Þjóðviljinn - 04.10.1980, Blaðsíða 30
30 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4. — 5. október 1980.
Sjónvarp
laugardagur
Jón Vœni
ogfélagar
Sjónvarp
sunnudagur
Barnahornið
Við upptöku á „Leysingu”. Gunnar M. Magnúss er fyrir miðju á
myndinni, en með honum eru leikstjóri, leikarar og tæknimenn.
Ljósm.: —eik.
Nýtt framhaldsleikrit
„LEYSING
Útvarp
sunnudagur
Á morgun, sunnudag, kl. 16.00
hefst i útvarpinu flutningur á fs-
lensku framhaldsleikriti i 6
þáttum.
Það er „Leysing”, byggt á
samnefndri sögu Jóns Trausta,
en Gunnar M. Magnúss hefur
skrifaö útvarpshandritið. Leik-
stióri er Benedikt Arnason, en
meö stór hlutverk fara ma. Ró-
bert Arnfinnsson, Rúrik
Haraldsson, Baldvin Halldórs-
son, Steindór Hjörleifsson og
Klemenz Jónsson. Flutningur
hvers þáttar fyrir sig tekur um
þrjá stundarfjórðunga.
Leikurinn gerist í kauptúninu
Vogabúðum á árunum 1890 til
1910. Þorgeir ólafsson er versl-
unarstjóri hinnar dönsku
Jespersensverslunar. En nýr
timi er að ganga í garö og hefur
óhjákvæmilega áhrif á stöðu
Þorgeirs i samfélaginu.
11. þættinum, „Milli kauptið-
anna” segir frá bræöraverslun
þeirra Friðriks og Sveinbjörns,
sem gengur með mestu prýði,
en allt er að grotna niður hjá
Þorgeiri. M.a. eru bræðurnir
búnir að koma upp stóru
geymsluhúsi, sem Þorgeir litur
öfundaraugum. Einn af starfs-
mönnum þar er Einar i Bælinu,
og hann er ekki eins orðvar og
skyldi þegar mest á riður.
Jón Trausti, eða Guðmundur
Magnússon eins og hann hét
réttu nafni, fæddist að Rifi á
Melrakkasléttu árið 1873 og dó i
Reykjavik 1918. Hann stundaði
nám i prentiðn á Seyöisfiröi um
tima, en dvaldi i Kaupmanna-
höfn 1896—98 og kynnti sér leik-
sviðsbúnað. „Halla” (1906) og
„Heiðarbýlið” (1908—11) eru
sennilega þekktustu bækur
hans, en hann samdi margt ann-
arra verka af ýmsu tagi, bæði i
bundnu og óbundu máli.
GunnarM. Magnússer fæddur
á Flateyri i önundarfirði 1898.
Tók kennarapróf 1927 og stund-
aði framhaldsnám við Kennara-
háskólann i Kaupmannahöfn.
Fyrsta bók hans var smásagna-
safn, en siðar komu unglinga-
bækur, sem urðu mjög vinsælar,
t.d. „Suður heiðar”. Frásagnir
og þjóðlegur fróðleikur ýmiss
konar hefur verið meginuppi-
staða verka hans siðasta aldar-
fjórðung. Hann hefur skrifað
allmörg leikrit, þ.á.m. þrjú
framhaldsleikrit fyrir útvarp.
Löður kemur aftur
Sjónvarp
laugardagur
Eflaust veröa margir fegnir að
setjast við kassann i kvöld og
endurnýja gömul kynni af þeim
dæmalausu vandamálafjöl-
skyldum sem við sögu koma i
Löðri,gamanþáttunum vinsælu.
Tekinn er upp þráðurinn þar
sem frá var horfið, en hver man
lengur hvernig komið var fyrir
fjölskyldumeðlimunum þá?
Skyldi afi gamli ennþá vera i
striöi? Skyldi sonurinn ennþá
vera á flótta undan mafiunni?
Og hinn sonurinn — skyldi hann
vera búinn að láta framkvæma
aðgeröina, þið vitið? Og hvernig
var með framhjáhaldið?
Það fáið þið að vita i næsta
Lööurþætti, sem sjónvarpaö
verður 1 kvöld kl. 20.35! -íh
Nasreddin
og ketillinn
Nasreddin var aldrei rikur af húsgögnum og varð þvi oft að fá þau
lánuð hjá nábúa sinum. En ekki var mönnum ætið vel við að lána
honum, þvi það orð lék á að honum hætti til að gleyma að skila aftur.
