Þjóðviljinn - 13.02.1982, Side 24

Þjóðviljinn - 13.02.1982, Side 24
24 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 13.— 14. febrúar 1982. hvihmyndir Jakob S Jónsson skrifar Kvikmynd: Private Benjamin Leikstjóri: Howard Zieff. Handrit: Nancy Meyers, Carles Sheyer og Harvey Miller. Tónlist: Bill Conti Kvikmyndun: David M. Walsh. Meöal leikenda: Goidie Hawn, Eileen Brennan, Armand Assante Sam Wanamaker, Barbara Barrie, Robert Webber. Sýningarstaður: Austurbæjarbió. Judy Benjamin er í upp- ha f i my nda ri nna r hundraðprósent yfir- stéttargella/ ef svo má segja, hún hefurvarla dýft hendi í volgt vatn, hvað þá kalt, ekki deplað auga hjálparlaust. Foreldrar Judy Benjamin (Goldie Hawn) ihópiannarra óbreyttra hermanna Herinn göfgar manninn hennar hafa tryggilega markað lífsferil hennar og bjargað henni úr hjóna- bandi með vita vonlausum ónytjungi og komið henni saman við lögfræðing með framavon; sá reynist þó minna nýtur en ekki, ’hann deyr á sjáifa brúðka upsnóttina af hjartaslagi vegna áreynslu. Vesalings Judy finnst sér refsað og það að ósekju. Varla nema von. Og það er ekki nema eölilegt, aö finnum til samúöar meö þessum vængbrotna fugli, sem hefur aldrei þurft aö hugsa nokkra hugsun til enda upp á eigin spýtur, aldrei þurft aö axla ábyrgö, aldrei þurft að lifa eins og venjuleg manneskja. 1 nauöum sinum hringir hún i beina Utvarpssendingu, þar sem fólk meö vandamál má létta á hjarta sinu — og fær svar frá full- trUa bandarikjahers, sem telur hana á aö ganga i herinn undir þvi yfirskini, aö þar sé allt meö endemum fagurt, göfugt og gott. Judy kemst þó fljótlega aö raun um, aö bandaríski herinn er litiö gefinn fyrir aö þjóna undir rassi yfirstéttarbrúöa, sem álpast til aö láta skrá sig í hann. Timabil mik- illa þjáninga og sjálfsafneitana rennur upp, Judy yfirstéttardrós gengur um nöldrandi og vælandi, vorkennir sjálfri sér — I fáum oröum sagt, hUn veröur óþolandi. Þetta er nú ágætt, svo langt sem þaö nær, og alls ekki óveröugt efni i kvikmynd, hvernig dáfalleg brúöa úr yfir- stétt kemst I hann krappann ein- # mitt fyrir þaö aö hún er eins og Ur ipostulini, falleg og heimsk. En Judy blessunin kemst til manns meö þvi aö ganga i gegnum þann skóla, sem herinn veitir henni. Þaö er bæöi gömul hugmynd og ný, aö herinn komi óhörnuðum drengjum til manns, auki hreysti þeirra til likama og þó einkum sálar. Og ég leyfi mér aö efast um réttmæti slikra hug- mynda og vil raunar ganga svo langt, aö halda þvi fram, aö slik hugmyndafræði sé eingöngu til þess fallin aö ala á dýrkun her- mennsku i öllum myndum. Það er einnig i hæsta máta ótrúlegt, að hermennskan þroski meö manni þaö sjálfstæöi, sem ýjaö er aö undir lok myndarinnar, þegar Judy, ný og betri manneskja, neitar biðli sinum frammi fyrir klerkinum og hverfur á braut, orðin sjálfstæö kona. En hvaö um þaö: liklega getum viö öll verið sammála um aö þaö sé ekkert alltof æskilegt aö ala á hermennskuhugmyndum af þvi tagi, sem að ofan er getiö. Hinu verður ekki neitað, aö kvik- myndin um hinn óbreytta her- mann Judy Benjamin veröur ekki sist fyndin af þvi aö hún er kvenmaður um leiö og hún er her- maður — sú staöreynd veröur ósjálfrátt grinaktug, kannski vegna þess aö viö erum ekki bein- linis vön henni, eigum þvi ekki aö venjast aö kvenfólk gangi i karla staö, eins og Judy er látin gera I myndinni, hvort sem þaö á viö raunveruleika aö styöjast eöa ekki. Barátta Judýar viö sjálfa sig, og hina peningasjúku og sóma- kæru foreldra sina, er ágætlega fyndin, og Goldie Hawn gerir persónunni mun betri skil en búast má viö samkvæmt þeim oröum, sem henni eru lögö i munn. Og liklega sjá fæstir eftir þeim tima, sem fer I aö horfa á þessa þokkalegu gamanmynd. Aö endingu get ég þó ekki látiö hjá lföast aö minnast á þýöingu myndarinnar og textun. Þaö gerist alltof oft, aö texti birtist á tjaldinu of fljótt eöa snemma, og hörmulegar þýðingarvillur veröa ekki til þess aö gleöja biógesti, nema siöur sé. Þaö er til aö mynda algert lágmark, aö þýöandi kvikmynda kunni sæmi- leg skil á þvi máli, sem þýtt er Ur, en á þvi viröist vera mikill mis- brestur i islenskum