Þjóðviljinn - 19.09.1981, Page 5
Helgin 19.— 20. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Rauðsokkahreyfingin fer á kreik
Námskeið um
kvennabaráttu
r
Rauðsokkahreyfingin
er nú að hefjavetrarstarf
eftii- sumardvala, sem
þó var ekki neinn fasta-
svefn.
1 vetur veröur bryddaö upp á
nýung. Efnt verður til námskeiðs
tvö kvöld i viku og stendur það frá
8. okt. til 19. des., en það kvöld
sem er laugardagskvöld verður
hitaö jólaglögg, sungið og leikið
af hjartans list, vonandi eftir vel
lukkað nám og starf.
Námskeiðiö veröur þannig upp
byggt að fyrra kvöldið verður
fundað i 8—10 manna hópum,
siðara kvöldið kemur gestur og
flytur fyrirlestur. Eins og gefur
aö skilja er um mikið og stórt efni
að ræða og verður þvi að reyna að
feta hinn gullna meðalveg. A
fyrsta fundi veröur fjallaö um
félagsstörf, tjáningu, fpndarsköp,
og Helga Sigurjónsdóttir kennari
flytur fyrirlestur þar sem hún
ræðir m.a. um reynslu kvenna af
félagsmálum. Annar fundur
verður um sögu kvenréttindabar-
áttunnar, Vilborg Sigurðardóttir
kennari flytur erindi og laugar-
daginn 24. okt. (sex ár frá
kvennaverkfallinu) kemur Anna
Sigurðardóttir úr Kvennasögu-
safninu og fjallar um formleg
réttindi kvenna frá þvi að sögur
hófust hér á landi. Þriðji fundur
tekur fyrir nýju kvennahreyfing-
una og veröur Kristin Astgeirs-
dóttir blaðamaður með innlegg
um það efni. Fjórði fundur er um
hlutverk kynjanna og innrætingu,
þar verða þau Sigurbjörg Aðal-
steinsdóttir og Stefán ólafsson
bæði félagsfræðingar, með töiur
um innrætingu og skólagöngu
annars vegar og karlhlutverkið
hins vegar. Afimmta fundier það
Fjölskyldan og hlutverk hennar
sem rætt verður og þar kemur til
skjalanna Sólrún Gisladóttir
sagnfræðinemi. Fjölskyldupólitik
er næst á dagskrá og þar verður
Hjördis Hjartardóttir félagsráö-
gjafi með framsögu. Uppruni
kvennakúgunar kemur næst og
um það fjallar Sigriöur DUna
Kristmundsdóttir mannfræöing-
ur. Konur og verkalýðsmál eru á
áttunda fundi, um þaö ræðir
Svava Guömundsdóttir sagn-
fræðinemi og fenginn verður
gestur úr verkalýðshreyfingunni.
A niunda fundi veröur rætt um
kvennabókmenntir og verður
Helga Kress lektor meö erindi um
það efni. A tiunda fundi kemur
röbin að spurningum eins og
hvers konar kvennabarátta,
hvers virði er hreyfing eins og
Rauðsokkahreyfingin, og hvað er
hægt að gera kvennabaráttunni
til framdráttar? Miðstöð Rsh.
verður með innlegg um þau mál.
Loks kemur svo að jólaglögginu,
með rúsinum, möndlum og öllu
tilheyrandi.
Innritun fer fram i Sokkholti,
Skólavöröustíg 12, virka daga kl.
17 — 18:30, námskeiösgjald er 200
kr. s. er 287 98. Morgunkaffið á
laugardagsmorgnum fer einnig
fljótlega af stað og má búast við
ýmsu forvitnilegu þar, m.a. efni
sem tengist námskeiöinu, svo
sem kvennamenningin margum-
rædda. Þá verður ársfjóröungs-
fundur Rauðsokkahreyfingar-
innar haldinn laugardaginn 26.
sept. kl. 13:30.
Allt á verðandi mæöur
Anorakur Verö kr. 370.-
Bolur Verð kr. 61.-
Buxur Verð kr. 248.-
Buxur Bolur
Verð kr. 345.- Verð kr. 53.-
Kjóll
Verð kr. 390.-
Kjóll
Verð kr. 485,-
Smekkbuxur Verö kr.
351.- Bolur Verð kr. 88.-
Kjóli
Verð kr. 195.-
Velúrdress
Verö kr. 698.-
Kjóll
Verð kr. 365,-
Buxur Verö kr. 248.-
Mussa Verð kr. 223.-
Kjóli
Verð kr. 325,-
Vesti Verð kr. 158.-
Buxur Verð kr. 150.-
Sett
Verð kr. 440.-
, Draumurinn
Kirkjuhvoli— Sími 22873
ATH! _
Breyttur opnunartími
Virka daga kl. 12-18 '