Þjóðviljinn - 12.06.1982, Side 7
Helgin 12.-13. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Listahátíðin hefst
Ekki gaf drottinn allsherjar
veöriö nógu gott til þess aö nýi
borgarstjórinn okkar Davið
Oddsson opnaöi Listahátiö.og var
ekki af þvi aö Daviö heföi ekki til
þess heilsu, fyrir fjórum árum
sýndi hann að hann heföi atgerviö
til þess arna ásamt Sigurjóni Pét-
urssyni þegar þeir opnuðu hátiö-
ina meö ræðum i leiöindaveðri aö
Kjarvalsstöðum, og voru hafðir
tveir einir úti i rigningu viö þá at-
höfn og roki; en gestirnir inni i
skjóli.
Siðan linnti skúrinni, og þá
komu þýzkir leikarar á stultum
yfir túniö, likt og forsögulegir
vaðfuglar, og spigsporuðu fegnir
Thor Vilhjálmsson skrifar:
þvi hve brýnt er að létta af góöum
listamönnum tætingslegum snöp-
um eftir peningum til framfæris
sér og sinum, og nýta gáfur
þeirra og atgervi til aö skapa list.
Silkitromma
Atla Heimis
Sjálf hátiöardagskráin byrjaöi
meö glæsibrag, þar sem var
ópera Atla Heimis Silkitromman,
og snerist strax upp i sigurhátiö
tónskáldsins og hinnar frábæru
sveitar söngfólks og tónlistar-
manna sem túlkar listaverk tón-
skáldsins meö trúnaöi og miklum
tilþrifum undir stjórn Gilbert
Levine og Sveins Einarssonar.
Augnagleði var' aukin rausnar-
lega af Helgu Björnsson úr
heimssmiöju tizkunnar i Paris,
sem varð hvorki Paris né Þjóö-
leikhúsinu okkar til skammar og
notar skæra liti á nútimavisu svo
sem tiökaðist i Noheföinni fornu
einsog þaö aö nota gull og silfur.
Og Sigurjón leiktjaldahönnuður
sem aldrei bregzt, þaö gerði
Magnús Tómasson viö eitt verka sinna á sýningunni á Kjarvalsstööum.
HELGARSYRPA
um sýningarsalina með mann-
hafið upp á miöja leggi.
Það var ekki taliö óhætt aö fara
út i loftrakann núna af þvi aö Sin-
fóniuhljómsveitin átti að spila
meö hljóöfæri sem ekki þola
nema einmuna tiö úti. Guð al-
máttugur átti reyndar þess konar
veöur handa okkur daginn áður,-
en sparaöi þaö opnunardaginn til
seinni tima.
1 staðinn mun hafa verið sýndur
skjólgóður ullarfatnaður á
Lækjartorgi,sem er ómissandi á
útihátiðum á tslandi. Klukkunni á
Lækjartorgi haföi lika verið kom-
iö i lag, og kunnu rosknir borgar-
búar vel aö meta að þurfa ekki aö
lita upp á bankann eftir snældu-
klukkunni; sem alltaf snýr andliti
sinu frá þegar manni liggur á.
Hún er þó skárri en klukkan á
Hallgrimskirkjuturninum, þú
verður að fara með lyftunni upp I
turninn til aö sjá á hana; þó veld-
ur hún sifelldu ónæöi i hverfinu og
gerir menn taugaveiklaða meö
þvi aö slá á kortersfresti i ótima I
staðinn fyrir aö vera til friðs eftir
allt rifrildið um kirkjubygging-
una.
Ég held aö veðrið hafi verið
sosum skaplegt þó það hentaði
ekki sinfóniuhljómsveit og heföi
mátt fá hann Stefán frá Möðrudal
með harmonikkuna i staöinn, og
bjóða upp i dans milli sýning-
anna? I staöinn kom Njarövik for-
maður og sagði ekki unnt aö setja
þessa hátiö sökum raka, og hófst
hún þvi óhelguð.
