Þjóðviljinn - 09.12.1979, Síða 21
Sunnudagur 9. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
HeiOrún Sverrisdóttir
HEIÐRÚN SVERRISDÓTTIR, FÓSTRA:
Menntun „kvenna-
stéttanna” eykst
— Fóstrur eru Kvenna-
stétt og ég tel ekki nokk-
urn vaf a á að það á stóran
þátt i, hversu léleg laun
okkar eru. Hvort tveggja
er að löngum hefur það
ekki þótt vandaverk „að
passa krakka", og eins
hafa alltof margar
fóstrur verið of linar við
að krefjast réttlátra
launa fyrir jafn
ábyrgðarmikið og vanda-
samt starf og starf okkar
er. Jafnvel heyrðust þær
raddir meðal fóstra hér
áður fyrr að þær væru nú
allt eins að vinna þetta að
gamni sínu, peningar
skiptu minna máli.
Það er Heiörún Sverrisdóttir
forstööumaöur dagheimilisins
við Hábraut i Kópavogi sem
segir þetta og hún er ómyrk i
máli um þau smánarlaun sem
fóstrum eru skömmtuð.
Alltaf í sama
launaf lokki
— Við byrjum i 2. þrepi i 10.
launaflokki og i þeim flokki
erum við þaðan i frá og engir
hækkunarmöguleikar koma til
greina. Eina hækkunin er um
eitt þrep i þessum sama flokki
eftir 6 ára starf. Siðan ekki
söguna meir.
— Launin nú eftir hækkunina
1. des. eru 331.607 þús. á mán. i
2. þrepi og 344.718 þús. i þriðja
þrepi. Það eru jafnframt há-
markslaun fóstra. Þetta eru þau
laun sem fólk með þriggja ára
sérmenntun verður að sætta sig
við. Og þessi sérmenntun hefst
ekki fyrr en að loknu stúdents-
prófi eða tveggja ára námi á
uppeldisbraut I framhaldsskóla.
Ég fæ ekki betur séð en að i
„kvennastéttunum” sé sifellt
„Fóstrur eru fjölmenn-
asta stéttin í starfs-
mannafélagi Reykja-
víkurborgar en samt er
alveg undir hælinn lagt,
hvort nokkur fóstra er i
samninganefnd félags-
ins hverju sinni".
en launin
standa
í staö
verið að auka menntunar-
kröfurnar og er það vel. En það
vantar bara framhaldið. Launin
ættu að hækka um leið; en þau
standa i stað.
— Það er alveg ljóst að við
getum ekki sætt okkur viö þetta
öllu lengur. Fóstrur eru alltaf á
botninum, jafnvel þó að miðað
sé við kvennastörfin svokölluðu.
Það háir okkur lika mjög mikið
að Fóstrufélag Islands er ekki
stéttarfélag. Það er aðeins
hagsmunafélag. Við semjum
þvi ekki sjálfar um laun okkar,
en veröum að fljóta með öðrum
stórqm hópum, þegar samið er.
— Fóstrur eru fjölmennasta
stéttin i Starfsmannafélagi
Reykjavikurborgar, en samt er
alveg undir hælinn lagt, hvort
nokkur fóstra er i samninga-
nefnd félagsins hverju sinni. Og
laun fóstra á öllu landinu eru i
stórum dráttum miöuö við laun
fóstra i Reykjavik. A nokkrum
stöðum úti á landi hafa náðst
betri kjör, t.d. i Neskaupstað,
Grundarfiröi og á Hellu, þar eru
launin einum flokki hærri. Lika
á Selfossvog þar verður aldurs-
hækkun eftir 5 ára starf, þannig
að hæst komast fóstrur jiar i 12.
launaflokk.
— Hafa fóstrur i hyggju að
gera eitthvað róttækt i
málunum á næstunni?
— Fóstrur hér i Kópavogi
sögðu allar upp starfi sinu I nóv.
i fyrra vegna óánægju með
launin. Við gerum kröfur um
laun samkv. 12. flokki og hækk-
unar i 13. flokk eftir eitt ár og i
15. flokk eftir fjögurra ára starf.
FÓSTRUR
Byrjunarlaun:
10. fl. 1. þrep
kr. 305.578
Hámarkslaun:
10. fl. 3. þrep
kr. 344.7Í8
Eftir þó nokkur fundahöld
ákváðum við að biöa — upp-
sagnirnar eru enn i gildi — þar
til samið yrði næst. Það átti
reyndar að gerast i sumar, en
eins og menn vita hefur litiö
gerst i samningamálum opin-
berra starfsmanna þó að samn-
ingar hafi veriö lausir frá 1. júli.
— Við vildum lika fá greiðslu
fyrir nauösynlegan undirbúning
vegna daglegra starfa. Bæjar-
yfirvöld tóku þeirri málaleitan
okkar vel og viöurkenndu rétt
okkar til þessara greiðslna i
bréfi dags. 22. febr. i fyrravetur.
