Þjóðviljinn - 03.04.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.04.1982, Blaðsíða 2
2 SIÐ A — ÞJdÐVILJINN. Helgin 3.-4. aprll 1982. Af miðbœnum Ég hef stundum, svona þegar tími hefur unnist til, verið að lofa guð svolítið fyrir það hvað hann hefur löngum leyft mér að vera í góðu skapi. Ég ætla nú kannske, svona ef ein- hvern tímann hægist um hjá mér, að fara til sálf ræðings eða félagsráðgjafa og fá skýringu á því hvernig á því stendur að ég sofna gjarnan með bros á vör og vakna skellihlæj- andi. Auðvitað hef ég, eins og hugsandi manni sæmir, oft velt því fyrir mér, hvernig standi á þessari dæmalausu léttúð, hvað af henni sé áskapað og hvað meðfætt. Fróðir menn segja mér að ekki sé ástæða til að vera léttur f skapi í þeim táradal, sem tilveran sé, en það hefur nú stundum flökrað að mér, fávísum, að sjálfsagt verði haldið áfram að vinna markvisst að tortímingu mannkynsins, hvort sem ég hlæ eða græt. Ég er fæddur hérna í kvosinni í gömlu Reykjavík fyrir rúmri hálfri öld, hef raunar alið hér allan minn aldur og bý ennþá niðurvið tjörn, og það get ég sagt hverjum þeim, sem hafa vill, að það er ekki mikill vandi að vera í sólskinsskapi, þegar maður ber gæfu til þess að eiga sér aðsetur í miðbænum í Reykjavík. En það eru víst ekki allir jafn ánægðir og ég með það sem síðari tfma sveitamenn hafa fariðað kalla „miðborg Reykjavíkur". Það er alveg með ólíkindum hvað mikið sHráargatið t hland getur hlaupið fyrir hjartað á ólíklegustu mönnum útaf miðbænum. Stundum hefur mér jaf nvel dottið í hug að það væri rakið að stof na til útflutnings á próblemum úr „miðborg Reykjavíkur" og flytja þau þá til Svíþjóðar, þar sem vandamál skapast útaf því að skortur er á vandamálum. Hingað til hefur vandamálaframboðið héðan úr miðbænum að vísu aðallega miðast við innanlandsneyslu. Bara gott eitt um það að segja, því óðum stækkar sú stétt manna, sem hef ur það að atvinnu að leysa þau vandamál, sem menn höfðu áður ekki komið auga á. Það hlýtur að vera meira en lítið skrítið að ég, sem er fæddur hérna í miðbænum, uppal- inn hér og hef alið hér allan minn aldur, skuli andskotann ekki hafa orðið var við neitt af öllum þeim ægilegu og aðsteðjandi vandamál- um, sem sífellt er sagt að búi um sig hérna í miðbænum. öll mín daglegu umsvif eru hér í miðbæn- um; hér bý ég, hér vinn ég, hér versla ég, hér fæ ég mér kaff i á morgnana, hér get ég lent á kjaftatörn, hvenær sem mig langar til, og ef ég nenni ekki að éta heimahjá mér, þá fæ ég mér snarl á einhverjum hinna f jölmörgu mat- staða, sem risið hafa upp í miðbænum uppá siðkastið. Ég ek fram og aftur um miðbæinn, mörgum sinnum á dag, án þess að lenda í „hinu ægilega umferðaröngþveiti" og þeirri „skálmöld", sem lögreglunni verður svo tíðrætt um. Og með hækkandi sól fylgist ég með því hvernig Austurstrætið lifnar við og fyllist af glöðu fólki og fallegu, sem elskar gamla miðbæinn af því hann er eins og hann er, en ekki eins og hann á að vera. Hvað er eiginlega að? Spyr sá sem ekki veit. Á heimleiðinni á kvöldin geng ég eftir Tjarnargötunni og hugsa með mér: „ Hvar eru öll húsin, sem eiga að vera að „grotna niður" hérna í miðbænum?" Sjálfur bý ég í húsi frá aldamótum, og ég veit ekki betur en það sé í fínu standi. Svo þegar ég er að sofna í fína húsinu mínu í fína hverfinu við kvosina í Reykjavík, þá heyri ég óminn af