Þjóðviljinn - 13.02.1982, Blaðsíða 19
Ilelgin 13.— 14. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Þjóðviljinn fyrir 10 árum
8/9 1926 Fyrirhey....................
6/11 1926 2 gullúr....................
31/12 1926 Móttaka herinálaráðh.danska
29/6 1927 Veisla.....................
16/8 1927 Ilestahald.................
16/8 1927 Hestahald..................
„Ömmu-
frumvarpiö"
A árinu 1928 báru Framsóknar-
menn fram frumvarp á alþingi
um eftirlit með loftskeytanotkun
togara, var þvi ætlað að koma i
veg fyrir njósnir. Sjálfstæöis-
menn á þingi þæfðust fyrir og
töldu frumvarpið með öllu óþarft.
Náði það ekki fram að ganga en
var tekið upp á nær þvi hverju
einasta þingi næstu árin. ólafur
Thors, einn aöalleiötogi Sjálf-
stæðisflokksins og jafnframt einn
af eigendum stærstu togaraút-
gerðar landsins, fór háöulegum
orðum um þetta siendurtekna,
gamla frumvarp og kallaöi þaö
„ömmu-frumvarpið”. Festist þaö
aö nokkru leyti við þaö.
Og á árinu 1928kemur Jón Auö-
unn Jónsson enn viö sögu. Hann
var stjórnarformaður útgerðar-
félagsins Hafsteins sem gerði út
samnefndan togara vestra. Þetta
ár var togarinn sviptur loft-
skeytaleyfi vegna þess að hann
varö uppvis aö þvi að senda
skeyti til ákveðinna kallmerkja i
landi sem ekki voru skráö eöa
leyfðar stöðvar. Kom i ljós að
skeyti þessi voru send til tveggja
manna á Isafirði, þeirra Magnús-
ar Thorbergs fyrrv. simstöövar-
stjóra þar og Sigurgeirs Sigurðs-
sonar prófasts (siðar biskups).
Ekki varð samt uppvist aö þessu
sinni hvernig stóð á þessum
skeytasendingum þó að illar
grunsemdir vöknuöu.
Lífsviðurvœri
eyðilagt
Landhelgismál og landhelgis-
brot voru stöðugt til umræðu
næstu ár en það er þó ekki fyrr en
1935 sem verulega dregur til tið-
inda. Þá um sumarið fyrirskipar
Hermann Jónasson forsætis- og
dómsmálaráðherra rannsókn á
meintum landhelgisnjósnum og
var hún framkvæmt með mikilli
leynd. Þá um sumarið er viötal i
Alþýðublaðinu við formann á báti
við Faxaflóa og segir hann m.a. i
viötalinu:
„Okkur, sem i vor og sumar
höfum reynt að skapa okkur at-
vinnu með þvi að róa með snur-
voð á trillubátum hér út á Sviöið,
hefir þótt það dálitið athyglisvert,
að i hvert sinn, sem við aö
morgni höfum komiö inn meö
sæmilegan afla, höfum við mátt
eiga það vist, að þegar við kæm-
um aftur út á miðin eftir 6—7
tima, að sjá 3—5 enska togara frá
vissum félögum toga á þeim stað,
sem viö voru á og höföum fengiö
dágóðan afla nóttina áður, þó að
við i langan tima hefðum ekki séö
togara meðan viö fengum litið.
Ot af þessu erum viö farnir aö
draga þá ályktun, að einhverjir
menn i landi, kunnugir miöunum,
sendi þessum togurum dulskeyti I
hvert skipti sem eitthvaö glæöist
inn við linuna. Þótt þaö megi telj-
ast ótrúlegt, að hér skuli vera til
menn, er láta hafa sig til þess að
gefa útlendingum svo nákvæmar
fréttir af aflabrögðum lands-
manna og þar með stuðla aö þvi
að eyðileggja lifsviðurværi
þeirra, sem eru aö reyna að
bjarga heimilum sinum frá
sulti”.
Bomban springur
Þao er svo 10. janúar 1936 aö
bomban springur. Þann dag er
birt meö risaletri yfir þvera for-
siðu Nýja dagblaðsins, málgagns
Framsóknarflokksins þessi fyrir-
sögn: FÖÐURLANDSSVIK. Und-
ir stóö: Fjórir menn hafa þegar
játað fvrir rétti njósnarstarfsemi
sina i þágu erlendra landheigis-
brjóta. — Þessir menn hafa smal-
að erlendum togurum inn á feng-
sælustu veiðistöðvar islenskra
fiskimanna jafnóðum og vitað
varð uin aflasild á hverjum stað.
Siðan var viötal við Hermann
Jónasson forsætisráðherra þar
sem hann skýröi frá þvi að rann-
sókn hefði hafist sumarið 1935 en
720.00
1.030.00
3.213.00
423.50
1.130.00
623.60
ákveðið aö hefja opinbera rann-
sókn 9. janúar 1936.