kvikmynda- húsum yfirleitt. Private Benja- min er svo sem ekkert einsdæmi hvaö þaö snertir en reyndar fékk ég þaö skrambi oft á tilfinn- inguna, aö þýöandinn heföi ekki látiö svo litiö aö skoða myndina, áöur en hann þýddi hana, svo augljósar voru vitleysurnar. —jsj. Tilbrigði um útvötnuð stef Kvikmynd: óvænt endalok (Silver Dream Racer) Leikstjóri: David Wickers Kvikmyndataka: Paui Beeson Tónlist: David Essex Meöal leikenda: David Essez, Beau Bridges, Christina Raines, Clarke Peters, Lee Montague, Sheila White. Sýningarstaður: Háskólabió. Ósköp hafa nú verið gerðar margar kvikmynd- ir um Karlmennskuna með stóru kái. Einkum hafa þeir Bandaríkjamenn ver- ið iðnir við kolann og óf áar amrískar hetjur hafa riðið um héruð fyrr og síðar, bæði í eiginlegum skilningi og óeiginlegum. í kvik- myndinni Óvænt endalok fara hetjurnar ríðandi á mótorfákum á ofsahraða um gríðarmiklar kapp- akstursbrautir. Og ætli þar sé ekki að finna hluta af karlmennskuímynd nútím- ans; að minnsta kosti telj- ast mótórhjól spennandi viðfangsefni i augum ungra drengja, þeir verða menn að meiri því hraðar sem þeir komast. Nick Freeman (David Essex) er engin undantekning aö þessu leyti. Hans eina tómstundagaman er aö aka um á mótorfák (eins og segir I slagaranum), keppa — og auðvitað vill hann helst af öllu sigra. En eins og gefur aö skilja, slikt kostar peninga: vélhjóliö þarf aö vera af bestu gerð, viö- hald eins og best verður á kosiö og varahlutalagerinn þarf aö vera rikuiegur. En Nick á enga pen- inga; reynir samt aö spjara sig sem best hann getur i veröld mótórhjólanna meö dyggri aöstoö vinar sins, negrans Cider. Þaö er samt hættulegt aö aka um á vélhjóli á ofsahraöa. Bróöir Nicks ferst i vélhjólaslysi, átrúnaöargoö hans sömuleiðis. En til þess eru hætturnar aö láta þær freista,kitla hugann og siöan aö leggja I hann. Sú er lifsspekin — og þvi varla undarlegt aö eigin- konur vélhjólakappanna gefist upp og hverfi á braut. Og reyndar var þaö aö minu viti eitt af betri atriöum myndarinnar, þar sem Carol, kærasta Nicks, segir hug Nick og Bruce — keppinautar um hylli ekkju vélhjólakappans, hatursmenn á vélhjólabrautinni. Hjá þeim snýstallt um sigur eöa tap — og fátt meir, þegar upp er staðiö. Nick Freeman (David Essex) situr hér Silfurdrauminn sinn, en viö hliö hans stendur vinurinn Cider (Clarke Peters). Hraöinn, spennan, karlmennskuimyndin — allt fær þetta sitt I vélhjólareiðinni, en af henni er nóg Imyndinni. óvænt endaiok. sinn og fer á endanum. En Nick jafnar sig fljótlega; hann hefur mótórhjóliö sitt, sem bróöir hans heitinn haföi smiöaö, og hann leggur I heimsmeistarakeppnina. Honum áskotnast fé fyrir tilstilli ekkju átrúnaöargoösins látna, sem á harma að hefna: vinur eig- inmanns hennar og banamaður á vélhjólabrautinni ætlar aö keppa sömuleiöis um heimsmeistara- tignina — og nú skiptir þaö mestu máli að sigra þann vonda drjóla, gulldrenginn bandariska, sem lif- ir fyrir sigur og svifst einnskis til aö ná honum. Beitir jafnvel brögðum. Auðvitaö sigrar Nick — en hann er ekki fyrr kominn yfir markalinuna, orðinn heimsmeist- ari, fyrr en hjólið lætur undan og hann ferst á voveiflegan hátt. Hetjan, sem nýtur hættunnar, hefnd ekkjunnar, einvigið milli hins göfuglynda, og dónans sem einskis svifst og ótal margt fleira af viölika toga spunniö, aö ekki sé minnst á endinn — allt er þetta velþekkt úr kvikmyndum og viö- ar; tilbrigöi um sama stefiö og ekki laust viö aö þetta sé allt oröiö nokkuö útvatnað. Þaö skiptir þvi hreint ekki svo litlu, hvers konar tökum efnið er tekiö, hvernig unniö er úr þvi. Og satt best aö segja skiptir leikur og leikstjórn ekki svo litlu máli, ef ætlunin er aö varpa einhverju ljósi á mann- eskjuna i þeim keppnisheimi er lýst er. En þaö tekst ekki i Óvænt- um endalokum, frómt sagt. Mátt- laus leikstjórn og leikur gerir aö verkum, aö myndin veröur aldrei meira en I besta falli snyrtileg, tæknilega séö og þarmeö búiö. Þrátt fyrir þaö hafa áreiöanlega einhverjir gaman af aö horfa á vélhjólin, sem þeysa á ofsahraöa eftir spegilsléttum kappaksturs- brautum. jsj.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.