Þjóðviljinn - 03.04.1982, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.— 4. aprll 1982.
Hinir frjálsu fjöl-
miðlunarkaplar:
Verða óvarðir
þar til frost
fer úr jörðu
Eins og fram kom í Þjóöviljan-
um i gær eru kaplar þeir sem
Videósón lagði um Breiðholtið
fyrir myndbandakerfi sitt viða ó-
varðirog ófrágengnir. Af þessum
sökum vakti Framf arafélag
Breiðholts III athygli borgar-
innará þessu með bréfi sem dag-
sett var 8. mars sl.
í yfirlýsingu frá Frjálsri fjö!-
miðlun, en það fyrirtæki keypti
Vidéosón 11. mars sl. segir að
fyrirtækinu hafi verið vel kunnugt
um að lagfæra þyrfti kapal við
Krummahóla, en það hafi orðið
að biða eftir þvi' aö frost færi úr
jörö, þannig að hægt yrði að haga
frágangi á sómasamlegan hátt.
Þá segir ennfremur að bréf
Framfarafélags Breiðholts hafi
hyggjast biða vorsins og þess að
frost fari úr jörð, áður en þeir
hefjast handa við að hylja kapla
sina i Breiðholti. Hér má sjá einn
kapalinn, en hann liggur allur of-
an jarðar. Ljósm.gel..
verið dagsett 8. mars, en ekki
móttekið á skrifstofu borgar-
stjóra fyrr en 24. mars og hafi
stjórn Framfarafélagsins ekki
haft samband viö fyrrverandi
eigendur Videósóns eða núver-
andi, en á þann hátt hafi veriö
auðvelt að afla upplýsinga um
frágang á þessum kapli. Svkr.
i Miðstjóm ASl um ástandið í Tyrklandi:
iMótmælir brotum |
| á mannréttindum |
IMiðstjórn Alþýðusambands
islands mótmælti harðlega á
fundi sinum 1. aprii mann-
• réttind abrotum tyrknesku her-
feringjastjórnarinnar og beindi
þeim tilmælum til islenskra
stjórnvalda, að þau létu ekkert
i tækifæri ónotað tii þess að mót-
Imæla á alþjóðavettvangi fram-
feröi tyrknesku herforingja-
stjornarinnar, og styddu alla
■ viðleitni sem stuöíað gæti að þvl
að lýðræði og innanlandsfriði
yrði komiö á i Tyrklandi.
Alyktunin var samþykkt ein- I
róma á miðstjórnarfundinum og I
segir m.a. i henni aö skýrslur •
frá aðilum eins og Norræna J
verkalýðssambandinu og I
Evrópusambandi verkalýösfé- I
laga beri það nú allar með sér ■
að i Tyrklandi eigi sér stað hin *
grófustu brot á mannhelgi og I
mannréttindum og eru þar I
nefndar til pólitiskar ofsóknir, ■
fangelsanir og pyntingar.
Aðalfundur Eimskipafélags íslands:
Nýjung í uppgjöri
á ársreikningum
Aðalfundur Eimskipa-
félags íslands var
haldinn i gær að við-
stöddu fjölmenni.
Halldór H. Jónsson,
formaður stjórnar flutti
skýrslu hennar í upphafi
fundar en Hörður Sigur-
geirsson, forstjóri, gerði
grein fyrir reikningum
félagsins. Það vakti at-
hygli að báðir tóku það
skýrt fram að sú nýjung
hefði verið tekin upp hjá
félaginu að miða árs-
reikninga ársins 1981
ekki við gengi um
siðustu áramót, heldur
14. janúar s.l. Þá var
framkvæmd gengisfell-
ing og varð Eimskip
fyrir 40 milj. kr. gengis-
tapi.
Með þvi að miða við gengi 14.
janúar sl. en ekki gengi siðasta
árs, verður tap á rekstri félagsins
uppá 21 milj. kr. og höfðu þá veriö
afskrifað fyrir 48 milj. kr. En ef
miöaö hefði verið viö gengi
siðasta árs hefði verið hagnaður á
rekstri félagsins, samkvæmt
þessuuppá 19milj. kr. Siöan segir
Miða ekki við
áramót, heldur 14.
janúar sl., þannig
fæst 20 milj.kr. tap
á rekstrinum, annars
20 milj. hagnaður.
i fréttatilkynningu frá félaginu,
að tapreksturinn komi til af þvi að
ekki fékkst að hækka farmgjöld
nægilega á fyrri hluta ársins 1981.
