Þjóðviljinn - 12.06.1982, Síða 4

Þjóðviljinn - 12.06.1982, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Hélgin 5.-6. júnl 1982 stjórnmál á sunnudegi f Jj Lúðvík Jósepsson skrifar f Abyrgðarlaus málflutningur Mönnum er skiljanlega tiörætt um mikil umbrot á vinnu- markaði, sem nú eiga sér stað. Fjölda-uppsagnir hafa komið til og af þeim ástæöum hefir þurft að loka nokkrum stofnunum um tlma. Ekki fer á milli mála, að mikil óánægja er ríkjandi i hópi launa- fólks um þau launakjör, sem i gildi eru. Hinn stóri hópur Alþýðusam- bandsfélaga er með lausa samn- inga og hefir þegar lýst yfir byrj- unarverkföllum. Opinberir starfsmenn hafa nýlega þingað um sin kjör og krefjast verulegra kauphækkana. Bankamenn eru með lausa samn- inga og sjómenn eru með marg- vislegar kröfur um bætt kjör. Það er mikil skammsýni að ætla að taka þessari miklu og al- mennu óánægju launafólks með þvermóðsku og skilningsleysi. Hin gömlu þrjóskuviðbrögð Vinnuveitendasambandsins duga ekki. Og stjórnvöld sem kröfu- gerðin einnig mæðir á, geta heldur ekki látið sem allt sé i lagi og engu megi breyta. Hitt er rétt, að staöan til al- mennra breytinga á launakjörum er ekki hagstæð, eins og nú standa sakir. Þjóðarframleiðslan minnkar sennilega á þessu ári og að kreppir i mörgum greinum m.a. vegna siversnandi ástands i flestum löndum i okkar heims- hluta. En hvers vegna er þessi al- menna og mikla ólga i hópi launa- fólks? Og hvers vegna eru kröf- urnar hinar háværustu i þeim launahópum, sem búa við skástu launin? Aðdragandinn og þáttur Sjálfstæðisflokksins öllum eru enn i fersku minni hin hörðu átök um launakjörin, sem urðu á árinu 1978 — árinu þegar rikisstjórn Geirs Hall- grimssonar og ólafs Jóhannes- sonar var að liðast i sundur. Rikisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafði á árunum 1975—1977 knúiö fram almenna launalækkun sem nam rúmum 20%. A miðju ári 1977 endurheimtu launamenn, með nýjum kjara- samningum, sin fyrri launakjör. Við það vildi rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar ekki una 1978 og setti lög i febrúarmánuði sem af- námu að verulegu leyti visitölu- bætur á laun. Gifurleg reiöi-alda reis og af þvi var lögunum breytt i mal 1978, en þó stóðu eftir áhrifa- mikil ákvæði um visitölu- skerðingu allra launa. Á þessari lagasetningu féll ihalds-Framsóknarstjórnin 1978 öðru fremur. Þá var rætt um samningana I gildi. Ný rikisstjórn tók við og hún afnam kaupskerðingarlög Geirs og Ólafs. Hún setti þvi samning- ana I gildi. Sú ein breyting var gerð frá fyrri samningum félaganna, að prósentvis hækkun verðbóta hélt ekki áfram upp eftir öllun launa- skalanum. Samningar yfirgnæfandi meiri- hluta launafólks voru settir I gildi.þaö var mergurinn málsins. En þrátt fyrir þessa staðreynd hefir Morgunblaðið og öll ihalds- forystan þrástagast á þeim ósannindum, aö Alþýðubanda- lagið hafi svikist um að setja samningana i gildi. Og ósanninda-áróðurinn um „samningana I gildi” hefir haldið áfram i Morgunblaöinu allan timann siðan, ekki i einu formi, heldur I margvislegum myndum. öll árin 1979, 1980 og 1981 hefir ihaldspressan klifað á þvi, að vinstri flokkarnir hafi svikið launafólk. 1 hvert sinn sem niðurgreiðslur á vöruverði hafa verið auknar, hafir Morgunblaðiö talað um vlsi- tölusvindl, um aö verið væri að ræna launafólk. Morgunblaöið og allir helztu áróðursmenn Sjálfstæðisflokks- ins hafa f sifellu endurtekið, að Alþýðubandalagiö og forystu- menn I verkalýðshreyfingunni hafi haft af launafólki réttmæt laun og skert kaupmátt launa á þessum árum um 25—30%. Þessar fullyrðingar hefir Morgunblaðið feitietrað marg- sinnis eftir Geir Hallgrlmssyni, þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins, eftir Magnúsi L. Sveinssyni, verkalýðsleiðtoga Sjálfstæðis- flokksins, og eftir Guömundi H. Garðarssyni og