Þjóðviljinn - 06.03.1982, Síða 25

Þjóðviljinn - 06.03.1982, Síða 25
Helgin 6. — 7. mars 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25 , um helgina Kætt um millilandafrumvarpi6. Jón Hjartarson og Emil G. Guö- mundsson, Aöalsteinn Bergdalog Hjalti Rögnvaldsson i Ofvitanum. leiklist Síðustu forvöð að sjá Ofvitann Nú eru allra siðustu forvöð aö sjá sýningu Leikfélags Reykja- vikurá Ofvitanum eftir Þórberg Þórðarson og Kjartan Ragnars- son, þvi að nú eru aðeins tvær sýningar eftir og er sú fyrri á sunnudagskvöldið. Sýningin á Ofvitanum er nú komin i röð allra vinsælustu verka Leikfé- lagsins, sýningar að nálgast 190. Það er höfundur sem leikstýr- ir en i hlutverki Þórbergs eru Jón Hjartarsonog Emil Gunnar Guðmundsson og hlutu þeir á sinum tima einróma lof fyrir túlkun sina. Tónlistin við sýn- inguna er eftir Atla Ileimi Sveinsson en leikmynd gerði Steinþór Sigurðsson. 1 kvöld, er svo Jói Kjartans Ragnarssonar á fjölunum og er uppselt á þá sýningu aö vanda. Revian Skornir skammtar eftir þá Jón Hjartarson og Þór- arin Eldjárn er sýnd á miðnæt- ursýningu i Austurbæjarbiói á laugardagskvöldið en revian var fyrir skömmu endurbætt og ný atriði sett inn. Það er Guörún Asmundsdóttir sem leikstýrir reviunni en margir helstu leik- arar Leikfélagsins taka þátt i sýningunni, þeirra á meðal Gisli Halldórsson, Guðmundur Páls- son, Sigríöur Hagalin, Karl Guðmundsson, Soffia Jakobs- dóttir, Ilarald G. Haraldsson o.fl. ..Gppgjörið” leikið fyrir starfsmenn Landsmiðjunnar. Uppgjörið sýnt 35 sinnum Uppgjörið, sýning Þjóðleik- hússins, hefur nú verið sýnd 35 sinnum á ýmsum vinnustöðum og i skólum og hafa 3.500 til 4.000 áhorfendur séð sýninguna. Höf- undur er Gunnar Gunnarsson, en leikstjóri Sigmundur örn Arngrimsson. Leikendur eru Edda Þórarinsdóttir og Guð- mundur Magnússon, en tónlist samdi Karólina Eiriksdóttir. Sýningin hefur eins og fyrr segir fengið mjög góðar viðtökur gagnrýnenda'og almennings og hafa oft skapast fjörugar sam- ræður að loknum sýningum. Mikil eftirspurn er eftir „Upp- gjörinu” og þeir sem vilja panta sýninguna geta haft samband við skrifstofu Þjóðieikhússins, simi 11204. „Elskaðu mig” í þrítugasta sinn 1 kvöld er 30. sýning Alþýðu- leikhússins á leikriti Vitu And- ersen „Elskaðu mig”. Það hef- ur nú verið sýnt við mikla að- sókn frá þvi i byrjun nóvember. Vita Andersen og verk hennar hafa vakið gifurlega athygli og umræðu allt frá þvi að fyrsta bók hennar kom út 1977. 1 jan- úar sl. gisti hún Island i boði ýmissa félagasamtaka og kom þá i ljós að aðdáendahópur hennarhér á landi er verulegur. Elskaöu mig f jallar um þau Maj og Tom Frank, sem vinna hjá sama fyrirtækinu, en fara siðan að búa saman. Það eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Arnar Jóns- Arnar Jónsson og Tinna Gunn- laugsdóttir i hlutverkum sinum i „Elskaðu mig”. son, sem fara með hlutverkin tvö i leiknum en aðrir, sem að sýningunni standa eru Bjarni Ingvarsson, Dóra Einarsdóttir, Eggert Þorleifsson, Grétar Reynisson og Sigrún Valbergs- dóttir. Sýningin i kvöld hefst kl. 20.30. myndlist Steinunn, Karl og Einar að Kjarvals- stöðum Þann 27. febrúar hófust á Kjarvalsstööum þrjár mál- verkasýningar. Þær standa all- ar til 14. mars. Þeir sem sýna eru Einar llákonarson sem er með málverk i vestursal. Stein- unn Þórarinsdóttir er með skúlptúr og myndverk i vestur- forsal og Karl Júliussoner með myndverk i austur-forsal. Sýningarnar eru allar á sama tima, frá kl. 14 hvern dag til kl. 22. Steinunn Jóhannesdóttir sýnir skúlptúra og inyndverk á Kjar- valsstöðum. (Ljósm. — gel.) Tvær sýning- ar í Ný- listasafni Fimmtudaginn 4. mars voru opnaðar samtimis tvær sýn- ingar i Nýlistasafninu við Vatnsstig 3b. Fyrst er aö nefna