Væri hann krafinn hafði hann ætiö einhver undanbrögð.
Einu sinni hafði hann fengið stóran eirketil að láni hjá einum
nágranna sinna. Bjóst maðurinn ekki meira en svo við að sjá ketil-
inn nokkurn tima aftur. En tveimur dögum siðar kemur Nasreddin
og skilar katlinum, og er þá niðri i honum ofurlitil kastarhola ný.
— Hvernig stendur á þessari kastarholu þarna? — spurði eigand-
inn um leið og hann tók við katlinum.
— Hún er þin eign, — svaraði Nasreddin. — Ketillinn eignaðist
afkvæmi I nótt og þú veist að afkvæmi fylgja mæðrum sinum. Gekk
hann svo heim aftur, en nágranni hans lét sér nægja skýringuna og
hélt kastarholunni.
Nokkru seinna kom Nasreddin aftur og bað um ketilinn til láns.l
það sinn lánaði eigandinn hann óhræddur. En nú leið langur timi og
ekki skilaöi Nasreddin katlinum. Eigandinn gekk þá heim til hans
og ætlaði að sækja ketil sinn. Nasreddin tók hátiðlega á móti honum
enmeö sorgarsvipog mælti: — Kæri vinur ketillinn þinn er dauður!
— Flón geturðu verið, — sagði maðurinn. — Katlar deyja ekki.
— Á, er það svo? En hvernig gastu þá trúaö þvi að hann hefði átt
afkvæmi, fifiið þitt? Ef ketillinn getur átt afkvæmi, þá getur hann
auðvitað lika dáið!
Þetta varö maðurinn að láta sér nægja,og ketil sinn sá hann aldrei
framar.
L a u g a r d a g s m y n d i n í
sjónvarpinu er að þessu sinni
gamall vestri með Jóni Væna,
Dean Martin og Ricky Neison:
Rio Bravo. Leikstjóri er How-
ard Hawks.
Hér er á feröinni einn af
þessum sigildu vestrum um
átök heif arlegu löggunnar við
bófa sem eiga mikiö undir sér.
Howard Hawks er i hópi af-
kastamestu vestrahöfunda, en
hann fékkst einnig við gerö
gamanmynda á borð við Bring-
ing Up Baby og Gentlemen
Prefer Blondies.Frægar saka-
málamyndir gerði hann einnig:
Scarface og The Big Sleep, svo
dæmi séu nefnd. Pottþéttur at-
vinnumaöur I sinu fagi. —*h-
Bryndís Schram mun stjórna
Stundinni okkar áfram i vetur.
Stundin
okkar
Mörg gamalkunnug andlit
verða I Stundinni okkar, sem
hefur göngu sina á morgun, að
afloknu sumarfrii. Bryndis
Schram verður áfram með
stundina i vetur. Þd koma Blá-
mann, fillinn skemmtilegi,
Barbapabbi og fjölskylda hans,
og einnig fáum viö að sjá
spænsku trúðana Els Comed-
iants troða upp á Lækjartorgi.
Annað efni i þættinum að
þessu sinni er m.a. heimsókn i
skóla. Þar verður rætt viö sjö
árabörn og fylgstmeð kennslu.
Einnig verður sagt frá hungr-
uðubörnunum i Afriku, þar sem
þurrkar og önnur óáran hafa
valdið mikilli hungursneyö að
undanförnu. —ih
útvarp
laugardagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn.7.25 Tónleikar. Þul-
ur velur og kynnir.
8.00 Fréttir. Tónleikar.
8.15 Veöurfregnir. Forustu-
gr. dagbl. (útdr.) Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 óskalög sjúklinga:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10.
Veöurfregnir).
11.20 Barnatimi Stjómandi:
Sigríöur Eyþórsdóttir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tiikynningar. Tón-
leikar.
14.00 1 vikulokin Umsjónar-
menn: Guömundur Arni
Stefánsson, Guöjón Friö-
riksson, óskar Magmlsson
og Þórunn Gestsdóttir.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Hringekjan Blandaöur
þáttur fyrir börn á öllum
aldri. Stjórnendur: Edda
Björgvinsdóttir og Helga
Thorberg.
16.50 Sfödegistónleikar
17.50 Saga uppreisnarmanns
Höfundurinn, Steingrfmur
Sigurösson listmálari, les
blöö ilr lífsbók Krúsa á
Svartagildi. (Aöur útv. 11.
sept. I fyrra).
