Þjóðviljinn - 12.06.1982, Page 23
Helgin 12.-13. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 27
Trident-kafbátar: biskupinn ltkti þeim við útrýmingarbúöir nasista.
Spellman kardináli með Adenauer: kaþólikar I Bandarikjun-
um voru manna herskáastir I kalda striðinu.
En hér vorum við að tala um hinn
versta möguleika. Von mln er sú
að heimurinn andaði léttar ef við
byrjuðum að fækka kjarnorku-
vopnum og aö hitt stórveldiö
myndi fylgja fordæminu.
Sp.Það krefst trausts sem ekki
er fyrir hendi.
H.Við verðum að beina trausti
okkar til guös. Það krefst trúar.
En fyrst þá viröist mér að við
gætum losaö okkur við óttann
sem viö búum við i dag. Við ger-
um okkur sek um hjáguðadýrkun
án þess aö gera okkur þaö ljóst.
Þvi annað er það ekki þegar við
trúum aö drápstæki dauðans veiti
okkur öryggi og velferö.
Auður og vopn
Sp.Þú hefur sagt að kjarnorku-
vopnaforði Bandaríkjanna gegndi
þvihlutverki að vernda rikidæmi.
H. Já. Ég held aö þaö sé sam-
hengi á milli rikidæmis og vopna.
Ef allar tegundir ofbeldis væru
rannsakaðar yrði niöurstaöan
vafalaust sú, að ofbeldi sé einung-
is beitt þegar við viljum halda
einhverju. Meir að segja verða
einsjaklingarnir ofbeldissinnaðir i
persónulegum samskiptum þegar
um eign er aö ræða. Hér stöndum
við I dag og segjum: Ef við vopn-
væðumst ekki áfram, ef við verö-
um ekki áfram voldugasta land
veraldar, þá verðum við skot-
mark. Þessum aöstæðum hefur
Jesús lýst þegar hann segir: „Vei
yður, sem rikir eru”. Hann spáði
þeim ríku að þeir myndu syrgja
og gráta. Ef þetta er hermt upp á
daginn i dag táknar þetta: Ef við
veljum leið hins óskaplega riki-
dæmis og hins óskaplega veldis
munum við fá einmitt það kjarn-
orkustrið sem við hótum öðrum
meö.
Hinir fátæku
Sp.Það er lika fjarstæðukennt
að viö sjáum gifurlega vopnavæð-
ingu i einum heimshluta og hung-
ur i öðrum.
H. Vopnakapphlaupiö er hræði-
legt óréttlæti gagnvart hinum fá-
tæku. Viö sem lifum i þeim lönd-
um sem búa viö velferð og riki-
dæmi leiðum ekki hugann að þvi,
hvað væri hægt að gera i þágu
mannkynsins fyrir þá miljarða
sem við sóum i vopnakapphlaup-
ið. Við ausum af fjársjóðum jarð-
arinnar og eyöum þeim. Annað
Vatikanþingið oröaði það svo:
„Vopnakapphlaupiö er ein mesta
bölvun sem komiö hefur yfir
mannkynið, og sá skaði sem
vopnakapphlaupið veldur i fátæk-
ari löndum er fram yfir það sem
fátæklingar geta borið”.
Kaþólskir menn
Sp.Flestir kaþólikkar i Banda-
rikjunum væru sjálfsagt sam-
mála þér i þessu efni. Fordæmi
þeirra i samstöðunni við trúbræö-
ur I Mið-Ameriku er þannig
dæmalaust. En áöur fyrr voru
bandariskir kaþólikkar „200 pró-
sent föðurlandsvinir”. Hvers
vegna?
H. Eg er nú enginn sagnfræð-
ingur, en ég held aö þetta sé
vegna þess, að mjög margir kaþ-
ólikka heyra til þeirra sem komu
seint til Bandarikjanna. Við kom-
um frá mörgum löndum og með
þessu móti vildum við sýna og
sanna að við værum sannir synir
nýja landsins.
Sp. Sjálfsagt á þetta við um
aöra kaþólska kirkjuhöföingja,
Spellman kardináli, sá góöi vinur
John Foster Dulles og Adenauers
hélt á timum kalda striösins fleiri
þjóðremburæöur yfir fleiri her-
mönnum en margur hershöfðing-
inn. Á dögum Vietnamstriðsins
voru engir friðarbiskupar. Hvað
hefur breyst?
H.Mér leið oft mjög illa á dög-
um Vietnam-striðsins. Oft vildi ég
lika láta til min heyra, en þegar
til kom brast mig kjark. Meiru
skiptir þó, að þá var ekki verið að
ræða um hættuna á kjarnorku-
striði, þó svo hún væri fyrir hendi.
Var það ekki Einstein sem sagði
að á atómöld breyttist allt nema
þankagangur manna. Guöisélof
hefur það nú breyst. Okkur er nú
mörgum ljóst að innan örfárra
minútna geta margar miljónir
manna veriö drepnar. Hvernig
getur maður talað um „réttlátt”
striö, þegar ekki er lengur hægt,
ekki einu sinni fræðilega, að
skilja á milli vopnaðra manna og
saklausra kvenna og barna?
Tækni nútimans hefur leitt okkur
að þeim punkti sem trúin heföi
fyrir löngu átt aö leiða okkur til,
nefnilega aö strið eru engin að-
ferð til þess að leysa vandamál.
Trúaðir
og trúlausir
Sp.Til þess að komast aö þess-
ari niðurstööu þarf maður ekki að
vera kristinn.
H. Areiöanlega ekki. Nýlega
tók ég þátt i útvarpsumræöum
um vopnakapphlaupið og túlkaði
þar trúarlega sannfæringu mina.
