Þjóðviljinn - 13.02.1982, Page 9

Þjóðviljinn - 13.02.1982, Page 9
‘ tíg' vtv 1 I l’ r /1/;!!., H7rí(; t«.J — A ", t a ; Helgin 13.— 14. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 sunnudagspistill i umræðum um mál Bif reiðastöðvar Stein- dórs hafa menn verið minntir á það að úthlut- unarnefnd á vegum ráðu- neytis ráði því hve marg- iraki leigubíl hér i borg. í Morgunblaðinu hefur borið á viðleitni til að skella þá öllum vanda og hneisu á nefnd þessa og þarmeð syngja þann söng, að hér sé ríkið enn að vasast í öllu og kommúnisminn kannski á næstu grösum. Þetta er vitanlega hiö mesta falshjal: allir vita aö þaö eru bilstjórar sjálfir sem vilja hafa úthlutunarnefnd til aö koma i veg fyrir of mikla fjölgun i starfsgreininni. Sósialisminn i svona tilhögun er svosem eng- inn — gott ef ekki eru viðhöfö svipuö vinnubrögð i leyfaveit- cntiFEcmn KhÍtREÍÍEN IR»MSPU«TS 'IMENT C£ BUREAU Ungt fólk i atvinnuleit p II II / n í rwm BAKHLIÐIN á starfs- réttindum og starfsnámi ingum til leigubilstjóra i New York, svo dæmi sé nefnt. Þörf fyrir öryggi Það er svo sannarlega ekki ný bóla að atvinnustétt vilji slá um sig verndarmúr meö löghelguö- um starfsréttindum, sem sum- part byggjast á þörf fyrir öryggi, sumpart á þvi aö hópur- inn vilji fá sem hæst verö fyrir þjónustu og sérstaka þekkingu. Iðnaðarmannagildin eru eldri en kapítalisminn aö ekki sé tal- aö um sósialískar hugmyndir: þau voru samtrygging meö- lima, athvarf þeirra, samfélag, já og kannski rammi um sér- staka menningu. Meira aö segja þjófarnir höföu sitt gildi meö starfsþjálfun og inntökusiöum! Þessi hefö er sterk eins og allir vita. Og leigubilstjórar vilja ráöa bilafjöldanum, tannlæknar vilja hafa sitt aö segja um þaö hve margir læra tannlækningar, iönmeistarar varast „offjölg- un”, Rangæingar vilja eiga virkjanirnar og leikarar vilja aö sem fæstir fari I leikskóla. Sundurvirkni Þetta er allt saman ofur skilj- anlegt. Starfsöryggi vilja allir hafa — auk þess sem hverjum og einum finnst starf hans merkilegra en öörum og vill lyfta þvi i mati. Boöberar hinn- ar frjálsustu samkeppni eru ekki mikið ööruvisi en aörir i þessum efnum I reynd — þótt þeir kunni, eftir atvikum, aö _________S".^ Árni ' Bergmann^^j skrifar Jkmk hafa aðra aöferö en starfs- greinafélög viö aö fækka keppi- nautum. En nú skal ekki fjalla um eðlilegar eða jákvæöar hliö- ar starfsgreinahyggjunnar, heldur um dapurlegri bakhliöar hennar. Einkum þá staðreynd, aö hún er sundurvirk, hún skap- ar i flestum tilfellum afmark- aða félagshyggju, sem snýr aö- eins inn á viö. Hún er, þegar allt kemur til alls, eitt af þvi sem gerir ihaldsmálgögnum kleift að hlakka yfir þvi að „stétta- baráttan er orðin barátta launa- stéttanna innbyröis” eins og Visir sálugi sagöi einhverju sinni. Að loka sig inni Við höfum lengi tekið undir þaö svotil öll, aö hin fjölbreytt- asta starfsmenntun væri af hinu góða; hún er kjarabót og fram- farahvati og hin besta fjárfest- ing. Margt til i þvi. En hinu hafa menn kannski siður tekiö eftir, að þessi þróun þýöir lika að si- fellt fækkar þeim störfum sem menn geta gengiö inn i án þess að veifa sérstökum pappirum. Sifellt fjölgar þeim básum,þar sem ákveöinn fjöldi manna er kominn inn, veifar prófskjölum og námskeiöavottoröum og seg- ir: allt fullt hér! (1 einum fjöl- brautarskóla var efnt til náms- brautar i hárgreiöslu — nem- endur sem inn gengu létu þaö veröa sitt fyrsta verk aö sam-. þykkja áskorun á skólastjórn um aö loka brautinni aftur). Þessi þróun, sem fer fram undir merkjum öryggis og frainfara þýöir tvennt:AÖ meö starfsnámi eru menn aö loka sig inni ævi- langtef aö likum lætur, þarna er sá reitur fundinn sem þú ætlar að halda I hvaö sem þaö kostar, enda ekki fært i aöra staöi — þú átt þess ekki lengur kost aö skipta um starf, byrja nýtt land- nám, skipta um umhverfi og fé- laga. Hvar veröur þann skemmtilega mann aö finna, sem var hagfræðingur i gær, málakennari i dag og er smiöur á morgun? Ungu fólki úthýst En þetta er aöeins önnur hliö hinna sundurvirku áhrifa. Hin er miklu alvarlegri. Hún er sú, aö meö starfsréttindaveldi plús tölvubyltingu veröur æ þrengra um ungt fólk, þaö sem ætlar að byrja aö vinna. Viö sjá- um þessa kreppu i nálægum löndum: fjóröungur æsku- manna gengur atvinnulaus, kannski fullur af heift og hefnd- arfýsn yfir