Rétt áður i fréttatilkynningunni
er sagt frá þvi að ef miðað hefði
veriö við gengi 31. des. 1981 hefði
orðið hagnaður af rekstri félags-
ins.
Enda segir svo stuttu siðar i til-
kynningunni að fjárhagur félags-
ins sé traustur, heildareign i árs-
lok 1981631 milj. kr. en skuldir 450
milj. kr. Eigið fé 181 milj. kr.
Skip félagsins sigldu 1.254.471
sjómilur á siðasta ári, eða sem
svarar 58 ferðum umhverfis
hnöttinn. Viðkomur voru 2688i 264
höfnum, innanlands og utan.
Flutt voru 646 þús. tonn með
skipum félagsins og er það álika
magn og árið áður. Starfsmenn
félagsins 1981 voru að meðaltali
830 og námu launagreiðslur 136
milj. kr.
Heildartekjur félagsins á árinu
námu 547 milj. kr. sem er 53%
aukning frá árinu áður.
— S.dór
Tillaga Kristjönu Millu Thorsteinsson:
Eimskip selji hlut !
sinn í Flugleiðum |
1 fyrra lagði Kristjana Milia
Thorsteinsson til á aðalfundi
Eimskips að félagið seldi
eignarhluta sinn i Flugleiðum
h.f. sem er uppá 6,8 miljónir kr.
! Samþykkt var þá að visa tillög-
L* unni til stjórnar félagsins til
meöferðar, og siðan hefur
ekkert gerst i málinu þar tii á
aðalfundinum i gær.
Þá lagði Kristjana Milla fram
á ný og þar er gert ráð fyrir að
Eimskip selji 75% hlutabréfa |
sinna i Flugleiðum h.f. .
— S.dórj
r < tst jórwararei n
F riðarhreyf ing
og tillagnastríð
Enginn þarf lengi aö leita að
útskýringum á þvi', að friðar-
hreyfingar eflast allt um
kring. Menn vilja lifa. Þeir vilja
ekki fjölga þeim alltof mörgu
möguleikum sem nú eru á því að
slys, mistök eöa þá ævintýra-
mennska i leik að atómeldi
hleypi heimsbyggðinni i bál og
brand. Menn vilja rjúfa þann
vitahring sem vigbúnaðarkapp-
hlaupiö skrúfar sig upp eftir.
Menn eru slegnir ótta.
í fýlu
Frá ritstjórnarskrifstofum
Morgunblaðs, Dagblaðsvisis og
Alþýðublaðs hefur margt verið
skrifaö gegn friðarhreyfing-
unum. Ef ekki er látið aö þvi
liggja að þær séu á snærum
höfuðóvinarins þá eiga þær aö
vera samtök sérgóðra manna og
skammsýnna, huglitilla manna
sem ekkert vilji á sig leggja
fyrir frelsið dýra.
Hitt gæti svo vel verið að við
megum senn búast við nýjum
tóni i tali jafnvel svo herskárra
og gallharöra ritstjóra sem
þeirra er fyrr voru nefndir. Þeir
hafa til þessa mestan part verið
að endurspegla megna óánægju
bandariskra ráðamanna með
evrópskar friöarhreyfingar: úr
búðum Reagans i Washington
hefur andað mjög köldu i garð
evrópskra friðarmanna og allra
stjómmálamannasem hafa ljáö
þeim eyra. Þar er óspart látið
að þvi liggja að Evrópumenn
Sovétmenn
.treysta lítt á
ö|bod Reagans
%
M
fjnU er haldiaa er •* kr«Mla(L
Hörmulegar afleiðing-
ar ef stríð brytist út nú
séu huglitlir og reyndar van-
þakklátir: eru það ekki við sem
höldum yfir ykkur kjarnorku-
regnhlifinni góðu? En svo
bregðast krosstré sem önnur:
friðarhreyfingin er komin
vestur um haf og breiðist svo ört
út, að stjórnmálamenn telja sér
skylt að bregðast við, meira að
segja Reagan verður að smiða
einhverjar tillögur til að reyna
að sefa þegna sina, eins og lesa
mátti I fregnum i gær.
