Þjóðviljinn - 10.10.1981, Page 15
/.! 'F,.’7'fO:)t ibqí redðl:lo
.■! -.91 itiSisK
Helgin 10,— 11. október 1981 ÞJÓÐVXLJINN — SIÐA 15
' *
?-&***m^ - v***5f;
*>^ ■ ...
--.
'*A .- ■ ',;■- %éx ; 'C*.
■
Gróöurbreiöur
vatnsins ná yfir
þrjátiu ferkm. svæöi
Verið er að skrifa fjóra
doktorsritgerðir um
Þingvallavatn
Nesjaland I Grafningi er stórkostlegt útivistarsvæöi meö ásum, hólum, giljum, kjarri, hrauni, lyngi og sléttum flötum. Efst á myndinni má sjá
Háatind og Jórutind en úr honum kemur Jórugil. Þar sat Jóra tröllkona fyrir feröamönnum eins og fram kom i sjónvarpinu fyrir skömmu. S.l. 20
ár hafa sumarbústaöir sprottiö upp eins og gorkúiur i iandi Nesja. Ljósm.: gel
Auðugt dýralif
— Hvaö þá um dýralifið?
— Þab hefur komið i ljós að það
er mjög auöugt. Frá grjóti i flæö-
armálinu i Miöfelli og niöur á
metra dýpi eru allt aö þvi 100
þúsund einstaklingar á fermetra
— en úti á Miöfellsdýpi (á 75
metra dýpi) eru 15 þúsund ein-
staklingar. A 110 metra dýpi viö
Sandey eru 2300 einstaklingar.
— Hvers konar dýr eru þetta?
— Mest ber á skordýrum eða
rykmýi á grunnu vatni en ormar
eru langalgengastir á dýpinu og
reyndar hér um bil einráðir. 1
þessari vinnu hef ég m.a. mann
sem heitir Claus Lindegaard,
einn af fáum mönnum i heimi
sem kann á rykmý.
— Hvaö um fiskinn?
— Fyrsta keðjan i vatninu eru
jurtir Sú næsta eru dýrin sem
beita sér á grasið og er Úlfar Ant-
onsson að fást við þaö verkefni og
mun verja doktorsritgerð um það
við Uppsalaháskóla á næsta ári.
Þriðja keðjan er svo fiskurinn
sem borðar dýrasvifið og þar höf-
um við i Þingvallavatni murtuna
sem lifir á þvi. Á botni höfum við
tvær geröir af bleikju, önnur sem
lifir á botndýrum og nagar vatna-
bobba af grjóti en hin er afbrigði
sem lifir á seiðum. Sigurður
Snorrason dýrafræðingur kemur
til með að verja dcnktorsritgerð
við háskólann i Liverpool i vetur
og skrifa þá um vatnabobbann i
Þingvallavatni. Svo höfum við i
vatninu eitt sérstakt afbrigði enn
af bleikju. Það eru litlir fiskar
sem lifa i gjánum i mjög köldu
vatni og vaxa sennilega þess
vegna svo hægt. Alitið er að Þing-
vallavatn sé eina vatnið i heimin-
um sem hefur fjórar tegundir af
bleikju og það hefur vakið áhuga
sænsku fiskimálastofnunarinnar.
Hún hefur lagt fé til rannsókn-
anna og hingað kemur oft til okk-
ar Sviinn Eolf Gydemo sem raf-
dregur blóð úr öllum afbrigðun-
um sem kunn eru i vatninu og er
að skrifa doktorsritgerð um þær
rannsóknir sinar.
Steingrimsstöð útrýmdi
nær urriðanum
— Þaö eru sem sagt fjórar teg-
undir af bleikju. Hvaö um urriö-
ann?
— Þingvallaurriðinn var frægur
fyrirstærð og gæði en aðalhrygn-
ingarstöðvar hans hurfu þegar
Steingrimsstöð var reist og
Þrengslin þurrkuðust. Nú á tim-
um yrði slik raforkustöð aldrei
reist. Jón Kristjánssor. á Veiöi-
málastofnuninni hefur kannað
murtuna og hann álitur að aðal-
fæða urriðans hafi einmitt verið
murta. Jón hefur grisjað murtu-
stofninn og sannað að murtan er
minni og jafnvel horaðri en áður.
Eitt aðalverkefni Úlfars Antons-
sonar i Uppsölum er að komast að
þvi hvort murtan gengur of nærri
dýrasvifinu. Þegar hlekkur eins
og urriðinn hverfur úr vatninu
hefur þaö áhrif á alla lifkeðjuna.
— Er hann þá alveg horfinn?
— Nei, ekki alveg. Hann hefur
átt aðra- hrygningarstöð i öxará
og einnig hefur honum verið klak-
að út í klakstöðinni i Kollafirði. Ef
klakstöðin hættir hins vegar að fá
fisk i öxará er stofninn týndur.
