Þjóðviljinn - 06.03.1982, Page 5

Þjóðviljinn - 06.03.1982, Page 5
Helgin 6. — 7. mars 1982. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5 JÖFUR HF Nýfoýiavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 fátækt og nánast hungur móta lif þeirra flestra. t viölesnu bandarisku timariti var nýlega sagt frá þvi sem dæmi að ein- stæð atvinnulaus móðir með tvö börn ætti ekki lengur fyrir kjöt- bollum og yrði að láta sér nægja tómatssósu sem aðalrétt fyrir sig og börnin á degi hverjum. önnur kona gat aöeins boðið börnum sinum ódýrar súpur. Og þeir sem lengst hafa verið at- vinnulausir fá engar atvinnu- leysisbætur i samræmi við nýj- asta niðurskurð Reagans á fjár- munum til félagslegrar þjón- ustu. Bilasali sem áður hafði 2000 dollara á mánuöi i tekjur býr nú i kytru hjá hjálpræðis- stofnun verkalýðsfélags sins, fær gefins mat og 8 dollara á viku i styrk. Fimm manna fjöl- skylda fær 178 dollara á mánuði til að kaupa mat fyrir eða um 1800 isl. kr. Hún verður að treysta á gjafir frá nágrönnum og ættingjum. Þetta eru þó að- eins fáein dæmi um lif miljón- anna. 1 Bandarikjunum eru miljónir atvinnulausra sem hafa verið svo lengi á skrá yfir atvinnu- lausa að þeir fá nú orðið svo hróplega litið til að lifa af, að þeir verða að leita á náðir kirkjudeilda og góðgerðastofn- ana og standa þar i biðröðum til þess að fá gefins mat. Margar kirkjudeildir i Bandarikjunum leggja nú höfuðáherslu á aö starfrækja svokölluð súpueld- hús til að gefa miljónum hinna hungruðu atvinnuleysingja ein- hverja fæðu. Sem dæmi má nefna að á hverjum degi fá 500 atvinnuleysingjar gefins fæðu hjá einnikirkju i Atlantaborg — feður, mæður og börn. Var ein- hver að tala um Póliand? Það hafa ekki birst margar myndir i sjónvarpi af súpueldhúsum kirkna i Bandarikjunum né hin- um atvinnulausu mæðrum sem ekkert geta gefið börnum sinum nema tómatssósu eða súpudisk. Engu að siður er þetta veruleik- inn i atvinnuleysisriki Reagans. Niðurskurður á samhjálp og þjónustu Á sama tima og atvinnuleysi og fátækt fara sem eldur i sinu um bandariskt þjóðfélag setur forsetinn fram kröfur um stór- felldan niðurskurð á framlögum til samhjálpar og félagslegrar þjónustu. 1 fjárlagafrumvarpi Reagans er lagt til að fæðu- styrkir til fátækra og atvinnu- lausra verði lækkaðir um 2000 miljónir dollara, að framlög til læknishjálpar tekjulitilla og tekjulausra borgara og þar með hinna atvinnulausu veröi lækk- uð um 4500 miljónir dollara, að aðstoð við fátækar barnafjöl- skyldur verði minnkuð um 1200 miljónir dollara og framlög til menntamála i þágu hinna efna- minni verði lækkuð um 2500 mil- jónir dollara. Er til betri sönnun þess að „Frjálshyggjan” i framkvæmd sé i reynd veruleiki eymdarinnar? Á sama tima boðar Reagan nauðsyn þess að þúsundum mil- jóna verði varið i aukna her- gagnaframleiðslu. Það er þvi ekki skortur á fjármunum sem knýr fram niðurskurð á fram- iögum til fátækra og atvinnu- lausra. Það er einmitt kjarni stefnunnar sjálfrar sem krefst slikra aðgerða. A sama tima og nægir fjármunir streyma til vopnaframleiðenda er krafist niðurskurðar sem nemur þús- undum miljónum dollara á fjár- munum i þágu læknishjálpar, fæðu og menntunar hinna fá- tæku. „Til vamar ríku fólki” Þegar framkvæmd Leiftur- sóknarinnar blasir við i Banda- rikjum og Bretlandi er von að hugmyndafræðingur Morgun- blaðsins og Sjálfstæöisflokksins telji nauösynlegt að styrkja vörnina. Atvinnuleysi miljónanna er veruleiki. Hungurbiðraðirnar eru veruleiki. Matargjafir kirkjudeildanna eru ill nauðsyn. Fjölskyldur veröa að lifa á fá- Atvinnuleysingjar i New York l biðröð eftir matarpeningum. einum dollurum á dag. Rúm- lega þriðjungur æskufólks eygir enga von um vinnu. Læknis- hjálp, menntun og matur til hinna fátæku eru miskunnar- laust skorin niður. Allt þetta er orðinn veruleikinn i drauma- landi Leiftursóknarmanna. Kenningar Hayeks og Freed- mans i framkvæmd. Afleiðingar