Þjóðviljinn - 19.09.1981, Qupperneq 9
notað og nýtt
dr. Gottskálk
Gottskálksson
Helgin 19.— 20. september 1981 ÞJÓÐMLJINN — StÐA 9
Fá útlendingar rétta
hugmynd um landið?
Það er ævinlega áhuga-
vert fyrir mönlandann að
fá vitneskju um þá mynd
sem útlendingar hafa af
landinu. Fjöldiferða-
manna fer vaxandi,
einkum yfir sumartímann
og fiestir þeirra vita harla
lítið um land og þjóð við
komuna í Keflavík.
(kannski vita þeir ekki
miklu meira við brottför).
Elrlendar feröaskrifstofur eru
ósparar á upplýsingar og ráð-
leggingar. En ekki er ég nú hand-
viss um að þekking þeirra á land-
inu sé pottþétt.
Nýlega komst ég yfir ferða-
bækling um Island, sem þýsk
ferðaskrifstofa dreifir. Til
gamans drep ég niður á við og
dreif i bæklingi þessum.
Eskimóar byggja nyrstu svæði
jarðarkringlunnar. Islenskir
eskimóar eru ljósir yfirlitum og
tala ensku við ferðamenn. Aftur á
móti eru grænlenskir eskimóar
dökkir á brún og brá og tala
dönsku við ferðamenn.
Achtung. Konurnar sem biða i
bilum i miðri Reykjavik eru ekki
vændiskonur. Þær þiggja pen-
inga, en hins vegar afhenda þær
alltaf happdrættismiða i staðinn.
Karlmenn eru varaðir við að
gerast of nærgöngulir, þar sem
yfirleitt er um að ræða virðu-
legar húsmæður.
Flötu þökin i úthverfum
Reykjavikur eru ekki neyðarflug-
vellir fyrir þyrlur i ofsaveðrum
eða stórflóðum heldur eru hér á
ferðinni svalir fyrir sóldýrkendur
þegar veður leyfir.
Nákvæmt eftirlit er haft með
áfengissölu á þessum slóöum.
Aöeins þrjár verslanir sem erfitt
er að finna selja áfengi i Reykja-
vik svo dæmi séu tekin. Ferða-
mönnum er ráölagt að drekka
vatn. Sé löngunin hins vegar
skynseminni yfirsterkari er
heilladrýgst að reyna að þrauka
til föstudags þvi milli fimm og sex
fara allir innfæddir i rikið og þvi
auðvelt að fylgja straumnum.
Sértu að leita að miðbæ Reykja-
víkur eftir kl. 7 að kvöldi með
hjálp korts og finnirðu engan til
þess að visa þér rétta leið skaltu
hætta að leita. Þú ert staddur i
miðbænum.
Allar þær vistir sem kunna að
fyrirfinnast á borðinu i veitinga-
húsinu, en eru ekki uppgefnar i
verðlistanum eru áreiðanlega
ókeypis.
Þjóðarréttur tsiendinga er
hamborgari og er hann fáanlegur
á öllum grillstööum landsins.
Bestur en dýrastur er hann ,,með
öllu”.
Hitamál sumarsins sem klauf
þjóðina i tvær fylkingar snerist
um uppsetningu útitafls i miö-
bænum.
Og deilan á milli Vilmundar
Gylfasonar og Jóns Hannibals-
sonar? Gleyma þeir henni? Það
er ólikt þýðingarmeira mál sem
mun hafa ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar.
Já þannig lita þeir þá út ferða-
mannabæklingarnir um landið
okkar kæra. Þetta nægir kannski
þeim sem koma til að tina grjót i
þrjár vikur i kulda og trekki uppi á
öræfum. En mætti nú ekki reyna
að uppfræða þá örlitið um menn-
ingarverðmæti þessarar sögu-
þjóðar?
Aðrar erlendar ferðaskrifstofur
hafa þann háttinn á að myndast
við að þýða, reyndar heldur
klaufalega, greinar úr islenskum
blöðum. Ég hef til að mynda
undir höndum ameriskan bæitling
sem dásamar hina margvislegu
skemmtanamöguleika sem
ferðamönnum er boðið upp á.
Eins og menn rekur minni til
fór fram á Hótel Sögu dagskrá er
nefnist Fæði og klæði. Gestunum
var gefinn kostur á að gæða sér á
islenskum sérréttum og dást að
sýningarstúlkunum sveipuðum
islenskum ullarvörum.
Að dagskrá þessari stóðu Ala-
foss, Búnaðarfélag Islands,
Smjör- og ostasamsalan og
Sláturfélag Suðurlands. En litum
nú á kynningu á þessu fyrir-
myndarframtaki i ameriska
bæklingnum.
„While staying in the smokebay
(örugglega Reykjavik) don’t
miss the prestigious fashion
exhibition in the aviary (orða-
bókarþýðing: Súlnasalur verður
fuglabúr) of hotel Story (er nauð-
synlegt að þýöa allt?). This
fashion exhibition is organised by
the Butter and cheese organisat-
ion (Samsalan hefur sennilega
ekki fundist i orðabókinni) and
the Butchers association of the
southern part of the country.”
Hvilik auglýsing fyrir hinar
glæsilegu sýningarstúlkur
Karon-samtakanna.
Það nægir sannarlega ekki að
fara fram á, að islenskur fylgdar-
maður leiði hvern einasta er-
lendan ferðamannahóp um
landið. Ekki er siður mikilvægt,
að Islendingar hafi hönd i bagga
með og samþykki hvern einasta
snepil um Island sem prentaöur
er erlendis.
Matreiöslumenn
Almennur félagsfundur verður haldinn
miðvikudaginn 23. september kl. 15 að
Óðinsgötu7.
Dagskrá:
1. Uppsögn kjarasamninga
2. Kröfur kjaramálanefndar.
3. Önnur mái.
Félagar fjölmennið Stjórnin.
Tómstundavörur SSS
Qoir heimili og skcila
Námskeiö
innritun stendur yfir
• Tágavinna
• Glermálun
• Jólaföndur jafnt fyrir
karla sem konur
Handíð
Laugavegi 26 og Grettisgötu
sími 29595
Sóknarfélagar
Fundur verður haldinn i Starfsmanna-
félaginu Sókn, þriðjudaginn 22. september
nk.
Fundurinn verður i Hreyfilshúsinu og
hefst kl. 20.30.
Fundarefni: Uppsögn samninga
Önnur félagsmái
Sýnið skirteini.
Stjórnin.
Leikræn tjánining fyrir
börn og unglinga
Námskeið fyrir börn og unglinga i leik-
rænni tjáningu hefst þriðjudaginn 6.
október n.k., að Frikirkjuvegi 11.
Upplýsingar gefur Sigriður Eyþórsdóttir i
sima 29445.