þvi, að ekki eru aö- eins þeim „ófaglæröu” flestar bjargir bannaöar, heldur hefur lika sjálft starfsnámiö reynst. ávisun sem engin innr stæöa er fyrir. Viö höfum nú um tima heyrt á umræöu sem snýst um hagsmunaandstæöur karla og kvenna. Ef að likum lætur eigum viö von á meiriháttar tog- streitu milli æskufólks og þeirra sem búa viö einhverskonar ör- yggi áöur en langt um liöur. Sameiginleg markmið? Nú gæti einhver sagt: hvurn andskotann er maðurinn aö fara? Er hann kominn á Fried- manlinuna og vill aö markaös- lögmálin ráði kaupi og kjörum? Veit hann ekki aö starfsréttindi hóps launafólks koma i veg fyrir að kapitalistar geti látiö menn bjóöa niöur hver fyrir öörum hvenær sem i harðbakka slær? Mikil ósköp, þessi háski er vitanlega til. Og þaö er sjálfsagt aö taka undir þaö aö samstaöa hóps er skárri en engin sam- staða: allir gegn öllum. En þaö er ekki siður nauösynlegt að vekja athygli á þvi, aö starfs- greinahyggjan hefur mjög sundurvirkjandi áhrif. Rafvirki með rafvirkja, bóndi meö bónda, tóltonnaelska meö tól- tonnaelsku: og hvaö varðar okkur um alla hina? Þeir geta séö um sig. Þaö eru til lofsverö- ar undantekningar frá þessum hugsunarhætti, en ekki eru þær sérstaklega margar. Og i neyslukapphlaupi og stööu- táknastússi okkar þjóöfélags fækkar þessum undantekning- um jafnt og þétt, þvi miöur. Stundum finnst manni eins og öll viöleitni til aö huga aö sam- eiginlegum markmiöum þess- arar þjóöar, alþýöu manna i þessu landi, hafi hrökklast út i horn meðan landsmenn skiptu sér i hundraö flokka og er hver um sig haröákveðinn i þvi aö ná fimm eða tiu prósent kjarabót- um —■ hvaö svo sem hinum liður. AB. Verðlaunaskáldsaga Svens Delblancs_ Verður maður að standa utan við? „Vist er það afleitt. Verða menn alltaf að vera frjálsir eins og fuglinn og utan viö samfélagið til að þora að fylgja boði samvisk- unnar og biða afleið- inganna með ró? Var það þannig sem faðir minnliíði?” Þetta eru orð aðalpersón- unnar I skáldsögu sænska rit- höfundarins Svens Delblancs, Samúelsbók, sem fyrir nokkru fékk bókm ennta verðlaun Norðurlandaráðs — og lýsa þau einni af meginhugmynd bókar- innar. Hún fjallar meöal annars um vanmátt listarinnar, imynd- unaraflsins og einstaklingsins andspænis grimmum og skiln- ingssljóum umheimi. Or ættarsögu 1 skáldsögu þessari gripur Sven Delblanc' niður i' sögu eigin ættar» hann skrifar um lif og fjölskyldu móöurafa sins — án þess þó aö hann sé að skrifa sögulegan fjölskylduróman. Hann tekur sér það skálda- leyfi að kalla afa sinn Samúel og hefur þar með fengiö trúarlegan gamlatestamentisblæ á heiti sögunnar, Samúelsbók. Ekki svo að skilja að Delblanc sé hér á mjög dulrænum slóöum — hann hefur eina ferö- ina enn sett upp sögulegl sviö til að setja þar upp eitt af eilifðar- þemum sinum: andstæöurnar milli siöferðilegs réttar og póli- tisks valds, sem hér kemur fram i þvi formi aö sýnt er hve hjálparvana einstaklingurinn er andspænis samfélaginu. Timi sögunnar eru aldamótin, húp gerist i sænskri sveit, sögu- þráðurinn er i stuttu máli þessi: Eftir langa baráttu við yfir- völd rikis og sveitar brotnar Samúel saman, bæöi andlega og likamlega. Hann hefur snúið heim til Sviþjóöar með banda- Sven Delblanc: t Samúelsbók prófar hann allar sinar þrjár aðferöir riskt prestspróf, sem enginn vill nýta og leitar sér athvarís i þeirri hugmynd, að guð hafi yfirgefið samfélag mannanna og búi I íelum úti i náttúrunni. Hann heldur til skógar til að finna guð — og endar á geð- veikrahæli. Sömu örlög hreppir sonur hans sem átti i sér skáldskapar- neista, en brotnar undan fargi fátæktar og skilningsleysis. Það eru aðeins nokkrar konur sög- unnar, sem búa bæði yfir lifs- krafti og imyndunarafli, sem höfundur lætur eiga sér von. Það hefur verið sagt um Del- blanc að hann sé einkar fjöl- hæfur höfundur og hafi á vixl stundað ærslafenginn sögu- spuna, raunsæja samfélagslýs- ingu og yfirvegaða sálfræðilega aðferð. Og að i þeirri sögu sem nú er verðlaunuð mætist þessir þræöir allir. Delblanc hefur lengi verið einn virtasti höf- undur Svia og hefur viða við komið. Þaö er meðal annars rifjað upp, að árið 1971 skrifaði hann bók um svokallaða „hvita bylt- ingu” keisarans i tran og var litið hrifinn; þykir furðu margt sem þar er sagt hafa ræst síðan.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.