1 sóldýröinni daginn áður
voru sýningar opnaöar aö Kjar-
valsstööum. Þar var afraksturinn
af mikilli ogvandaöri vinnu Gylfa
Gislasonar myndlistarmanns
sýndur; sem hafði lagt nótt viö
dag með hjálparliöi til að gera
skemmtilega og fróðlega hug-
vekju um feril og þætti I þróun Jó-
hannesar Kjarvals. Gylfi hefur
raðað ljósmyndum af málverkum
Kjarvals á fleka og myndum úr
bókum sem hafa komið út um
Kjarval meö gagnoröum skýring-
artextum og visbendingum sem
mætti veröa til fyrirmyndar um
framhaldskönnun og kynningu
stofnunarinnar sem ber nafn
meistarans. Með honum i þessu
starfi voru Þóra Kristjánsdóttir,
hinn ötuli listræni forstjóri húss-
ins, og Jóhannes sonarsonur
Kjarvals, auk Hilmars Einars-
sonar bókbandsmeistara. Og
, þarna er lika vel rööuö sýning á
málverkum Kjarvals úr eigu
borgarinnar.
Þarna er lika gullfalleg sýning
eftir Magnús Tómasson þar sem
sameinast fagurt handbragö
og ismeygileg lýrikk. Meö
sýningunni sannar Magnús ræki-
lega aö það var rétt ákvöröun aö
veita honum árslaun til starfs á
vegum hússins. Þeim peningum
er vel varið og full ástæöa til að
athuga hvort ekki ætti aö endur-
ráða hann, eða útvega listamann-
inum annarsstaöar árslaun. Þessi
töfrandi sýning er sönnun fyrir
hann ekki heldur hér en hélt aftur
af sér til að draga ekki úr áhrifum
búninganna og haföi bara á sviö-
inu það sem brýnast þurfti. Eftir
svona kvöld fer maður glaöur og
stoltur heim,og bjartsýnn. Ég get
ekki stillt mig um að lýsa hrifn-
ingu minni á frammistööu Guö-
mundar Jónssonar og afreki hans
sem fer inn á ný sviö i list sinni og
flytur erfiöa tónlist ógleyman-
lega, og veröur manni lika eftir-
minnilegur sem sviðspersóna. En
dýpst snart söngur ólafar Kol-
brúnar Harðardóttur og Guð-
mundar i lokaþættinum* og þar
held ég aö tónlist Atla nái lengst,
dýpst þar sem persónurnar
syngja báðar en syngja þó sig
ekki saman heldur hvor fram hjá
annarri.
Vist er Atii glúrinn; ég má þó til
aö hafa orð á þvi hvaö mér finnst
hann hafa verið fundvis á sögu-
efni sem hann fann i gömlum
japönskum No-leik frá 14. eöa
upphafi 15. aldar, og nýtir á sinn
hátt ásamt textahöfundi sin-
um. Hvaö þýöir No? Þaö mun
tákna að geta eitthvað eða hæfi-
leika. Þetta er leiklist sem þró -
aðist upp úr hefðbundnum döns-
um, og blómstraði á 14. öld undir
vernd voldugs herstjóra eða sho-
gun, sá hét Yoshimitsu, og var
upphafsmaður aö langvinnu veldi
ættar sinnar sem nefnist Ashi-
kaga, og vernd þeirrar ættar réö
úrslitum um uppgang þessarar
listgreinar sem var ræktuö viö
hirð þeirra, og þróaöist frá alþýö-
legum uppruna og einfaldleika I
það að veröa stilfáguö og háþróuð
hirölist sem laut ströngum lög-
málum um efni og efnistök og
framsetningu. Þar áttu drýgstan
þátt feðgar gæddir snilli Kanan-
imi Kiyotsugu og sonur hans
Zeami Motokiyo ( 1363—1444).
