Þjóðviljinn - 19.09.1981, Síða 27
Helgin 19,—20. september 1981 ÞJÓÐVJLJINN —, StÐA 27
um helgina
Aukasýningar
hjá Nemenda-
leikhúsinu
Aukasýningar verða á barna-
leikritinu „Sorglaus konungs-
son” i Lindarbæ kl. 15 og 17 á
laugardag og sunnudag.
Miðasala verður frá kl. 15—17 á
laugardag, en frá kl. 13 á sunnu-
daginn. Ungum sem öldnum
leikhúsunnendum er bent á að
þetta eru allra síbustu sýningar
á verkinu.
Skyggnst
innávið
Nú þegar skammdegið fer að
byrgja okkur útsýn, þá er rétti
timinn til þess að skyggnast
innávið. Hvað skyldi bærast
dýpra með okkur, undir hafróti
allra hugsananna? — Þannig
spyr Ananda Marga i fréttatil-
kynningu og segir Yoga aðferð
til þess áð kyrra flöktandi huga
og draga fram hinar dýpri og
skemmtilegri tilfinningar.
A vegum samtakanna er að
hefjast stutt kvöldnámskeið þar
sem kennd veröa einföldustu
undirstöðuatriði yoga. Nám-
skeiðið er öllum opið og hefst
n.k. mánudag 21. sept. kl. 21 i
Aðalstræti 16. Þátttaka er
ókeypis.
Skátadagur
á laugardag
i Háaieitis-, Bústaða-,
Smáibúða- og Fossvogshverfum
er starfandi skátafélag, sem
nefnist Garðbúar. i félaginu eru
um 300 skátar á aldrinum 9—25
ára og i tilefni af nýju starfsári
verður á laugardaginn haldinn
skátadagur i þessum hverfum.
Tjaldbúð verður reist að hætti
skáta á auða svæðinu á mótum
Réttarholtsvegar og Hæðar-
garðs (fyrir ofan Vikingsheim-
ilið) og þar verður dagskrá frá
kl. 14—16. Tilgangur skátadags-
ins er tviþættur: að kynna
Garðbúa fyrir öllum yngri og
eldri ibúum hverfisins og að
minna á innritunina, sem er
þessa sömuhelgi i skátaheimili
Garðbúa i kjallara Staðar-
borgar við Mosgerði. Argjald
fyrirstarfsárið er 160 krónur og
er veittur systkinaafsláttur.
Allir ibúa þessara hverfa eru
velkomnii^ískátadagini^^^^
Samsýning í
Rauða húsinu
1 dag, laugardag, opna i
Rauða húsinu Akureyri sam-
sýningu, þau Kristján
Guðmundsson og Sigriður
Guðjónsdóttir.
Sýningin er opin frá kl.
16.00—20.00 frá 19. sept til 27.
sept.
Nýja
kompaníið
í Norræna
Nýja kompaniiö heldur tón-
leika i Norræna húsinu i dag
laugardagkl. 17.00. Þeir félagar
leika aðallega eigin tónlist. A
mánudagskvöld verður kompa-
niið I Djúpinu.
Rúmlega eitt ár er liðið frá
þvi að nýja kompaniið var
stofnað og hefur það komið
fram viða á sinu eina ári.
Kompaniið skipa: Sigurður
Flosason altó- og tenórsaxafónn
og altflauta, Sveinbjörn I.
Baldvinsson gitar, Jóhann G.
Jóhannsson pianó, Tómas R.
Einarsson kontrabassi og
Sigurður G. Valgeirsson
trommur.
Nýja kompaniið: Aftari röö Tómas, Sveinbjörn og Sigurður, sitjandi
eru Jóhann og Siguröur Valgeirsson.
Konur Goethes
og ungmeyjarljóð
Þau ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir cinsöngvari og dr. Erik
VVerba pianóleikari koma fram
á fyrstu tónleikum vetrarstarfs-
ins hjá Tónlistarfélagi Reykja-
víkur, sem haldnir verða i Aust-
urbæjarbiói í dag, laugardag kl.
2.30 siðdegis. Hvorugt þeirra
mun þurfa að kynna islenskum
tónlistarvinum og dr. VVerba
reyndar ekki fyrir tónlistarvin-
um um viöa veröld, þvi að hann
hefur um áratuga skeið veriö
einn dáðasti pianóleikari við
Ijóöasöng sem uppi er.
Söngskrá tónleikanna skiptist
i tvo hluta með sérstökum fyrir-
sögnum, fyrir og eftir hlé. Fyrri
hlutinn er „Konur i kvæðum
Goethes” og verða i honum flutt
tiu lög eftir fimm tónskáld við
kvæði Goethes um konur eöa i
orðastað kvenna. 1 þessum
kvæöum syngja þroskaöar kon-
ur um ástir sinar, drauma og
örlög. Tónskáldin eru Mozart,
Beethoven, Schubert, Schu-
mann og Hugo Wolf.
„Ungmeyjaljóð” nefnist siö-
ari hlutinnog verða þar, til mót-
vægis við kvennaljóö Goethes,
flutt niu sönglög þriggja tón-
skálda sem öll fjalla um ungar
stúlkur eða eru lögð þeim i
munn. Tónskáldin eru Sibelius,
Brahms og Richard Strauss.