— En hvaö er mikið af bleikju i
vatninu?
— Vatnið gel'ur af sér 10 - 12 kg.
á hektara af sér á ári eða 90 - 100
tonn á ári svo að þetta er með
bestu bleikjuvötnum á Norður-
löndum.
Útlendingar fjármagna
80% af rannsóknunum
— Nú höfum við mikið rætt um
vatnið sjálft. Hafa ekki lika fariö
fram vistfræðilegar rannsóknir á
umhverfi þess?
— Jú, þetta er alhliða rannsókn
á vistfræðikerfi vatnsins og alls
vatnasvæðis þess. Kristján Sæ-
mundsson jarðfræðingur er að
skrifa doktorsritgerö um Hengils-
svæðið og Kjartan Thors jarð-
fræðingur hefur kannað botn
vatnsins. Veburfræðina hefur
Markús A. Einarsson kannað,
gróður á landi Ingvi Þorsteinsson
og Gylfi Már Gíslason, og vatna-
sviðið Sigurjón Rist. Jón Ólafsson
hefur kannaö efnasamsetningu
vatnsins og svo mætti lengur
telja.
— Hver fjármagnar rannsókn-
irnar?
— Þær eru um 80% fjármagn-
aðar erlendis frá en um 20% frá
islenskum aðilum. Kaupmanna-
hafnarháskólileggurfram um 1/2
miljón króna á ari og Sviar veita
um 200 þúsund krónur. Samtals er
hin erlenda abstoð á þessu ári 1.1 -
1.2 miljónir króna. islenska fjár-
veitingin er samanlagt 238 þús-
und krónur á þessu ári. Hún kem-
ur frá Þingvallanefnd, Alþingi,
Landsvirkjun, Visindasjóði og
Byggðasjóði. Þá hefur Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins á
Keldnaholti veitt okkur ómetan-
legt húsaskjól og einnig hefur
samvinnan við liffræðiskor Há-
skóla tslands verið framúr-
skarandi góö.
— Nú stýrir þú þessu öllu
sjálfur. Er ekki erfitt aö sannfæra
erienda aöila um réttmætiþess aö
styrkja þessar rannsóknir?
— Það er erfiðast fyrir mig að
sannfæra þá um að þeir eigi að
veita islenskum fræðimönnum
laun til að kanna islensk verkefni.
En ég er prófessor meö rannsókn-
arskyldu og hef þvi góöan aögang
aö tækjum og sérfræöingum viö
Hafnarháskóla.
Margvisleg rök
fyrir friðun
— Svo aö við vikjum nú aftur
að áhuga þinum á að friölýsa
Þingvallasvæöiö. Hver eru helstu
rök þin fyrir henni?
— Eins og áður er að vikið er
allt þetta svæðu geysilega áhuga-
vert frá jarðfræðilegu sjónar-
miði, þar sem hvergi annars
staðar er betur hægt að sjá hvað
er að gerast á Atlantshafshryggn-
um. 1 ööru lagi er vatmð alveg
eölilegur miðpunktur á vatna-
svæði með öllum þeim möguleik-
um sem það veitir ibúum SV-
kjálkans til að veiða i þvi. i vatn-
inu er nóg af fiski og miklu meira
af lifi en nokkur hefði gert sér i
hugarlund. Auk þess upplifa
islendingar þarna sögu sina.
Þjóðlifið er nú óðum að breytast.
Fólk fer eina kvöldstund til þess
að njóta fegurðar, anda að sér
frisku lofti og safna kröftum.
Þjóögarðurinn er þegar orðinn of
litill, enda eru ýmis svæði hans
þegar mjög troðin. Notkun
svæðisins eykst með aukinni um-
ferð og auknum fólksfjölda. Þvi
ætti að friölýsa allt vatniö og um-
hverfi þess og ennfremur að
vernda sjóndeildarhringinn og að
vestan helst i Botnsvög (Súlur).
— En þú talar um aö svæöiö
geti orðið eyðilagt eftir 20 ár.
Hvaö getur vaidiö þeirri eyöi-
leggingu?
— Sumarbústaðabyggingar
hafa margfaldast við vatnið
undanfarin ár og eru á góðum
vegi með að loka svæðinu fyrir
almenningi. Ef þessu heldur
áfram verður þetta þjóðhelga
svæði lokað þjóðinni eftir 20 ár
vegna þess aö allir eru að girða
sér blett og loka aðra úti. T.d. er
svæöið frá Þingvöllum (Kára-
staðanes) að Nesjum að mestu
leyti lokað almenningi nú þegar.
Að svo mæltu kveðjum við hinn
broshýra prófessor, enda er hann
önnum kafinn. A morgun ætlar
hann austur aö Þingvallavatni að
sækja botngrjót og hinn daginn
flýgur hann til Þingvalla.
— GFr.