sýningu Hollendingsins Robin van Harreveld, sem fékkst fyrr aöallega við kvik- myndagerö en hefur nú siðustu ár stundað ljósmyndun. Verkin sem Robin sýnir nú hafa áður verið sýnd i Galleri Lóu i Amsterdam. Ingólfur Arnarsson sýnir 5 nýleg verk unnin i hin ýmsu efni. Verkin eru hugsuð sem nokkurs konar heild, þar eð þau visa sterklega til hvors annars og tengjast innbyrðis. Þetta er önnur einkasýning Ingólfs hér á landi. Sýningarnar eru opnar dag- lega frá 16—22 og frá 14—22 um helgina. Henni lýkur þann 11. mars. Gullsmiðir í Listmunahúsi i dag laugardaginn 6. mars, vcrður opnuð all sérstæö sýning i Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. Sýning þessi sem heitir „Gengið i smiöju” gefur örlitla innsýn i tómsmiðar gullsmiöa hérá landi. Ætlunin er einnig að koma fyrir i einum salnum vinnuboröi og skiptast gullsmið- ir á um aö sitja þar við vinnu sina fyrir framan sýningar- gesti. Hlutir þeir sem þarna eru sýndir eru almennt ekki til sölu i verslunum gullsmiðanna og gefst þvl fólki gott tækifæri til að eignast myndverk og sérsmiðar sem ekki eru almennt á boðstól- um. öll verkin eru til sölu og er veröverkanna æði misjafnt, allt frá krónum 2.000,- til rúmlega 200.000.- Verkin eru unnin i hin ólikustu efni, svo sem gull, silf- ur, eir, látún, járn, gips og fleira. Þarna er um að ræða lág- myndir, skúlptúra, skartgripi og borðbúnaö. 22 gullsmiðir taka þátt i sam- sýningunni og gefur hún þvi ágæta mynd af þvi sem Islenskir gullsmiöir hafast að ,,á bak við tjöldin”. Sýningin stendur til 28. mars og er opin virka daga frá kl. Karl Júliusson sýnir myndverk að Kjarvalsstöðum. Hér er hann viö ___I__ :__ /I iAem (fol I Ein mynda Einars Hákonarsonar á sýningunni. 10.00 - 18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00 - 22.00. Lokað á mánudögum. Þess má geta að á þessum sama stað, i Lækjargötu 2, var starfrækt um árabil gullsmiða- vinnustofa og verslun Arna B. Björnssonar. tónlist Sinnhofer- kvartett í Bústaða- kirkju Sinnhofer-strengjakvartett- inn þýski leikur á tvennum af- mælistónleikum Kammermús- ikklúbbsins. Fyrri tónleikarnir eru i Bústaðakirkju á sunnu- dagskvöld kl. 20.30 og verða þá flutt verk eftir Werner, Beet- hoven og Brahms. Seinni tón- leikarnir eru á sama staö á þriðjudagskvöld. Ý mislegt í Norræna húsinu Ýmislegt er á döfinni hjá Norræna húsinu um þessa helgi. Lítillega er drepið á bók- menntakynningunni sem verður i dag kl. 16, en einnig má nefna að kl. 14 i dag veröur sýnd sænsk mynd, „Samarnir — ein þjóð I fjórum löndum”. Myndin er 58 minútna löng og er með ensku tagi. A sunnudeginum kl. 14 veröur haldinn fundur i félagi Grafík í Gallerí Lækjartorgi Ingiberg Magnússon opnar sýningu á verkum sinum i dag laugardag kl. 16 i Gallerii Lækj- artorgi. Hann hefur haldið 2 einkasýn- ingar i Reykjavik, ennfremur einkasýningar á tsafiröi, Egils- stöðum og Akranesi, og tekið þátt i fjölda samsýninga, I Dan- mörku, Noregi, Sviþjóð, Finn- landi, Póllandi, Vestur-Þýska- landi og U.S.A.. Myndir Ingibergs eru flestar hverjar grafik, en 9 teikningar verða á sýningunni. Sýningin verður opin virka daga á venjulegum verslunar- tima, laugard. kl. 14 - 18 og sunnud. kl. 14 - 22. Söngflokkurinn „Hrim” leikur og syngur i Norræna húsinu kl. 17 á sunnudag. Tónlist „Hrím” flokkast undirýmsarstefnur, þó mest beri á frumsamdri visna- tónlist. Skoskir og irskir rælar skipa lika öndvegissess i pró- grammi flokksins. Menningar og friðarsamtaka islenskra kvenna. Söngflokkur- inn Hrim flytur visnasöng kl. 17 og á sama tima hefst sænsk litmynd, „Viö erum Samar”. Hún tekur 24 minútur i sýningu, en höfundar hennar eru Birgitta Hedin og Boris Eriksson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.