Þjóðviljinn - 03.04.1982, Síða 7
Helgin 3.—4. april 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Ræöa Steinunnar Jóhannesdóttur á útifundi herstöðvaandstœðinga á þriðjudag
BREIÐHOLTI
SÍMI76225
Félagar. Samherjar. Aðrir sem
til mjn heyra.
Ég stend ekki hér i dag til að
segja neitt nýtt. Ég stend ekki
hér til að tala um það, sem þið
hafið aldrei heyrt áður, ég stend
hér til að segja það sama og
hundruð og þúsund og miljónir
manna hafa sagt á undan mér
og eiga eftir að segja, að ég
skelfist tilhugsunina um strið og
biðji um frið.
Einu sinni á ári eru jól, einu
sinni á ári eru páskar, einu sinni
á ári er sautjándi júni, einu
sinni á ári er 30. mars. Allt eru
það dagar, sem menn minnast,
af þvi þá geröust tiðindi, sem
skiptu sköpum fyrir marga. Sið-
an gleðjast þeir eða hryggjast
árlega upp frá því.
t dag er 30. mars, og við erum
hér saman komin til að hryggj-
ast. Til að hryggjast yfir þvi að
30. mars 1949 var samþykkt á
Alþingi tslendinga að farga ny-
yfiriystu ævarandi hlutleysi
hins unga lýðveldis og ganga i
hernaðarbandalagið Nató. Inni i
þessu gráa grjóti ákváðu 37
þingmenn Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðuflokks og Framsóknar-
flokks að láta undan þrýstingi
Bandarikjastjórnar og narra
þjóðina vopnlausa til þátttöku i
voldugasta hernaðarbandalagi
heimsins. Varsjárbandalagið
varð ekki til fyrr en sex árum
siðar sem svar. Gegn þessu
greiddu atkvæði 10 þingmenn
Sósialistaflokksins, tveir Al-
þýðuflokksmenn og einn Fram-
sóknarmaður, en tveir sátu hjá.
Tillaga um að leggja málið i
dóm þjóðarinnar i þjóðarat-
kvæðagreiðslu var felld. Meiri-
hluti islenskra þingmanna var
jafn hræddur við þjóðarviljann
þá og meirihluti spænskra þing-
manna nú þegar svipuð átök
eiga sér stað þar i landi vegna
inngöngu Spánar i Atlantshafs-
bandalagið. Nýlega laus undan
oki fasismans fær almenningur
á Spáni ekki aö láta i ljós vilja
sinn 1 þessu máli nú frekar en
Islendingar árið 1949. Almenn-
ingur er aldrei spurður að þvi
beint,hvort hann vilji hernað og
styrjaldir, af þvi' að þvi hlýtur
hann alltaf að svara neitandi.
Almenningi er alltaf att út í
strið, almenningi er alltaf fórn-
að i striði.
Og 30. mars 1949 tóku 37 þing-
menn ákvörðun, sem hlýtur að
leiða til þess, að islenskum al-
menningi verði fórnað, næst
þegar dregur til tiðinda hér i
okkar heimshluta, nema nægi-
lega margir verði til að breyta
þeirri ákvörðun. Inngöngunni i
Nato fylgdi nefnilega bandarisk
herstöð tveimur árum siðar.
Herstöð, sem dregur að sér
sprengjur óvina Bandari'kjanna
eins og segull og gerir þá sjálf-
krafa að okkar óvinum. Eftir að
við gerðumst svo nánir vinir
Bandarikjanna, glötuðum við
frelsinu til að velja okkar eigin
óvini; i þeim efnum eru það
.bandariskir hagsmunir sem
ráða.
30. mars 1949 er dagurinn,
þegar staðfest var, að nýtt nið-
urlægingartimabil væri hafið i
sögu Islands, þess Islands sem
átti að baki merkilegri frelsis-
baráttu en önnur lönd, vegna
þessaðhún var háðmeð rökum,
með oröum einum að vopni,
þeim vopnum, sem eru sæmi-
ÚRNATÓ
HERINN BURT
legustsiðuðum mönnum. Og við
erum hér saman komin i dag til
að harma þennan slöasta kafla
Islandssögunnar og krefjast
þess að endir verði bundinn á
hann.