18.25 Söngvar I léttum ddr.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 ..Heimur i hnotskurn”
saga eftir Giovanni
Guareschi Andrés Björns-
son islenskaöi. Gunnar
Eyjólfsson leikari les (2).
20.00 Harmonikuþáttur Högni
Jónsson kynnir.
20.30 GuÖmundur Danielsson
rithöfundur sjötugura. Dr.
Eysteinn Sigurösson spjall-
ar um höfundinn og nokkur
verk hans. b. Valgeröur Dan
leikkona les kafla úr skáld-
sögunni „Sonur minn, Sin-
fjötli”. c. Hjörtur Pálsson
dagskrárstjóri les smásög-
una „Vigslu”.
21.30 Hlöðuball Jónatan
Garöarsson kynnir ame-
ríska kiireka- og sveita-
söngva.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Sætbeiska
sjöunda áriö”
sunnudagur
8.00 Morgunandakt. Séra
Pétur Sigurgeirsson vlgslu-
biskup flytur ritningarorö
og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir. Forustu-
greinar dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Fíl-
harmoníusveitin I Vín leik-
ur*. Willi Boskovsky stj.
9.00 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir. Tónleikar. 10.10
Veöurfregnir.
10.25 Erindaflokkur um
veöurfræöi: — þriöja erindi.
Hlynur Sigtryggsson veöur-
stofustjóri talar um alþjóö-
lega veöurþjónustu.
10.50 „Sjá. morgunstjarnan
blikar bliö”. Hugleiöingar
fyrir orgel dftir Dietrich
Buxtehude. Hans Heintze
leikur á Schnitgerorgeliö i
Steinkirchen.
11.00 Messa í Háteigskirkju.
Prestur: Séra Tómas
Sveinsson. Organleikari:
Dr. Orthulf Prunner.
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.25 Spaugaöi ísrael.Róbert
Arnfinnsson leikari les
klmnisögur eftir Efraim
Kishon I þýöingu Ingibjarg-
ar Bergþórsdóttur (17).
13.55 Miödegistönleikar: Frá
vorhátiöinni I Prag I fyrra.
15.15 Staldraö viö á Hellu.
Jónas Jónasson geröi þar
nokkra dagskrárþætti i júni
I sumar. í fyrsta þættinum
talar hann viö Pál G.
Björnsson oddvita, Hálfdán
Guömundsson skattstjóra
og Sólveigu Guöjónsdóttur
veítingakonu.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 „Leysing”, framhalds-
leikrit I 6 þáttum. Gunnar
M. Magnúss færöi i leikbún-
ing eftir samnefndri sögu
Jóns Trausta. Leikstjóri:
Benedikt Arnason. 1. þátt-
ur: Milli kauptiöanna. Per-
sónur og leikendur: Þor-
geir/ Róbert Arnfinnsson,
Einar i Bælinu/ Arni
Tryggvason, Siguröur
hreppstjóri/ Klemenz Jóns-
son, F'riörik kaupmaöur/
Þórhallur SigurÖsson,
Sveinbjörn kaupmaöur/
Hjalti Rögnvaldsson. Aörir
leikendur: Aöalsteinn Berg-
dal.GuÖjón Ingi Sigurösson,
Jón Júlfusson og Július
Brjánsson.
17.10 Lög úr kvikmyndum.
17.20 Lagiö mitt.
18.20 Harmonikulög.
Tollefsen leikur.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Um samskipti austurs
og vesturs.Rætt viö George
S. West aöstoöarutanrlkis-
ráöherra Bandarikjanna.
Umsjón: Páll Heiöar Jóns-
son.
20.10 Hljómsveitartónleikar.
20.40 Séö meö gestsaugum.
Guömundur Egilsson flytur
feröaþátt frá Spáni; — fyrri
hluta.
21.10 Einu sinni var. Lög úr
ævintýrasöngleik eftir
Lange-Möller.
21.40 Ljóö eftir Stein Steinarr.
Höskuldur Skagfjörö leikari
les.
21.45 Sylvia Sass syngur ariur
úr óperurn efur Puccini.
Sin fónluhl jómsveitin I
Lundúnum leikur
Lamberto Gardelli stj.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Sæt-
beiska sjöunda áriö” eftir
Heinz G. Konsalik. Bergur
Björnsson þýddi. Halla
GuÖmundsdóttir les (15).
