Þjóðviljinn - 14.03.1981, Side 7
Helgin 14.-15. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Skólamálafundur AB í Kópavogi
Á að nýta
gamalt eða
byggja nýtt?
1 dag kl. 13.30 heldur Alþýðu-
bandalagið i Kópavogi almennan
fund um þau verkefni sem Kópa-
vogsbúar standa nú frammi fyrir
i sambandi við skólamál sin. Það
er orðið brvnt að huga að fram-
tfðarlausn á húsnæðismálum
skólanna i bænum. Nú er málum
þannig háttað að framhaldsskól-
inn er til húsa i Vighólaskóla og
Kópavogsskóla, i Kópavogsskóia
fer einnig fram kennsla fyrstu 6
bekkja grunnskólans. Þar er
Menntaskólinn einnig með að-
stöðu sina og er þar þröngt á
þingi. 1 Vighólaskóla fer fram
kennsla 7., 8. og !». bekkjar grunn-
skóians fyrir Austurbæ Kópavogs
nema Snælandshverfi. Skoðanir
eru nokkuð skiptar um hvernig
standa beri að lausn húsnæðis-
mála en istórum dráttum stendur
málið um hvort nýta skuli fyrir-
liggjandi skólahúsnæði bæjarins
undir framhaidsskólann og hraða
eftir megni byggingu grunnskóla
eða hvort byggja skuli nýjan
framhaldsskóla fyrir Kópavog.
Fimm menn á vegum Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi, þeir Jón
Thor Haraldssoh, Þórir Hall-
grimsson, Árni Stefánsson,
Ólafur Jens Pétursson og Gisli Ól.
Pétursson, hafa samið skýrslu
um þær leiðir sem til greina þykja
koma varðandi húsnæðismál
framhaldsskólans sem umræðu-
grundvöll við umfjöllun málsins
og skal nú rakið að nokkru efni
hennar.
Vighólaskóli verði fram-
haldsskóli — heild-
stæður grunnskóli
Framhaldsskólanefnd Kópa'-
vogs gerði það að tillögu sinni i
desember 1979 að framtiðarlausn
á hiísnæðisvandræöum fram-
haldsskólans yrði sú að gera Vig-
hólaskóla að framhaldsskóla og
setti fram áætlun þar sem gert
var ráð fyrir þvi að skólaárið
1987—88 yrði öll framhaldsskóla-
kennsla i Kópavogi komin þangað
eftir að hafa verið i Þinghólsskóla
i millitfðinni og að þá yrði lokið
byggingu grunnskóla fyrir bæinn.
Fimmmenningarnir benda á
ýmsa ókosti sem þessi lausn hefði
i för með sér. 1 Kársnesskóla yrði
mjög þröngt setinn bekkurinn
meðan á framkvæmdum stæði,
þar eð Þinghólsskóli yrði tima-
bundið upptekinn af framhalds-
skólanum. Kársnesskóli yrði t.d.
ófær um að tryggja nemendum
sinum lögboðna sérkennslu
meðan framhaldsskólinn væri til
húsa i Þinghólsskóla. Þá er bent á
i skýrslunni að i rauninni yrði að
stöðva byggingu ibúðarhúsnæðis
á skólasvæöi Kársnesskóla til að
nemendafjöldinn stæði nokkurn
veginn i stað.
Þessi tíllaga framhaldsskóla-
nefndar gerir ráð fyrir þvi að
grunnskólinn i Kópavogi verði
heildstæður, þ.e. allir 9 bekkir
grunnskólans yrðu undir sama
þaki. Það er talinn einn af kostum
þessarar tillögu framhaldsskóla-
nefndarinnar að hún auðveldar
Kópavogsskóla að veröa heild-
stæður þar eð húsnæði hans rým-
ist.
