litar og gervi bragöéfna.