Af öðru listafólki sem lyrir-
hugað er að leiki á tónleikum
Tónlistarfélagsins i vetur má
nefna: italski liðlusnillingurinn
Pina Carmirelli og Árni
Kristjánsson, pianóleikari
koma fram 17. október, Anna
Aslaug Ragnarsdóttir pianó-
leikari á einleikstónleikum 31.
október, hin heimsfræga söng-
kona Elly Ameling og Dalton
Baldwin, pianóleikari halda
tónleika 7. nóvember og söngv-
arinn William Parker heldur
tónleika i janúar. Aætlað er að
pianóleikarinn Dalton Baldwin
komiaftur til landsins i íebrúar
og leiki þá með söngkonunni
Rosmary Landry og Rudoif
Kerer, pianóleikari kemur fram
á tónleikum 13. mars. Leifur
Þórarinsson tónskáld mun ann-
ast tónleika fyrir félagið i april
og verða á efnisskrá ýmis
kammerverk eítir hann sjálfan.
8. mai mun fiöluleikarinn Ernst
Kovacic halda tónleika.
Tónlistarfélagið getur bætt
við sig nokkrum nýjum styrkt-
arfélögum.
Motorcross er hættuleg og erfið iþróttagrein, en hraðinn getur orðið
allt að 100 km. á klst. og þar yfir. Hér sést einn af köppum Vélhjóla-
klúbbsins á æfingu.
Síðasta motorcrosskeppnin
Siöasta motorcrosskeppni
sumarsins veröur haldin á
vegum Vélhjólaiþróttaklúbbs
ins á sunnudag kl. 15. Keppnin
veröur haldin á nýrri braut
klúbbsins viö Keflavikurveg,
um 1 km frá Grindavikuraf-
leggjaranum i átt að Keflavik.
Motorcross er ein vinsælasta
mótorsportgreinin sem stunduð
er viða um lönd. Þykir hin besta
skemmtun að fylgjast með
brynjuðum köppunum geysast
yfir holt og hæðir i loftköstum,
en motorcross er fólgið i að aka
ákveðinn fjölda hringja á lok-
aðri keppnisbraut sem engu
tæki er fær nema þessum sér-
smiðuðu keppnishjólum. Keppt
er i malargryfjum eða á öðrum
stöðum þar sem ekki er hætta á
aö gróður skemmist.
Keppnin á sunnudaginn gefur
stig til Islandsmeistaratitils, og
er keppnin um hann i hámarki
nú. Staða efstu manna er mjög
jöfn og ræður keppnin þar úr-
slitum.
Vinátta. Sigfús Már Pétursson og Thomas Ahrens. Ljósm: eik.
Frumsýning hjá Alþýðuleikhúsinu
Sterkari en
Sterkari en Superman nefnist
leikritið fyrir börn, unglinga og
fullorðna sem Alþýðuleikhúsið
frumsýnir i dag kl. 17 I Hafnar-
biói. Höfundur verksins er Roy
Kift en Magnús heitinn Kjart-
ansson þýddi verkið.
Sterkaii en Superman fjallar
um fatlaða og ófatlaða I sam-
félaginu, móður með tvö börn
sem eru aö hefja búsetu i nýju
hverfi þegar leikurinn hefst.
Sonurinn er i hjólastól og dóttir-
in er ekkert allt of sátt við að
þurfa að sinna bróður sinum um
of, þó að hún verji hann þegar
illa er um hann talað.
Sterkari en Superman var
frumsýnt fyrir einu og hálfu ári
i Englandi c® er nú sýnt i
Þýskalandi. Höfundurinn er að
gera allt í sain að fræða fólk um
hvernig það er að vera fatlaður,
Superman
hvernig umhverfB bregst við,
hvaða fordómar eru uppi gagn-
vart föthiðum og að auka skiln-
ing manna á aðstöðu fatlaðra.
Samtök fatlaðra hafa sýnt
leikritinu mikinn áhúga og
unnið með Alþýðuleikhúsinu við
undirbúning sýningarinnar.
Frumsýningin verður sem
fyrr segir á laugardag kl. 17 og
önnursýning veröur á sunnudag
kl. 15. Leikstjórar eru þau Jór-
unn Sigurðardóttir og Thomas
Ahrens en leikendur Björn'
Karlsson, Guðlaug Maria
Bjarnadóttir, Margrét Ólafs-
dóttir, Sigfús Már Pétursson,
Thomas Ahrens og Viðar
Eggertsson. Leikmynd gerir
Grétar Reynisson, ljóð og lög
samdi Ólafur Haukur Simonar-
son.
— ká
Rommí
aftur á
fjalirnar
A laugardagskvöldið gefst
þeim, sem enn hafa ekki séð
hina vinsælu sýningu Leikfélags
Reykjavikur á ROMMl, kostur
á að sjá verkið. Þau Gisli Hall-
dórsson og Sigriður Hagalin
hafa nú leikið þetta bandariska
verðlaunaleikrit á annað
hundrað sinnum og er leikritið
komið i röð vinsælustu leikrita
erlendra, sem sýnd hafa verið
hjá Leikfélaginu.
1 sumar var farið með verkið i
vel heppnaða leikför um
Norðurland. Eins og kunnugt er,
gerist ROMMÍ á elliheimili og
þar greinir frá samskiptum
tveggja roskinna einstaklinga,
sem stytta sér stundir, spauga,
rifast og spila rommi.
Sigriður Hagalin og GIsli Hall-
dórsson i hiutverkum sinum i
Rommi.
Tómas Zoega þýddi leikritið,
leikmynd gerir Jón Þórisson og
leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson.
Einungis verður um fáar sýn-
ingar að ræöa.