Þjóðviljinn - 20.06.1981, Qupperneq 7
Heigiii 20.-21. jönf l9Sr ÞJÓBVILJINN — S1ÐA 7
Ennþá er helmingur
þeirra í lægstu
flokkunum
Launaflokkahækkanir
hjá borginni:
l.jan.1980 Karlar
Hluti karla Konur
Hluti kvenna
1—8.
9,—15.
16,—20.
21,—31.
Samtals
205 23% 640 49%
489 56% 602 46%
142 16% 64 4,8%
44 5% 3 0,2%
880 100% ~ 1309 100%
87%
í hlut
kvenna
1 síðustu sérkjarasamningum
Reykjavfkurborgar og Starfs-
mannafélags borgarinnar var
samið um talsvert launaflokWa-
skrið og komu 87% iaunaflokka-
hækkana i hlut kvenna en 13% I
hlut karla. Hefur hlutur kvenna
þvi styrkst nokkuð, þó ennþá séu
95% þeirra i 1.—15. iaunaflokki en
79% karlanna. 1 vikunni var lögð
fram ný skrá um skiptingu i
launaflokka eftir kynjum 1980 og
gerði Adda Bára Sigfúsdóttir,
borgarfulltrui, hana að umræðu-
efni i borgarsjtórn i gær.
Adda benti á að konur væru
fjölmennari i Starfsmannafélag-
inu og sagði að þó þær hefðu feng-
ið góðan hlut af launaflokkaskrið-
inu i siðustu samningum og þar
við hefði siðan bæst skrið fóstra i
vor, væri langtfrá bvi að jafnrétti
Adda Bára: Langt frá launajafn-
réttikarla og kvenna hjá borginni
hefði náðst á þessu sviði. Saman-
burður við árið 1979 sýndi vissu-
lega að konum hefði f jölgað nokk-
uð í hærri launaflokkunum en
ennþá væri helmingur þeirra i
1,—8. launaflokki, eins og eftir-
farandi tafla sýnir:
Launaflokkur
Árið 1979 voru 142 karlar og 53 konur i 16.—20. launaflokki og 51 karl
og 2 konur i hærri flokkunum.
_______________________________— AI
Sama tap á Listahátíð og Stöðumælasjóði;
Eftir hvaða miljóna-
tugum sjá menn?
A borgarst jórnarf undi á
fimmtudaginn þar sem reikning-
ar ársins 1980 voru m.a. til um-
ræðu rifjaði Guðrún Helgadóttir
upp blaðaskrif og ummæli borg-
arfulltrúa um tap á Listahátið
1980. Sagði Guðrún að það væri
merkilegt i ljósi ummæla sem þá
féllu að fletta reikningnum nú og
sjá eftir hvaða miljónatugum
borgarfulltrúar sæju.
Tapið á Listahátið hefði orðið
tilefni mikilla umræðna en hér
stæði svart á hvitu að tapið á
stöðumælasjóði 1980 hefði orðið 51
miljón gkr. eða álika og á hátið-
inni. Sá væri munur hér á að eftir
þessum miljónum virtust menn
ekki sjá, — alla vega hefði enginn
gert þær að umtalsefni. Hér væri
þvi ekki um almenna fjármála-
umhyggju að ræða, — heldur birt-
ist stefna einstakra borgarfull-
tnía gagnvart listum og menn-
ingu i upphrópunum um sóun
fjármuna og tap þótt ekki vildu
þeir viðurkenna það.
AI
Alþýöubanklnn hf
Arður til hluthafa
Á aðalfundi Alþýðubankans h/f þann 25.
april 1981 var samþykkt að greiða hluthöf-
um 5% arð af innborguðu hlutafé og jöfn-
unarhlutabréfum fyrir árið 1980.
Greiðsla arðsins hefir verið póstlögð i
ávisun til hluthafa.
Reykjavik 15. júni 1981
Alþýðubankinn h.f.
Auglýsing
Kennara vantar við Eskifjarðarskóla.
Kennslugreinar m.a. islenska, enska,
leikfimi stúlkna og kennsla yngri bekkja,
ásamt hlutastarfi á bókasafni
Upplýsingar gefur formaður skólanefnd-
ar.
Bæjarstjórinn Eskifirði
Sveitarfélögin verða
að halda vöku sinni
t þessum mánuði hafa verið
haldnar tvær ráðstefnur um at-
vinnumál á höfuðborgarsvæðinu
en Atvinnumálanefnd Reykjavík-
ur hélt nýlega ráðstefnu um at-
vinnumál i höfuðborginni og s.l.
laugardag gekkst samband
sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu fyrir ráðstefnu um at-
vinnumál svæðisins i heild. Um 70
manns sátu þá ráðstefnu, sveitar-
stjórnarmenn, fulltrúar verka-
lýðsfélaga og atvinnurckenda en
umræðan var þriskipt: atvinnu-
ástandið i dag, framtiðarhorfur
og hugsanlegar aðgerðir sveitar-
félaga eða rikisins.
Guðmundur Þ. Jónsson, for-
maður Atvinnumálanefndar
Reykjavikurborgar var einn ráð-
stefnugesta á laugardag og sagði
hann að ráðstefnan hefði verið
gagnleg þvi brýnt væri að at-
vinnumál höfuðborgarsvæðisins
kæmust mára tilumræðu en ver-
ið hefði. „Umræður um atvinnu-
mál hafa löngum snúist um upp-
byggingu fiskvinnslu, virkjana og
iðjuvera úti um land,” sagði Guð-
mundur, ,,en höfuðborgarsvæðið
hefur þar orðið útundan. Þó at-
vinnuástand hafi verið sæmilegt
hér, er full þörf á þvi að sveitarfé-
lögin haldi vöku sinni og vinni
markvissar að þvi að halda uppi
atvinnu.”
Guðmundur benti á að það væri
fyrst og fremst einkareksturinn
sem réði ferðinni i atvinnumálum
ef frá væru talin nokkuð góð dæmi
um opinberan rekstur eins og
BÚR og BtlH auk raf- og hita-
veitna, en frumkvæði sveitarfé-
laganna sjálfra, hvað þá rikisins
hefði verið litið.
Guðmundur sagði að nauðsyn-
legt væri að framhald yrði nú á
þeirri umræðu sem hafin væri
með þessum ráðstefnum og að
þær yrðu ekki einhver bóla, held-
ur upphafið að aðgerðum og sam-
vinnu sveitarfélaganna i þessum
málum.
— Al
í sumarley fiö á
„nyjum
notuðum SKODA
Vantar þig bíl til þess að ferðast á
í sumarleyfinu?
Ef svo er þá getum við boðið þér úrval af Skoda á frábærum
kjörum. Þú getur valið úr árgerðum og þannig fundið
nákvæmlega þann bíl sem þér hentar best.
Þú hringir eða kemur í heimsókn og þá er hann Halli reiðu-
búinn til þess að veita þér allar upplýsingar og aðstoða þig
eftir bestu getu.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600