Þá kallaði kona frammí: „Ég er
trúlaus en er hjartanlega sam-
mála öllu sem þú segir. Þú þarft
ekki að sanna mál þitt meö kristi-
legum ástæöum”. Kjarnorku-
vandamálið er svo yfirgengilega
stórt að þaö krefst sama andsvars
frá öllu fólki, trúuðu jafnt sem
trúlausum.
Sp. Biskupsdæmi þitt lifir að
hluta til af vopnaframleiðslunni.
Hérna eruBoeingverksmiðjurnar
og stórar herstöðvar. Og Henry
Jackson, þingmaöurinn sem kjós-
endur hafa valiö hvað eftir annað
er einn af þekktari haukunum á
þinginu. Ertu ekki oft sakaöur um
að vilja kippa fótunum undan at-
vinnulifinu hér?
H.Það hefur nú heyrst sjaldnar
en halda mætti i fljótu bragði. En
ég viðurkenni að yfirlýsingar
minar hafa valdið mörgum
manninum sársauka og reiði. Ég
hefi hvatt til ágreinings. En eftir
bréfum aö dæma sem mér berast
— eru 85% bréfritara sammála
mér.
Sp.Nú hefur þú i hyggju aö láta
peningana sem þú neitar að
greiða rikinu i skatt til liknar-
mála. Til dæmis til kvenna sem
vænta barns — og vilja þrátt fyrir
fátækt — ekki fara i fóstureyð-
ingu. Sérðu samhengi i sliku
starfi fyrir lifið og gegn kjarnork-
unni?
H. Vissulega. Hvorttveggja er
spurning um lif eða dauða.
Sp. Virðiö þér viöhorf fólks sem
berst fyrir réttinum til fóstureyö-
ingar — en gegn kjarnorkuvæö-
ingu?
H.Persónulega finnst mér vera
mótsögn i þessari afstööu. En ég
virði slikt fólk ef það hefur komist
að niðurstöðu sinni eftir alvarlega
og heiðarlega ihugun. Ég mundi
reyna að fá fólkiö til þess aö fall-
ast á min viðhorf á sama hátt og
það myndi reyna að fá mig til að
fallast á sin.
Evrópa
og Ameríka
Sp. A liðnum tima hafa hreyf-
ingar borist frá Bandarikjunum
til Evrópu einsog t.d. hreyfing
umhverfisverndarmanna. Nú
hins vegar virðist dæminu snúið
viö með friöarhreyfingunni sem
berst frá Evrópu til Bandarikj-
anna. Hvernig skýrir þú þessa
breytingu?
H. Ef ég væri Evrópubúi og
hefði heyrt nokkrar eldmessur
ýmissa stjórnmálamanna i
Bandarikjunum hefði ég einnig
brugðist hart við. Ég heföi komist
að þeirri niðurstöðu að Evrópa
yrði vigvöllur „takmarkaðs
kjarnorkustriðs”, sem skyndi-
lega var farið að tala mikið um.
Þess vegna voru Evrópubúar lfka
á undan okkur með friöarhreyf-
inguna.
Sp. Straumurinn gegn kjarn-
orkuvopnavæöingu I Bandarikj-
unum er oröinn þaö striður hér að
hann er oröinn að pólitisku afli.
Margt fólk varö hrætt hér þegar
þú kallaðir kjarnorkukafbát af
gerðinni Trident „Auschwitz i
Puget Sound”. Hvernig átti að
skilja þaö?
H.Ég hef þegar sagt aö hér er
verið aö byggja stöðvar fyrir Tri-
dent-kafbáta. Hver Trident -
kjarnorkukafbátur hefur kjarn-
orkuflaugar um borð með eyði-
leggingarmætti sem samsvarar
2040 Hirosima-sprengjum. Tri-
dent-kjarnorkukafbátar eru árás-
ar-vopnakerfi (ekki til varnar),
sem mér finnst vera sérstaklega
siðlaust og glæpsamlegt. Við
munum semsagt hafa vopnakerfi
sem getur afmáð hundruð þús-
unda manna — einsog dauöabúö-
irnar i Auschwitz. Og enn til við-
bótar: Ég held að viö séum samá-
byrg fyrir þvi sem gerist i eigin
garði. Þvi meir sem ég hef lesiö
um þessi mál þeim mun ljósar er
það oröið fyrir mér hve tiltölulega
fáir Þjóöverjar vissu um hvað
var að gerast i Auschwitz. En þeir
sem vissu eitthvað gerðu sig að
vissu leytisamseka. Sama verður
að segja hér og nú: Ef við vitum
um þessi vopn og hrærum hvorki
legg né lið til andmæla, ef við
segjum ekkert, og gerum ekkert,
þá erum við i vissum skilningi
ábyrg fyrir afleiðingunum.
(Snaraðog litillega
stytt úr Spiegel)
—dg-
|PÚTBOÐ|||
Tilboð óskast i gatnagerð, lagningu holræsa, vatns- og
hitaveitulagna i nýtt hverfi i Selás, 4. áfanga.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi
3, gegn 3.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, miövikudaginn 23. júni
n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJ AVIKURBORG AR
Frikirk|uvegi 3 —- Simi 25800
»1982
AÐALFUNDUR
Sölusambands islenzkra fiskframleiðenda
verður haldinn að Hótel Sögu dagana 15.
og 16. júni nk. Fundurinn hefst 15. júni kl.
9.15 f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreytingar.
Stjórn Sölusambands islenzkra fiskfram-
leiðenda.
Stöður garðprófasta
Stöður garðprófasta fyrir stúdentagarð-
ana, Gamla garð, Nýja garð og Hjóna-
garða, eru lausar til umsóknar. Umsóknir
skulu berast framkvæmdastjóra Félags-
stofnunar stúdenta fyrir 1. júli n.k.