kosningasigra Thatchers og Reagans. Þegar veruleikinn þrengir þannig áróðurssvigrúm ,,Frjálshyggju”-riddaranna verður að leita nýrra leiða til varnar stefnunni. Fyrir þremur vikum sendi helsti hugmynda- fræðingur Morgunblaðsins boð- skapinn frá dvalarstað sinum i landi járnfrúarinnar. Vissulega fann hann ljósan punkt i tilver- unni. Aðstæður sumra höfðu þó batnað. Hinir riku voru jú orðnir rikari. „Til varnar riku fólki” hétboðskapur forystumannsins, dýrðaróðurinn um ágæti hinna riku sem Morgunblaðið birti að venju með viðhöfn. Tilefni greinarinnar var „fögnuður riks fólks vegna skattalækkana Reagans” og lokaorðin sýndu að þótt miljónir manna búi nú við eymd atvinnuleysisins i löndum Reagans og Thatchers láta boð- berar Leiftursóknarinnar á Is- landi merkið ekki niður falla: „Ég get þvi með góðri sam- visku lokið þessari stuttu grein til varnar riku fólki, sem á fáa vini aðra en Reagan á okkar dögum, með þvi að vitna i orð nýskipaðs ráðgjafa Reagans um mál minnihluta hópa sem ég las mér til mikillar ánægju fyrir skömmu: „Besta ráðið til að fækka fátæklingum er að hætta sjálfur að vera einn þeirra.” ” Góðsamviska! Mikil ánægja! Þetta eru orð hugmyndafræð- ings Leiftursóknarinnar um eig- ið sálarástand þegar hann horf- ir yfir völl Reagans og Thatch- ers. Og huggunin handa hinum fátæku atvinnuleysingjum er of- ur einföld: „Að hætta aö vera fátækur!” Hvilikur hápunktur heimskunnar. Hvilik blindni kreddumannsins. Hvilik trú á ágæti Leiftursóknarinnar. Hvernig er i ósköpunum skyldi svo standa á þvi að rúmlega ell- efu miljónir atvinnuleysingja i Bandarikjunum og rúmlega þrjár miljónir atvinnuleysingja i Bretlandi nota ekki þetta gullna tækifæri i stjórnartiö Reagans og Thatchers og ein- faldlega „hætta að vera fátæk- ir”? Þeir hafa greinilega farið á mis við fagnaðarerindið i Morg- unblaðinu. En vilja Islendingar kynnast Leiftursókninni i framkvæmd? Viljum við færa hingað heim þann veruleika sem einkennir lif alþýðunnar i Bretlandi og Bandarikjunum? Er virkilega svo komiö að meirihluti þjóðar- innar ætli að kjósa yfir sig slika stefnu? þaðer ad Kaupa nyjan Skoda Nonni litli þarf ekki einu sinni að bijóta baukinn sinn og lána þér, því verðið er aðeins frá63.000kr. og greiðsluskilmálamir eins góðir og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa dagana nýi Skódinn og því betra að tryggja sér bíl strax. Fyrsta og eina atvinnuleikhús fyrir börn i heiminum, i Moskvu, hélt nýlega upp á það að flutt hafði verið i nýtt húsnæði. Það flutti úr tiltölulega litlu húsnæði i iniðborginni i gifurlega stór og sérbyggð húsakynni suðvestur- hluta borgarinnar. Nú geta 1200 ungir áhorfendur horft á sýningu i einu i stóra salnum og i Iitla saln- um (sem tckur 320 manns i sæti) verða sviðsettar kammeróperur og haldin sinfóniukvöld fyrir ung- linga. Ráðnir hafa verið til starfa mun fleiri listamenn en áður var. Sem dæmi má nefna að i óperuflokkn- um starfa nú um 50 einsöngvarar. Hinn fjölmenni ballettflokkur er aðallega skipaður dönsurum sem nýlega hafa veri útskrifaðir frá Danslistarskóla Bolsoj-leikhúss- ins. 1 hljómsveitinni starfa nú um 40 tónlistarmenn. „1 leikhúsi okkar starfa þeir sem elska starf sitt, skilja börn og lita á það sem köllun sina að skapa tónlistarsýningar fyrir þau”, segir Nataíia Sats, aðal- stjórnandi, leikhússtjóri og stofn- andi leikhússins. „Gifurlegir Atriði úr nýrri barnaóperu um Rauðhettu eftir Ráhverger. möguleikar opnast þegar leiklist og tónlist eru sameinuð. Ef tón- listarverur eru kallaöar til lifs á sviðinu, ef tónlist, orð og dans eru sameinuð i eina heild, þá skilur það eftir sig djúpt spor i sál hvers litils áhorfanda. Okkar leikhús stefnir að sköpun slikra verka....” Flestar sýningarnar á sýningarskrá leikhússins eru aðeins sýndar hér. Sovésk tónskáld semja ný verk sérstak- lega fyrir þetta leikhús. — (skv. APN).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.