23.00 Syrpa. Þáttur i helgar-
lok i samantekt óla H.
Þóröarsonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
mánudagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn. Séra Tómas
Sveinsson flytur.
7.25 Morgunpósturinn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir. For-
ustugr. landsmálabl.
(útdr.). Dagskrá, Tónleik-
ar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
9.20 Leikíimi. 9.30. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaöarmál.
10.00 Fréttir.
10.25 íslenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
11.00 Morguntónleikar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Mánudagssyrpa.
Astvaldsson og Páll Þor-
steinsson.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar.
17.20 Sagan „Paradis” eftir
Bo Carpelan. Gunnar
Stefánsson byrjar lestur
þýöingar sinnar.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
20.40 Lög unga fólksins.
21.45 Utvarpssagan.
22.35 Kvöldsagan.
23.00 Frá afmælistónleikum
Sinfóniuhljómsveitar ts-
lands i Háskólabiói 8. mars
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
laugardagur
16.30 tþróttir.Umsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
18.20 Ég verö aö sigra.Finnsk
mynd um Jarí, sextán ára
pilt, sem hefur æft sklöa-
stökk frá blautu barnsbeini
og stefnir aö því aö komast I
fremstu röö skíöastökkv-
ara. Þýöandi Kristín Mán-
tylá. (Nordvision — Finnska
sjónvarpiö)
18.55 Enska knattspyrnan
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Löður.Hér hefst aö nýju
bandarlski gamanmynda-
flokkurinn, þar sem frá var
horfiö I vor. Þýöandi Ellert
Sigurbjörnsson.
21.00 Fjölin. Breskur gaman-
þátturgeröur af Eric Sykes.
Hér segir frá tveimur
mönnum, sem sendir eru
bæjarleiö eftir gólfboröi.
21.30 Rio Bravo. Bandarlskur
vestri frá árinu 1959.
Þýöandi Kristmann Eiös-
son.
23.45 Dagskrárlok
sunnudagur
18.00 Sunnudagshugvekja.
Séra Pálmi Matthlasson,
sóknarprestur I MelstaÖar-
prestakalli, flytur hug-
vekju.
18.10 Stundin okkar.
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
Kynning á helstu dagskrár-
liöum Sjónvarpsins. Um-
sjónarmaöur Magnús
Bjarnfreösson.
20.45 Gosiö og uppbyggingin f
Vestmannaeyjum. lslensk
heimildakvikmynd um eld-
gosiö 1 Heimaey áriö 1973,
eyöilegginguna, baráttu
manna viö hraunflóöiö og
endurreisn staöarins.
Myndina tók Heiöar Mar-
teinsson, sem sjálfur er bú-
settur f Vestmannaeyjum.
Jón Hermannsson annaöist
vinnslu. Magnús Bjarn-
21.15 Dýrin mln stór og smá
Níundi þáttur: Læknirinn
leikur sér. Þýöandi Óskar
Ingimarsson.
22.05 Niunda sinfónia Beet-
hovens. Sinfóníuhljómsveit
Vlnarborgar og kór Tón-
listarfélags Vinarborgar
flytja Sinfónlu nr . 9 I d-moll
op. 125 eftir Ludvig van
Beethoven. Stjórnandi Karl
Boehm. Einsöngvarar Pilar
Lorengar, Hanna Schwarz,
Horst Laubenthal og Peter
Wimberger. (Evróvisjón —
Austurríska sjónvarpiö)
23.30 Dagskrárlok
mánudagur
20.00 Fréttir og veÖur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Tommi og Jenni
20.40 tþróttir
Umsjónarmaöur Jón B.
Stefánsson.
21.10 Finnarnir eru komnir
DDT-dixielandhljómsveitin
frá Finnlandi leikur I sjón-
varpssal. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
21.40 Veröld Alberts Ein-
steins.Afstæöiskenningin er
eitt af glæsilegustu visinda-
afrekum tuttugustu aldar,
en hefur löngum þótt heldur
torskilin. BBC minntist 100
ára afmælis höfundar henn-
ar I fyrra með þessari kvik-
mynd, en þar leitast nokkrir
heimskunnir eölisfræöingar
viö aö útskýra afstæöis-
kenninguna fyrir Peter
Ustinov og öörum leikmönn-
um. ÞýÖandi Borgi Amar
Finnbogason. Þorsteinn Vil-
hjálmsson eölisfræöingur
flytur formálsorö.
23.40 Dagskrárlok.