Þjóðviljinn - 12.06.1982, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 12.06.1982, Blaðsíða 28
Helgin 12.-13. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 32 Starfsmenn útvarpsins, Gagntílboö á miðvikudag Fjármálaráöuneytið hefur lagt fram tilboð i samningaviðræðum þess og Starfsmannafélags út- varpsins. Starfsmannafélagið skoðaði tilboöið i gær og hefur þegar hafið undirbúning gagntil- boðs. Tilboðið er i mörgum liðum og varðar m.a. kjör tæknimanna sérstaklega. Starfsmannafélagið mun leggja fram sitt gagntilboð á næsta samningafundi n.k. mið- vikudag að sögn Ævars Kjartans- sonar formanns samninganefnd- ar félagsins._______—óg Landsmót LH á Vindheimamelum Nú stendur mikiö til noröur á Vindheimamelum I Skagafirði, hestamannafélögin halda þar Landsmút sitt dagana 7.-11. júli Enginn þarf að efa að margt veröur þar ,,um hestinn” og meira en nokkru sinni fyrr. Þvi hefur nú haglendi verið aukið um allt að helmingi og er það að nokkrum hluta áborin tún. Þá er og unnið að aukningu á tjaldstæð- um og boðið verður upp á sérstak- ' ar fjölskyldubúðir. Aðstaða er göö til veitingasölu. Fáanlegar verða nauðsynlegustu matvörur, reiðtygi og reiðfatnaður. Snyrti- aðstaðahefur verið stórlega bætt. Búist er við að fjöldi útlendinga sæki mótiö og fer undirbúningur- inn fram með hliðsjón af þvi. Þótt mótiö byrji ekki fyrr en 7. júli er gert ráð fyrir að hestamóttaka geti hafist 3. júli. A Landsmótinu verða sýndir um 30stóðhestar og 60-70 hryssur, auk nokkurra hópa frá hrossa- ræktarbúum. Gæðingum verður aö venju skipt i tvo flokka, A og B flokk. Eru alhliða gæðingar i A- flokki en klárhestar með tölti i B-- flokki. Trúlega koma fram um 90 hestar i hvorum flokki. Um 70 unglmgar munu taka þátt i ung- lingakeppni. Skipast þeir i tvo aldurshópa, 12ára og yngri og 13- 15 ára. Fram fer Evrópukeppni og verður það eins konar tilrauna- mót, sem á að leiða i ljós hvort unnt er að halda Evrópumót á Is- landi. Verður keppt i sömu grein- um og á hefðbundnum mótum er- lendis. Gert er ráð fyrir að tveir fulltrúar frá 9 löndum Evrópu, auk Islands, taki þátt i þessu móti. Keppendur fá hesta til þátt- töku á mótinu sjálfu og knapar geta ekki fyrirfram valið sér hest heldur draga þeir um þá. Kvöldvökur verða á föstudags- og laugardagskvöld og margt til skemmtunar. — Mótinu verður svo slitið að afloknum kappreið- um upp úr kl. 17.00 á sunnudag. —mhg Sjónvarpið________ Margrét Bjarnason í erlendar fréttir Liðsauki í Stundina okkar Nú hefur verið gengiö frá ráðn- ingu i stöðu erlends fréttamanns hjá sjúnvarpinu. Þeir ögmundur Júnasson og Bogi Agústsson fá liðsauka frá Margréti Bjarnason. Margrét sækir reynslu i frétta- mannastörf frá (Jtvarpinu og Morgunblaöinu. Hún er lögfræð- ingur að mennt. Þá munu þau Ása Ragnarsdótt- ir og Þorsteinn Marelsson veröa meö Stundina okkar á móti Bryn- disi Schram næsta vetur. Þau munu vinna þættina saman, en að sögn framkvæmdastjóra sjón- varpsins, Péturs Guðfinnssonar, þá kemur það i,hlut Asu aö kynna þáttinn út á viö, þ.e. Þorsteinn sér um efnisval en kemur ekki fram i þáttunum. —húl. Þetta unga fúlk er áreiðanlega ekki sammála fullyrðingu Júnu Bjargar, Klöru og Þúrdisar um að fé lagsllfið væri dauft 1 Sandgeröi. Að minnsta kosti var ekki aldeilis deyfðin yfir börnunum á leikskólan (Ljúsm.—kv.) um I Sandgerði þar sem þessi mynd var tekin Júna Björg Pálsdúttir, Klara Guðjúnsdúttir (með hjúlbörurnar) og Þúrdls Rafnsdúttir — bæjarvinnu- stúlkur I Sandgerði. — (Ljúsm. — kv.) Guðrún Finnsdúttir, Kristln Þúrðardúttir og Harpa Högnadúttir eru 16ára (bráðum 17) úg vinna við þaö I sumar aö súpa stéttir Keflvlkinga. (Ljúsm. —kv.) Við rákumst á þessar þrjár stúlkur I Sandgerði á dögunum þegar við vorum þar á ferð. Þær komu akandi á múti okkur, ábúðarfullar á svip eins og þær væru að fara á mikilvægt stefnu- mút. Við gátum auövitað ekki stillt okkur um að forvitnast um þær. „Við? Við erum i bæjarvinn- unni”, svara þær spurningu blaöamanns. Hvað eru þið gamlar? „Jóna Björg og Þórdis eru 16, Klara er 18”. Eruð þið ekki alltof gamlar til þess að vera í bæjarvinnunni?) Fáiö þið