Hinn siðarnefndi er talinn höf-
undur að 200 leikjum, og ennþá
eru 124 verk hans varöveitt og
flutt i Japan.
Zeami samdi Silkitrommunat
sem á japönsku heitir Aya no
tsuzumi.
Hin fræga Kabuki-leiklist sem
oft er nefnd i sömu andránni og
No-listin kemur mikiu siðar til
sögunnar og blómstrar á 16. öld,
afsprengi sins tima. Hún sækir
stundum efni i hina langvinnu
valdabaráttu tveggja ætta Taira
og Minamoto sem sigraöi að lok-
um. Kabuki er aö sumra hyggju
hið fullkomna allsherjarleikhús
sem oft hefur boriö á góma I sam-
bandi viö óperu Atla þessa dag-
ana, ósundrandi samruni. söng-
listar og dans i hnitmiöuöum
leikstil, sem nærir auga og eyra i
senn; Ka þýöir söngur og Bu dans,
og er runnið frá kinverskum
táknum sem mjög voru tiökuð á
16. öld i Japan; Ki táknar leikni
eöa leikbragö. Þaö eru tii á fjóröa
hundrað Kabuki leikrit sem verið
var aö semja fram á 19. öld; og
reis hæst i verkum Chikamatsu;
hann lifði framá 18. öld, og var af
sumum kallaður Shakespeare
Japans.
Úr Silkitrommunni eftir Atla
Heimi.
Silkitrommuna fann Atli i flug-
höfninni i New York i heillavæn-
legu fáti, þannig ráöast örlög
stundum; og segir frá þvi sjálfur
aö hann hafi gripið kver með
nokkrum No-leikjum sér til við-
urværis i loftinu.og hugljómaði af
þessu á fluginu.
Þaö eru ekki nema þrjár
persðnur i forna leiknum eftir
Zeami auk kórsins; sem hefur
svipað hlutverk eins og i grisku
leikjunum að rekja og skýra sög-
una og koma á framfæri skáldleg-
um viöhorfum til þess sem er að
gerast. Þar er hirömaöur sem
hefur söguna, og segir frá göml-
um garöyrkjumanni sem sópar
stigana i hallargarðinum viö lár-
viöartjörnina þar sem hátignirn-
ar reika sér til yndis? og sá þá
prinsessu. Og siöan hefur hann
unnaö henni af friðlausu hjarta.
Og verður ekki rakiö frekar nema
þegar silkitrumban hljómar ekki
steypti sá gamli sér i örvæntingu
sinni i lárviðartjörnina. Eins og
tiðkast mjög I No-leikjum gengur
hann aftur; tókst ekki betur til en
svo aö draugur hans hljóp i
prinsessuna reiöur; og tryllir af
henni vitið, og talar gegnum
hana, og á kvöldkyrri tjörninni
reis alda og úr þeirri öldu talaöi
rödd; og þaö er rödd gamla
mannsins sem smám saman birt-
ist, og kemur eftir sviösbrúnni
hashigahara meö djöflagrimu og
öldur beiskjunnar hafa skolað
mér aftur upp á ströndina. Og
kórinn segir i oröastaö hans
aö það komist ekki önnur hugs-
,un aö en reiði vegna hins bann-
aða losta sem leggst um mig
eins og myrkur. Ég er oröinn
aö djöfli sem dvelst i helviti
minna myrku þanka, óveöursský
ástriðna minna. Og þannig
fer fram tvital afturgöng-
unnar og kórsins um hans
hugsanir unz draugurinn þrifur
prinsessuna, og skipar henni aö
slá trumbuna með sál hennar á
valdi sinu og ann henni ekki eirð-
ar, og fer um sál hennar fári, fyll-
ir angist svo hún hrópar: Hvað
hef ég gert, meö hvaöa illu sæði
hef ég sáð til slikrar uppskeru?