Að öðru leyti er mál okkar hér i
Kópavogi i biðstöðu.
— I sumar var aftur á móti
ráðist i viðamikið mat á öllum
störfum bæjarstarfsmanna.
Þessu starfsmati mun nú vera
lokið, en ég veit ekki ennþá,
hvernig fóstrum reiddi þar af.
Samninganefnd hefur aöeins
verið kynnt plaggið litillega, en
ég á von á að bráðlega verði
niðurstööur þess kynntar öllum
bæjarstarfsmönnum vel og
rækilega
— En þetta er ekki nóg,og hér
er aöeins um að ræða fóstrur i
einu bæjarfélagi. Eftir
samningana 1978 skipaöi fóstru-
félagið þriggja manna nefnd
sem skyidi gera tihögur um
markmið og leiðir i þeirri kjara-
baráttu sem þá var sýnt að
fóstrur yrðu að herða að mun.
Þessi nefnd starfaði vel og hefur
skilað áliti. Þar er höfuöáhersla
lögðá samstöðu fóstra og einnig
að þær kynni starf sitt og kjör
betur en gert hefur veriö.
— Oft hefur lika verið rætt
um það i félaginu að hafa i
samningagerð samflot með
kennurum. Störf beggja stétta
eru skyld og þvi væri samstarf
þeirra i milli ofur eðlilegt. Lika
hefur veriö talað um aö Fóstru-
skólinn yrði deild i Kennara-
háskólanum, en um það eru
ákaflega skiptar skoðanir, bæði
meðal kennara og fóstra.
Tilbúnar í slaginn
— Ertu þá nokkuð bjartsýn á
árangur?
— Ég geri mér alveg ljóst að
enginn árangur næst nema með
mjög harðri og vel skipulagöri
baráttu og fullkominni sam-
stöðu i stéttinni. Mér virðist sem
fóstrur séu einmitt núna að
sækja i sig veörið; viö höfum
sýnt linku alltof lengi og fyrir
bragöið er bara troðiö á okkur.
Það þýöir ekki lengur að gera
himinháar kröfur i hverjum
samningunum á fætur öörum og
fylgja þeim svo ekki eftir og
sætta sig svo viö smánarlaun.
Þegar fóstrur almennt skilja
þetta og eru tilbúnar i slaginn,
þá verö ég bjartsýn. —hs
Starf við áætlanagerð
Hjá Fjórðungssambandi Norðlendinga er
laus staða fulltrúa, sem vinni að áætlana-
gerð og almennum verkefnum á vegum
sambandsins. Starfið miðast við, að
umsækjandi hafi menntun á sviði háskóla-
stigs s.s. þekkingu á áætlanagerð,
tölfræðilegri úrvinnslu verkefna eða aðra
menntun og reynslu sem að gagni má
koma i starfinu. Æskilegt er að
umsækjandi hafi áhuga fyrir lands-
byggðarmálum og áætlanagerð og geti
unnið sjálfstætt að verkefnum.
Upplýsingar um starfið gefur
framkvæmdastjóri sambandsins Askell
Einarsson, simi 96-21614, Akureyri.
Umsóknir skulu vera skriflegar, ásamt
upplýsingum um störf umsækjanda,
menntun, ásamt meðmælum ef fyrir eru,
og ennfremur með upplýsingum hvenær
umsækjandi gæti hafið störf. Umsóknar-
frestur er til lO.janúar 1980.
Fjórðungssamband Norðlendinga
Glerárgötu 24, Akureyri.
IJ! Auglýsing
Auglýst er eftir umsóknum um stöðu
húsvarðar i Skúlatúni 2 (skrifstofur
borgarverkfræðings).
Umsóknarfrestur er til og með 15. des.
n.k. og skal umsóknum skilað fyrir þann
tima til skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2. Umsækjandi skal
tilgreina i umsókn nafn, heimilisfang,
aldur, menntun og fyrri störf. Laun skv.
kjarasamningi St.Rv.
■ ■* Fúlagsmalaslofnun Reykjavikurborgar
1| j Vonarstræti 4 simi 25500
Félagsráðgjafi eða
starfsmaður
MEÐ SAMBÆRILEGA menntun óskast i
fulltrúastöðu i Breiðholtsútibúi, Asparfelli
12.
Umsóknarfrestur til 31. des. n.k. Upplýs-
ingar veita deildarfulltrúar i sima 74544.
Duglegur,
lagtækur
maður óskast til að annast viðhald og
eftirlit á húseignum félagsins.
Laun samkvæmt kjarasamningi B.S.R.B.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
félagsins Laugavegi 11, simi 15941.
Styrktarfélag vangefinna.
Auglýsingasími
er 81333
DiomnuiNN