ýmsum fleirum. í seinni tíð hefir Morgunblaðiö hamraö á þvi, aö visitalan væri röng, grundvöílur hennar úreltur o.s.frv. og öll átti sökin aö vera verkalýðsforystu Alþýðubanda- lagsins að kenna. Af þessum áróðri öllum heföi mátt halda, að Sjálfstæðisflokk- urinn væri orðinn eini málsvari launafólks og Morgunblaðiö þar fremst I flokki. Þessi áróöur útbreiddasta blaðs þjóðarinnar, með stuöningi nokkurra krataforingja og Dag- blaðsins og VIsis, hefir vissulega haft sin áhrif I samtökum launa- fólks, og ekki slzt i hópi ýmissa sérmenntaðra starfshópa og þeirra sem jafnan hafa búið við beztu kjörin. Ekki dettur mér þó I hug að halda þvi fram, að öll ólgan i samtökum launafólks stafi af þessum ábyrgöarlausa ihalds- áróðri. Þar kemur fleira til, m.a. eölilegar og nauðsynlegar leið- réttingar á töxtum. Þróun launamála s.l. 3 ár Þvi fer að visu fjarri, að þróun launamála, hafi á liðnum 3 árum veriönægilega góð, eða með þeim hætti, að launafólk geti veriö ánægt og þvi megi allt standa óbreytt. A þessum 3 árum hefir oltiö á ýmsu. Þegar ólafslög voru sett i apríl-mánuði 1979 voru verðbætur á laun skertar all-verulega. Þá skerðingu knúðu kratar og Fram- sókn I gegn og hótuðu stjórnar- slitum aö öðrum kosti. Sjálf- stæðismenn heimtuöu enn meiri skeröingu og eggjuðu Framsókn til athafna. Alþýðubandalagið eitt stóð á móti skerðingarákvæðunum og Alþýðusambandið mótmælti. Morgunblaðið talaði máli Vinnuveitendasambandsins eins og alltaf og vildi margfalt meiri skeröingu á visitölureglum. En Alþýöusambandið knúði meö liðstyrk Alþýðubandalagsins fram grunnlaunahækkun siðar til þess m.a. að vega upp á móti skerðingarákvæöum Ólafslaga. Þrátt fyrir erfiöar ytri aöstæöur, hefir Alþýðubanda- laginu tekist með stjórnarþátt- töku sinni og verkalýössam- tökunum meö afli sinu, að tryggja þvi sem næst óbreyttan kaupmátt launa á liðnum 3 árum. 1 skýrslu Þjóöhagsstofnunar frá marz 1982 segir m.a. eftir- farandi um þessi mál: ”Á þvl nær þriggja ára tlmabili, sem taflan tekur til, hefir fram- færsluvisitalan þannig hækkað um 262%, eða 28% meira en veröbótavisitalan, sem hækk- aði um 182%. Grunnkaups- hækkanir vega að nokkru upp á móti þessum mun, en þær námu að meðaltali um 18% frá miðju ári 1979, heldur meira hjá launþegum innan ASÍ, eða 19,7%, en 14.3% hjá opinberum starfsmönnum. I meðfylgjandi töflu eru sýndar tölur um kaup- mátt kauptaxta eftir árs- fjóröungum. Þar kemur fram, að kaupmáttur taxta launþega innan ASl hefir verið næsta stöðugur undanfarin tvö ár og ársmeðaltalið 1981 er raunar svipað og 1980. Að meðaltali rýrnaði kaup- máttur kauptaxta allra laun- þega um 1% milli áranna 1980 og 1981. Samkvæmt tölum Kjararannsóknarnefndar fyrir fyrra helming ársins 1981 var hækkun greidds tlmakaups hjá launþegum innan ASt um 2% umfram hækkun kauptaxta, mest hjá verkakonum 3-4%, minnst hjá verzlunarfólki innan við 1%. Þótt ekki liggi fyrir tölur um slðustu tvo árs- fjórðunga ársins 1981, virðist mega ætla, aö talsverðs launa- skriðs hafi gætt á siðasta ári, einkum á höfuöborgarsvæðinu. Með hliösjón af þessu er taliö, aö dagvinnutekjur hafi i fyrra hækkað um 52% að meöaltali, samanborið við 49% hækkun kauptaxta”. Þetta er umsögn Þjóöhags- stofnunar um kaupmátt kaup- taxta á liðnum 3 árum. Um kaupmátt ráðstöfunar- tekna á mann, þ.e.a.s. þeirra tekna sem menn höfðu úr að spila.gefur Þjóðhagsstofnun upp þessar tölur: Artöl: Stig árið 1975 ............... 130 árið 1976 ............... 133 ár Geirs Hallgrimssonar árið 1977 ............. . M9 nýir samningar árið 1978 ............... 161 samningarnir settir i gildi árið 1979 ............... 164 árið 1980 ............... 162 árið 1981.................167 s.l. 3ár Hver voru svo ytri kjörin, aöstæöur I viðskiptakjörum? Viöskiptakjör: 1976 ............ 101,0 1977 ............ 