Unz meö formælingum hverfur
draugurinn aftur, einn af djöflum
næturheimsins niður i hvirfil lost-
ans, syngur kórinn
f No-leikjunum er óspart gengiö
aftur. Þar fá smáöir einatt upp-
reisn eftir dauöa, þegar þeir birt-
ast á ný og skiija allt, vita ailt. 1
þessum japönsku leikjum er rik
virðing fyrir valdi samfara sam-
úð meö hinum smáða. Stundum
býr andi hetju framliðinn i fátæk-
um munki. Erfiðismaöurinn, hinn
hrakti birtist aftur sem glæst
hetja handan viö dauða, samurai
eöa prins; gamla raunum mædda
konan þarf ekki nema aö veröa
draugur til aö veröa prinsessa.
Þannig visar hin fágaöa hirðlist
aðalsins alþýöunni á upphafningu
draugsins.
Silkitromma
Mishima
Þetta magnaöa efni No-leiksins
færir Atli i gerviveröld samtima
meö glysfrekju hennar og auglýs-
ingaharki, tómleika og tilfinn-
ingadoða. Hinn forni No-leikur
verður honum hugvaki og upp-
spretta til að skap# verk sem i
einfaldri sögu má túlka á ýmsa
vegu, persónulegt uppgjör tón-
skáldsins.
Það eru fleiri en Atli sem hafa
nýtt hið forna efni No-leiksins. Til
er nútimaverk eftir japanska
skáldið Yukio Mishima, höfund-
inn snjalla sem framdi íyrir
nokkrum.árumkviöristu, sepukku
eða harakiri, og liggur mikiö og
margþætt verk eftir hann þótt
ekki yrði hann gamall, skáldsög-
ur og smásögur, og svo fimm nú-
tima No-leikrit. Silkitromman er
eitt. Persónur eru jafn margar og
hjá Atla, utan tvær aukapersón-
ur; en textinn skáldlegur og upp-
hafinn, lýriskur. Gamii maðurinn
vinnur nú á skrifstofu lögfræðings
sem hefur litiö að gera. Uppi á
þriöju hæð. Hægra megin. Gata á
milli húsa, bali þar meö lárviöar-
runna. Vinstra megin á þriöju
hæö i húsi er tizkuverzlun. Trió
þar: Fujima kennari I klassiskum
japönskum dansi; Toyama ungur
maður; Kaneko embættismaður i
utanrikisráöuneytinu, og stendur
til aö hann veröi sendiherra.
Tveir siöastnefndu eru skólafé-
lagar, gamlir vinir. Auk þess
kemur þangaö Madame eigandi
tizkuverzlunarinnar. Og svo er
hm fagra Hanako Tsukioka sem
sá gamli elskar og skrifar bréf til.
Ennfremur kemur þangaö stúlka
sem hefur fyrst og fremst þaö
hlutverk aö fara meö bréfiö; þaö
lendir nú i höndum triósins sem
fer að lesa utanáskriftina: til
prinsessu lárviöar mánans. Aður
voru þeir búnir aö tala um hvaö
Madame kæmi seinUÞað er ófært
aö láta karlmenn biöa I tizkusal,
segir ungi maðurinn. Svo kemur
Madame loksins og er i hærra lagi,
og segir: En hvaö þaö var indælt
að þiö gátuö allir komiö. Þaö er
komiö ástarbréf til yöar, segir
Toyama hinn ungi. En af ávarps-
orðunum sér hún aö þaö er ekki
ætlað henni, og segir aö þaö sé
enginn friður fyrir þessu bréfa-
flóöi úr húsinu á mótir Gamall
maðurinn, næstum fimmtugur!
Hann hefur oröið ástfanginn af
frú Tsukioka i gegnum gluggann.
Ráöuneytismaöurinn segist ekki
vera hissa þvi að sagt sé aö maö-
ur veröi fjarsýnn meö aldrinum,
og hlær aö sinni eigin fyndni.
