Þjóðviljinn - 09.12.1979, Page 25
Sunnudagur 9. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 25
Jón Sigurðsson
Framhald af bls. 6
félagi einu i Worms. Þetta félag
„hefur tekiö aö sér aö safna fé af
sjálfviljugum gjöfum til aö reisa
af stórgeröa myndastyttu úr eiri
trúbótarmanninum dr. Martin
Lúther á þeim staö, er hann meö
hinni hetjulegu trúarjátningu
sinni 18. dag aprflmánaöar 1521
frammi fyrir keisaranum og
höföingjum rikisins hefur lagt
eins og hyrningarsteininn aö okk-
ur evangeliskum kirkjum á
jaröriki”. Og eins og nærri má
geta eru íslendingar hvattir til aö
gefa til styttu þessarar af sinu
trúaöa hjarta.
Fróölegur samanburöur: Ann-
arsvegar áskorun um aö reisa
stórgeröa styttu af Lúther,
hlaupa undir bagga meö
hertoganum i Hessen á Þýska-
landi. A hinn bóginn: áskorun
Reykhólamanna um aö styrkja
Jón Sigurösson svo hann þurfi
ekki aö hætta pólitiskri baráttu
sinni.
Út á boösbréf Reykhólamanna
— sem allur landslýöur gat séö á
prenti — söfnuöust 47 rikisdalir.
En hinsvegar brugöust menn af
mikilli röggsemi viö hjálpar-
beiöni stórhertogans og söfnuöu
handa honum I styttuna fjórtán
hundruö og áttatíu rikisdölum!
Og á árinu 1855, þegar fulltrúar á
Þingvallarfundi lofa aö safna i
heiöursgjöf handa Jóni Sigurös-
syni og veröur ekkert ágengt — á
þvi sama ári er safnaö sex
hundruö rikisdölum rúmum I einu
einasta prófastsdæmi til aö
kristna Kinverja.
Nóg kaffl
og brennivín
Þessi saga af viöskiptum
íslendinga viö þann mann sem
þeir hafa mest lofaö er meira en
dapurleg. Enn ömurlegri veröur
hún, þegar viö getum lesiö um
þaö, aö um þaö leyti sem íslend-
ingar sjálfir sýna Jóni
Sigurössyni slika fyrirlitningu i
verki, vinna ágætir menn danskir
aö þvi aö hjálpa honum. Þeir
byrja þá á aö veita honum fastan
styrk til visindastarfa, sem hélst
óbreyttur I tvo áratugi, úr Arna-
sjóöi fékk hann einnig álika laun
og auk þess verulegar tekjur fyrir
ýmisleg önnur störf, einkum aö
útgáfum.
Þaö er ekki nema von aö Jón
Guömundsson ritstjóri léti þá
skoöun uppi i bréfi til nafna sins
og foringja þegar þessi mál voru
á döfinni, aö best væri fyrir sig aö
hætta þessu „gutli” og gerast
búöarloka „þvi aö landar hafa
yfir höfuö miklu meiri mætur á
þeim sem rýja þá og snuöa en á
hinum sem vilja styöja þá”. Hann
segir ennfremur aö þaö sé ekki
húsbysgjendur
ylurinner
" góóur
AfgreiAum einangrunarplast a
Stór-Reykjavikursvsðið fra
manudegi — fostudags.
Afhendum voruna a byggingarstað.
viðskiptamonnum að kostnaðar
lausu Hagkvsmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hsfi.
ot MlffMni, vi n»
, Er
sjonvarpió
bilaö?
Skjárinn
Spnvarpsverbtói
Bengstaðasírati 38
simi
2-19-4C
hægt aö reiöa sig á landsmenn til
áreiöanlegs stuönings, nema þá
einstöku menn og „helst þá sem
einskis mega sér” — miklu heldur
séu þeir reiöubúnir aö taka viö
boöskap sem þessum „Gef friö
um vora daga, góöa prisa og nóg
brennivin og kaffi”. (Þetta ku
heita „lifskjaragræögi” nú á dög-
um).
Fyrr og nú
Semsagt: tslendingar hafa
stórlega fegraö „ástir” forfeöra
sinna á Jóni Siguörssyni. En til
hvers er veriö aö rifja þaö upp?