stærsta úti- skemmtistað þjóðarinnar, Hallærisplaninu, þar sem unglingar hittast reglulega þúsundum saman til að daðra, drekka brennivín og vera töff, einsog fullorðna fólkið. Og svo er því haldið f ram að ekki sé líf í miðborginni. Það eina sem þarf að gera hérna í miðbæn- um, er að friða þennan sælureit fyrir sér- fræðingum í próblematík og svonefndum „hagsmunaaðilum" sem sumir hverjir virðast álíta að miðbærinn eigi að vera sérhannaður fyrir þá til að hægt sé að græða þar peninga. Og ef það er nokkuð sem gaeti orðið bænum til gæfu, þá væri það að losa okkur við flug- völlinn, byggja þar mannabústaði fyrir fólk, sem vill búa fyrir neðan snjólínu, og flytja flugið einfaldlega til Keflavíkur, en þar er mér sagtað hægtséað lenda f lugvélum. En þeim sem eru þeirrar skoðunar að aðal- vandamálið við vandamál sé vandamálið sjálft, er hollt að rif ja upp vísuna, sem sál- og sérf ræðingar fara g jarnan með: Ef að hún verður í mér sálin eitthvaðsmærri, vona ég bara að vandamálin verði stærri. Vísnagleðin er söm viö sig. Þegar þaö frétt- ist aö Ólafur Jóhannesson væri búinn aö skipa Benedikt Gröndal sendiherra I Svíþjöð var þetta ort: örlagaþráðinn Óli spinnur, jaldrei stendur hann sina plikt, 'eða hvað hafa Sviar tii saka unnið að sitja uppi með Benedikt? Meö brottför Benedikts af íþingi kemur i hans stað inn á þing Jón Baldvin Hannibalsson eftir aldarfjórðungs baráttu. Þetta var ort i hans oröastaö: Poti hættur pilturinn 'og pólitisku iensi, 'þvi laglega mér læddu inn Láfi Jó og Bensi. Davíð Oddsson ætlar aö verða sein- iheppinn i pólitikinni. Stendur hann ekki upp i borgarstjórn og fer aö bölsótast Ut af bæklingi um skipulagsmál sem borgar- stjóriog Borgarskipulag ætla að dreifa til Reykvikinga. Liklega heföi bæklingurinn farið aö mestu ólesinn hjá garöi ef ekki hefðiveriö vakin á honum þessi athygli. En nú biöa allir Reyk- vikingarspenntir eftir þvi aö sjá „áróöursbækling” meirihlutans 1 skipulagsmálum, og lesa hann sjálfsagt upp til agna fyrir bragöiö. Skrif Siguröar A. Magnússonar vekja ávallt athygli. í Helgar- póstinum síöasta skrifar hann hressilega greinsem hann nefn- ir Aö versla við fjandann og fjallar þar um Helguvikurmálið og önnur skyld mál. Hann segir m.a.: „Samt lifir betlihugarfariö enn góðu lifi meö þjóöinni og kemur þessa dagana hvaö skýr- ast fram I málatilbunaöi þeirra litilþægu Suöurnesjamanna sem vilja láta Bandarikjamenn gefa sér höfn (enda ku fjórir af sjö bæjarstjórnarmönnum i Njarö- vik vera á spena Sáms frænda!) og ekki siður i oröum og æöi þess seinheppna sporgöngu- manns óhappaseggjanna frá 30. mars 1949 sem nú situr i sæti utanrikisráðherra og sveitist blóöinu meö lafandi tungu og lymskufullu glotti viö aö flat- maga einsog lúbarinn rakki fyrir Hollywoodkúrekanum I Hvita húsinu og öllu hans þokkalega hyski. Þessi svo- kallaöi islenski ráðherra, sem i reynd er ekki annaö en hlaupa- tik Pentagons og State Depart- ments, hefur uppá siökastiö varla átt nógu sterk orö til aö niöra þá samráðherra sina sem af veikum mætti leitast viö aö halda I metnaö og reisn rfkis- stjórnar sem mörgum þótti i öndveröu likleg til aö syna meiri manndóm í skiptum viö hið vesturheimska tröilveldi en þær rikisstjórnir flestar sem hér hafa setiö aö völdum eftir striö.” Síðastliðinn miövikudag sýndi sjónvarpiö fyrri þátt um stdriðju á islandi og var