Tillaga ólafs Jens —
byggt við grunnskólann
Ólafur Jens Pétursson, einn af
hinum fimm nefndarmönnum og
kennari viö Menntaskólann i
Kópavogi, hefur gert tillögu sem
gengur i lika átt og sú sem áður
var lýst. Hún gerir ráð fyrir að
hafist verði handa við að byggja
við grunnskólann meö það fyrir
augum að þegar árið 1985 veröi
framhaldsskólinn fluttur i Vig-
hólaskóla nema e.t.v. starfi ein-
hver útibú hans i Þinghóls-
skóla. 1 skýrslunni er bent á að
þetta hafi þann kost i för með sér
að húsnæðisvandi framhaldsskól-
ans leysist á aðeins fimm árum i
megindráttum. Gallinn er sá
segirf skýrslunni að fram til árs-
ins 1984 yrði framhaldsskólastigið
til húsa á þrem stöðum og hefði
það i för með sér mikil óþægindi
fyrir kennara sem yrðu að leggja
á sig mikil ferðalög milli skóla.
Byggingarkostur
Að lokum skal hér gerð grein
fyrir sér áliti Arna Stefánssonar,
eins af höfundum skýrslunnar
umtöluðu, en hann er eindregið
þeirrar skoðunar að byggja eigi
nýjan framhaldsskóla fyrir
Kópavog. Arni segir að öllum
megi ljóst vera að þörf verði i
framtiðinni fyrir allt núverandi
skölahúsnæði bæjarins fyrir
grunnskólann ef fullnægja eigi
þeim kröfum sem skólamenn séu
almennt sammála um, þ.e. skóli
skuli vera einsetinn og hafa eðli-
lega vaxtarmöguleika i tfmans
rás. Bendir hann t.d. á að fyrir
fáum árum hafi naumast verið
hægt að tala um skólabókasöfn i
Kópavogi, aðeins nokkrar hand-
bækur kennara og örfáa titla ætl-
aða nemendum. Nú séu starfrækt
þar skólabókasöfn samkvæmt
fyrirmælum grunnskólalaga.
Búast megi við að auknar kröfur
kalli á aukið rými á næstu árum.
Arni telur jafnframt að ljóst sé
að ekkert af þeim skólahúsum
sem nú eru til staðar i Kópavogi
fullnægi þeim kröfum sem gera
verði til framhaldsskólahús-
næðis. Slikt húsnæði yrði að hafa
mjög rýmilega lóð svo að vaxtar-
möguleikar verði fyrir hendi,
jafnvel umfram þær þarfir sem
sýnilegareru i dag. Telur Arni að
finna þurfi nýjan stað undir fram-
haldsskólann helst i Austurbæ,
Framhald á bls. 26.
Átt þú eftir aö svara?
Á síöastliönu ári sendum
viö eyöublöö undir
æviskrár til fjölda karla
og kvenna, sem enn
hafa ekki endursent okkur umbeönar
upplýsingar. Vegna útgáfu
ritsins er áríöandi aö svör
berist sem fyrst. Liggur þetta
eyöublaö enn óútfyllt á skrif-
boröinu þínu? Átt þú eftir aö
senda okkur æviskrána þína?
SKUGGSJA
BÓKABÚÐ OUVERS STEINS SF
Tónleikar
Lúðrasveit
Verkalýðsins
heldur sína árlegu tónleika
í dag, laugardag, 14. mars
kl. 14.00 í Háskólabíói.
Stjórnandi er
ELLERT KARLSSON
Kynnir
JON MÚLI ÁRNASON
Hörku góð lúðrasveitartónlist við allra hæfi
AÐGANGUR ÓKEYPIS
to>.
tóril
tónl
tónl
tónl
tón.l
tónl
tónl
tónl
tón 1
tónl
tón 1
tón 1
t.ónl
tón I
t.ón 1
t. ó n 1
t. ó n 1
tón 1
eikar
e ikar
ei kar
eikar
eikar
eikar
eikar
éikar
e i ka r
e i k a r
eikar
r i k a r
n i ka i
piknr
e i k a r
pikar
r> i k n r
e i k n i