Til aö sýna fram á aö þaö sé land-
lægt aö hugsjónir og reisn i
baráttu, fórnfýsi og samstaöa
viki fyrir lágkúru, úrtölum og
heimsku?
Jafnvel þótt margt renni
stoöum undir slikan skilning var
þetta ekki ætlunin. Ollu heldur
gengur okkur þaö til, aö öll sjálfs-
fegrun þjóöa og stétta, öll
helgisagnasmiö er I meira lagi
hæpin. Þaö er óþarft aö okkar
tima fólk láti hugfallast i sinni
viöleitni, sinni hugsjónamennsku,
vegna þess aö þaö trúi þvi aö
íslensk þjóö hafi veriö miklu
rismeiri fyrir hundraö árum eöa
meir og fari heimur mjög versn-
andi. t annan staö minnir þessi
saga um forfeöur okkar og Jón
Sigurösson I nauöum okkur á, aö
einnig sú volaöa kynslóö sem
brást ágætum leiötoga sinum um
miöja siöustu öld, einnig hún átti
sér uppreisnar von, sóknar og
merkra framfara. AB.
Unglingaþáttur
Framhald af 12 siöu
viö þurfum hins vegar aö greiöa
Æskulýösráöi okurleigu, 233
þúsund krónur á kvöldiö, auk
söluskatts, STEF-gjalda o.fl. og
ef einhver halli veröur þá veröum
viö aö borga úr eigin vasa. Hing-
aö til hefur aögangseyrir veriö kr.
1000 fyrir meölimi klúbbsins sem
erurúml. 70talsins, og 1500—2000
krónur fyrir aöra. Okkur hefur
tekist aö halda okkur á mörkun-
um, þar til núna aö sjóöurinn er
kominn i 3000 kr minus. Samt er
öll vinna unnin i sjálfboöa-
mennsku. Þaö er óskiljanlegt
hvers vegna ráöamenn reyna
ekki aö aöstoöa meö einhverjum
hætti, nú þegar unglingar hafa
sýnt þaö svart á hvitu aö þeir
vilja leggja ýmislegt á sig til aö
bæta ástandiö. Þaö er margt sem
bendir til þess að þessi félags-
skapur okkar sé ýmsum mikils
viröi er nálægt honum hafa kom-
iö. Til dæmis hafa nokkrir krakk-
ar sem ég hef kynnst i starfi minu
á Unglingaheimili rikisins tekiö
þátt i starfsemi klúbbsins og
fengiö heilmikið útúr þvi. Þeir
hafa fengiö þarna tækifæri til aö
mynda vináttutengsl viö jafn-
aldra sina á samstarfsgrundvelli,
og þaö er þeim mikilvægt.
Saltvík/ skíðaferð o.fl.
Ég vil geta þess aö i nóvember
s.l. fór Unglingaklúbburinn i
helgarferö i Saltvik, i þeirri ferö
voru u.þ.b. 60 þátttakendur og
hún lukkaöist mjög vel. Viö
höfum á stefnuskránni aö bregöa
okkur i skiöaferö á næstunni og
ýmislegt annaö er fyrirhugaö. 15.
desember næstkomandi veröur
siöasta ball ársins á vegum
Unglingaklúbbsins haldiö, von-
andi veröa þau fleiri i
framtlöinni, — þaö er ekki hægt
aö gefast upp þegar allt er fariö
aö ganga svona vel. 1 hugmynda-
bankanum okkar eru ótal góöar
hugmyndir, sem okkur langar til
aö vinna úr á næstunni. Markmiö
þessa klúbbs er fyrst og fremst aö
ýta undir hugmyndir krakkanna
sjálfra. 1 byrjun voru margir
feimnir, en þaö er að mestu fyrir
hf
Verslanir okkar og skrifstofur
verða lokaðar á morgun, mánudag frá
kl. 12.30-15.00, vegna jarðarfarar.
KAUPFELAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
Hið íslenska bókmenntafélag
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn laugardaginn 15. des.
1979 kl. 14.00 að Hótel Borg (Gyllta salnum).
Dagskrá:
1. venjuleg aðalf undarstörf sbr. 18—21. gr.
félagslaga.