Ný hreyfing
í itarlegri frásögn sem banda-
Árni
riska vikuritið Time var að
birta af hinni nýju bandarisku
hreyfingu gegn kjarnavopnum
er lögö nokkur áhersla á það aö
hún sameini ólikustu öf 1 og verði
fráleitt talin vinstrihreyfing i
þeim anda sem hreyfingin gegn
Vietnamstriðinu var á sinum
tima. Kirkjunnar menn, mót-
mælendur sem kaþólskir, eru
mjög áberandi i' þessari hreyf-
ingu og gera sig liklega til að
gera hana aöhelsta siðferðilegu
afli þess áratugs sem við nú lif-
um. Kaþólskir prelátar, eins og
Matthiesen erkibiskup i Texas,
ganga svo langt að stofna sjóði
til stuönings verkamönnum sem
vilja hætta störfum i verksmiðj-
um sem smiða kjarnorkuvopn
af siðferöisástæöum. 1 annan
stað bendir Time á það, að
hreyfingin er mjög vel búin sér-
fræöingaþekkingu. Þar eru
framarlega i flokki menn sem
hafa árum saman starfað að
hönnun kjarnorkuvigbúnaöar
og að þvi aö smiða kenningar
um það hvernig megi nýta þau I
pólitiskum tilgangi eða öðrum.
Einn helsti atkvæðamaður i
þeirri upplýsingaherferð sem
nú er farin um Bandarikin er
Roger Molander, sem á árunum
1974—81 var kjarnorkuvíg-
búnaðarsérfræöingur i öryggis-
ráöi rikisins i Hvlta húsinu. Og
eins og Time segir — „aðal-
markmið hreyfingarinnar er að
veita almenningi sannar upp-
lýsingar um það hvað styrjöld
nú um stundir þýðir fyrir
Bandarikin og heiminn allan og
skapa með því þrýsting á her-
skáa rikisstjórn um að hún
semji um niðurskurðá atómvig-
búnaði við Sovétrikin”.
Orð fara á milli
Það er i ljósi þessa sem ber
aö skoða fregnir af ræöu Rea-
gans um nauðsyn þess að semja
við Rússa um frystingu svokall-
aða — um að sett veröi þak á
fjölda kjarnorkuvopna og helst
lægra en það sem nú er risiö.
Morgunblaöið segir frá þessu á
forsiðu með mikilli fyrirsögn úr
ræðunni: „Hörmulegar afleið-
ingar ef striö brytist út nú”.
Litilþægnin er söm við sig á þvi
blaði — þaö er engu likara en
enginn hafi vitað þessi einföldu
sannindi fyrr en Reagan tók til
máls! Reyndar er það svo, að
Bergmann
skrifar
frá þvi I nóvember hefur staðið
milli Reagans og Brésnefs til-
lagnastrfð: þeir hafa skipst á
um tillögur um einhverskonar
núlllausnir eins og þær eru
nefndar: nú htætti ég viö þessar
eldflaugar ef þú pakkar saman
þinum. Slðast bauðst Brésnjef
til þess á þingi sovéskra laun-
þegasamtaka að hætta við upp-
setningu fleiri SS—20 eldflauga
og taka eitthvaö niður af þeim
sem upp eru komnar. Þetta til-
lagnastriö fylgir ákveöinni for-
múlu að þvl er best verður séð:
andstæðingurinn svarar dræmt
i fyrstu, véfengir vopnatalningu
og samanburöarfræði hins — og
kemur svo með eigin svar —
tillögur eftir nokkurt þóf. Vit-
anlega er þétta áróðursstrið
öðrum þræði. En það er um leið
annað og meira: ráðamenn
risaveldanna eru undir þeim
þrýstingi aö þeir eru neyddir til
að sýna lití afvopnunarmálum.
Veigamikill hluti þess þrýst-
ings hefur komið frá þeim
friðarhreyfingum, fjölmennum
og fjölskrúðugum, sem blaða-
grannar okkar borgaralegir
hafa fjallað um af mestu fyrir-
litninguaðundanförnu. Þessum
þrýstingi heldur áfram og von-
andi á hann eftir að bera miklu
áþreifanlegri ávöxt. Alltént er
það skárra aö heyra Reagan
tala eins og hann dttaöist „hin
hræðilegu og ómannúðlegu vopn
sem framleidd eru i dag” — en
að hann glopri því út úr sér að
vel kynni að vera mögulegt að
heyja takmarkað kjarnorku-
strlö i Evrópu. Orð eru til alls
fyrst —en hitt er svo vist, að
efndirveröur aðsækja i greipar
valdhafanna með þrautseigri og
langvinnri baráttu.
AB