Þjóðviljinn - 13.02.1982, Síða 5
Helgin 13.— 14. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Böðvar
Guðlaugs-
son
60 ára
Böövar Guölaugsson, kennari
Borgarholtsbraut 37. Kópavogi á
60 ára afmæli sunnudaginn 14.
febrúar. ÞjóBviljinn flytur honum
bestu árnaBaróskir og afmælis-
kveöjur.
Leiðrétting
Meinleg prentvilla var í frétt
blaösins i gær um lækkandi oliu-
verö. Haft er eftir Jóni Júliussyni
i Viöskiptaráöuneytinu aö verö-
lækkunin nú gæfi visbendingu um
frambúöarlækkun oliuverös, en
orðiö ekki féll út. bar átti þvi aö
standa: „Jón kvaö tölur þessar
hins vegar ekki gefa visbendingu
um að hér væri um frambúðar-
lækkun oliuverös aö ræöa...” eins
og raunar kom skýrt fram i frétt-
inni á undan. Eru hlutaðeigandi
beönir velviröingar á þessari af-
skiptasemi prentvillupúkans.
mér erspurn
Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra
svarar Sigurði E. Guðmundssyni
framkvstj. Húsnæðisstofnunar:
Er unnt að bæta
réttarstöðu
borgaranna í
fasteigna-
viðskiptum?
Sigurður E. Guðmunds-
son, f ramkvæmdastjóri,
beinir til mín í þættinum:
AAér er spurn, í Þjóðviljan-
um 6.—7. febrúar, spurn-
ingum um álit mitt á
möguleikum til að bæta
réttarstöðu borgaranna í
fasteignaviðskiptum, og að
tryggja betur hagsmuni
þeirra með endurbótum á
löggjöf um það efni.
1 þvi sambandi vil ég benda á
eftirfarandi: t þingsályktun um
kaup og sölu á fasteignum, sem
Alþingi hefur samþykkt, var
rikisstjórninni faliö aö láta fara
fram endurskoöun „til að tryggja
betur en nú er réttarstöðu
kaupenda og seljenda i fasteigna-
viöskiptum” og aö „viö slika
endurskoöun skuli kveöa nánar
nánar á um þá viöskiptahætti sem
i fasteignasölu gilda, svo sem
skyldur fasteignasalans gagnvart
kaupendum og seljendum fast-
eigna, ábyrgð þá, sem hvilir á
sölu- og kaupaðilum i slikum
viðskiptum, svo og um fasteigna-
viöskipti á byggingarstigi.”
Ég hef óskað þess viö prófnefnd
fasteignasala (Dr. Armann
Snævarr, hrd., dr. Gauk Jörunds-
son, prófessor og Einar Sig-
urðsson, hæstaréttarlögmann) að
hún taki til nýrrar athugunar
drög aö frumvarpi til laga um
iöggilta fasteignasala, einkum
meö hliösjón af umræddri þing-
ályktun. Ég tek fram aö ég tel
þörf á aö fá skýrari lagareglur
um skyldur og ábyrgö fasteigna-
sala. Hins vegar tel ég ekki æski-
legt aö leggja hömlur á umráða-
rétt borgaranna yfir eignum sin-
um.
og Þjóðviljinn spyr
Steinunni
Sigurðardóttur
rithöfund:
Hver er munurinn
á að búa í
Reykjavík og
og Stokkhólmi ?
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
er einn traustasti hornsteinn íslenzkra peningamála.
Hann byggir á sterkri lausafjárstöðu og öflugum vara-
sjóði auk ríkisábyrgðar.
Búnaðarbankinn velur ekki sérstök nöfn á lánveitingar
sínar. Hvers konar innlánsviðskipti við bankann á
veltu- eða sparisjóðsreikningum skapa þá gagn-
kvæmni, sem er æskileg forsenda fyrir lánveiting-
um.
Búnaðarbankinn leggur áherzlu á hraða og öryggi í
öllum afgreiðslum.
Það er greiðfært með öll erindi í Búnaðarbankann.
7 afgreiðslustaðir í Reykjavík.
Viðtöl um lánveitingar og önnur viðskipti við útibú bankans í
(eða staðgenglar þeirra):
Reykjavík annast útibússtjórar
Krlstinn Bjarnason
Austurbæjarútibú við Hlemm
Jóhanna Pálsdóttir
Melaútibú Hótel Sögu
Stefán Thoroddsen Moritz W. Sigurðsson
Vesturbæjarútibú Vesturgötu Háaleitisútibú Hótel Esju
Sigurður Nlkulásson
Miðbæjarútibú Laugavegi 3
Jón Sigurðsson
Seljaútibú Stekkjarseli 1
Viðtöl í aðalbanka annast bankastjórar og aðstoðarbankastjórar
árdegis alla starfsdaga bankans.
Traustur banki
BÚNAÐARBANKI
ISLANDS
REYKJAVÍK
er góð trygging
ODDI HF