Þjóðviljinn - 12.06.1982, Side 17
Helgin 12.-13. júní 1982 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 17
hreyfingin vex nú ört meöal ung-
linga. Aö nokkru ley ti stafar þetta
af því, aö nafnfrægir popparar,
guöir táninganna eru óhræddir
viö aö taka þátt i baráttunni.
Þannig hafa stundum frægar
hljómsveitir eins og Jam mætt
fyrirvaralaust i göngur og á fundi
og spilaö ofanaf vörubilspalli
ungum til mikillar gleöi en göml-
um til armæöu. Minni háttar
hljómsveitir allt frá móhikana-
klipptum pönkurum niöur i hálf
fasiska skinnhöföa eru lika und-
antekningarlitiö á móti sprengj-
unni. En nú ætlar ihaldiö ekki aö
gefa sliku liöi kost á aö spilla æsk-
unni: Michael Heseltide ráöherra
og forsvarsmaöur almennings-
garöa bannaöi aö nokkur tónlist
yröi flutt i Hyde Park aö viölögö-
um ströngum refsingum.
Mótmæli
kvennahóps
Aö frátöldum ,,dr. Reimarsson
from Iceland” skutu mörg önnur
fallstykki föstum skotum og laus-
um. E.P. Thompson sem nýveriö
var á Islandi ræddi um Falk-
landseyjaævintýri Breta og ásak-
aöi f jölmiöla um striösæsingar og
aö ljúga beinlinis aö almenningi
um máliö.
Tony Benn tók I sama streng en
taldi jafnframt mikinn sigur fyrir
hreyfinguna hversu þátttaka á
fundinum var góö, þar sem áöur
var taliö aö þjóöernisáróöur fjöl-
miöla myndi aö likindum fæla
marga frá. „Viö þurfum aö tvö-
falda starfiö eftir aö Falklands-
eyjastriöiö er úr sögunni”, sagöi
Tony.
Mikil valkyrja og mögnuö
ræöukona úr Verkamannaflokkn-
um, Judith Harp, hélt ræöu um
friöarást flokksins. En þaö var
hoiur hljómur i þvi, enda hefur
flokkurinn nánast stutt ihaldiö i
Falklandseyjastriöinu. Talsverö-
ur hópur fólks framan viö ræöu-
pallinn reyndi aö hrópa hana niö-
ur, en þá magnaöist hún svoleiöis
aö næstum allur fundurinn titraöi
i takt rétt eins og menn heföu
fengið eitthvaö beint i æö.
Oddviti námumanna, Arthur
„kóngur” Scargill sagöi orö ekki
nóg, nú væri kominn timi til aö
láta athafnir tala. Arthur lagöi til
óhlýöni viö lög og yfirvöld lands-
ins til aö leggja áherslu á mál-
staöinn.
Merkilegasta framlagiö kom
> liklega frá kvennahópi sem hefur
einmitt um nokkurt skeiö haft
frammi mótmæli af þvi tagi sem
Arthur Scargill boðaði. Þær hafa
slegið tjaldbúöum framan viö
tvær herstöövar i Englandi þar
sem kjarnorkuvopn eru geymd.
Tiltækiö hefur vakið mikla at-
hygli I Bretlandi, ekki sist þegar
veröir laga og réttar fleygöu öör-
um hópnum I bókstaflegri merk-
ingu út af tjaldstæðinu.
Lögreglan kvik-
myndaði fundarmenn
Lögreglan kom annars nokkuö
viösögu á fundinum. Þyrilvængja
á hennar vegum sveimaöi stööugt
yfir fundarfólki svo oftlega
heyröust ekki oröaskil. Eftir aö
ræðumenn höföu nokkrum sinn-
um þurft aö gera hlé á máli sinu
sökum hávaöa féllst lögreglan á
aö taka þyrilvængjuna úr umferö.
Þá sætti tiöindum aö kvik-
myndaliö frá Scotland Yard
filmaöi fundarmenn i griö og erg
og þykir nokkuð augljóst I hvaöa
tilgangi. Tiltækiö hefur nú veriö
kært. Þetta sýnir hins vegar
hversu islenska lögreglan er mik-
ill eftirbátur bræöra sinna i út-
löndum þvi hún lætur sér nægja
aö brúka einungis ljósmyndavél-
ar á fundum Samtaka herstöðva-
andstæöinga.
island ekki
i Evrópu?
Bakviö ræöupallinn á fundinum
var mikilúöleg mynd af Evrópu
vafinni i vitisloga kjarnorkunnar.
Yfir sérhverju landi var svo letr-
aö stórt Nei á viökomandi þjóö-
tungum. tsland vantaöi hins veg-
ar á myndina og þótti afleit
landafræöi. Vonandi var þaö ekki
fyrirboöi um þaö gjald sem viö
þurfum aö greiöa fyrir Keflavik-
urstööina ef kemur til kjarnorku-
striös milli austurs og vesturs.
(Meö aöstoö
talþráös, —óg.)
Engar kjarnorkustöövar — Evrópa krefst framtiöar. Ræöumanninn þekkjum viö ekki en I baksýn er myndin af Evrópu vafinni I vitisloga
sprengjunnar — en tsland er af einhverjum ástæöum ekki meö á myndinni.
lAnnaö veifiö hellirigndi og var þá allt tiltækt notaö til skjóls og hllföar
Bæir og borgir þar sem Verkamannaflokkurinn hefur meirihluta, hafa
lýst sig kjarnorkuvopnalaus svæöi. A sunnudaginn lýsti borgarstjórn
Lundúna yfir kjarnorkuvopnalausri höfuöborg. A myndinni sést áletr-
aö spjald þar sem segir aö Newbury sé gegn kjarnorkusprengjum og til
hliöar heldur kona á spjaldi: Banniö sprengjuna!