hann i formi ljóörænnar tilbeiöslu til fyrirbærisins. Var látið I veöri vaka aö efnahagslif Islendinga væri i kalda koli ef ekki hefði komiö til erlent fjár- magn i stóriðjuna. Var fariö háöulegum oröum um þá „þröngsýnu einangrunarsinna” sem gegn sliku legöust. Stór hluti þáttarins sneristum Kisil- iöjuna viö Mývatnog var svo að skilja að allt mannlif þar I sveit væri henni aö þakka. Mývetn- ingar fengu hins vegar kaldar kveöjur fyrir aö sprengja stifl- una iMiökvisl forðum daga. Var sagt i þættinum aö þar heföu „óbilgjarnir” menn veriö á ferö. Sá sem geröi þennan þátt heirir Baldur Hermannsson og er þaö furöulegt nú á þvi' herr- ans ári 1982 aö nugga salti I gömul sár Laxárdeilunnar. Um daginn var Uthlutað starfs- launum rithöfunda fyrir árið 1982, en eins og kunnugt er byggjastþauá þvi aö söluskatti af bókum er skilað af rikinu i þessu formi. Töluverð óánægja er meö úthlutunina og ekki alltaf taliö aö launin komi þar niður sem mest er þörfin. Úlfar nokkur Þormóösson gaf t.d. út tveggja binda verk i fyrra sem ,seldist upp og hefur þvl skilað vænni fúlgu söluskatts I starfs- launasjóöinn. Auk þess haföi Úlfar ekkert fast starf I allan fyrravetur meöan hann var að skrifa bækurnar. Hann sótti um starfslaun og taldi vist aö hann fengi a.mk. tveggja mánaöa laun en þaö reyndist óraunhæf bjartsýni. Hann er ekki i náöinni. En Úlfar er maður gamansamur og ætlar nú I fjár- hagskröggum slnum aö sækja um styrk úr danska Bjartsýnis- sjóönum. Á byrgir menn hafa af þvi stórar áhyggjur aö landshlutastreitan, hreppapólitikin kljúfi alla flokka i herðar niöur og leggi þá I rúst og viti þá enginn hvað upp snýr og hvað niöur. Þá veröa Blönduflokkar og Steinullar- flokkur syöri og Vettlinga- flokkur eystri en frjálshyggjan frýs úti sem og sósialisminn og framsóknarmiðjan. Viö þessu er eitt ráö: aö gera landiö að einu kjördæmi. Hver flokkur hefur einn lista fyrir allt land. Þá er lika hægt að leysa þann vanda sem fylgir misvægi at- kvæöa. 011 atkvæöi veröa jafn- gild. En að öllu öbreyttu í kjör- dæmaskipan veröur þaö ekki leiðrétt nema með sifelldri fjölgun þingmanna. Sé landið eitt kjördæmi má afturá móti fækka þingmönnum nokkuö. 1 fyrsta áfanga niöur I fimmtiu og tvo. Það fer vel á þvi, þvi aö jafnmargar eru vik- urnar i árinu. Þá mætti lika hafa það þannig aö ekki aöeins fengju listar atkvæði heldur og persónur. Sá þingmaður sem1 flest persónuleg atkvæöi fær - verður þingmaöur jólanna.j Aörir koma svo útfrá honum, og er hver um sig kenndur við til-í tekna viku i árinir. Menn munu ekki lengur segja: háttvirtur annar þing-, maöur Noröurlands eystra eða1 þessháttar. Heldur munu menn segja: Háttvirti þingmaöur fimmtu viku sumars... Að loknu búnaöarþingi tók Þjóð- ólfur, málgagn Framsóknar-; flokksins á Suðurlandi viötal viö nokkra menn sem sátu þingið. Einn viðmælenda blaösins var Jón Kristinsson og fórusthonum m.a. svo orð: ...„Bændur eru komnir á búnaðarþing til þess aö ræða eöa kjafta mál sem þeir þekkja. Þarer talaðog hugsaö á islensku, enda veriö aö fjalla um einn höfuöatvinnuveg þjóðarinnar. En ýmsir þeir sem mesta ánægju hafa af þvi að glamra um islenskan landbúnaf i fjölmiðlum hafa aldrei kunnaö að búa hvorki fyrir sjálfa sig né aðra. Já, þaö hafa ekki allar verið fullar tunnurnar sem mest hefur bulið i.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.