En krafan er ekki bara borin
fram af þvi þjóðarstoltið sé
særtj litlar þjófár og fátækar
hafa mikla þjálfun i þvi að þola
langvarandi niðurlægingu af
hálfu hinna riku og voldugu, nei
krafan er borin fram af sifellt
meiri þunga, vegna þess, að
verði ekki umsvifalaust hafin
niðurtalning i vopnabúrum
heimsins, þá munum við öll
deyja. Lika þeir riku, lika þeir
voldugu. 1 næsta sinn förumst
við öll. Þegar geislavirkt regniö
fellur á jörðina eftir kjarnorku-
striö, lognast lifið út af og ekk-
ertverðureftir, ekki einn piltur,
ekki ein stúlka, ekki eitt blóm.
Sá friður sem þá hefur verið
tryggður með vopnavaldi er
friðurdauðans. Hinn eilifi friöur
hins algjöra dauða. Þetta er sú
skelfing, sem mannkynið verð-
ur að fara að horfast i augu viö,
allt mannkynið, ekki bara þeir
óbreyttu, heldur lika leiðtogar
þess, visindamenn og vopna-
framleiðendur, þeir sem kalla
sig eigendur þekkingar, auðs og
valds.Þaðmun ekki verðanein-
um til lifs að loka augunum.
Ég gæti reynt að nefna tölur,
sem bera geggjuninni vitni, sem
altekur þá, sem ráða feröinni.
Ég las i Newsweek að 7 billjón-
um Bandarikjadollara væri
varið til hergagnaframleiðsl-
unnar iheiminum I dag. Það er
stjarnfræðileg upphæð, sem ég
hef ekki skynsemi til að skilja,
allra sist, þegar ljóster að mik-
ill meirihluti barna jarðar býr i
hreysum og sveltur heilu
hungri. Ég skil ekki heldur til
hvers þarf að koma fyrir kjarn-
orkuvopnum í Evrópu i þvilik-
um mæli, að þau dugi til að tor-
tima álfunni og öllum hennar
innbyggjurum 30 sinnum. Eitt
sinn skal hver deyja, það er
staðreynd, sem ég skil, og siðan
taka aðrir við að lifa. En það er
vitfirring að undirbúa mann-
kynsmorð 30, 40 eða 50 sinnum i
öryggisskyni.
Ég skil eitt lif, þetta lif, það
lif, sem tekur konuna niu mán-
uði aö ganga meðog þjóöfélagið
15 - 20 ár að koma til manns og
ég mótmæli af öllum lifs og sál-
ar kröftum, að það megi siðan
sprengja það lif i tætlur á 20 sek-
úndum. Lifið i minum eigin
börnum, eru e.t.v. þau verð-
mæti, sem ég skynja best, og þó
að mig dreymdi um i minni
móðurlegu eigingimi, að þeim
yrði þyrmt eöa þeirra börnum,
þá veitég að það er blekking og
tál. Engu mannsbarni verður »
þyrmt. Þess vegna stend ég hér
nú fyrir framan Alþingishúsið
og vona að orð min berist inn
fyrir þessa þykku múra til Is-
lenskra ráðamanna, sem bæði
eiga börn og barnabörn. Hættið
við fyrirhugaðar framkvæmdir
i Helguvik. Engar fleiri birgða-
stöðvar fyrir eldsneyti á her-
flugvélar, sem æla helsprengj-
um yfir lönd og höf, yfir fólk og
fénað. Þvi þó aö Alþingishúsið
sjálft kynni að standast nift-
eindasprengjuna, þá geriö þið
það ekki. Ekki frekar en við,
sem himum hér úti i vætunni. Ef
þið viljið afvopnun, þá byrjið
hérna heima. Leggið niður her-
stöðina iKeflavik, friðlýsið haf-
ið hér i kring, gerist bandamenn
þeirra, sem berjast friðsamlega
fyrir friði, gerist herstöðvaand-
stæðingar.
ÍSLAND tJR NATÓ.
HERINN BURT.
Friður vopnavaldsins
er friður DAUÐANS
Oýrasti ferðamátinn sumarið 1982
KAUPMANNAHOFN
Fjölmargar gerðir bíla - Ótakmarkaður akstur.
2 vikur 3 í bíl kr. 5.440.- á mann / 3 vikur 5 í bíl kr. 6.503.- á mann,
¥
W S 26900
” Umboðsmenn um alit land
URVAL