Madame segist ekki hafa sýnt
hinni bréfin heldur notað þau öll
til aö hreinsa hundakambana
sina. Þau kankast á i hálfkæringi
og velta þvi fyrir sér hvort hlaupi
hraðar ástin eöa hundurinn. Mad-
ame: Það stigur mér til höfuös að
tala viö svona sjarmerandi herra.
Og svo framvegis.
Þá kemur Hanako. Ungi mað-
urinn faömar hana: Þetta var
grimmdarlegt af yður, þér komiö
aftur of seint. En hún svarar ekki
og tekur brosandi af sér glófana.
Svo kemur að þvi aö ráöuneytis-
stjórinn og ungi maðurinn lesa
bréfiö á vixl upphátt yfir öxlina á
Hanako, og þegar það endar á þvi
að biðja bara um einn einasta
koss bresta allir I hlátur.
Þau skopast óspart aö bréfinu
og ást gamla mannsins og ræöa
ástina og annað á kaldranalegan
hátt. Og fara aö drekka kaffi, þá
segir danskennarinn aö sér detti
dáltið i hug og vefur purpuralitu
silki utan af trommu sem hann
segir að sé leikmunur, og heyrist
ekkert i henni. Sér hafi komið i
hug að festa bréf við trommuna
og kasta henni til gamla manns-
ins og segja honum að berja
bumbuna; og ef hljóðiö nái i gegn-
um háreysti götunnar veröi hann
bænheyrður. Og Hanako sam-
þykkir brosandi; og segir fátt, þó
allt snúist um hana.
Hinn roskni elskandi gripur
trumbuna og fyllist sárri eftir-
væntingu og ávarpar lárviðinn og
segir: Fyrirgeföu að ég hengi
trommuna i græna hárið þitt, en
hún fer þér vel eins og djásn hafi
fallið af himnum ofan i háriö þitt,
og segir trénu aö sorg sin hafi
gert þaö fegurra.
Og loksins slær hann trommuna
eftir nokkurt hik. Æ ákafar. Ekk-
ert hljóð. Þeir hafa skopazt að
mér, segir hann og hnigur grát-
andi niöur: Að svona glæsileg
dama geti verið svona auviröileg.
Hlátur fyrir handan, gluggan-
um skeilt aftur þar.
Já hlæiöi hlæiöi bara.... hlæiði
meöan þiö liggiö og rotnið.... sá
sem er hlegið aö hann hlýtur ann-
an dauða, hann rotnar ekki, segir
hann og kastar sér út um glugg-
ann án þess að hinir veröi varir
við fyrr en dyrnar opnast þar og
fréttin berst, þá hlaupa allir upp
með skelfingu, sumir aö gluggan-
um, aörir til dyra. Hanako stend-
ur ein á miðju sviöi, stirönuð eins
og stytta.
Hann gengur vitanlega aftur,
og þau tvö ræöa saman. Hún kom •
til herbergis hans þar sem hann
var afturgenginn; og ann heúni
enn. Hann hótar henni bölvun
þegar kemur i ljós i talinu hve
spillt hún var. Hún óttast þaö
ekki. Nú er ég sterk, segir hún;
vegna þess aö hann elski hana. Og
segir honum aö horfa á sig: Hann
elski ekki þá sem hún sé i raun og
veru,- og segir honum aö slá
trumbuna. Nú heyrist i trumb-
unni(-en hún segist ekkert heyra.
Hún lætur hann slá hana hundraö
sinnum; unz hann hverfur, en hún
hrópar angistarfull: Hann er
horfinn! Klukka fer að tifa; leikn-
um lýkur þannig aö hún segir likt
og i draumi: Hefði hann bara
slegiö trumbuna einu sinni enn,
þá heföi ég kannski heyrt i henni.
Til hamingju Atli meö þina
trommu. Þaö heyrist I...
P.S. Nú er kominn til okkar leik-
flokkurinn góöi og frægi frá Suö-
ur-Ameríku Rajatalba, sem eng-
inn má missa af. Bienvenidos!