2. Minnst 100. ártiðar Jóns Sigurðssonar
3. Sveinn Einarsson, Þjóðleikhússtjóri flytur
erindi: Um leikstjórn.
Stjórn og fulltrúarráð.
Framhald af bls. 7
held ég aö skili sér I sýningunni,
og þá er ekki unnið til einskis.
Verkef navaliö hjá Litla
leikfélaginu hefur aö minu viti
veriö til fyrirmyndar. Þaö er gott
til þess aö vita, aö farsadraslið er
á undanhaldi og áhugafélögin
farin aö velja sér veröugri
verkefni. Þaö hlýtur aö auka gildi
þeirrar vinnu, sem innt er af
hendi og veröa til þess, aö
einhverjusé fórnandi þann tima,
sem verkiö er i undirbúningi.
Viö breytum ekki miklu frá
þeim texta sem fluttur var I Iönó
á sinum tima. En ég held aö þaö
sé óhætt aö segja, aö töluveröu sé
breytt i' uppsetningunni sjálfri,
enda ekki hægt til dæmis bara
hússinshérna vegna, aö fara eftir
sýningunni þar. Enda væri þaö,
held ég, afskaplega ófrjótt og litið
spennandi aö þora ekki aö fara
aðrar leiöir I leikhúsi en þær sem
þegar hafa veriö ruddar”.
Nú rauk Jakob á fætur, enda
leikararnir viöbúnir aö fara yfir
sýninguna og leggja á minniö
lokaúrbætur fyrir general-
prufuna. Frumáýningarskjálftinn
en svo. Og vist er að Þiö muniö
hann Jörund i uppsetningu Litla
leikfélagsins i Garðinum, veröur
hin besta skemmtun.
Vi
r
Maöurinn minn, faöir okkar og tengdafaöir
Friðrik Gislason
fyrrverandi kirkjuvöröur,
veröur jarösunginn frá Laugarneskirkju mánudaginn 10.
des. kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afbeöin, en þeim sem vildu minnast hins
látna er bent á Laugarneskirkju.
Sigriöur Ásmundsdóttir
Bjartey Friöriksdóttir
Jóhanna Friöriksdóttir
Pálmi Friöriksson
Börn og barnabörn
Þorsteinn Guönason
Slguröur Sigurösson
Anny Astráösdóttir
Útför
Jóhanns Bjarna Kristjánssonar
Hraunbæ 86
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. desember kl.
13.30.
Olga Þórhallsdóttir
Ólöf Marfa Jóhannsdóttir
Þórhallur Dan Jóhannsson
Salbjörg Magnúsdóttir
Kristján Andrésson
höfundar eiga efni i bókinni
Magnús Pálsson
Ólína Jónasdóttir
Sigurður Breiðfjörð
Sveinn Björnsson
Sveinn Gunnarsson
Tryggvi Gunnarsson
Þorsteinn Jónsson
Þórbergur Þórðarson
Eftirtaldir tuttugu og sex
Anna Thorlacius
Ágúst Vigfússon
Árni Óla
Bernharð Stefánsson
Bjartmar Guðmundsson
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Elinborg Lárusdóttir
Gísli Jónsson
Guðmundur Björnson
Guðmundur Jónsson
Guðný Jónsdóttir
Guðný Jónsdóttir Borgfjörð
Hermann Jónasson, Þingeyrum
Indriði Eiharsson
Ingólfur Gíslason
Jón Steingrímsson
Jónas Sveinsson
Magnús Á. Árnason
SAFN ENDURMINNINGA
MANASILFUR
GILS GUÐMUNDSSON VALDI
Hér er að finna fjölbreytilegt sýnishorn minninga eftir fólk úr
öllum stéttum, konur og karla, allt frá séra Jóni Steingrímssyni til
núlifandi manna. Hér eru öðru fremur valdar frásagnir„þar sem lýst
er með eftirminnilegum hætti sálar- og tilfinningalifi sögumanns-
ins sjálfs eða hvernig hann skynjar tiltekin fyrirbæri tilverunnar, sé
hann þess umkominn að veita lesandanum hlutdeild I Kfsreynslu
sinni,“ segir Gils Guðmundsson I formála.
MÁNASILFUR — skuggsjá islensks mannlifs.
Bræóraborgarstíg 16 Sími 12925-19156