Þeir menn sem játuöu á sig
þessar njósnir voru flestir um-
boðsmenn breskra togarafélaga á
tslandi. Þar má nefna Geir H.
Zoega kaupmann, umboðsmann
Grimsbytogara, Geir Zoega i
Hafnarfirði, umboðsmann Hull-
togara og Helleyers Brothers,
Þorgeir Pálsson umboðsmann
togarafélagsins H. Marketon
Cock Ltd. i Grimsby. Þá viður-
kenndi Pétur Ólafsson sjómaður
aö hafa stundað þessar njósnir
fyrir atbeina Þórarins Olgeirs-
sonar. Eftir þvi sem rannsókninni
miðaði áfram blönduöust fleiri Is-
lendingar inn I málið.
Þaö sem kom skriö á þetta mál
var dulmálslykill sem fannst um
borö i breskum togara sem
strandaði i Skerjafirði haustiö
1935. Var þá hægt að þýða skeyti
sem send höfðu verið og kom
skýrt fram i þeim sumum aö tog-
arar heföu veriö á veiöum innan
landhelgi og fengið upplýsingar
um ferðir varðskipa úr landi.
Nokkrum dögum eftir aö opin-
bera rannsóknin hófst lét Her-
mann svo á ný til skarar skriða og
gaf út bráöabirgöalög sem fyrir-
skipuöu strangt eftirlit með Ioft-
skeytum veiöiskipa og refsingu
sem nam allt að tveggja ára
fangelsisvist fyrir aðstoö við
veiöiþjófa. Þessi lög voru siðan
staöfest á alþingi og voru þá
„ömmu-lögin” hans ólafs Thors
loks komin i gildi.
Arkú ambe agide
Hinn 1. febrúar 1936 kom upp
nýtt njósnahneyksli. Þá var tog-
arinn Vinur frá Grimsby tekinn i
landhelgi og fundust um borö
30—40 dulmálslyklar. Varð þetta
til þess að upp komst um njósna-
starfsemi þriggja „mektar-
manna” i Vestmannaeyjum.
Blandaðist m.a. Skipaútgerö
rikisins i þessa starfsemi.
Þriðjudaginn 23. mars 1937 ját-
aði Jón Auðunn Jónsson alþingis-
maður fyrir rétti að hann hefði
haft á hendi landhelgisnjósnir
fyrir togarann Hafstein sem hann
var útgerðarstjóri fyrir
1927—1934. Fyrir réttinum var
lagður fram dulmálslykill togar-
ans og útgerðarfélagsins og var
hluti af honum sérstaklega mið-
aður við Vesturland. Lögð voru
fram skeyti á dulmálinu t.d.
þetta:
„Guðmundur Hafsteinn
Reykjavikurradió Aaran Aback
Tanve Græðir”
Það útleggst:
„Hvar eruð þið? Hvernig geng-
ur fiskeriið? Óðinn er hér, fer i
nótt. Græðir”.
Og þetta:
„Arkú ambe agide úti rebet
fiskaði affil nafal flóa fyrradag”.
Merking þessa skeytis er:
„Ægir, Óðinn alltaf úti. Snorri
goði fiskaöi vel Patreksfjörður
flóa fyrradag”.
Og:
„Gamma kolba Duru nagor
Auðunn”
Sem útleggst:
„Óðinn fór frá Bjargi. Er á leið
til Reykjavikur. Auðunn’
Jón Auðunn Jónsson viður-
kenndi rithönd sina á tveimur
skeytanna en það þriðja var vél-
ritaö. hann neitaði fyrir rétti að
tilgangurinn með skeytunum hafi
verið landhelgisveiðar.
Þannig var nú andinn i þá daga
og gamlir togaramenn hafa sagt
undirrituðum frá þvi aö á þessum
árum hafi allir islenskir togarar
reynt að komast inn fyrir
landhelgislinuna ef þess var
nokkur kostur og þá náttúrulega
reynt að grennslast fyrir um ferð-
ir varðskipa. Þeir sem urðu upp-
visir að sliku athæfi hafa þvi
kannske bara veriö óheppnir að
upp um þá komst.
Hitt var náttúrulega öllu alvar-
legra þegar islenskir menn að-
stoðuðu erlenda togaraskipstjóra
viö landhelgisbrot. Og hvað sem
öðru liöur þá virðast togaramenn
þessara ára ekki hafa haft mikinn
skilning eöa borið mikla virðingu
fyrir lögum um friðun fiskimiða.
—GFr
Virðist sem allir
hafi sæst
Dr. Euwe tók i gærkvöld þá
ákvörðun að einvigið milli
Spasskis og Fiscers skuli fara
fram f Reykjavik og Belgrad og
fer fyrri hluti einvigisins fram i
Belgrad en siðari hlutinn hér.
Virðist sem allir aðilar hafi að
lokum sæst á þessa málamiðlun.
Einvfgið hefst ekki síðar en 25.
júni en getur hafist fyrr ef
keppendur óska eftir því.
(16.febr.).