109,2 1978 .............109,4 1979 ............. 96,4 1980 ............ 92,4 1981 ............. 92,4 Sem sagt, við versnandi við- skiptakjör hefur tekist að auka nokkuð kaupmátt ráðstöfunar- tekna, halda uppi fullri atvinnu og stórauka ýmis félagsieg réttindi launafólks. Þetta er ekki sagt til að miklast af, heldur til að benda á hvflíkur lygaflaumur hefir ruðst fram i Morgunblaðinu og hvers konar ósanninda-vaðall hefir veri I full- trúum Sjálfstæöisflokksins, sem mest hafa talað um svik Alþýðu- bandalagsins og verkalýðsforyst- unnar. Það er rétt að kaupmáttur kauptaxta ýmissa starfshópa hefir minnkað nokkuö. Heildar- tekjurnar eru lika misjafnar. Þessi árangur, sem náðst hefir i harðri andstöðu við Vinnuveit- endasambandið og stuðningsaðila þess I Sjálfstæðisflokknum og Morgunblaðinu, og sifelld ánauö Framsóknar og tillögur krata um launalækkun, er þrátt fyrir allt umtalsverður. Hann dregur þó á engan hátt úr réttmæti þess, að lagfæra kaup- taxta ýmissa aðila og taka tillit til nýrra aðstæðna og m.a. til þess að ýmis störf hafa lengi verið skammarlega lágt launuð, m.a. vegna þess að konur hafa aðal- lega unnið þau. Hvað myndi Sjálfstæðisflokkurinn gera, ef hann hefði völdin? Það er vissulega fróðlegt fyrir launafólk að reyna að gera sér grein fyrir hvað Sjálfstæðisflokk- urinn myndi gera nú 1 launa- og kjaramálum, ef hann heföi völdin. Samkvæmt yfirlýstri stefnu hans myndi hann m.a. gera þetta: 1. Afnema visitölubætur á laun. 2. Gefa alla verzlunarálagningu frjálsa. 3. Hætta öllum niðurgreiöslum á vörum og hækka þar með kjöt og mjólk um nær helming. 4. Gefa alla vaxta-ákvörðun frjálsa og hækka þar af leiðandi vexti um helming. 5. Skera niður framkvæmdir og minnka verulega félagslega þjónustu. 6. Efnahagsstefnan yrði svipuð þeirri, sem rekin er i Bretlandi, og hiyti óhjákvæmilega að leiða til atvinnuleysis. Hér skal ekki fleira talið upp, en margt fleira tilheyrir leiftur- sóknarstefnunni. Og hvað myndi Morgunblaðið segja þá? Það segði eins og Vinnuveit- endasambandið, — kaupið verður að lækka, þjóðartekjurnar minnka, áföll i þjóðarbúskapnum o.s.frv. Launamenn — gætiö vel að stöðu ykkar Allir þeir, sem nú standa með opna kjarasamninga og sækja á um lagfæringu á kjörum, verða að lita vel i kringum sig. Þeir veröa að meta allar kringum- stæður af skynsemi og læra að þekkja vini og stuðningsmenn, frá ábyrgöarlausum áróðurs- mönnum sem i reynd eru fjand- menn réttlátra launakjara. Leiðiö ekki Ihaldsöflin til valda i landinu. Trúið ekki á tviskinnungstal Morgunblaðsins. Kapphlaup og metingur milli einstakra starfshópa er fráleitur og hættulegur. Endurskoðun kjarasamninga á fullan rétt á sér. Ýmsir launataxtar eru fráleitir og þeim á að breyta. Nýjar að- stæður hafa skapast frá þvi að siöast var samið og störf hafa tekið breytingum. Þó blikur séu á lofti i efnahags- málum og óhjákvæmilegt sé að taka tillit til þeirra, þá er fráleitt að neita öllum breytingum á eldri launasamningum. Rikisstjórnin verður að sýna sveigjanleik og skilning. En launafólkiö á lika aö meta allar aðstæður og tryggja það sem mest er um vert, fulla at- vinnu og öruggan kaupmátt. Kenningarnar um að allt verði að gera til að kveða niður verð- bólguna, eru falskenningar. Minni verðbólgu má ekki kaupa meö atvinnuleysi og almennum samdrætti i þjóðarframleiöslu. Keppikeflið i efnahagsmálum er: full atvinna, vaxandi þjóðar- framleiðsla, öruggur kaup- mátturrþetta þarf að nást fram meö minnkandi verðbólgu, sá kostur væri að sjálfsögðu beztur. Ólgan á vinnumarkaði er stað- reynd, sem stjórnvöld verða að taka fullt tillit til. Samstarf stjórnvalda og launafólks er grundvallarskilyrði fyrir far- sælum árangri. Keppikeflið I efnahagsmálum er full atvinna, vaxandi þjóöarframleiðsla og öruggur kaupmáttur. r

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.