ekki meira kaup I frysti-j húsinu? „Það fer eftir þvi hvort við erum flokksstjórar”, segir Klara, en hún er flokksstjóri. „Þetta er miklu skemmtilegri vinna en fiskurinn”. Þær Jóna Björg og Þórdis luku grunnskólanum i vor. Jóna Björg |ætlar i Menntaskólann aö Laugar-, vatni í haust, en systkini hennar hafa verið þar og likað vel. Þórdis ætlar á iþróttabraut i Fjölbrauta-, skóla Suðurnesja i KeflavikJ Klara er á náttúrufræðibraut i fjölbrautinni. Er skemmtilegt i Sandgeröi? „Já, já”, segja þær Jóna Björg og Klara en þær eru þar bornar og barnfæddar. Þórdis kveður félagslifið heldur dauft. Hún er frá Seyðisfirði og nýflutt til Sand- gerðis. Hún kveður félagslifið á Seyðisfirði hafa verið fjörugt og gott. „Það er bara svona dauft hérna af þvi að það fara allir eitthvað annað”, segir Klara. „Fólk er bara hér til að vinna en heimur- inn stóri fyrir utan”. Og Keflavik er staðurinn sem laðar að. _ast Magnús frá Hafnarnesb______________ Vestmanna- eyjapistlar Hægri sveiflan Jæja, nú er hægri sveiflan dun- in yfir hér I Vestmannaeyjum með tilheyrandi svingi og snún- ingi, loforðum fögrum um mikla malbikun gatna, lækkun skatta o.fl. ofl. Nýr bæjarstjúri hefur verið ráðinn, Ólafur Eliasson, endurskoðandi. En hvar á að taka peningana þegar lækka á fasteigna- og hita- veitugjöld o.fl.? Mér er spurn og sjálfsagt er svo um fleiri. Varla veröur ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur, frekar en vant er, stöðvargjaldið, sem mun skulda bænum drjúgan skilding. Nei, ætli verði ekki notuð sama, gamla að- ferðin, seilst ofan i vasa hins al- menna borgara, láglaunamanns- ins? Það er trú min, enda grát- kórinn gamli tekinn að emja um lélega afkomu, eins og alltaf þeg- ar von er á kauphækkunum til verkafólks og sjómanna. Verkfallsöldur Nú fara verkfallsöldurnar að skella á, mitt i hægri sveiflunni, meðan sigurviman situr enn i kollum sigurvegaranna. Hætt er við að létt verði pyngjan hjá mörgum þvi tið hefur verið rysj- ótt til sjávarins, afli fremur treg- ur þegar á sjó hefur gefið og þar af leiðandi minni vinna. Krónun- um f jölgar jafnt og þétt en kaúp- mátturinn rýrnar aö sama skapi. Margur kvartar undan nýju myntinni, sem reyndar er ekki ný lengur, finnst litið fást fyrir pen- inginn, enda var myntbreytingin, — segi og skrifa — blekking. Það var brýnt fyrir fólki að gleyma gömlu krónunni, en sannleikurinn er sá, að gera verður samanburð á henni og þeirri nýgömlu þegar verslað er. Sumarvinna barna Sumarvinna barna er nú hafin, endamunekkiveitaaf þvi viða er rusl, sem þarf að fjarlægja, ef fegra á bæinn eins og heitið hefur verið. Vestmannaeyjar eru fagur bær frá náttúrunnar hendi. En eins og viðar fýkur rusl upp úr opnum sorptunnum, þvi að i Vest- mannaeyjum er stormasamt, eins og flestir vita. Börnin vinna að hreinsuninni 4 tima á dag. Byrja eftir hádegið og hætta kl. 5. Fyrsti spamaður hægri sveiflunnar Fyrsti sparnaður hægri sveifl- unnar hér var að halda bæjar- stjórnarfund i húsi Sjálfstæöis- flokksins, Höllinni. Aður höfðu þeir verið haldnir i Safnahúsi bæjarins, þar sem enga leigu þurfti að greiða. Þannig sést sér- gæðingsháttur hægri meirihlut- ans. Sjómanna- dagurinn Hátiðahöld Sjómannadagsins hófust við Friðarhöfn á laugar- daginn með þessum hefðbundnu atriðum: Kappróðri, stakka- sundi, koddabardaga og björgun- aræfingu. Veöur var fremur kalt og rysjótt. Á sunnudaginn var byrjað við samkomuhúsið kl. 13. Lúðrasveit- in lék og siðan var hátiöin sett. Skrúðganga var farin að Landa- kirkju og lék lúðrasveitin fyrir göngunni. Siöan var sjómanna- messa i Landakirkju og prédikaöi sr. Kjartan Orn Sigurbjörnsson. Að messunni lokinni var minning- arathöfn við minnisvaröa drukknaðra og hrapaðra og flutti Einar J. Glslason þar ræðu. Vigð- ur var minnisvaröi Oddgeirs Kristjánssonar, tónskálds, sem er heljar mikil fiðla, rakin var bygg- ingarsaga minnisvarðans og hann afhjúpaður og afhentur. Lúörasveitin lék og kirkjukórinn söng. Hilmar Rósmundsson flutti ræðu, sjómenn voru heiðraðir og viðurkenning veitt fyrir björgun- arafrek.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.