Einstaklingsfra mtakið
brást
Ólafsfirði 14/2 — ógurlegt at-
vinnuástand er nú rikjandi á
Ólafsfiröi. Þar eru yfirleitt og
hafa verið siðustu vikurnar 80-100
manns á atvinnuleysisskrá.
Vinna i' frystihúsinu hefur verið
sáralítil. Þetta stafar ekki síst af
þvf að bátar hafa verið seldir frá
Ólafsfiröi á sibustu vikum án þess
aö nýrra hafi verið aflað... Fróö-
legt er aö bera þetta einstaklings-
framtak saman viö bæjar- og
samvinnuútgerð til eflingar at-
vinnulífinu á staðnum.
(16. fdir.).
Hermannas.iónvarpið
Útvarpsráö hefur nú til athug-
unar lokun Keflavikursjónvarps-
ins eða takmörkun þess við her-
stöðina eina. Greinilegt er að
bandaríski herinn hefur ekki
staðið viö fyrirheit si'n um tak-
mörkun Utsendinga hermanna-
sjónvarpsins og mun það nú sjást
allviða á Suðvesturlandi. Þess
vegna er þetta mál á dagskrá i út-
varpsráöi, enda á islenska rikis-
útvarpið að hafa einkarétt á sjón-
varpssendingum hér. Sendingar
Keflavikursjónvarpsins út fyrir
vallarsvæðið eru þvi ólöglegar
um leiö og þær eru ósæmilegar
fullvalda þjóð i frjálsu landi.
(Ieiðaril6. febr.).
læk af sér hrók
Það var heldur betur lif i
tuskunum i skáksalnum i Glæsi-
bæ á laugardag i 6. umferð
Rey kj av ikurm óts ins . Loka-
minúturnar i skák Friðriks gegn
Hort voru æsispennandi svo notað
séorðalag sem við þekkjum betur
úr Laugardalshöllinni. Hort
komst i gifurlega timaþröng,
Friörik fórnaði skiptamun og peði
og Hort var kominn meö unna
stööu en lék af sér hrók og tapaöi
skákinni.
(I6.febr.).
Sprengiregn á
Suður-Vietnam
Undanfama fjóra daga hafa
bandariskarsprengjuflugvélar af
geröinni 5-52 gertöflugri loftárás-
ir á Suður-Vietnam en nokkru
sinni fyrr siðan Vietnamstriðiö
hófst. Talsmenn bandarisku her-
stjórnarinnar bera þvi viðað þeir
vilji koma i veg fyrir nýja sókn
Þjóðfrelsisherjanna i landinu.
(16. febr.).
Einn var að smiða
ausutetur...
Það væri synd að segja að lög-
reglan fengi ekki að kynnast öll-
um mögulegum og ómögulegum
hlutum i' starfi sinu um helgina. A
sunnudagsmorgun var kært yfir
þjófnaði á veski með 10 þús. kr. úr
húsi einu i borginni. Þar höfðu
þrir menn setið að sumbli og er
tveir sneru tánum upp, notaði sá
þriðji tækifærið og hnuplaði
peningunum úr veskinu og henti
þvi siðan undir rúm... þegar sá
fannst var ekkert eftir af 10 þús-
undunum og telur lögreglan að
þaö verði erfiöleikum háö fyrir
eiganda peninganna að fá þá
aftur.
(16.febr.).
Gægiugöt myrkra-
höfðingjans
Hveragerði 14/2 — Kirkja ein
mikil og virðuleg hefur veriö i
smíðum hér undanfarin ár, en
ekki hefur hún enn sem komið er
notagildi nema fyrir augað. 1
framtiðinni mun vera ætlunin aö
útdeila þar andlegu trúarfóöri til
Hvergeröinga. Máske er ekki
vanþörf á þvi:ýmsir vilja meina
aö göt þau i Hverageröi sem frá
sér senda sjóöheitt vatn og gufu
séu gægjugöt myrkrahöfðingjans
og eru jafnvel sumir hræddir um
aö efbr þeim sendi hann spillandi
áhrif inn í sálir ibúanna.
(16.febr.).
Regattsr
Björgunarbúningur
Regatta
Ný tegund björgunarbúninga hefur nú veriö
hönnuð og framleidd í Noregi, sem hentar
íslenskum aðstæðum einkar vel.
Búningurinn er hannaður með það fyrir
augum að veita góða vernd gegn vindi og
kulda og að auðvelt sé að vinna í honum.
Leysir hann því af hólmi fyrirferðar miklar
yfirhafnir og björgunarvesti.
Búningurinn hefur mikla flothæfni og í vatni
virkar hann sem blautbúningur þ.e.a.s., að
falli maður fyrir borð getur hann lifað í +5°
vatni allt að 3 klukkutíma.
Norsk rannsóknarstofnun hefur samþykkt
að búninginn megi nota í stað björgunar-
vesta um borð í norskum fiskiskipum.
Tilvalinn klæðnaður fyrir íslenska sjómenn
svo og aðra sem starfa við sjávarsíðuna.
Grandagötu13. Símar: 21915-21030.